Morgunblaðið - 14.01.2019, Síða 8

Morgunblaðið - 14.01.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 Góð heyrn glæðir samskipti ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. Ríkið áætlar að skattleggja bif-reiðaeigendur um nær 50 milljarða króna á þessu ári. Meira en þriðjungur þeirrar fjárhæðar, um 18 milljarðar króna, á að fara til annarra mála en vegagerðar.    Bjarni Gunnarsson umferðar-verkfræðingur vék að þessu í Morgunblaðinu um helgina og sagði að í ljósi þessa væri eðlilegt að bif- reiðaeigendur væru ekki sáttir við fyrirhugaða vegtolla sem eigi að innheimta aðallega á þremur helstu vegtengingum höfuðborgarinnar.    Vegtollar geta verið gagnlegir tilað ráðast í einstök verkefni á borð við Hvalfjarðargöng á sínum tíma.    Þegar staðan er hins vegar sú aðflestir bifreiðaeigendur eru skattlagðir af miklum þunga, bæði þegar þeir kaupa bíla og þegar þeir nota þá, en stór hluti skattanna fer í annað en vegi, þá er orðið mun hæpnara að leggja á veggjöld til al- mennrar uppbyggingar vegakerf- isins.    Væri slíkum veggjöldum bætt viðnúverandi skatta á bifreiðaeig- endur, sem að stórum hluta fara til annarra verkefna en vegagerðar, þá væri erfitt að halda öðru fram en að í raun væri um aukna almenna skattlagningu að ræða.    Verði aðrir skattar á bifreiða-eigendur lækkaðir á móti og tryggt að bifreiðaskattarnir sem eftir væru færu allir í vegagerð væru hugmyndir um stóraukin veggjöld annars eðlis. Er þörf á að hækka skatta á bifreiðar? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Eiríkur Ingólfsson við- skiptafræðingur lést á heimili sínu í Fredrik- stad í Noregi 9. janúar, 58 ára gamall. Eiríkur fæddist í Reykjavík 3. júlí 1960 og var sonur séra Ing- ólfs Guðmundssonar, síðar lektors og nám- stjóra, og Áslaugar Ei- ríksdóttur bókavarðar. Eiríkur varð stúdent frá MS 1980 og cand. oecon. frá Háskóla Ís- lands 1985. Hann lauk meistaragráðu í stjórn- un frá BI 2005. Auk þess sótti hann námskeið í verkefnastjórnun og framtíðarfræðum. Eiríkur var m.a. framkvæmda- stjóri SUS 1983-85, framkvæmda- stjóri Félagsstofnunar stúdenta 1986-90 og véladeildar Heklu hf. 1990-93. Var verkefnisstjóri og blaðamaður við Viðskiptablaðið 1993-94 og framkvæmdastjóri ISS- þjónustunnar 1994-96. Hann flutti til Noregs 1997 og starfaði þar m.a. hjá sveitarfélaginu Þrándheimi, sem framkvæmdastjóri Smartnett AS og síðar SiT Bolig AS. Eftir það fékkst hann einkum við verkefnastjórnun og ráðgjöf í Noregi og á Íslandi. Ei- ríkur skrifaði bókina Framtíðin – frá óvissu til árangurs ásamt Karli Friðrikssyni og Sævari Kristinssyni (Reykjavík 2007). Hann tók mikinn þátt í félagsmálum og gegndi ábyrgðar- stöðum í félagsmálum stúdenta á náms- árunum og í starfi Sjálfstæðisflokksins. Eftir að Eiríkur flutti til Noregs tók hann mikinn þátt í starfi Hægri flokksins (Høyre) í Þrándheimi og síðar í Fredrikstad. Hann var formaður flokksins í Fredrikstad. Eiríkur var músíkalskur og var á tímabili umboðsmaður Mezzoforte auk þess að halda utan um heima- síðu hljómsveitarinnar um tíma. Eiríkur kvæntist Sesselju Árna- dóttur kennara 1981. Þau skildu. Þau eignuðust Áslaugu, Leif og Heiðar. Eiríkur lætur eftir sig fjög- ur barnabörn. Hann var í sambúð með Mette Bakken er hann lést. Bálför Eiríks verður gerð í Noregi 22. janúar. Aska hans verður flutt til Íslands og verður haldin hér kveðju- athöfn sem verður auglýst síðar. Andlát Eiríkur Ingólfsson viðskiptafræðingur Sjálfstæðismenn leggja fram tvær tillögur í borgarstjórn á morgun í tengslum við Braggamálið svonefnda. Björn Gíslason, borgarfulltrúi, flytur tillögu um breytingar á innkauparáði þar sem kveðið er á um að vægi eftirlitshlutverks ráðsins verði aukið og kjörnum fulltrúum verði fjölgað úr þremur í fimm. Þá er lagt til að einungis tveir fulltrúar ráðsins geti vísað málum á borði eftirlits- og innkauparáðs til innri endurskoðunar. Þá flytur Örn Þórðarson tillögu um að farið verði yfir ferla sem tryggi að stofnanir og stjórnendur borgarinnar skrái og varð- veiti skjöl í samræmi við lög um opinbera skjalavörslu. Skýrð verði ábyrgð stjórnenda borgarinnar varðandi framúrkeyrslu á fjár- heimildum með sambærilegum ákvæðum og eru í 38. gr. laga um opinbera starfsmenn. Að lokum er lagt til að borgarstjórn sam- þykki að skerpa á og skýra upplýsingagjöf stjórnenda Reykjavíkurborgar varðandi framvindu verkefna, verklegra fram- kvæmda og útgjalda í tengslum við þau. Að sögn Eyþórs Arnalds, oddvita sjálf- stæðismanna, er síðarnefnda tillagan alfarið byggð á ábendingum innri endurskoðunar í umræddri skýrslu, en tillagan um inn- kauparáð beint frá sjálfstæðismönnum komin. „Það þarf engan stýrihóp í þetta, heldur bara að samþykkja þetta. Ég sé ekki hvaða rök eru möguleg á móti þessu,“ segir hann. Leggja til úrbætur vegna Braggans  Sjálfstæðismenn leggja til lausnir í stjórnsýslunni  „Það þarf engan stýrihóp“ Eyþór Arnalds

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.