Morgunblaðið - 14.01.2019, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 29
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
NP Þjónusta
Óska eftir að annast bókhaldsvinnu
og fleira þess háttar.
Upplýsingar í síma 831-8682.
Bátar
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Kraftur í KR kl. 10.30, rúta
fer frá Vesturgötu kl. 10.10 og frá Aflagranda frá kl. 10.20. ALLIR VEL-
KOMNIR - Félagsvist kl. 13. Útskurður kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9. Ganga
um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12:30-16.
Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið
fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45.
Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Bingó kl. 13. Myndlist kl. 12.30. Vatnsleikfimi kl. 14.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Samprjón kl. 13.30-14.30. Bútasaums-
hópur kl. 13-16. Opið kaffihús kl. 14.30-15.
Dalbraut 18-20 Brids kl.13.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl.10.10. Opin handverks-
stofa kl. 13. Botsía kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30 /8.15 /15. Kvennaleikfimi
Sjálandi kl. 9.30. Liðstyrkur, Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði
kl. 11.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, handavinna / brids kl.
13, jóga kl. 17, félagsvist kl. 20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9–14. Hádegismatur kl. 11.30. Sögustund kl. 13-
14. Jóga kl. 14.15–15.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga með Carynu kl. 10 og samverustund kl.
10.30. Hádegismatur er kl. 11.30, tálgun kl. 13, frjáls spilamennska kl.
13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdags-
kaffi kl. 14.30.
Hæðargarður Við hefjum daginn við hringborðið kl. 8.50, boðið upp
á kaffi og blöðin liggja frammi. Frjáls tími í Listasmiðju kl. 9-12,
byrjendanámskeið í línudansi kl. 10. Fundur æðstaráðs kl. 10.20.
Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophonías-
dóttur kl. 12.30-15.30, handavinnuhornið kl. 13-15, félagsvist kl. 13.15.
eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir. Nánari upp. í s. 411-2790.
Korpúlfar Gönguhópar kl. 10, gengið frá Borgum, Grafarvogskirkju
og inni í Egilshöll. Prjónað til góðs í Borgum kl. 13, fleiri velkomnir í
hópinn. Kóræfing Korpusystkina með Kristínu kórstjóra kl. 16 í dag í
Borgum.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4, Zumba-byrjendur kl. 9.30, zumba gold framhald kl.
10.20. Sterk og liðug leikfimi kl. 11.30, Tanya leiðir alla hópana. Tölvu-
námskeið kl. 13.15, leiðbeinandi Þórunn Óskarsdóttir.
Vantar þig
rafvirkja?
FINNA.is
✝ Guðrún Sig-urðardóttir
fæddist á Vil-
mundarstöðum í
Reykholtsdal,
Borgarfjarð-
arsýslu, 18. des-
ember 1952. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skógarbæ 7. jan-
úar 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Hólmfríður Eysteins-
dóttir, bóndi og verkakona, f.
18. apríl 1919 í Meðalheimi í
Austur-Húnavatnssýslu, d. 5.
ágúst 1984, og Sigurður Geirs-
son, bóndi og bifreiðasmíða-
meistari, f. 10. október 1918 á
Vilmundarstöðum, d. 18. sept-
ember 1989. Guðrún var sú
fjórða í röð sex systkina, elst
er Hlín Gunnarsdóttir, f. 12.
september 1946, Geir, f. 21.
júní 1950, Ástríður, f. 6. júní
1951, Eysteinn, f. 12. janúar
1954, og Magnús, f. 20. mars
1956.
Guðrún ólst upp á
Vilmundarstöðum og gekk í
barnaskólann á Kleppjárns-
Börn þeirra eru Andri Ólafur,
f. 26. febrúar 2009, og Sigfús
Björn, f. 17. maí 2011, fyrir
átti Jón Bjarni dótturina Sögu
Vatnsdal, f. 12. maí 1999. 3)
Sigríður Hulda Sigfúsdóttir, f.
2. maí 1982, gift Eiríki Jóns-
syni, f. 31. janúar 1979. Dætur
þeirra eru Alrún Elín, f. 14.
júlí 2005, og Eyrún Dísa, f. 15.
apríl 2010.
Guðrún var einstaklega
dugleg kona og með vinnu í
Skrúð starfaði hún sem for-
stöðukona Dagheimilis Reyk-
holtsdals árin 1986-88 og
kenndi fyrsta bekk við Klepp-
járnsreykjaskóla 1989 en fór
svo aftur til fyrri starfa í leik-
skólanum Hnoðrabóli ásamt
því að vinna á bókasafni Reyk-
holtsdals og sinna ræstingum í
íþróttahúsinu. Einnig var Guð-
rún virk í starfi Kvenfélags
Reykdæla, söng í Freyjukórn-
um. Árið 1995 fluttist Guðrún
á Selfoss þar sem hún starfaði
í leikskólanum Álfheimum og
Hulduheimum og söng með
Jórukórnum og kenndi búta-
saum á námskeiðum. Guðrún
bjó um tíma í Kaupmannahöfn
árið 2005 en flutti svo í
Hraunbæinn og vann þá í leik-
skólanum Rofaborg og að lok-
um í Árborg. Útför Guðrúnar
fer fram frá Árbæjarkirkju í
dag, 14. janúar 2019, klukkan
13.
reykjum en fluttist
svo um tólf ára
aldur til Reykja-
víkur þar sem hún
bjó hjá móður-
systur sinni, Ásdísi
Eysteinsdóttur, og
Ásmundi Krist-
jánssyni, eigin-
manni hennar. Í
Reykjavík gekk
hún í Gagnfræða-
skóla Austurbæjar
og þaðan lá svo leiðin í Fóstur-
skóla Íslands þaðan sem hún
útskrifaðist 1974. Guðrún
starfaði í leikskólunum
Grænuborg og Múlaborg í
Reykjavík til ársins 1978 en
flutti aftur í Reykholtsdalinn,
nú garðyrkjubýlið Skrúð, þar
sem hún gerðist garðyrkju-
bóndi.
Þann 29. ágúst 1978 giftist
Guðrún Sigfúsi Jónssyni
garðyrkjubónda, f. 8. maí
1952, þau skildu 1994. Dætur
Guðrúnar eru 1) Ásdís Gunn-
arsdóttir, f. 2. október 1974. 2)
Anna Helga Sigfúsdóttir, f. 8.
júlí 1979, gift Jóni Bjarna
Björnssyni, f. 30. maí 1973.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Takk, mamma, fyrir allt sem
þú kenndir mér, ég verð alltaf
þín.
Blessuð sé minning þín.
Sigríður Hulda.
Elsku amma.
Takk kærlega fyrir allar
stundirnar sem við áttum sam-
an, eins og allar gistingarnar,
húsdýragarðsferðirnar og þeg-
ar við gáfum öndunum brauð.
Besta minningin er samt þegar
þú kenndir mér faðirvorið. Ég
mun sakna þín óendanlega mik-
ið og ég elskan þig.
Þín ömmustelpa,
Alrún Elín.
Það voru mikil forréttindi að
alast upp á sveitaheimili um
miðbik síðustu aldar. Vélþróun
í landbúnaði var stutt á veg
komin og nóg af verkum fyrir
börn í sveitinni. Frjálsræðið
mikið og margar góðar minn-
ingar. Gunna systir var fjör-
kálfur og uppátækjasöm og það
var skemmtilegur hluti af
bernsku okkar. Hún var hvatvís
og gerði strax það sem henni
datt í hug, stundum utan þess
sem leyfilegt var eða þótti
þóknanlegt. Þessi arfleifð
bernskunnar ræktaði með okk-
ur vinnusemi og hana átti
Gunna í ríkum mæli.
Líf hennar var ekki laust við
áföll en hún tókst á við þau með
reisn og jákvæðni. Sem ung-
barn varð hún fyrir slysi á fæti,
en hún lét það aldrei aftra sér
frá að gera það sem hún ætlaði
sér. Frá 11 ára aldri fór hún að
dvelja veturlangt í Reykjavík
við nám og bjó hjá móðursystur
sinni, Ásdísi Eysteinsdóttur.
Það myndaðist milli þeirra náið
samband sem var mikill styrkur
fyrir Gunnu.
Gunna giftist Sigfúsi Jóns-
syni frá Skrúð í Reykholtdal
1978 og ráku þau garðyrkjubýl-
ið saman til 1994. Í Reykholts-
dalnum var Gunna í essinu
sínu, starfseljan ótrúleg; heim-
ilið, gróðurhúsin, leikskólinn,
barnaskólinn, kvenfélagið,
kvennakórinn og ótal margt
fleira.
Árið 1994 urðu straumhvörf í
lífi Gunnu, hún fékk blóðtappa í
heila og lamaðist öðrum megin.
Útlitið svart en með þraut-
seigju sigraðist hún á lömuninni
og eftir ár farin að vinna aftur.
Hún fluttist á Selfoss með dæt-
urnar þrjár og byrjaði nýtt líf.
Hún náði sér ekki að fullu en
eljan og starfsgleðin söm við
sig. Meðfram fullu starfi var
það félagsstarfið, kvennakór-
inn, hannyrðirnar og hún
byggði hús. Frá grunni. Hún
var ótrúlega iðin og ýtin við að
fá fólk til að hjálpa sér og upp
komst húsið.
Með viðkomu í Danmörku
flutti Gunna síðan til Reykja-
víkur og vann á leikskólum hér
í Árbænum. Þá var farið að
bera á þeirri hægfara heila-
hrörnun sem hún átti við að
stríða þar til yfir lauk. Þegar
starfsgeta minnkaði, jók hún
bara við hannyrðirnar. Hún átti
að taka það rólega en það var
ekki Gunna. Skipulega fór hún
að framleiða alls kyns eigulega
muni, bútasaumsteppi, flösku-
sokka úr kembdri ull og svo
framvegis. Þetta var ótölulegur
fjöldi muna sem hún seldi og
gaf. Ættingjar, vinir og sam-
starfsfólk nutu þessa ríkulega
og það er fjöldi fólks sem á
þessa vönduðu og fallegu muni
sem minningu um þessa ótrú-
legu konu.
Gunna var félagslynd, ætt-
rækin og dyggur vinur vina
sinna. Hún gerði allt fyrir þig
og var óhrædd við að biðja þig
um að hjálpa sér. Dæturnar og
síðar barnabörnin voru henni
allt.
Síðustu árin voru Gunnu erf-
ið. Hrörnunin ágerðist og minn-
ið förlaðist. Þegar hún fór að
verða ósjálfbjarga vildi hún
fara. Henni var það illbært að
tapa reisn sinni og starfsgetu
og lét mann heyra það. En
hrörnunin varð ekki umflúin,
hún flutti fyrst í íbúð í Furu-
gerði og síðar í Skógarbæ. Við
þökkum starfsfólki þessara
stofnana fyrir umönnun hennar.
Við systkinin vottum dætrum
hennar, Dísu, Önnu Helgu og
Siggu Huldu, mökum og barna-
börnum samúð okkar.
Fyrir hönd okkar systkina
frá Vilmundarstöðum,
Magnús Sigurðsson.
Guðrún
Sigurðardóttir
✝ Eiður A.Breiðfjörð
fæddist í Reykjavík
17. ágúst 1933.
Hann lést 1. janúar
2019.
Foreldrar hans
voru Agnar G.
Breiðfjörð, f. 14.
október 1910, d.
19. júní 1983, og
Ólafía Bogadóttir
Breiðfjörð, f. 9.
nóvember 1914, d. 9. október
1998. Bræður Eiðs eru: 1) Guð-
mundur, f. 22. nóvember 1938,
d. 22. ágúst 2018. 2) Leifur, f.
24. júní 1945. 3) Gunnar, f. 8.
janúar 1947.
Eiður ólst upp við Hring-
braut til 14 ára aldurs en þá
flutist fjölskyldan á Laugateig
27 og þar bjó Eið-
ur allt sitt líf. Fyrst
með fjölskyldu
sinni en síðar bjó
Guðmundur bróðir
hans og fjölskylda
hans í sama húsi.
Eiður var ókvænt-
ur og barnlaus.
Eiður lærði
blikksmíði hjá föð-
ur sínum í Breið-
fjörðs blikksmiðju
og hlaut þar sveins- og meist-
araréttindi í iðninni og vann
þar alla sína starfsævi. Hann
var meðeigandi í fjölskyldufyr-
irtækinu Breiðfjörðs blikk-
smiðju frá 1969.
Útför Eiðs fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 14. jan-
úar 2019, klukkan 15.
Þegar vetrarþokan grá
þig vill fjötra inni:
svífðu burt og sestu hjá
sumargleði þinni.
Þessar fallegu ljóðlínur, eftir
skáldið Þorstein Erlingsson,
koma upp í huga mér núna þeg-
ar minn kæri vinur og frændi,
Eiður Breiðfjörð, hefur kvatt
þetta líf eftir langvinn veikindi.
Eiður var einstaklega elsku-
legur, fróður og skemmtilegur
maður sem var alltaf tilbúinn
þess að rétta öðrum hjálpar-
hönd. Alltaf tilbúinn að vera til
staðar fyrir mig, litlu frænk-
una, þegar hrekkjusvínin í fjöl-
skyldunni voru að hræða úr
mér líftóruna. Því þannig var
Eddi frændi; í honum var ekk-
ert illt.
Eiður, móðurbróðir minn,
var elstur fjögurra bræðra og
fæddur við Hringbrautina árið
1933. Næstelsti bróðirinn, Guð-
mundur Bogi, féll frá síðastliðið
haust svo það var stutt á milli
þeirri bræðra. Þeir voru alla tíð
ákaflega samrýndir og góðir
vinir og bjuggu nánast alla ævi
undir sama þaki. Guðmundur
Bogi bjó ásamt fjölskyldu sinni
á æskuheimili þeirra bræðra og
þar átti Eddi alla tíð öruggt
skjól.
Fyrstu fjórtán árin bjó Eddi
við Hringbrautina, gekk í skóla
þar vestur frá og eignaðist
góða vini. Ekki síst í gegnum
knattspyrnufélagið Val sem á
þeim árum æfði við Melavöll-
inn. Eddi var reyndar borinn
og barnfæddur Valsmaður, en
Agnar faðir hans var hluti af
fyrsta Íslandsmeistaraliði fé-
lagsins, og hélt hann mikilli
tryggð við félagið alla tíð.
Fjölskyldan fluttist síðar á
Laugateig þar sem Agnar
byggði einkar glæsilegt hús og
þar átti Eddi sitt heimili alla
tíð eftir það. Það reyndist ung-
um manni reyndar nokkuð erf-
itt að flytja úr Vesturbænum
burt frá vinum og Valsmönnum
og undi hann hag sínum ekki
eins vel á nýjum stað.
Ungur að aldri sneri Eiður
sér að námi í blikksmíði eins og
bæði afi hans og faðir höfðu
gert og byggðu þeir upp fjöl-
skyldufyrirtækið Blikksmiðju
Breiðfjörðs. Eiður náði afar
góðum tökum á smíðinni, var
vandvirkur og listagóður blikk-
smiður alla tíð, enda gerði hann
smíðina að sínu ævistarfi.
Ekki get ég nú státað mig af
því að hafa ofreynt mig á að
sinna mínum frábæra frænda
eftir að ellin tók að sækja á.
Alltaf var Eddi þó jafn kátur
og glaður ef maður sló á þráð-
inn eða kíkti í heimsókn á
Laugateiginn þar sem maður
hefur alla tíð verið aufúsugest-
ur. Það var reyndar gaman að
fylgjast með því hvað Eddi var
mikill dýravinur og þá reyndar
sérstaklega kattavinur, en þeir
voru ófáir kettirnir sem Eddi
hugsaði vel um allt fram á síð-
asta dag.
Í frístundum hafði Eddi
gaman af því að fylgjast með
fótboltanum í sjónvarpinu, bæði
Val og Manchester United,
ásamt köttunum og Agnari
bróðursyni sínum sem reyndist
honum alla tíð ákaflega vel.
Ekki má heldur gleyma að
þakka þeim Bertu og Krist-
jönu, mágkonu hans og bróð-
urdóttur, fyrir að hugsa alla tíð
frábærlega um Edda af kær-
leika og stakri natni. Nú þegar
minn blíði og góði frændi er
genginn sendi ég fjölskyldu
hans innilegar samúðarkveðjur
frá mér á Laufásveginum og
öllum mínum afkomendum með
þökk fyrir allt.
Helga Þ. Stephensen.
Eiður A.
Breiðfjörð