Morgunblaðið - 14.01.2019, Síða 11

Morgunblaðið - 14.01.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 Söfnum í neyðarmatarsjóð til matarkaupa hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp slands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í matarsjóðinn Guð blessi ykkur öll Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hafnasamlag Norðurlands auglýsti í síðasta mánuði eftir tilboðum í leng- ingu Tangabryggju á Akureyri. Tvö tilboð bárust í verkið og var það lægra frá Árna Helgasyni á Ólafsfirði, 168,4 milljónir króna. Bryggjan verður lengd um 168 metra til suðurs og verður hún lengd alveg að Oddeyrarbryggju. Tanga- bryggja verður eftir þetta tæpir 370 metrar. Lengingin er gerð til að bæta að- stöðu við lestun og losun á skipum inn á athafnarsvæði Eimskipa, að sögn Péturs Ólafssonar hafnar- stjóra. Auk þess sem þetta kemur til með að bæta verulega aðstæður við losun skipa við fóðurverksmiðju Bú- stólpa. Jafnframt munu skemmti- ferðaskip nýta þessa viðbót. Lengingin er nauðsynleg til að mæta þeirri aukningu sem orðið hef- ur á síðari árum í komum frakt- og skemmtiferðaskipa til Akureyrar, að sögn Péturs. Gríðarleg aukning hefur verið á komum skemmtiferðaskipa til Akur- eyrar á undanförnum árum. Í fyrra voru skipakomur þangað 138, en til samanburðar voru þær 63 árið 2013. Ef bætt er við skipakomum til Grímseyjar og Hríseyjar, eru þær alls 179. Með þessum skipum komu 127.918 farþegar og í áhöfn voru 56.611. Þjóðverjar voru lang- fjölmennastir í hópi farþega, eða rétt tæplega 40 þúsund. Lenging Tangabryggju felst m.a. í því að steypa um 216 metra langan kantbita með pollum, kanttré, stig- um og þybbum. Þá þarf að fylla upp fyrir innan þil, alls um 6.000 rúm- metra. Þá felst í verkinu niðurrif á Sverrisbryggju framan við Bú- stólpa. Stálþilsrekstri skal lokið fyrir 1. maí 2019 og verkinu í heild eigi síðar en 1. júlí 2019. Mikil fjölgun á skipakomum  Tangabryggja á Akureyri verður lengd um 168 metra  Verkinu lokið á þessu ári  Nýtist skemmtiferðaskipum Ljósmynd/port.is Tangabryggja Skemmtiferðaskip liggur við bryggjuna og flutningaskip á siglingu. Bryggjan verður lengd í suðurátt. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Eignardómsstefna var höfðuð fyrir Héraðsdómi Suðurlands 21. desem- ber 2018 til öflunar dóms um eign- arrétt íslenska ríkisins yfir jörðinni Felli í Mýrdalshreppi. Þetta kom fram í Lögbirtingarblaðinu 11. jan- úar sl. Forsaga málsins er sú að ríkið seldi 21. mars sl. jörðina Fell til Skógræktarfélags Reykjavíkur, en kaupsamningi var vísað frá þinglýs- ingu hjá sýslumanninum á Suður- landi með þeim rökum að ekki virtist vera til að dreifa þinglýstri eignar- heimild að Felli og að útgefanda skjalsins brysti því heimild til eignar á þann veg er í skjalinu greindi. Af þessum sökum telur ríkið óhjá- kvæmilegt að höfða eignardómsmál til að öðlast með dómi formlegt heimildarskjal til staðfestu á eignar- rétti sínum að jörðinni. Saga jarðarinnar ítarlega rakin Í eignardómsstefnunni er saga jarðarinnar rakin í löngu máli og ým- is rök talin til. Heldur íslenska ríkið því fram að jörðin Fell hafi um aldir verið í eigu ríkisvalds á Íslandi á hverjum tíma frá því Kristján kon- ungur þriðji í Danmörku sló form- lega eign sinni á eignir klaustra landsins eftir siðaskiptin, þar á með- al jarðeignir klaustranna. Þannig hafi konungsvaldið frá miðri sex- tándu öld og fram á þá nítjándu farið með eignarráðin allt þar til innlent ríkisvald hafi tekið yfir jarðirnar. Þá er vísað til ýmissa heimilda um eignarhald jarðarinnar eftir nítjándu öld. Fram kemur m.a. að árið 1988 hafi verið undirritaður samningur milli landbúnaðarráðuneytisins og Skógræktarfélags Reykjavíkur um leigu á jörðinni til skógræktar. Þá hafi ráðuneytið staðfest samning Skógræktarfélags Íslands og Skóg- ræktarfélags Reykjavíkur um land- græðsluskóg og hann hafi m.a. náð til jarðarinnar samkvæmt leigu- samningnum frá 1988. Með stefnunni stefnist hverjum þeim sem kann að telja sig eiga rétt til Fells til þess að mæta á dómþing Héraðsdóms Suðurlands 20. febrúar nk. og sanna rétt sinn til jarðarinnar og mannvirkja á henni. Vilja eignarrétt sinn staðfestan  Eignardómsmál höfðað vegna Fells  Ríkið lýsir yfir eignarrétti að jörðinni Dómsmál Málið er höfðað fyrir Héraðsdómi Suðurlands. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Ýmsar athugasemdir við starfsemi héraðsskjalasafna hér á landi eru gerðar í skýrslu Þjóðskjalasafns Ís- lands sem kom út í desember. Skýrslan er unnin upp úr niðurstöð- um eftirlitskönnunar sem gerð var meðal héraðsskjalasafnanna árið 2017. Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að rafrænni skjala- vörslu sé víðast hvar ekki sinnt eins og reglugerðir gera ráð fyrir. Samkvæmt könnuninni tók ekkert héraðsskjalasafn á Íslandi við raf- rænum gögnum frá afhendingar- skyldum aðilum til varðveislu árið 2017. Borgarskjalasafn Reykjavíkur er eina héraðsskjalasafnið sem hefur hafið rafræna skjalavörslu. Í skýrslunni er ýmislegt fleira fundið að starfsemi héraðsskjala- safnanna. Meðal annars er tekið fram að eftirliti með skjalavörslu og skjalastjórn afhendingarskyldra að- ila sé ábótavant, samþykkt mála- lykla og skjalavistunaráætlana sé verulega ábótavant og að afritun mikilvægra skjala sé „skammt á veg komin“. Þá er bent á að hjá mörgum héraðsskjalasöfnum uppfylli skjala- skráning ekki reglur og staðla og að skýrslugjöf til Þjóðskjalasafnsins sé af skornum skammti. Raunar sendi aðeins þriðjungur safnanna Þjóð- skjalasafni skýrslur og víða var lítið yfirlit haft með starfsemi safnanna. Niðurstöður skýrslunnar eru ekki neikvæðar að öllu leyti. Tekið er fram að skjalageymslurnar tryggi að mestu varðveislu safnkostsins og að öll söfnin sinni miðlun hans eins og ætlast sé til. Jafnframt sé aðstaða fyrir gesti víðast hvar góð. Þörf sé þó á auknu geymsluplássi. Fundið að starf- semi skjalasafna  Rafrænni skjalageymslu hvergi sinnt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.