Morgunblaðið - 14.01.2019, Qupperneq 31
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019
stjórn Samtaka atvinnulífsins.
Hann var í níu ár formaður eða
varaformaður Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna og sat áður í stjórn Líf-
eyrissjóðsins Framsýnar og Ís-
lenska lífeyrissjóðsins. Meðal
annarra stjórna sem Helgi hefur
átt sæti í eru Verslunarráð Íslands,
Þróunarfélag Íslands hf., Stúdenta-
ráð HÍ, Landssamband lífeyris-
sjóða, Valsmenn hf., Knattspyrnu-
deild Vals, Skipasmíðastöð
Njarðvíkur, Íslenskur markaður,
Harpa hf., Harpa Sjöfn hf., Flüg-
ger á Íslandi, Síminn hf. og N1 hf.
Helgi er nú í forsvari fyrir þrjú
fjárfestingafélög, Hofgarða, Varð-
berg og Eignarhaldsfélag Hörpu.
Hann er meðstjórnandi í Hreyf-
ingu, Íþrótta- og sýningahöllinni,
Íslenskum heilsulindum og Marel
hf. frá 2005. Hann er einnig for-
maður Húsasmiðjunnar hf. frá 2012
og formaður stjórnar Bláa lónsins
þar sem hann hefur verið stjórnar-
maður og hluthafi frá árinu 2005.
Eftir Helga liggja bækurnar
Hafskip – gjörningar og gæslu-
varðhald sem kom út árið 1986 og
Hvað sagði ég? frá árinu 2013.
Helgi hefur verið sæmdur
heiðursorðu Vals úr gulli.
Fjölskylda
Helgi kvæntist 9.11. 1985 Örnu
Borg Einarsdóttur, f. 7.5. 1960,
hjúkrunar- og lýðheilsufræðingi.
Hún er dóttir Einars Arnar Gunn-
arssonar, f. 2.12. 1938, d. 19.12.
2015, skrifstofumanns á Akureyri,
og k.h. Maríu Jóhannsdóttur, f.
25.5. 1940, húsfreyju á Akureyri.
Börn Helga og Örnu eru: 1) Hlín,
f. 21.10. 1987, d. 27.8. 1988; 2)
Magnús Örn, f. 25.2. 1989, íþrótta-
fræðingur og knattspyrnuþjálfari;
3) Sunna María, f. 8.9. 1991, hjúkr-
unarfræðingur og nemi í ljósmóð-
urfræðum; 4) Arnar Þór, f. 9.7.
1996, nemi við HR og leikmaður í
meistaraflokki Gróttu í knatt-
spyrnu.
Bróðir Helga er Sigurður Gylfi,
f. 29.8. 1957, prófessor í menning-
arsögu við HÍ. Kona hans er Tinna
Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í
hagfræði við HÍ. Sonur hennar og
uppeldissonur Sigurðar Gylfa er
Pétur Bjarni, nemandi í Kvenna-
skólanum.
Foreldrar Helga: Magnús Helga-
son, f. 24.11. 1916, d. 5.10. 2000,
framkvæmdastjóri Helga Magnús-
sonar & Co. og síðar Hörpu hf., og
k.h. Katrín Sigurðardóttir, f. 4.2.
1921, húsfreyja í Reykjavík.
Helgi Magnússon
Katrín Sigurðardóttir
húsfreyja í Rvík
Sigurður Guðbrandsson
skipstjóri á Snorra goða
Katrín Einarsdóttir
húsfreyja, frá Gafli
Guðbrandur Guðbrandsson
bóndi á Gafli og ferjumaður á Brúnastöðum í Flóa
Valgerður Helgadóttir
yfirhjúkrunarkona á Reykjalundi
Katrín Helgadóttir skólastj.
Húsmæðraskólans í Rvík
ddbjörg Sigurðardóttir
húsfr. og verslunarm.
í Rvík
OÁslaug Björg
Viggósdóttir fv.
formaður Hringsins
Einar Stefánsson
læknaprófessor
Stefán Pétursson
hrl. og aðst.-
bankastjóri
ón Magnússon
bóndi í Krýsuvík
JMagnús G. Jónsson
yfirkennari í MR
Magnús S. Magnússon prófessor í HÍ
Jón Ingólfur Magnússon prófessor í HÍ
Hermann Sigurðsson
skrifstofumaður
Guðmundur
Hermannsson fv.
bæjarstj. í Þorlákshöfn
Oddbjörg Pálsdóttir
húsfreyja í Starkaðarhúsum
Árni Þórðarson
bóndi í Starkaðarhúsum í Flóa
Eyríður Árnadóttir
húsfreyja í Rvík
aldimar Árnason yfirvélstjóri,
fórst með Leifi heppna
VKristín Valdimarsdóttir
húsfreyja í Rvík
Magnús Gunnarsson
fv. frkvstj. SÍF
Sigurjón Árni
Sigurðsson
frkvstj. í Rvík
Bryndís Sigurjónsdóttir
fv. skólameistari
Borgarholtsskóla
Kjartan Sigurjónsson fv.
organisti í Digraneskirkju
Valgerður Þorgrímsdóttir
húsfreyja í Gröf
Sigurður Oddsson
járnsmiður í Gröf
þar sem nú er
Grafarholtshverfi
Oddrún Sigurðardóttir
húsfreyja í Rvík
Helgi Magnússon
járnsmíða- og pípulagningameistari og kaupmaður í Rvík
Katrín Jónsdóttir
húsfreyja í
Syðra-Langholti í
Hrunamannahr., Árn.
Úr frændgarði Helga Magnússonar
Magnús Helgason
framkvæmdastjóri í Rvík
étur Pétursson
forstjóri Lýsis
PKatrín Pétursdóttir
forstjóri Lýsis
Andrés
Magnús-
son
hreppstj.
í Syðra-
Langholti
Magnús
Andrésson
prófastur
og alþm. á
Gilsbakka í
Borgarfirði
Pétur
Magnús-
son mál-
flutnings-
maður og
ráðherra
Magnús Magnússon
bóndi í Syðra-Langholti, sonur Magnúsar Andréssonar hreppstj. og alþm.
Ingunn Magnúsdóttir húsfr. í Götu,Hrunamannahr.
Árni Þórarinsson prófastur
í Miklaholti á Snæfellsnesi
Ágúst Helgason alþm. í Birtingaholti Helgi Magnússon b. í Birtingaholti
Oddur
Helgason
athafna-
maður í Rvík
Oddur Helgi
Oddsson
bygginga-
meistari
Davíð Freyr
Oddsson
frkvstj.mann-
auðsmála hjá
Marel
Ólafur Björnsson fæddist 14.janúar 1884 í Reykjavík ogólst þar upp. Foreldrar hans
voru hjónin Björn Jónsson, alþingis-
maður og ráðherra, f. 1846, d. 1912,
og Elísabet Guðný Sveinsdóttir, f.
1839, d. 1922, húsfreyja. Systkini
Ólafs voru Guðrún, Sigríður og
Sveinn, fyrsti forseti Íslands.
Ólafur fór í Reykjavíkurskólann
(MR) 1896 og útskrifaðist þaðan
1902. Hann sigldi sama ár til Kaup-
mannahafnar og lærði hagfræði í há-
skólanum þar og útskrifaðist 1909.
Björn, faðir Ólafs, hafði stofnað
tímaritið Ísafold árið 1874 en þegar
hann varð ráðherra 1909 keypti Ólaf-
ur af honum blaðið og gerðist rit-
stjóri. Ólafur stofnaði síðan Morgun-
blaðið ásamt Vilhjálmi Finsen árið
1913. Útgáfufélag Morgunblaðsins,
síðar Árvakur, keypti síðan Ísafold af
Ólafi 1919 og eftir það eftir það var
blaðið gefið út sem mánudagsútgáfa
Morgunblaðsins og sérstakt síðdeg-
isblað.
Eiginkona Ólafs var Borghildur
Pétursdóttir, 13.12. 1885, d. 9.11.
1967, húsfreyja, dóttir hjónanna
Péturs Thorsteinssonar útgerðar-
manns og Ásthildar Jóhönnu Guð-
mundsdóttur. Börn Ólafs og Borg-
hildar voru Björn fiðluleikari, Pétur,
hagfræðingur og blaðamaður, Elísa-
bet, eiginkona Hilmars Thors, og
Katrín, skrifstofustjóri og rithöf-
undur.
Ólafur hafði um nokkurra ára skeið
átt við vanheilsu að stríða. Sigldi hann
í febrúar 1919 til Kaupmannahafnar
að leita sér lækninga. Kom hann heim
9. júní sama ár „heilbrigður að því er
honum fannst. En lést skyndilega
kvöldið eftir“, segir í minningargrein í
Ísafold. Þar segir einnig: „Með hon-
um hefir þessi fámenna þjóð misst
einn sinn ágætasta dreng og þessi
bær þann mann, sem flestum öðrum
fremur gerði hann bjartan og hlýjan.“
Í annarri grein segir um Ólaf: „Hann
var að eðlisfari friðarmaður, sannkall-
aður friðarhöfðingi, er sökum stöðu
sinnar og aðstöðu rataði í stjórnmála-
ófrið og blaðadeilur.“
Ólafur lést 10.6. 1919.
Merkir Íslendingar
Ólafur
Björnsson
85 ára
Ingibjörg Guðmundsdóttir
80 ára
Gígja Friðgeirsdóttir
Jón Helgason
Steinn Erlingsson
Vilborg Sigurðardóttir
75 ára
Erla Einarsdóttir
Gunnfríður Ingólfsdóttir
Ingunn Þóra
Erlendsdóttir
Ólöf Marín Einarsdóttir
Páll Guðmundsson
Ragnheiður
Guðmundsdóttir
Trausti Guðjónsson
Örn Jónsson
70 ára
Björgvin Bjarnason
Gísli Sigurgeirsson
Helgi Magnússon
Jónas Sveinsson
Jón B. Björgvinsson
Símon Páll Steinsson
Snæbjörn Kristjánsson
Svanhvít Ásta Jósefsdóttir
Valdimar Lárusson
60 ára
Björgvin Þórðarson
Björn Bragi Mikkaelsson
Guðmundur Bárðarson
Guðríður Blanche Rail
Hafdís Sigrún Roysdóttir
Hrefna Sigurjónsdóttir
Ragnheiður Gunnarsdóttir
Sigurður Karl Linnet
Sveinn Kragh
50 ára
Aðalbjörg Þórólfsdóttir
Bjarni Gunnarsson
Bryndís Ingvarsdóttir
Danguole Vilimiene
Hata Mesetovic
Helga Eyja Hrafnkelsdóttir
Hrafn Aðalsteinn
Ágústsson
Jónheiður
Gunnbjörnsdóttir
Kári Steinar Lúthersson
Kjartan Viðar Arnbjörnsson
Linda Angelique Elizondo
Miles Maurice Border
Rakel Jónsdóttir
Rósa Jósefsdóttir
40 ára
Afrim Haxholli
Aldís Bjarnadóttir
Dzintars Dzerkalis
Elísabet Esther Sveinsd.
Emelía Ósk Sveinsdóttir
Guðlaug Birna Steinarsd.
Haraldur Már Pétursson
Jón Auðunn Sigurbergsson
Karlotta Ósk Jónsdóttir
Makhmura Khaligova
Marcin Swiderski
Milena Sylwia Tkaczyk
30 ára
Adam Piotr Morawski
Anna Birna Ívarsdóttir
Anna Rut Tryggvadóttir
Birkir Blær Ingólfsson
Brynjar Rafn Ómarsson
Danielle Elodie Pollet
Edgaras Klepsys
Guðrún Heiður Ísaksdóttir
Halla Kristín Jónsdóttir
Joanna Magdalena Banas
Jóhann Eggertsson
Jurate Strazdauskaite
Kamil Klimko
Kjartan Sigurðsson
Magnús Blöndal
Marcin Lukasz Pabisiak
Sorelle Warzecha
Unnur Jónasdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Emelía býr á
Egilsstöðum, er fædd þar
og uppalin. Hún er heima-
vinnandi.
Maki: Helgi Þórður
Jóhannsson, f. 1973,
vinnur hjá Alcoa.
Börn: Belinda Amy, f.
2001, Birgitta Ísól, f.
2002, og Kristófer Máni,
f. 2008.
Foreldrar: Sveinn Vil-
hjálmsson, f. 1938, og
Kristín Jónsdóttir, f. 1940,
bús. á Egilsstöðum.
Emelía Ósk
Sveinsdóttir
40 ára Karlotta er Kópa-
vogsbúi og rannsóknar-
lögreglumaður á Suður-
nesjum.
Maki: Gunnar Ingi Bjarna-
son, f. 1987, byggingafr. og
rekur eigið fyrirtæki.
Börn: Birta Rós, f. 1997,
Kristófer Emil, f. 1999,
Aþena Lily, f. 2005, Emma
Lovísa, f. 2009, og Auður
Sunna, f. 2013.
Foreldrar: Jón Emil Krist-
insson, f. 1956, og Soffía
Guðbjört Ólafsdóttir, f. 1956.
Karlotta Ósk
Jónsdóttir
30 ára Birkir er Reykvík-
ingur og rithöfundur og er
að skrifa handrit fyrir
Sagafilm. Hann er einnig
saxófónleikari. og er með
BA gráðu í lögfræði frá HÍ.
Maki: Vala Kristín Eiríks-
dóttir, f. 1991, leikkona hjá
Borgarleikhúsinu.
Foreldrar: Ingólfur Björn
Sigurðsson, f. 1950, leik-
ari, dansari og kennari í
Brúarskóla, og Bjarnveig
Guðbjörnsdóttir, f. 1993,
kennari í Hlíðaskóla.
Birkir Blær
Ingólfsson
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
Flott hönnun, vandaður frágangur
Stórar lóðir
Frábært útsýni
Með eða án bílskúrs
Tilbúin hús fullbúin húsgögnum eða
Hús í byggingu
Einkaklúbbur á strönd
Frítt golf í 2-5 ár
Eign fyrir þá sem vilja það besta
Verð frá 74.700.000 Ikr.
(545.000 evrur, gengi 1evra/137Ikr.)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001
GLÆSILEG EINBÝLISHÚS
Las Colinas
margverðlaunað sem eitt besta golfsvæðið á Spáni