Morgunblaðið - 14.01.2019, Side 40
Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðinga-
félags Íslands hefjast á ný á morg-
un kl. 12.05 í samvinnu við Þjóð-
minjasafn Íslands þar sem þeir eru
haldnir. Sagnfræðingurinn Arnór
Gunnar Gunnarsson mun fjalla um
deilur íslenskra og bandarískra
fyrirtækja um vöruflutninga fyrir
Bandaríkjaher á Íslandi sem end-
uðu fyrir bandarískum dómstólum
og mun hann einblína á dómsmálin
en einnig reyna að setja
Rainbow Navigation-málið í
samhengi við stöðu Íslands í
kalda stríðinu á níunda áratugnum.
Deilur í Þjóðminjasafni
MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 14. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
„Ég er mjög ánægð með þann stað
sem liðið er á í dag. Við erum búnar
að spila mjög vel og höfum verið að
finna taktinn, hægt og rólega, í
undanförnum leikjum,“ segir
Sandra Dís Erlingsdóttir hand-
knattleikskona frá Vestmanna-
eyjum sem nú er í stóru hlutverki
hjá Val og lék mjög vel gegn ÍBV í
11. umferð Olísdeildarinnar. »6
Við höfum fundið takt-
inn hægt og rólega
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Marcus Rashford tryggði Man-
chester United góðan útisigur á
Tottenham, 1:0, í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu á Wem-
bley-leikvanginum í London í gær
og þar með hefur United unnið
alla sex leiki sína
undir stjórn Oles
Gunnars Sol-
skjærs.
Tottenham
missti af
dýrmætum
stigum í
baráttunni um
enska meistaratit-
ilinn þar sem
Liverpool er nú
með sjö stiga
forystu. »2
Rashford með sigur-
markið á Wembley
15%
AFSLÁTTUR
af sérpöntunum
til 27. janúar
Ármúla 10
) 568 9950
duxiana.comHáþróaður svefnbúnaður
Náttúruleg efni, einstakt handverk og PASCAL gormakerfið
gera rúmin okkar að athvarfi fyrir stöðugan gæðasvefn.
FRUMKVÖÐLAR SÍÐAN 1926
Klæðskerasniðin
þægindi
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Rafíþróttasamtök Íslands í sam-
starfi við Íþróttabandalag Reykja-
víkur ætla að halda stærsta raf-
íþróttaviðburð Íslands á
Reykjavíkurleikunum í ár. Þetta er í
fyrsta skipti sem rafíþróttir verða
hluti af Reykjavíkurleikunum (RIG).
Keppt verður í tölvuleikjunum Fort-
nite, Counter-Strike og League of
Legends.
„Þetta er fyrsta skrefið og er gert
í tilraunaskyni. Við eigum eftir að
sjá að þetta á heima innan um þess-
ar íþróttargreinar,“ segir Ólafur
Steinarsson, formaður Rafíþrótta-
samtaka Íslands (RÍSÍ). Raf-
íþróttum hefur vaxið fiskur um
hrygg á síðustu árum og er Ísland
þar engin undantekning.
Ísland á sem dæmi Fortnite spil-
ara á heimsvísu, að sögn Ólafs, en
það er einn stærsti tölvuleikur í
heimi um þessar mundir. „Þar má
nefna strák sem heitir Tómas Bern-
höft. Hann tók nýlega þátt í inntöku-
móti fyrir Fortnite keppni sem 20
milljón manns tóku þátt í og lenti í
206. sæti. Þannig að það má með
fullri vissu segja að hann sé með
betri spilurum heims í dag,“ segir
Ólafur. Ekki er enn búið að staðfesta
erlenda keppendur á rafíþróttamót-
ið en unnið er að því, enda er þetta
fyrsti viðburðurinn af þessari stærð-
argráðu hérlendis. Þessi viðburður
gæti þá auðveldað Íslandi að halda
stærri erlend mót í framtíðinni. „Við
erum líka að sýna erlendum aðilum
hvers þeir mega vænta af okkur. Ef
þeir koma og fara í samstarf við okk-
ur um að halda viðburð eða móts-
hluta með erlendum keppendum, þá
erum við að sýna hvað við getum
gert.“
Aksturshermar og stjörnustríð
Nóg verður um að vera á mótsstað
yfir keppnishelgina 26.-27. janúar
fyrir áhorfendur og aðra gesti. Auk
rafíþróttamótanna verður hægt að
prófa akstursherma og fræðast um
hvernig má nota þá til að þjálfa akst-
ursíþróttamenn framtíðarinnar.
Stjórnarmenn Rafíþróttasamtak-
anna munu einnig sjá um fræðslu í
rafíþróttum og þá geta áhorfendur
unnið tækifæri til að spila Fortnite á
stóra sviðinu. Á sunnudeginum verð-
ur svokallað Stjörnustríð í Fortnite
þar sem þjóðþekktir einstaklingar
keppa samhliða bestu spilurum
landsins og komast að því hver er
besta stjarna Íslands í Fortnite. „Án
þess að segja of mikið þá erum við
komin með einn þekktan grínleik-
ara, samfélagsmiðlastjörnu, alþjóð-
legan íþróttamann og tónlistarmann
sem eru að fara að sýna taktana sína
samhliða bestu spilurum landsins í
Fortnite. Það verður mikil stemning
í kringum þetta og það ætti enginn
Fortnite-aðdáandi landsins að láta
þetta framhjá sér fara.“
Viðburðinum verður streymt
beint og verða fimm myndavélar á
svæðinu. Í útsendingarteyminu eru
m.a. Kristján Einar Kristjánsson
akstursíþróttamaður, Arnmundur
Ernst Backman leikari og Arnar
Tómas Valgeirsson blaðamaður.
Miðasala fer fram á Tix.is.
Stærsti rafíþrótta-
viðburður landsins
AFP
Fortnite keppni Hér má sjá tvo bandaríska háskóla keppa í Fortnite í Atl-
anta. Svipað fyrirkomulag verður á RIG í ár þegar keppt verður í Fortnite.
Keppt í rafíþróttum á Reykjavíkurleikunum í fyrsta sinn í ár
Morgunblaðið/Hari
Rafíþróttir Ólafur Hrafn, formaður RÍSÍ, lofar góðri skemmtun á RIG.