Morgunblaðið - 14.01.2019, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 14.01.2019, Qupperneq 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 Fjölmennt var við opnun útskriftarsýningar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Myndarleg Ólafur Ómar, Henry Grens og Ingibjörg Sigurðardóttir. Sæt saman Hjördís Eyþórsdóttir, Hrafnhildur Sandholt og Ívar Helgason. NOKIAN stígvélabúðin | Mjóddinni | Reykjavík I Sími 527 1519 | Nokian Stígvélabúðin Opið virka daga kl. 10.00-18.00 Loðfóðraður skófatnaður fyrir veturinn VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Eftir langa dvöl erlendis er Arn- björg María Daníelsen komin aftur til Íslands – allavega í bili – til að starfa sem dagskrárstjóri og list- rænn stjórnandi í Norræna húsinu. Hún er með mörg járn í eldinum, bæði á Íslandi og úti í heimi, og nú síðast skapaði hún sýninguna Ís- lendingasögur – sinfónísk sagna- skemmtun sem sýnd var í Eldborg á fullveldisafmæli Íslands og sjón- varpað beint hjá RÚV. Þeir sem fylgdust með sýning- unni fengu að sjá mikið sjónarspil sem blandaði saman mynd, söng, texta og hljóðfæraleik, fléttaði nýj- ustu rapplögum saman við popp- slagara og Sálumessu Mozarts, og veðurfréttunum saman við Eddu- kvæðin. Arnbjörg lýsir verkinu sem „performatívri og sjónrænni in- stallasjón, á skurðpunkti músík- dramatíkur, tónleika, tónlistar og innsetningar“. Hún segir verk af þessum toga með sinfóníuhljóm- sveit fátíð en um leið mjög kröftug: „Það eru ekki margir sem fást við nákvæmlega þessa tegund sýninga enda geta þær verið mjög flóknar á ófyrirsjáanlegan hátt og krefjast reynslu á mörgum ólíkum sviðum,“ segir hún og áréttar að hugsunin sé ekki sú að t.d. einfaldlega búa til myndskreytingu við tónverk heldur einmitt frekar að draga fram nýjar víddir: „Það sem mér finnst áhugaverð- ast er að vinna með það ófyrirsjáan- lega í samspilinu á milli texta, tón- listar og annarra miðla. Þar get ég fundið listrænt svigrúm til að leyfa hlutunum að standa í frekar óræðu rými. Ég forðast að reyna að stýra áhorfandanum og hvaða tilfinningar kvikna hjá honum heldur vil ég frekar leyfa hlutunum að liggja í loftinu, jafnvel þannig að fólk með ólík sjónarmið raði saman á ólíkan hátt þeim táknum og hugmyndum sem sýningin ber á borð.“ Hefur meira að gefa á bak við tjöldin Til að skilja betur hvað Arn- björgu gengur til í listsköpun sinni er ekki úr vegi að skoða hvernig hún hefur þróast sem listamaður. Ferill hennar er á margan hátt óvenjulegur en hún lauk stúdents- prófi frá fornmáladeild MR og hafði látið sig dreyma um að verða forn- leifafræðingur. „En síðan hellti ég mér út í tónlistina og eftir stúdents- próf flutti ég til Ítalíu til að læra listasögu samhliða því að ég byrjaði að leggja stund á óperusöng,“ segir hún. „Ég elska óperuna og allt sem það listform hefur upp á að bjóða – sem er oft miklu meira en fólk gerir sér almennt grein fyrir.“ Úr listasögunáminu lá leiðin í nám í óperusöng við Mozarteum- akademíuna í Salzburg, og var Arn- björg komin á bólakaf í óperuheim- inn þegar fóru að renna á hana tvær grímur: „Ég stóð mig að því að vera inni á bókasafni að sinna einhverju allt öðru en söngnáminu og sökkva mér ofan í aðrar listgreinar. Eins og ég fæ mikið út úr því að standa uppi á sviði í óperuuppfærslu áttaði ég mig smám saman betur á því að óperulífið væri ekki ætlað nema ör- fáum útvöldum og ég hefði ef til vill meira að gefa á bak við tjöldin.“ Arnbjörg lauk meistaranámi í Salzburg og tók því næst stefnuna til Zürich þar sem hún lauk meist- aragráðu í list- og menningar- stjórnun. Síðan þá hefur hún verið á þeytingi um Evrópu en lengst af með bækistöð í Berlín. Nú síðast setti hún saman stóra músík- dramatíska/sviðslista/innsetningar- sýningu með Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar í tilefni af aldarafmæli Ingmars Bergmans og eru tvær aðrar álíka stórar sýningar í píp- unum. Á síðasta þríæringnum Ruhr var Arnbjörg síðan með tilrauna- leikhús „Mér finnst gaman að vinna með leikhúshópum og sveiflast á milli þessara tvennra öfga; frá agn- arsmáu tilraunaeldhúsi yfir í risa- vaxnar sýningar með sinfóníu- hljómsveit,“ útskýrir hún. Menningar-Vatíkan í Vatnsmýrinni Þegar Arnbjörgu bauðst að taka þátt í að stýra menningarstarfi Norræna hússins gat hún ekki ann- að en sagt já enda einlægur aðdá- andi þessarar merkilegu menn- ingarstofnunar. „Sem unglingur og barn dvaldi ég löngum stundum á bókasafninu og ég get varla hugsað mér huggulegri vinnustað, sem er eins og hálfgerð menningar-vin eða Finnur listrænt svigrúm í  Arnbjörg ætlaði að verða fornleifa- fræðingur en lærði óperusöng og varð á endanum fjölhæfur listamaður – sem nýtur sín samt best á bak við tjöldin -Vatíkan úti í Vatnsmýrinni.“ Arnbjörg hóf störf með fráfar- andi forstjóra en hlakkar til að starfa með nýjum forstjóra, hinni finnsku Sabinu Westerholm, sem koma mun með nýjar listrænar áherslur. Segist Arnbjörg hafa ver- ið fengin til starfans sem mann- eskja sem gæti bæði framkvæmt og stýrt listrænum viðburðum og hef- ur hún því verið virk í listsköpun- inni í húsinu frá því hún fékk þar skrifstofu. Köllun „Eins og ég fæ mikið út úr því að standa uppi á sviði í óperuuppfærslu átt- aði ég mig smám saman betur á því að óperulífið væri ekki ætlað nema örfáum útvöldum og ég hefði ef til vill meira að gefa á bak við tjöldin,“ segir Arnbjörg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.