Morgunblaðið - 02.01.2019, Page 36
Söngkonurnar Arnhildur Valgarðs-
dóttir, Berta Dröfn Ómarsdóttir,
Elsa Waage, Íris Sveinsdóttir og
Svava Kristín Ingólfsdóttir halda
árlega jólatónleika sína annað
kvöld kl. 20 að Skipholti 21. Þær
kalla sig Jólanornirnar og segjast
halda jólatónleika samhliða því að
þrífa húsin sín og vitja góðra barna.
Jólanornirnar lýsa sér sem kraft-
miklum skellibjöllum sem gáfu sér
ekki tíma til að fara með vitring-
unum þrem að vitja Jesúbarnsins
þar sem þær voru að þrífa hús sín.
Jólanornirnar halda
árvissa jólatónleika
MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Guðmundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik
karla, ákvað í gær að kalla inn
þriðja markvörðinn í landsliðshóp-
inn fyrir þátttöku landsliðsins í
alþjóðlegu handknattleiksmóti
sem fram fer í Ósló síðar í vik-
unni. Ágúst Elí Birgisson var
valinn í gær og veitir þeim Aroni
Rafni Eðvarðssyni og Björgvin Páli
Gústavssyni samkeppni á loka-
sprettinum fyrir HM. »3
Þriðji markvörðurinn
valinn í landsliðið
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Hugmyndin er að gefa innsýn í það
hvernig Flateyri var árið 2018,“ seg-
ir Eyþór Jóvinsson, verslunarmaður
á Flateyri.
Því var fagnað síðasta laugardag,
29. desember, að hundrað ár voru
liðin síðan verslunin Bræðurnir Eyj-
ólfsson á Flateyri fékk verslunar-
leyfi. Af því tilefni var innsiglað
tímahylki sem verður læst næstu
hundrað árin. Í tímahylkinu er að
finna muni, bréf, teikningar og ljós-
myndir sem Flateyringar og aðrir
hafa safnað að undanförnu. Ætlunin
er að gefa kynslóðum framtíðar-
innar smá glugga inn í samfélagið í
dag, rétt eins og bókabúðin veitir
gestum sínum innsýn í samfélagið og
lifnaðarhætti á fyrri hluta síðustu
aldar.
Eyþór segir að Bræðurnir Eyj-
ólfsson sé elsta upprunalega verslun
landsins. Hún er rekin í upphaflegu
húsnæði með upprunalegum innrétt-
ingum og enn af sömu fjölskyldu. Í
dag ræður Eyþór þar ríkjum, en
hann er langafabarn Jóns Eyjólfs-
sonar, sem var einn þriggja stofn-
enda verslunarinnar og verslunar-
stjóri lengst af.
Verslunin byrjaði sem nýlendu-
vöruverslun en þróaðist smátt og
smátt yfir í bókaverslun. Í dag er
rekin þar fornbókasala auk þess sem
gestum gefst kostur á því að líta inn í
íbúð þeirra kaupmannshjóna, en hún
hefur staðið nánast óbreytt frá því
að Jón lést árið 1950. Verslunin er að
vonum vinsæll viðkomustaður ferða-
manna enda er engu líkara en að
fólk stígi aftur í tímann að kíkja þar
inn.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Eyþór að hann hafi ekki yfirsýn um
allt það sem fór í tímahylkið. „Nei,
það verður eflaust spennandi fyrir
fólk eftir hundrað ár að sjá hvað
kemur upp úr kassanum. Við pöss-
uðum upp á að þarna væru öll frí-
merki sem gefin voru út á árinu,
peningaseðlar og mynt sem var í
notkun auk einhverra hluta sem ein-
kenndu árið 2018. Svo var það undir
fólki komið hvað fór þarna ofan í.“
Hann segir að Guðni Th. Jóhann-
esson, forseti Íslands, hafi sent bréf
sem fór í tímahylkið. „Já, hann kíkti
í heimsókn til okkar síðasta haust og
skrifaði held ég eitthvað um þá
heimsókn. En það koma kannski
skrautleg leyndarmál í ljós í bréfi
hans,“ segir hann í léttum tón.
Umrætt tímahylki er raunar gam-
all trékassi sem fannst uppi á háa-
lofti verslunarinnar. Eyþór segir að
hann hafi verið merktur og þéttur og
ætti að geyma munina vel næstu
áratugina. Tímahylkið verður geymt
í anddyri verslunarinnar, fyrst um
sinn hið minnsta.
Aðspurður kveðst Eyþór engar
áhyggjur hafa af öðru en að versl-
unin og verslunarstaðurinn verði
enn í blóma þegar kemur að því að
opna tímahylkið eftir hundrað ár.
„Já, eigum við ekki bara að vona
það? Við erum alla vega búin að
þrauka hér á Flateyri síðustu hund-
rað árin og ég sé enga ástæðu til
annars en að svo verði áfram. Við er-
um alla vega brött í dag.“
Ljósmyndir og
skrautleg leyndarmál
Ljósmyndir/Ágústa Guðmundsdóttir
Innsiglað Eyþór Jóvinsson við tímahylkið í bókabúðinni á Flateyri.
Tímahylki með munum og frásögnum Flateyringa innsiglað
Góss Tímahylkið var fyllt af bréfum, myndum og fleiri munum frá 2018.
Gylfi Þór Sigurðsson var fyrirliði
Everton þegar liðið tók á móti Leic-
ester City í 21. umferð ensku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu í
gær en leiknum lauk með 1:0-sigri
Leicester. Jamie Vardy skoraði eina
mark liðsins. Þetta var annað tap
Everton á skömmum tíma, en liðið
beið lægri hlut fyrir
Brighton á laugardag-
inn.
Aron Einar Gunn-
arsson og sam-
herjar í Cardiff
steinlágu á
heimavelli í
gær fyrir
leikmönnum
Tottenham,
sem komust upp
í annað sæti. »2
Tap og aftur tap hjá
Íslendingunum
TÍMINN VINNUR
MEÐ FLUGKORTINU
Hjá blómlegum fyrirtækjum eru
starfsmenn gjarnan á ferð og
flugi. Með sérstökum afsláttar-
kjörum á flugi eykur Flugkortið
hagkvæmni í rekstri og tryggir
lægri ferðakostnað starfsmanna.
Skerðu niður
ferðakostnaðinn
innanlands
Tryggðu fyrirtækinu þínu Flugkortið á airicelandconnect.is