Morgunblaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 ✝ Sigurbjörgfæddist 1. nóvember 1941 á Stóru-Reykjum og ólst upp á Fyrir- Barði í Fljótum. Hún lést 13. des- ember 2018. Foreldrar hennar voru Sig- urlína Jónína Jónsdóttir, f. 31. janúar 1922, d. 1. febrúar 1994, og Björgvin Abel Márusson, f. 5. nóvember 1916, d. 13. nóvember 1993. Sigurbjörg var elst níu systk- ina, hin eru: Erlendur Jón, f. 1944, d. 2002, drengur, f. 1947, dó í fæðingu, Sigurjóna, f. 1951, Freysteinn, f. 1953, Gylfi, f. 1956, Guðjón, f. 1960, Þröstur Már, f. 1962, og Guð- rún Fjóla, f. 1963. Hinn 30. janúar 1965 giftist Sigurbjörg eftirlifandi maka sínum, Hauki Hannibalssyni, f. í Ísafjarðarsýslu 18. sept- ember 1941. Börn þeirra eru: 1) Heiða Jóna, f. 1964, gift Arnari Stefánssyni. Þeirra börn eru: a) Hanna Steina, í sambúð með Ingimundi Ingi- mundarsyni, þau eiga þrjár dætur. b) Helga Rut, í sambúð með Eyjólfi Eyjólfssyni, þau eiga tvær dætur. c) Stefán Haukur. d) Styrmir Máni. Fyr- sóknarkvenna í Kópavogi, jafnréttisnefndar Kópavogs, fulltrúaráðs Framsóknar í Kópavogi og Nafnlausa leik- hópsins. Sigurbjörg átti sæti í Áfengisvarnarráði Íslands, skólanefnd Kópavogs, svæð- isráði fatlaðra á Reykjanesi, stjórn norræna félagsins í Kópavogi, mæðrastyrksnefnd, velferðarnefnd á vegum LEBK, orlofsnefnd húsmæðra í Kópavogi, og stjórnskipaðri nefnd um málefni aldraðra, svo eitthvað sé nefnt. Sigur- björg var virkur félagi í ITC-- samtökunum (International Training in Communication) og gegndi þar öllum trún- aðarstörfum í deild, ráði og á landsvísu utan að vera lands- forseti. Sigurbjörg hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar frá ýmsum félagasamtökum og má þar helst nefna við- urkenningu frá lands- samtökum og alheims- samtökum ITC fyrir kynningarstörf, viður- kenningu fyrir störf í þágu Glóðar og ljóðahóps Gjá- bakka, frá Félagsmálastofnun Kópavogs fyrir vel unnin störf í félagsmálum, viðurkenningu frá öldrunarráði Íslands fyrir störf í þágu aldraðra og frá bæjarstjórn Kópavogs. Árið 2017 var Sigurbjörg sæmd hinni íslensku fálkaorðu fyrir störf sín í þágu aldraðra. Sigurbjörg verður jarð- sungin frá Digraneskirkju í dag, 14. janúar 2019, klukkan 11. ir átti Arnar Kristin Ísak, kvæntur Elsu M. Magnúsdóttur, þau eiga þrjú börn. 2) Hanna Þóra, f. 1966, hennar börn eru: a) Jóna Rán, sam- býlismaður Máni Fannar Eiðsson. b) Brynjar Örn. c) Berglind. 3) Björgvin Jónas, f. 1969, eig- inkona hans er Cinzia Fiorini, barn: Eva Sóley. 4) Birgir Már, f. 1972 , eiginkona hans er Harpa Rós Jónsdóttir, börn: a) Margrét Björg. b) Birgitta Rós. 5) Sigrún Edda, f. 1975, sambýlismaður Guðbjartur Árnason, synir þeirra eru Hilmar og Haukur. Fyrir átti Guðbjartur Sóleyju, sem er í sambúð með Boga Bogasyni, þau eiga einn son. Sigurbjörg réð sig til starfa sem forstöðumaður Gjábakka árið 1993 og starfaði þar til eftirlaunaaldurs. Sigurbjörg hefur gegnt ótalmörgum trún- aðarstörfum og setið í nefnd- um og ráðum, má þar m.a. nefna Vestfirðingafélagið, landsstjórn Framsóknarflokks- ins, Landssamband Framsóknarkvenna, hún var formaður Freyju, félags fram- Elsku yndismamma mín. Ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa átt þig í mínu lífi. Takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér. Þín yngsta Sigrún Edda. Ég veit ekki hvernig best er að koma orðum yfir þá sorg sem fyllir hjarta mitt elsku besta amma mín, mér finnst svo ósanngjarnt að þú sért farin frá okkur, en þetta er samt skrítin sorg og kannski jafnvel eigin- gjörn. Því ég er að sama skapi glöð að þú skulir loksins vera laus úr hlekkjum sjúkdómsins og komin í þitt rétta ofurfar, verkjalaus á nýju tilvistarsviði með hinum englunum eins og þú ortir svo fallega. Eflaust ertu búin að láta til þín taka eins og þér einni er lagið. En hvað ég mun sakna þín elsku amma mín, þú varst mér svo einstök vinkona. Þú sem varst mér alltaf svo góð, tókst á móti mér og mínum með opinn og risastóran faðm- inn, alltaf með ráð við öllum heimsins vanda, raunverulegum eða ímynduðum. Gast hlegið með mér að aulabröndurunum mínum sem voru varla fyndnir í augum annarra eða bara hvatt mig áfram til að fylgja hjarta mínu, sama hvort það var að safna steinum, verða lögfræð- ingur eða fara berfætt og blá- fátæk í heimsreisu. Alltaf gat ég leitað til þín og mikið sem ég lít upp til þín og visku þinnar. Ofurkonan sem hefur kennt okkur öllum svo ótrúlega margt. Fyrir tíma okkar saman verð ég ævinlega þakklát, og þakklát fyrir allt það sem þú hefur kennt mér. Ég er svo óend- anlega ánægð með ferðina okk- ar saman í vor til Spánar, þar sem við fengum dýrmætar sam- verustundir daglega og fengum að njóta saman, borða góðan mat, versla, leika í búðarleik alla daga með Emelíu Sigurbjörgu. Minningar sem ég mun geyma í hjarta mínu alla tíð. Ég ætla að reyna eftir fremsta megni að halda uppi þínum góðu gildum, einlægni, ákveðni, eldmóði, sanngirni, atorkusemi og elju. Ef mér tekst að hafa tærnar þar sem þú hafðir hælana mun mér líða eins og sigurvegara. Við Emelía Sig- urbjörg höldum áfram að horfa saman á stjörnurnar og senda þér fingurkossa, elskum þig elsku amma mín, fyrirmyndin okkar, guð geymi þig. Þín ömmustelpa, Helga Rut. Mig langar að minnast henn- ar systur minnar í örfáum orð- um. Ég var ungur að árum þeg- ar ég flutti suður frá æsku- stöðvum okkar í Fljótunum og til hennar í Kópavoginn. Þá voru þau Haukur eiginmaður hennar að byggja sér húsið sitt í Hlaðbrekkunni. Ég fékk her- bergi á neðri hæðinni og bjó þar uns ég kom mér upp fjölskyldu sjálfur. Þessi tími mótaði mig mikið og var mér gott veganesti út í lífið. Þessi tími myndaði líka þau djúpu tengsl sem við vorum svo heppin að halda allar götur síðan, en þau voru svo mikilvæg og svo dýrmæt. Sigurbjörg, eða Sillý eins og allir kölluðu hana, var harðdug- legur frumkvöðull. Hún hikaði ekki við að fara ótroðna braut og ryðja hana ef með þurfti. Hún var hrókur alls fagnaðar í fjölmenni og var ófeimin að koma fram og taka orðið. Hún var sú sem sameinaði fólk og hélt því saman, þau eru ófá mót- in sem hún hélt til að ná fólkinu okkar saman og sjá til þess að ættingjar kynntust hver öðrum. Hún var félagsmálafrömuður í eðli sínu og naut þess að hitta fólk og vera meðal vina. Hún var stjórnmálamaður og gegndi ófáum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn sinn Framsóknarflokk- inn. Þar var hún á heimavelli ef svo má segja. Hún var öflugur talsmaður framsóknarkvenna og öflugust þegar á móti blés. Hún var um áraraðir forstöðumaður félagsstarfs aldraða í Kópavogi og rak félagsmiðstöðvar þeirra. Það var gott að koma við í Gjá- bakka og spjalla og fá kaffisopa hjá henni Sillý. Elsku systir, ég kveð þig með miklum söknuði. Þú varst mér fyrirmynd í svo mörgu og svo hjálpleg þegar á móti blés hjá mér. Ég geymi minningu um góða mannveru. Elsku Haukur, Heiða Jóna, Hanna Þóra, Björgvin Jónas, Birgir Már, Sigrún Edda og fjölskyldur ykkar. Missir ykkar er mikill. Guð gefi ykkur styrk til að takast á við komandi tíð. Ég setti nokkra ljóðlínur á blað að skilnaði. Hvíl í friði elsku systir, hafðu þökk fyrir allt og allt. Guð blessi minningu þína. Er hjartað hnoðar brjóstið mitt á hljóðu vetrarkveldi. Þá ljóst var mér að lífið þitt er nú ljós í stjörnu veldi. Til þín ég sótti skjólin mín Stuðning ráð og hvata. Þú gafst mér ráðin góðu þín Svo greiðfær yrði gata. En eftir sitjum sár og klökk í sálu minni hríðar. Hafðu systir hjartans þökk Við hittumst síðar. Gylfi Björgvinsson. Fallin er Íslands væna freyja voru orð sem komu upp í huga mér þegar mér bárust þær fregnir að svilkona mín Sigur- björg væri fallin frá. Hugurinn leitaði strax til vormánaða þegar tilviljun réði því að við vorum saman í Torrevieja á Spáni um vikutíma og áttum þar góðar stundir saman með fjölskyld- unni. Þá sem oft áður dáðist ég að þessum kvenskörungi sem hafði alið upp stóran barnahóp, farið í háskólanám eftir að hafa komið börnum til manns, tekið virkan þátt í stjórnmálum til að efla hag íbúa þessa lands, mótað og byggt upp félagsstarf aldr- aðra í Kópavogi af miklu móð svo eftir var tekið og nært lista- gyðjuna með því að færa henni ljóð og stökur. Kynni mín af Sigurbjörgu hófust alllöngu áður en við tengdumst fjölskylduböndum. Móðir mín og hún voru góðar vinkonur sem höfðu kynnst í tengslum við þátttöku í stjórn- málum. Þær voru báðar sanntrúaðar framsóknarkonur sem unnu ótrauðar að því að beita sér fyrir ýmsum framfara- málum og höfðu báðar gegnt formennsku og stjórnarstörfum í Freyju, félagi framsóknar- kvenna í Kópavogi. Á uppvaxt- arárum mínum fylgdist ég með þeim vinna hörðum höndum með gleðina, bjartsýnina og ástríðuna að vopni við að koma upp húsnæði fyrir félags- starfsemina, vinna að fjáröflun fyrir afsteypu af verki Gerðar Helgadóttur við Listasafn Kópa- vogs auk ýmissa framfaramála. Þá var ekki laust við að ég von- aði að ég yrði sama atorku- manneskjan og þetta tvíeyki þegar fram liðu stundir. Sigurbjörg var harðdugleg og áhugasöm um flest sem tilheyrði mannlífi, ræktun og velferð borgaranna. Hún var heiðarleg og trygg og mikill gleðigjafi enda ósjaldan fengin til að vera fararstjóri í ferðum innanlands og utan enda naut hún þess að vera með fólki og ferðast. Hún ræktaði fjölskyldu sína og var eiginmanni sínum Hauki afar kær enda hjónin samheldin og fallegt að sjá stuðning þeirra við hvert annað þegar heilsu tók að hraka. Það var gott að koma til þeirra í Kópavoginn, heimilið fallegur griðastaður sem margir höfðu ánægju af því að sækja heim enda var ekki komið að tómum kofanum hvort sem var í viðurgjörningi eða andans fóðri. Sigurbjörg er og verður okk- ur sem henni kynntumst fyr- irmynd sökum mannkosta sinna. Þó að kveðjustundin sé sár er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að vera samferða- maður Sigurbjargar og geyma minningu hennar sem fyrirmynd að frumkvöðli, fjölskyldukonu og listhneigðri athafnakonu sem kunni að njóta þess sem lífið gaf. Það er við hæfi að kveðja Sig- urbjörgu með ljóði um leið og ég votta Hauki, börnum, barna- börnum og öðrum ástvinum samúð mína. Fallin er Íslands væna freyja fögur móðir, systir, manns síns meyja skarð er fyrir skildi á grund. Fálkaorðu bar frúin með sóma framsækinn þegn, andans fróma skeiðar hún nú á skaparans fund. Ljós þitt og ljúfa í niðjum mun skína lofa ég ávallt mun fylgdina þína hjá frelsara þú fáir náð, líkn og frið. Verður þín minnst af verkum og ljóðum með vinum í skógi, af félögum góðum frá tári og trega gef oss nú grið. Guðrún Stella Gissurar- dóttir, Hanhóli. Með Sigurbjörgu Björgvins- dóttur er gengin baráttukona sem setti svo sannarlega sitt mark á þjóðfélagið. Í áratugi var hún virk í starfi Framsókn- arflokksins og gegndi þar fjöl- mörgum verkefnum. Var hún annáluð fyrir skynsemi og stað- festu í öllum sínum störfum á þeim vettvangi. Ég var stoltur af því að geta kallað Sigurbjörgu frænku mína. Við erum ættuð úr Fljót- unum úr stórri fjölskyldu og lif- ir Lauga amma mín bróðurdótt- ur sína. Margt mátti sjá líkt með þeim frænkum – kannski sérstaklega dugnaðinn og seigl- una. Sigurbjörg var óhrædd við að feta ótroðnar slóðir og takast á við krefjandi verkefni. Að loknu uppeldi fimm barna skellti hún sér í nám. Útskrifaðist 48 ára sem stúdent frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð og stundaði nám við félagsfræði og félagsráðgjöf við Háskóla Ís- lands í framhaldinu. Að námi loknu gerðist hún forstöðumað- ur félagsheimilisins Gjábakka og síðar við einnig við Gull- smára í Kópavogi. Þar vann hún brautryðjandastarf í því að móta og byggja upp öflugasta fé- lagsstarf eldri borgara á land- inu. Var hún vinsæl og vel liðin í þeim störfum sínum. Þau tæpu 20 ár sem hún leiddi uppbygg- ingarstarf félagsstarfs eldri borgara í Kópavogi steig hún til hliðar af hinu pólitíska sviði. Árið 2014 var leitað til mín hvort ég væri reiðubúinn að leiða lista framsóknarmanna í Kópavogi í bæjarstjórnar- kosningum. Ég hafði nú ýmsa fyrirvara gagnvart slíkum hug- leiðingum en ákvað að hringja í frænku og spyrja hana ráða – enda þaulreynd og öllum hnút- um kunnug í Kópavogi. Þau samtöl leiddu meðal annars til þess að ég lét slag standa og hún skoraðist ekki heldur und- an og hellti sér á ný í stjórn- málin og tók 7. sæti á lista flokksins. Vann hún ötullega að því að málefni eldri borgara væru ofarlega á baugi í þeirri baráttu. Það var aðdáunarvert að fylgjast með henni í þeim kosningum – þar fór manneskja sem kunni til verka. Með þakklæti og virðingu minnist ég kærrar frænku og vinkonu. Framsóknarmenn í Kópavogi þakka af heilum hug öll þau heillavænlegu störf sem Sigurbjörg innti af hendi. Ég sendi Hauki og fjölskyldunni allri samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Sigurbjargar Björgvinsdóttur. Birkir Jón Jónsson. Látin er kær samferðakona eftir erfið veikindi undanfarin ár. Þegar ég hitti hana fyrst var það í Gjábakka þar sem ég var í leikfimi. Hún tók á móti mér eins og öðrum vingjarnleg í fasi. Sigurbjörg var einn aðalhvata- maðurinn að stofnun Íþrótta- félagsins Glóðar ásamt Mar- gréti Bjarnadóttur. Hún var forstöðukona í Gjábakka fé- lagsmiðstöð í Kópavogi. Í Gjá- bakka fékk félagið skjól og að- stöðu fyrir starfsemi sína svo sem fundarhöld o.fl. Seinna varð hún formaður félagsins í fjögur ár. Við höfum átt gott samstarf í sambandi við Glóð, þar sem ég hef verið formaður íþróttanefndar. Hún var ákaf- lega hugmyndarík manneskja og datt margt skemmtilegt í hug. Við fórum í ferðir til Gran Canaria og Portúgal á „Golden age festival“ og til Danmerkur. Allar ferðirnar höfðu eitthvert markmið. Glóðarfélagar hafa stundað hringdansa og línu- dans. Ferðirnar til Gran Can- aria og Portúgal voru sýning- arferðir á vegum Glóðar, en ferðin til Danmerkur var í heimsókn til DGI (samtök danskra íþróttafélaga) á Jót- landi þar sem við kynntumst ýmsu sem Danir eru að gera fyrir eldra fólk, einnig fórum við í heimsókn á öldrunarstofn- un og sáum aðbúnað fólksins þar. Við nutum ferðarinnar til Jótlands vel í faðmi danskra vina sem við gistum hjá og það voru haldnar veislur okkur til heiðurs. Einnig fórum við á landsmót UMFÍ með félaginu okkar og er mér sérlega minni- stætt fyrsta mótið sem við fór- um á 2004 sem var á Sauð- árkróki. Hún var þaulkunnug öllu í Skagafirðinum og var búin að skipuleggja dagsferð fyrir okkur sem við nutum í blíðskap- arveðri. Það var komið víða við og leiðsögumaður okkar var Kristján í Gilhaga og hann spil- aði á harmóniku fyrir okkur á áningastöðum, sem var ekki slæmt. Við höfum átt margar góðar samverustundir á liðnum árum. Þau hjónin Sigurbjörg og Haukur voru annáluð fyrir gest- risni. Árið 2009 tók Glóð á móti hópi Dana og var m.a. farið í ferð um Borgarfjörð með hóp- inn og bauð Sigurbjörg hópnum að koma við í sumarhúsi þeirra hjóna í Miðdal. Þar var tekið á móti okkur í hlaðvarpanum með hákarli, harðfiski og brennivíns- staupi. En þegar við komum að húsinu var búið að leggja mat á borð, sem var hangikjöt með öllu tilheyrandi og í eftirrétt voru rjómapönnukökur og kaffi. Veðrið var dásamlegt þennan dag. Undirrituð hefur átt marg- ar góðar stundir við eldhúsborð- ið hjá þeim hjónum, sem ég þakka fyrir. Glóðarfélagar sjá á bak góðum vini og munu sakna hennar mikið. Barnabörnin og langömmu- börnin voru henni mikils virði og hún hefur verið dugleg að sinna þeim ásamt eiginmanni sínum. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur til Hauks og fjölskyldu. Missir þeirra er mikill. Blessuð sé minning mætrar konu. Sigríður Bjarnadóttir. Í tæru vatninu svalandi vindinum geislum sólarinnar og heilbrigðri æsku, sé ég framtíðina. Þannig lýkur ljóðinu Fram- tíðin eftir Sigurbjörgu Björg- vinsdóttur, sem við kveðjum í dag. Ljóðið birtist í bókinni Ljóðflæði, sem Ljóðahópur Gjá- bakka gaf út árið 2013. Það ár hafði verið starfrækt félagsmið- stöð aldraðra í Gjábakka í 20 ár. Sigurbjörg, sem var forstöðu- maður þar, var frábær stjórn- andi í mjög krefjandi og er- ilsömu starfi. Hún hvatti okkur til að koma með uppástungur um hvað okkur langaði til að gera eða læra og fékk góða leið- beinendur til að kenna á þeim fjölmörgu námskeiðum sem haldin voru. Þannig var upphaf- ið að Ljóðahópi Gjábakka. Hún fékk Þórð Helgason, lektor við HÍ, til að koma og reyna að gera okkur betur ritfær. Í ljós kom að Þórður vildi að við semdum ljóð sem við læsum upp í næsta tíma. Síðan skyldum við gefa út bók í vetrarlok. Þórður var hjá okkur marga vetur og ný bók hefur komið út á hverju vori í 19 ár. Ljóðahópurinn hefur farið í upplestrarferðir um nánast allt land, m.a. í félagsmiðstöðvar, á Menningarnótt, til Akureyrar og Austfjarða og einnig var far- ið til Færeyja. Sigurbjörg skipulagði ávallt þessar ferðir og það brást ekki að allt stóð eins og stafur á bók. Eitt sinn fékk ljóðahópurinn boð um að vera í stuttum sjónvarpsþáttum þar sem einn þekktur rithöf- undur yrði gestur, og þá mynd- um við ræða nýútkomnar bækur þeirra. Fundirnir voru teknir upp heima hjá Sigurbjörgu og Hauki Hannibalssyni, manni hennar. Þau hjónin töldu ekki eftir sér að taka á móti okkur ásamt tökuliði og alltaf upp- dekkað borð. Við vitum ekki hversu mikla athygli þetta fékk, sumir voru hissa á þessu, aðrir höfðu ef til vill meiri áhuga á því hvað Sigurbjörg ætti mörg bollastell en því hvernig okkur gengi ritrýnin. Sigurbjörg og við hlógum dátt að því. Sigurbjörg var baráttukona og frábær foringi og átti gott með að fá fólk til að vinna með sér. Þess vegna glöddumst við innilega þegar forsetinn heiðraði hana á Bessastöðum fyrir störf hennar því okkur fannst hún hafa unnið til orðunnar með sóma. Og heiður þeim sem heið- ur ber. Á þessum tíma var Sigur- björg mjög farin að líkamlegum kröftum vegna mikilla veikinda, en andi og hugsun voru í góðu lagi. Hún sendi ljóð í bókina sem ljóðahópurinn gaf út vorið 2018 og heitir Vorlaukar. Með hjálp og sterkum vilja kom hún í Gjábakka þegar bókin kom út. Það var bæði ljúf og tregafull stund. Okkur langar til að enda þessi orð með hluta úr ljóði eftir Sigurbjörgu, sem er í einni af bókunum okkar. Nú hafrænan strýkur um vit og vanga vaggar mér aldan á köldum sæ. Frá lendingu ætla ég ein að ganga í átt þar sem man ég hlýjan bæ. Minningin lifir í mínum huga um mennsku, sem ekkert lét sig buga. Sigurbjörg Björgvinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.