Morgunblaðið - 14.01.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 14.01.2019, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 Opnunarhátíð Vaðlaheiðarganga Guðni Einarsson gudni@mbl.is Viðamikil opnunarhátíð Vaðlaheið- arganga var haldin á laugardaginn var, 12. janúar. Umferð hófst um göngin 21. desember sl. og var þeim lokað á laugardag vegna hátíðar- haldanna. Talið er að um eitt þúsund gestir hafi verið viðstaddir. Formleg vígsla hófst klukkan 15.00 við gangamunnann Fnjóska- dalsmegin. Þar fluttu ávörp Hilmar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Vaðlaheiðarganga hf., Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, Kristján Þór Júlíusson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar. Vandræðaskáldin og Friðrik Ómar Hjörleifsson fluttu tónlist við athöfnina. Dagurinn hófst með nýársmóti Hjólreiðafélags Akureyrar og þeysti hjólreiðafólkið um á fákum sínum í hlýjum og þurrum göngunum. Eftir hjólreiðamótið fóru gönguskíða- menn á hjólaskíðum í gegnum göng- in. Einnig var opin hlaupaæfing á vegum hlaupahópsins UFA-Eyrar- skokks á Akureyri. Boðið var upp á rútuferðir frá verslunarmiðstöðinni Glerártorgi á Akureyri fyrir skíða- göngufólk og hlaupara. Opið hús var í gamla barnaskól- anum á Skógum í Fnjóskadal klukk- an 12-17. Einnig var opinn kynning- ardagur í Vaðlaheiðargöngum frá 13-15. Sýning var um framkvæmd ganganna. Norðurorka var með kynningu um heitt og kalt vatn í göngunum. Þá bauð World Class upp á líkamsrækt og hópur fólks tók vel á því í heitum göngunum. Söng- félagið Sálubót, Kristján Edelstein, Andri Snær og Þórhallur, hljóm- sveitin Angurværð og Marimbasveit Þingeyjarskóla fluttu tónlist. Að at- höfn lokinni var kaffisamsæti í Vals- árskóla á Svalbarðsströnd. Borðaklipping Hólmfríður Ásgeirsdóttir á Hallandi á Svalbarðsströnd, f. 1927, og Friðrik Glúmsson í Vallakoti í Þingeyjarsveit, f. 1919, klipptu á borða til marks um formlega opnun. Líkamsrækt World Class Akureyri bauð upp á líkamsræktartíma inni í neyðarrými Vaðlaheið- arganga. Þar inni var mjög hlýtt og tók hópur kvenna duglega á því á æfingunni. Vaðlaheiðargöng formlega opnuð  Um eitt þúsund manns komu á opnunarhátíðina  Fjölbreytt dagskrá í göngunum allan síðasta laugardag  Hjólað, gengið, hlaupið og hjólaskíðað í gegnum göngin  Sýningar og kaffisamsæti Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Fjölmenni Um eitt þúsund gestir voru viðstaddir vígsluhátíðina. Boðið var upp á rútuferðir frá Akureyri og þurfti að fjölga ferðum til að anna eftirspurn. Tónlistarflutningur Vandræðaskáldin Vilhjálmur B. Bragaon og Sesselía Ólafsdóttir frumfluttu lag um göngin við formlega vígsluhátíð ganganna. Borðalögð Lögreglustjóri Norðurlands eystra, sýslumaður Þingeyinga, slökkviliðsstjóri og yfirlögregluþjónn á Akureyri voru viðstödd hátíðina. Hjólreiðar Nýársmót Hjólreiðafélags Akureyrar í göngunum. Fyrstir Fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar í gegnum göngin. Vetur úti Utan við göngin var snjór og hálka en inni var hlýtt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.