Morgunblaðið - 14.01.2019, Síða 37

Morgunblaðið - 14.01.2019, Síða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 » Sýningin Ó, hvehljótt var opnuð í Gerðarsafni í fyrradag. Á henni má sjá verk eft- ir þekkta erlenda lista- menn, þá Doug Aitken, Charles de Meaux, Dominique Gonzalez- Foerster, Pierre Huyghe, Ange Leccia, Romain Kronenberg og Lornu Simpson. Verkin eru úr safneign CNAP, miðstöðvar myndlistar í Frakklandi, og bera vitni um auðgi og marg- breytileika franskrar kvikmyndasköpunar, eins og segir á vef safns- ins, og kallast á við verk eftir þrjá af fremstu vídeólistamönnum Ís- lands, þau Steinu Vas- ulka, Doddu Maggý og Sigurð Guðjónsson. Ó, hve hljótt, sýning á verkum úr safneign CNAP, var opnuð í Gerðarsafni í fyrradag Ó hve hljótt Listaverkum er varpað á veggi safnsins á sýningunni sem var opnuð um helgina. Glaðar Elín Signý Ragnarsdóttir og Hrafnhildur Einarsdóttir. Listamenn Kristján Steingrímur Jónsson og Curver Thoroddsen. Dagur í Gerðarsafni Hulda Stefánsdóttir, Þóra Karítas Árnadóttir, Dagur Sigurðsson og Margrét Áskelsdóttir mættu á opnun sýningarinnar. Rabbað saman Páll Ásgeir Ásgeirsson, Gunnar V. Andrésson og Anna K. Ágústsdóttir spjalla saman við opnun sýningarinnar í Gerðarsafni í Kópavogi á laugardaginn var. Morgunblaðið/Hari Hjálmar Vestergaard Guðmunds- son opnaði í fyrradag mál- verkasýninguna Éttu eða vertu ét- inn í Gallery Porti á Laugavegi 23b. „Hjálmar skapar litríkan og lífrænan myndheim með vísanir og tengingar við ýmis vísindi og fræði, náttúruna, mannkynssöguna og listsöguleg fyrirbæri og hug- myndir. Hjálmar hefur þróað sér- staka tækni þar sem hann beitir ýmsum efnum og aðferðum til að hafa áhrif á ásýnd málning- arinnar,“ segir um sýninguna á Facebook-síðu hennar. Hjálmar út- skrifaðist með BA-gráðu í mynd- list frá Listaháskóla Íslands árið 2016 og hefur tekið þátt í fjölda listviðburða og samsýninga. Éttu eða vertu étinn er fyrsta einkasýn- ingin þar sem hann sýnir ein- göngu málverk og er hún einnig fyrsta einkasýning hans eftir út- skrift. Þeir sem vilja kynna sér Hjálm- ar og list hans geta gert það á vefsíðu hans, hjalmargudmunds- son.com. Litríkt Eitt af verkum Hjálmars sem skapar litríkan og lífrænan myndheim. Éttu eða vertu étinn opnuð í Gallery Porti –– Meira fyrir lesendur Þorrinn Þann 18. janúar gefur Morgunblaðið út sérblað tileinkað þorranum PÖNTUN AUGLÝSINGA ER TIL 14. JANÚAR Nánari upplýsingar gefur: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.