Morgunblaðið - 14.01.2019, Page 2

Morgunblaðið - 14.01.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Lýstu áhyggjum hjá ríkisendurskoðanda  Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason áttu fund vegna fjármála Flokks fólksins  Ólafur tekur undir gagnrýni Karls Gauta á hendur Ingu Sæland  Telja óeðlilegt að formaðurinn hafi fjárráðin Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason, þingmenn Flokks fólksins, lýstu áhyggjum af fjármálum flokks- ins fyrir ríkisendurskoðanda síðasta haust og gerðu grein fyrir því að Inga Sæland, formaður flokksins, færi með fjárráð hans. Í samtali við Morgunblaðið tekur Ólafur undir gagnrýni Karls Gauta á hendur formanni flokksins sem fram kom í grein hans í Morgunblaðinu á laugardag. Í greininni gagnrýndi Karl Gauti það að Inga Sæland hefði prókúru flokksins og væri jafnframt gjaldkeri hans og að sonur Ingu hefði verið ráðinn á skrifstofu flokksins. Þá áréttaði hann að hann hefði áður gert grein fyrir þeirri gagnrýni á hendur Ingu sem hann lét í ljós á barnum Klaustri í lok síðasta árs, m.a. í sam- tölum við Ingu sjálfa. Ólafur gagnrýndi Ingu einnig „Þetta er gagnrýni sem við höfum báðir haft uppi,“ segir Ólafur og kveðst aðspurður sjálfur einnig hafa gert athugasemdir við formann flokksins um fjár- málin. „Ég lét uppi við formanninn það sjónarmið að ég teldi ekki rétt að fjármál flokksins væru í höndum kjörinna fulltrúa. Þetta gerðum við strax báðir snemma í nóvem- ber árið 2017 á þingflokksfundi, skömmu eftir að við vorum kjörin á þing. Þegar upp komu ráðagerðir nokkru síðar um að ráða einstakling úr fjölskyldu hennar [á skrifstofu flokksins], þá sögðum við við for- manninn að þetta væri eitthvað sem ætti ekki við. Þetta var á fyrri hluta ársins 2018,“ segir Ólafur. Þekkist ekki annars staðar Ólafur segir að þeir félagar hafi báðir haft miklar áhyggjur af þessum atriðum og nefnir að hann þekki ekki dæmi þess að stjórnmálaforingjar hafi með fjármál flokka sinna að gera. „Ég yrði mjög hissa ef þetta væri þekkt í nokkrum flokki hér á landi, annars staðar á Norðurlöndunum eða í Evrópu. Ég hefði haldið að þetta væri viðurkennt sjónarmið. Ég tel að það sé líka viðurkennt sjónarmið að þeim sem fara með opinbert fé ber að sýna ýtrustu aðgát og fara að skýrum ákvæðum laga um þau efni, m.a. um verkaskiptingu. Stjórnmálaflokki og þeim sem hafa verið settir til starfa á hans vegum stafar mikil orðspors- hætta af slíkri skipan mála eins og nú hefur verið staðfest að er uppi hjá Flokki fólksins. Þetta á jafnt við þótt ekki séu uppi neinar spurningar um misferli af nokkru tagi,“ segir hann. Lýstu áhyggjum sínum Á síðasta ári áttu þeir Ólafur og Karl Gauti fund með ríkisendurskoð- anda vegna málsins sem fyrr sagði. Ólafur segir að þeir hafi talið það skyldu sína að upplýsa ríkisendur- skoðanda um þessa þætti í starfsemi flokksins. „Eftirlit með fjárreiðum stjórn- málaflokka er á hendi Ríkisendur- skoðunar. Skömmu eftir að nýr mað- ur tók þar við embætti árið 2018 greindum við honum frá þessum stað- reyndum og lýstum áhyggjum okkar. Við áttum ágætt samtal við hann um eftirlit með fjárreiðum stjórnmála- flokka,“ segir Ólafur. Ólafur Ísleifsson Karl Gauti Hjaltason Inga Sæland Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Stjórn launasjóðs listamanna mun í dag funda vegna úthlutunar úr sjóðn- um sem tilkynnt var um nú fyrir helgi. Einar Kárason rithöfundur hefur lýst furðu yfir því að hafa ekki fengið út- hlutun úr sjóðnum í ár og í samtali við Fréttablaðið kvaðst hann ekki hafa fengið svar frá sjóðnum. Einar hefur starfað sem rithöfundur í um fjóra áratugi og í fjórgang verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Hann vann Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2008 fyrir bókina Ofsa. Fram kom að tíðindin kæmu honum á óvart, en hann hafði ekki kannað hvort hann hefði fengið tölvupóst frá Rannís, sem úthlutar úr sjóðnum, þeg- ar blaðamaður Fréttablaðsins náði af honum tali. Í samtali við Vísi sagði hann að lík- lega þættu verk einhverra annarra rit- höfunda merkilegri en þau sem hann skrifaði. Hann þyrfti nú að finna sér annað að gera. Einar fékk sex mánaða laun úr sjóðnum í fyrra og greindi frá því að frá því hann hefði hætt að fá greiðslur úr sjóðnum á síðasta ári hefði hann ekkert skrifað heldur unnið að margvíslegum öðrum verkefnum. „Allir umsækjendur fengu svarbréf áður en fjölmiðlum var send tilkynn- ingin,“ segir Bryndís Loftsdóttir, for- maður stjórnar launasjóðs listamanna, en sem fyrr sagði verður fjallað um mál Einars í dag. Í stjórninni sitja auk Bryndísar Markús Þór Andrésson, til- nefndur af Listaháskóla Íslands, og Hlynur Helgason, tilnefndur af Bandalagi íslenskra listamanna. Úthlutað var 555 mánaðarlaunum úr launasjóði rithöfunda og bárust 253 umsóknir um 2.745 mánuði í launasjóð- inn. Alls fengu 79 rithöfundar úthlutað úr sjóðnum í ár. Ræða mál Einars í dag  Stjórn launasjóðs listamanna tekur mál Einars fyrir í dag  Gagnrýnir að hafa ekki fengið úthlutað úr sjóðnum í ár Einar Kárason Bryndís Loftsdóttir Samninganefndir iðnaðarmanna og Samtaka atvinnu- lífsins hittast aft- ur í dag til við- ræðna. Síðasti fundur var á laugardaginn var. „Við erum að tala saman, sem er jákvætt,“ sagði Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðn- aðarsambands Íslands og 2. varafor- seti ASÍ. Auk Rafiðnaðarsambands- ins eiga fulltrúa í samninganefnd iðnfélaganna Byggiðn, VM, Grafía, Félag hársnyrtisveina, Félag málm- iðnaðarmanna á Akureyri, FIT og Matvís. Ekki er byrjað að ræða launamál með beinum hætti, að sögn Krist- jáns. Ein meginkrafa iðnaðarmanna er að stytta heildarvinnutíma án launaskerðingar og það er á meðal þess sem rætt hefur verið. „Við höfum lagt fram kröfur iðn- aðarmanna og erum að sjá hvað við komumst langt með þær, líkt og aðr- ir sem sitja við samningaborðið,“ sagði Kristján. Hann sagði að málin ynnust hægt og taldi ekki líklegt að stórra tíðinda væri að vænta í vik- unni. gudni@mbl.is „Við erum að tala saman“ Kristján Þ. Snæbjarnarson Árleg nýársganga Cavalier-deildar Hundarækt- arfélags Íslands fór fram í miðborg Reykjavíkur í gær og kom góður fjöldi eigenda fjörugra fer- fætlinga saman við ráðhús Reykjavíkur áður en gengið var í kringum Reykjavíkurtjörn. Í göng- unni gefst hundaeigendunum færi á að kynnast hver öðrum og hundunum einnig. Þrátt fyrir frostviðri nutu sín allir, hundarnir undir feld- inum og eigendurnir í þykkum úlpunum. Í kringum tjörnina á fjórum jafnfljótum Morgunblaðið/Hari Árleg nýársganga Cavalier-deildar Hundaræktarfélags Íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.