Morgunblaðið - 14.01.2019, Page 1

Morgunblaðið - 14.01.2019, Page 1
M Á N U D A G U R 1 4. J A N Ú A R 2 0 1 9 Stofnað 1913  11. tölublað  107. árgangur  FINNUR LIST- RÆNT SVIGRÚM Í ÓRÆÐU RÝMI GÖNGUM FAGNAÐ DRAMATÍSK OG MÖGNUÐ SAGA SEM MÁ EKKI GLEYMAST VAÐLAHEIÐARGÖNG OPNUÐ 12 KRISTNESHÆLI 14FJÖLHÆF LISTAKONA 34 Snjóföl á jörðu og hækkandi sól varpaði birtu á Rauðavatnið í gær. Það var ekki amalegt að spretta úr spori á viljugum fáki þótt það væri kalt. Íslenska lopapeysan kom sér vel til að halda hita á knapanum. Í dag er spáð austan 10-18 m/s við Faxaflóa og snjókomu til að byrja með en rigningu eða slyddu seinnipartinn og SV 5-13 með skúrum eða éljum í kvöld. Vetrarstilla við Rauðavatn Morgunblaðið/Hari  Íslenska karla- landsliðið í hand- knattleik tapaði fyrir Evrópu- meisturum Spán- verja, 32:25, í öðrum leik sínum á heimsmeist- aramótinu í München í gær. Íslenska liðið þarf væntanlega að vinna þá þrjá leiki sem það á eft- ir til að komast í milliriðil keppn- innar en Ísland mætir Barein klukkan 14.30 í dag. » Íþróttir Ísland þarf þrjá sigra eftir tap gegn Spánverjum Guðmundur Þ. Guðmundsson  Viðbragðstími í efri byggðum Kópavogs er óviðunandi að sögn Jóns Viðars Matthíassonar, slökkviliðsstjóra Slökkviliðs höf- uðborgarsvæðisins. Áætlað er að ný slökkvistöð verði tekin í gagn- ið nálægt Arnarnesvegi árið 2021, en Jón Viðar segir brýnt að ljúka við veginn enda aukist umferð- arflæði til muna með slíkri stofn- braut. »10 Stytta þarf við- bragðstímann Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Mikil aukning hefur orðið í sókn Ís- lendinga í læknismeðferðir ytra milli ára, til að mynda vegna tann- lækninga. Alls sóttu 1.268 Íslend- ingar sér læknismeðferð erlendis í fyrra, samanborið við 781 árið 2017. Mestur fjöldi var vegna svokall- aðra tilskipunarmála, 816 einstak- lingar sóttu þjónustu ytra en fengu meðferðarkostnað eins og hann væri á Íslandi. Alls greiddu Sjúkratrygg- ingar Íslands 55 milljónir króna til þessa hóps. Árið áður sóttu 243 samskonar þjónustu út fyrir land- steinana. Halla Björk Erlendsdóttir, deildarstjóri í alþjóðadeild Sjúkra- trygginga Íslands, upplýsti að þessi mikla aukning væri fyrst og fremst til komin vegna tannlækninga. Þeim fjölgar hratt sem kjósa að leita sér læknismeðferðar í útlönd- um þó samskonar þjónusta sé í boði hér á landi. Er það gjarnan vegna langra biðlista og að undangenginni 90 daga bið. 114 einstaklingar fengu greiddan uppihalds- og ferðakostn- að vegna slíkra meðferða í fyrra, samanborið við 49 manns árið áður og fimm einstaklinga árið 2016. Lið- skiptaaðgerðir hafa verið algengast- ar í þessum flokki síðustu ár. Alls greiddu Sjúkratryggingar Ís- lands út um 44 milljónir króna vegna þessara meðferða á síðasta ári. Sprenging í læknis- meðferðum erlendis  Alls sóttu 1.268 Íslendingar sér læknismeðferð ytra í fyrra MSífellt fleiri leita... »4 Morgunblaðið/Eggert Skurðaðgerð Sífellt fleiri Íslendingar leita sér læknismeðferðar erlendis. Árna B. Stefánssyni, augnlækni og hellakönnuði, voru nýlega afhent þrjú dropsteinabrot sem tekin voru úr Surtshelli/Stefánshelli líklega fyrir um 100 árum. Dropsteinunum var skilað í kjölfar viðtals við Árna í Morgunblaðinu 10. nóvember sl. Þar var fólk hvatt til að skila drop- steinum úr íslenskum hraunhellum. Bæði dropsteinar og hraunhellar eru nú friðlýstir en þrátt fyrir það fá þessar fágætu myndanir ekki að vera í friði. Dropsteinabrotin, sem var skilað, höfðu gengið í arf á milli kvenna í þrjár kynslóðir. »4 Morgunblaðið/Hari Dropsteinn Eitt brotanna þriggja. Dropstein- um skilað  Fágætar gersemar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.