Morgunblaðið - 14.01.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Staðan í efri byggðum Kópavogs
er óviðunandi hvað varðar við-
bragðstíma,“ segir Jón Viðar Matt-
híasson, slökkviliðsstjóri Slökkvi-
liðs höfuð-
borgarsvæðisins
bs. Hann segir
að út frá faglegu
sjónarmiði sé
tvennt mikilvæg-
ast til að bæta
viðbragðstímann
í Kópavogi, ann-
ars vegar að
ljúka við Arnar-
nesveg og hins
vegar flutningur
á stöð slökkviliðsins við Tunguháls
á lóð nálægt Arnarnesvegi, sem er
á framkvæmdaáætlun árið 2021.
Með Arnarnesvegi aukist umferð-
arflæðið, en mikið álag sé orðið á
gatnakerfinu.
„Í brunavarnaráætlun frá síðasta
vori er viðbragðstíminn greindur á
öllu höfuðborgarsvæðinu út frá
þeim slökkvistöðvum sem við erum
með. Þar kemur fram að breyting
þurfi að verða til þess að bæta við-
bragðstímann í Kópavogi, þá sér-
staklega í efri byggðum. Með þetta
í huga hefur nýrri stöð slökkviliðs-
ins, sem kemur í stað stöðvarinnar
við Tunguháls, verið valinn staður
nálægt Arnarnesveginum.
Við sjáum inni í framtíðinni að
þarna komi stofnbraut sem á eftir
að hjálpa okkur við að stytta við-
bragðstímann í austurhlutanum.
Stofnbrautir eru lykilatriði svo
slökkvilið og sjúkrabílar geti kom-
ist fljótt og örugglega á vettvang,“
segir Jón Viðar.
Í brunavarnaráætluninni kemur
fram að við bestu aðstæður sé við-
bragðstími í Kópavogi innan marka
í 80% tilvika en þá er miðað við að
slökkvilið sé komið á vettvang inn-
an 10 mínútna frá útkalli. Salir,
Kórar og Hvörf í efri byggðum
Kópavogs lendi að miklu leyti utan
þessara marka. Á álagstíma er við-
bragðstími í Kópavogi innan 10
mínútna viðmiðunar í 32% tilvika.
Vegurinn lífsnauðsynlegur
Forsvarsmenn Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins mættu á fund
bæjarráðs Kópavogs nýlega. Farið
var yfir stöðuna og brunavarnar-
áætlun höfuðborgarsvæðisins
kynnt. Á fundinum samþykkti bæj-
arráð Kópavogs eftirfarandi álykt-
un:
„Brunavarnaráætlun Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins undirstrikar
hversu aðkallandi og í raun lífs-
nauðsynlegur Arnarnesvegurinn er
fyrir Kópavog og nágrannasveitar-
félög. Ljóst er að vegurinn er eina
leiðin til að hægt sé að tryggja eðli-
legan útkallstíma slökkviliðs og
sjúkrabíla í stórum hluta Kópa-
vogs. Bæjarráð Kópavogs ítrekar
áskorun til alþingismanna að
tryggja að staðið verði við sam-
gönguáætlun 2011-2023 um að Arn-
arnesvegur sé lagður á árunum
2019-2023.“
Slæm staða í efri byggðum
Stytta þarf viðbragðstíma slökkviliðs í Kópavogi Áætlað að ný stöð verði
tekin í notkun nálægt Arnarnesvegi 2021 Bæjarráð ítrekar fyrri áskorun
Lo
ft
m
yn
di
r e
hf
.
Lenging vegar
1,5 km
Fyrirhuguð lenging
Arnarnesvegar að
Breiðholtsbraut
Hvörf
Kórar
Salir
Seljahverfi
Vatnsenda-
hæð
KÓPAVOGUR
REYKJAVÍK
Fell
Breiðholtsbraut
Arnarnesvegur
Vatnsendavegur
Ar
na
rn
es
ve
gu
r
Jón Viðar
Matthíasson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Nokkurrar óánægju virðist gæta
meðal félagsmanna BHM eftir að
tilkynnt var um skerðingu á úthlut-
unum úr sjúkrasjóði félagsins í síð-
asta mánuði. Eins og hjá fleiri
stéttarfélögum hefur umsóknum
um sjúkradagpeninga fjölgað um-
talsvert að undanförnu og ákvað
stjórn sjóðsins að tryggja rekstur
hans með þessum hætti.
Ýmsar skerðingar voru kynntar.
Sjúkradagpeningar eru nú greiddir
að hámarki í níu mánuði í stað tólf
mánaða, gleraugnastyrkir, fæðing-
arstyrkir, tækni- og glasafrjóvgun-
arstyrkir voru lækkaðir og þannig
mætti áfram telja. Þá var heilsu-
ræktarstyrkur skertur úr 25 þús-
und krónum á ári niður í 12 þúsund
krónur. Sú skerðing virðist einmitt
standa nokkuð í félagsmönnum og
furða margir sig á því að heilsuefl-
ing sé skorin niður til að reyna að
stemma stigu við aukinni ásókn í
styrki vegna heilsuleysis.
„Og ætliði að draga úr heilsu-
styrkjum til að mæta þessari þró-
un? Er ekki ráðið einmitt að auka
heilsustyrk til þess að fyrirbyggja
notkun sjúkrasjóða? Mikið finnst
mér þetta röng aðferðafræði hjá
ykkur,“ skrifaði Hanna Björg Kon-
ráðsdóttir á facebooksíðu BHM og
hlaut góðar undirtektir. Fleiri
leggja þar orð í belg og furða sig á
þessari ákvörðun.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, for-
maður BHM, kvaðst í samtali við
Morgunblaðið ekki hafa heyrt af
umræddri gagnrýni. „Stjórn
sjúkrasjóðsins ber ábyrgð á rekstri
og tekur ákvarðanir eins og þessa
og kynnir fyrir aðildarfélögum. Að-
alverkefni sjóðsins er að greiða út
sjúkradagpeninga og það þarf auð-
vitað að hafa í huga þegar svona
ákvarðanir eru teknar. Að sjálf-
sögðu er það ekki til vinsælda fallið
að þurfa að lækka styrki, ég skil
það svo sem alveg, en þetta er ekki
gert að ástæðulausu,“ segir hún.
Maríanna H. Helgadóttir, for-
maður stjórnar sjúkrasjóðs BHM,
segir að niðurskurðurinn hafi verið
sársaukafull aðgerð en nauðsynleg,
ellegar hefði sjóðurinn verið rek-
inn með 57 milljón króna halla í
fyrra. „Sorglegast var að þurfa að
skerða sjúkradagpeningana. Við
hefðum gjarnan viljað halda
heilsuræktarstyrknum óbreyttum
enda forvarnarhluti að fólk stundi
heilsurækt. Það er hins vegar
styrkur sem heggur vel í, það eru
margir sem fá hann. Við vitum líka
að margir fá endurgreiðslur frá
vinnuveitanda vegna líkamsræktar
og þær greiðslur geta verið hærri.“
Hún segir að fyrir lítinn sjóð
eins og sjúkrasjóð BHM muni mik-
ið um þessa auknu ásókn. „Ef
aukning í sjúkradagpeninga heldur
áfram verðum við að skerða styrk-
ina enn frekar og jafnvel sjúkra-
dagpeningana.“ Stjórn sjóðsins
fundar í næstu viku og þá kemur í
ljós hvort umsóknum hafi haldið
áfram að fjölga síðasta mánuðinn.
Maríanna segist ekki vera bjart-
sýn að ásókn í sjúkrasjóð minnki í
bráð enda séu áreiti og streita
vandamál í samfélaginu og algengt
að fólk veikist. „Fólk virðist vera
búið að keyra sig gjörsamlega í
kaf, þetta er vinnumarkaðstengt
vandamál sem samfélagið þarf að
taka á.“
Furða sig á að
heilsustyrkur
sé skorinn niður
Félagsmenn BHM lýsa óánægju með
skerðingar úr sjúkrasjóði félagsins
Maríanna Hugrún
Helgadóttir
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
VR mun standa við hækkun á mán-
aðarlaunum starfsmanna félagsins,
hvort sem kröfurnar verða upp-
fylltar þegar kjarasamningar nást
eða ekki. Þetta staðfestir Ragnar
Þór Ingólfsson, formaður VR.
Mánaðarlaun allra starfsmanna
VR, að formanni og fram-
kvæmdastjóra félagsins undan-
skildum, hækkuðu um 42.000 krón-
ur frá og með 1. janúar 2019, í
samræmi við kröfur VR.
„Það var tekin ákvörðun um að
hækka launin um krónutölu svo að
allir starfsmenn fá sömu krónutöl-
una, eins og er í kröfugerðinni okk-
ar. Það er heimilt að gera þetta,
fylgja góðu fordæmi félagasamtaka
og fyrirtækja og fara eftir kröfu-
gerð stéttarfélaganna okkar.
Starfsfólk VR á rétt á launa-
viðtali einu sinni á ári og þetta er
niðurstaðan eftir þau viðtöl, auk
þess er þetta innan þess ramma
sem við setjum framkvæmda-
stjórninni,“ segir Ragnar.
Aðspurður sér Ragnar ekki fyrir
sér að laun verði hækkuð í pró-
sentum þar sem kröfurnar snúa
einungis að krónutöluhækkunum.
„Krafan okkar er ekki prósentu-
hækkun heldur krónutöluhækkun.
Ég get ekki séð að það verði samið
í prósentum,“ segir Ragnar.
Á miðvikudag mun VR funda
með ríkissáttasemjara og Sam-
tökum atvinnulífsins en Ragnar
segir að eftir þann fund muni línur
skýrast verulega í kjaraviðræð-
unum. Þá muni forsvarsmenn VR
verða vísari um vilja SA til að
koma til móts við kröfur félagsins.
VR stendur við hækkanir
Laun starfsmanna VR hækka, óháð gangi kjaraviðræðna
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu
var kallað út á fimmta tímanum á
laugardag vegna elds sem kom
upp í hjólhýsi á Granda í Vesturbæ
Reykjavíkur. Mikinn svartan reyk
lagði frá hjólhýsinu að sögn sjón-
arvotta.
Einn slökkvibíll var sendur á
vettvang og vel gekk að ráða nið-
urlögum eldsins samkvæmt upplýs-
ingum frá slökkviliðinu á höfuð-
borgarsvæðinu.
Eldurinn kom upp í hjólhýsi og
náði að breiðast út í fólksbíl sem
stóð við hliðina á hjólhýsinu. Bæði
bíllinn og hjólhýsið eru gjörónýt.
Engin slys urðu á fólki en eig-
andi hjólhýsisins var inni í því þeg-
ar eldurinn kom upp, samkvæmt
upplýsingum frá slökkviliðinu, en
hann náði að komast út af sjálfs-
dáðum.
Eldur Bíllinn og hjólhýsið eru gjörónýt.
Eldur í bíl og hjól-
hýsi úti á Granda