Morgunblaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu þér ekki til hugar koma að grípa
til einhverra aðgerða bara til þess að svekkja
aðra. Ástin leitar þig uppi.
20. apríl - 20. maí
Naut Viðkvæmt mál ber á góma og þótt þér
sé mikil raun að ræða álit þitt á því verðurðu
að gera það. Farðu á staði sem þú hefur
áhuga á. Hjálpaðu öðrum að ná markmiðum
sínum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það ætti ekki að vefjast fyrir þér að
ráða fram úr erfiðum málum þessa dagana.
Sýndu þolinmæði. Litskrúðugt fólk verður á
vegi þínum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Undarlegar tilfinningar bærast hugs-
anlega innra með þér í dag. Vertu þér meðvit-
andi um að allt hefur sinn tíma og haltu ró
þinni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu ekki sérkennilega framkomu
manna slá þig út af laginu. Þér finnst þú hafa
unnið í lottói lífsins þegar þú hittir vissa
manneskju.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er upplagt að fegra og snurfusa í
kringum sig. Þú hefur of miklar áhyggjur af
hlutunum svona almennt. Vinur kemur þér á
óvart með heimboði.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er hætt við að þú sért niðurdregin/n
og gagnrýnin/n á aðra í dag. Taktu því með
þolinmæði og brosi á vör. Það birtir til aftur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu ekki hugfallast því erf-
iðleikar eru til þess að sigrast á þeim. Þér
gengur vel að vinna í hópi þessar vikurnar.
Líttu á hrós sem þú færð sem ávísun á eitt-
hvað meira.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft ekki að hlaupa til þótt
fólkið í kringum þig sé með einhver látalæti.
Gerðu tímabundið samkomulag varanlegt. Þú
ert hrókur alls fagnaðar þessa daga.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er nauðsynlegt að þú und-
irbúir mál þitt vel áður en þú reynir að vinna
aðra á þitt band. Mikil vinna, hollur matur og
hreyfing eru olían sem þú átt að baða þig upp
úr.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ástamál, skemmtanir, ferðalög og
leikir munu setja svip sinn á næsta mánuðinn
hjá þér. Ekki hafa áhyggjur af framtíðinni, hún
sér um sig sjálf.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Reyndu að temja þér þakklæti fyrir
það sem þú hefur og láta aðra finna að þér
þyki vænt um þá. Hreint loft gerir þér gott.
Sáluhjálparar halda nú um stundirþví sjónarmiði fram að fólk sem
lendir í lífsháska og er á tæpu vaði
eigi ekki að greina opinberlega frá
reynslu sinni. Þess eru sömuleiðis
dæmi að rannsakendur slysa geri sér
erindi að sjúkrabeð fólks og óski þess
að viðkomandi ræði ekki við blaða-
menn. Aldrei hefur þó verið tiltekið
með rökstuddum dæmum hvað geri
frásagnir af erfiðri lífsreynslu skað-
legar né að sögumenn hafi beðið
miska af.
x x x
Sú var raunar tíðin að sjálfsagtþótti að fólk sem lifði af skip-
skaða, flugslys og fleira slíkt kæmi
fram í viðtölum, til dæmis hér í Morg-
unblaðinu, og það voru frásagnir sem
svo sannarlega munaði um. Í fyrsta
lagi vöktu þær almenning jafnt sem
áhrifafólk til umhugsunar um for-
varnir og úrbætur í öryggisátt. Í ann-
an stað voru þessi viðtöl líka nauðsyn-
leg því þau vitnuðu um þrautseigju og
hve magnaður lífsviljinn getur verið.
Eða hefðum við til dæmis viljað að
lífsreynsla fólks sem lifði af snjóflóðin
á Vestfjörðum árið 1995 lægi í þagn-
argildi? Átti kraftaverk Guðlaugs
Friðþórssonar sem synti í land langt
utan af hafi um hánótt þegar Hellisey
VE sökk að verða leyndarmál en ekki
helgisaga heillar þjóðar? Og það er
bókstaflega bráðnauðsynlegt að fólk
sem kemst á beina braut eftir að hafa
verið í óreglu gefi okkur hinum inn-
sýn í líf sitt þannig að reynsla þess
geti orðið öðrum fordæmi.
x x x
Á borði Víkverja liggja nú bækurútgefnar árið 1983 og 1985: Ég
vil lifa – líf á bláþræði og Horfst í
augu við dauðann eftir Guðmund
Árna Stefánsson nú sendiherra á
Indlandi og séra Önund Björnsson
sem er sóknarprestur í Rangár-
vallasýslu. Þarna er að finna greinar-
góð viðtöl við fólk sem sem svo sann-
arlega þurfti fjöruna að súpa, svo sem
systkinin sem velktust í gúmmíbát úti
á reginhafi eftir að faðir þeirra fórst
þegar ólag reið yfir bát þeirra. Einnig
konan sem aftur fann lífsgleðina þrátt
fyrir að hafa misst eiginmann sinn og
son í hræðilegu slysi. Við þurfum við-
töl sem gefa von!
vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Guð er hvorki vísaði bæn
minni á bug né tók frá mér miskunn
sína.
(Sálm: 66.20)
Jónína Guðmundsdóttir sendimér gott bréf, segist hafa lært
eftirfarandi hestavísu örsmár
krakki norður í Húnaþingi og skildi
ekkert í þriðju línunni:
Jóhanns Dreyri dável rann
dreifði leir og sandi.
Runnur geira góðhest þann
Gils á eyrum þandi.
Og bætti síðan við: „Ég skil vís-
una núna en er alls ófróð um upp-
runa hennar. Rámar þó í að hafa
heyrt (eða hugsað sjálf) einhverja
tengingu við Vatnsdal.
Í bókinni „Fátækt fólk“ eftir
Tryggva Emilsson (1976: s. 251) er
þessi vísa tilgreind og tengd við
Gilseyrar, eyrarnar fyrir neðan Gil
í Öxnadal. Hann getur engra heim-
ilda, en örnefnið mun vera til. Vísan
hjá Tryggva er orðrétt eins og ég
lærði hana.
Gaman væri að vita hvort þú
þekkir þessa vel kveðnu vísu. Hún
minnir eitthvað á Sigurð Breið-
fjörð, en ég er illa lesin í rímum
hans.“
Ég þekki ekki stökuna en vísa til
lesenda Vísnahorns.
Tómas Hallgrímsson læknir gaf
séra Matthíasi hestinn Jarp og
þakkaði skáldið fyrir með ljóða-
bréfi upp á 21 vísu og byrjar svo:
Verður ertu víst að fá
vísu gamli Jarpur,
aldrei hefur fallið frá
frækilegri garpur.
Margan fórstu frægðarsprett
fákurinn ítur-slyngi;
því er skylt að skarpt og létt
skáldin um þig syngi.
Síðar segir:
Hugði máske herra þinn
hér sé krafta-tungan,
sá er getur gæðing sinn
gjört að nýju ungan.
Nei, nei, kosta-klárinn minn,
kraft minn spottar Elli;
klár og skáld sú kerlingin
keyrir jafnt að velli.
Og lýkur svo:
Og á baki Edenlunds
oss þú berð sem áður; –
(milli manns og hests og hunds
hangir leyniþráður).
Komdu þar á blómsturblett,
bak við heljarváðir;
á þér skeiða skarpan sprett
skulum við Tómas báðir!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Jóhanns Dreyri
og gamli Jarpur
Í klípu
„HVERSU BERSKJÖLDUÐ ERUM VIÐ
þegar öllu er á botninn hvolft?”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„PASSAÐU PABBA.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... einstök nánd.
ÉG BEIT Í
TUNGUNA Á
MÉR Í DAG
HANN VILDI VITA
HVERNIG HÚN
BRAGÐAÐIST
Ó?
EKKI VILJANDI,
ER ÞAÐ?
EEER ÞAÐ?
NÆSTA ORRUSTA VERÐUR SÚ
ERFIÐASTA HINGAÐ TIL!
LIÐIÐ VERÐUR AÐ UNDIRBÚA SIG
VEL!
ENGAR
ÁHYGGJUR,
STJÓRI!
ÉG PANTAÐI TYLFT AF HVÍTUM FLÖGGUM!
Bíldshöfði 9
Smáratorg 1
He 1 1lluhraun 6- 8
Fiskislóð 1
Við eru
í þínu
hverfi
m