Morgunblaðið - 15.01.2019, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 5. J A N Ú A R 2 0 1 9
Stofnað 1913 12. tölublað 107. árgangur
KAGGI
FYRIR
KEISARA
HLÝ OG
NOTALEG
VINAPLATA
RAPPHÁTÍÐ Í
FYRSTA SINN
Í SALNUM
MILDA HJARTA 30 RAPP Í KÓPAVOGI 11BÍLAR 16 SÍÐUR
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Embætti landlæknis hefur uppi áform um að
endurvekja lífsskrá, þar sem fólk getur skráð
óskir sínar um læknismeðferð eða líknandi
meðferð við lífslok. Verkefninu var hætt fyrir
fjórum árum en nú stendur til að endurvekja
lífsskrána með rafrænum hætti.
Alma D. Möller hefur átt fundi um þetta með
öldrunarlæknum og miðstöð rafrænnar
sjúkraskrár. Sér Alma fyrir sér að lífsskráin
verði inni á vefnum heilsuvera.is, en þar er
hægt að skrá sig sem líffæragjafa, endurnýja
lyf og fræðast um margt er snýr að heilsu og
heilbrigðisþjónustu. Með því að hafa lífsskrána
rafræna bendir Alma á að
fólk geti breytt skráningu
ef aðstæður og óskir breyt-
ast.
„Meðferð við lífslok fólks
er stórt mál, sem þarf að
undirbúa víða og umræðan
þarf að eiga sér stað í sam-
félaginu. Ég hef sérstakan
áhuga á þessu vegna fyrri
starfa minna sem gjör-
gæslulæknir. Það er mikil-
vægt að virða vilja sjúklinga en einnig skiptir
lífsskráin máli þannig að heilbrigðiskerfið sé
ekki að leggja út í óþarfa meðferð eða í óþökk
fólks,“ segir Alma. »18
Fólk geti skráð óskir
um meðferð rafrænt
Landlæknir hyggst endurvekja lífsskrána
Alma D.
Möller
Ísland vann stórsigur á Barein á HM karla í
handknattleik í München í gær, 36:18. Fyrir vik-
ið á Ísland enn möguleika á að ná þriðja sæti í
riðlinum og komast þar með í milliriðil. Í dag fær
íslenska liðið hvíld en mætir Japan á morgun og
Makedóníu á fimmtudag. Vinni Ísland báða leik-
ina er ljóst að liðið kemst áfram. Á myndinni má
sjá hinn 19 ára gamla Hafnfirðing Gísla Þorgeir
Kristjánsson sækja að marki Bareins í gær. Gísli
hefur verið sprækur í síðustu tveimur leikjum Ís-
lands á mótinu en hann er á sínu fyrsta stórmóti
með A-landsliði. kris@mbl.is » íþróttir
AFP
Fyrsti sigurinn í höfn í München
Stórsigur gegn Barein á HM
Örn Hilmisson missti vinstri
handlegg við axlarlið í slysi á sjó
fyrir 20 árum. Hann lætur það ekki
trufla daglegt líf. Með útsjónar-
semi, þrautseigju og slatta af húm-
or gerir hann sömu hluti einhentur
og hann gerði fyrir slysið. Þegar
ljóst var að ekki væri unnt að
bjarga handleggnum ákvað Örn að
láta það ekki brjóta sig niður og er
hann nú daglega spurður af ferða-
mönnum út í útlimamissinn. Hann
segir einlægustu spurninguna hafa
komið frá ungum dreng sem spurði
hvort hann gæti lesið. Drengurinn
gat ekki ímyndað sér hvernig Örn
færi að því að fletta bók. Þá er Örn
eineggja tvíburi og veldur það oft
misskilningi þegar fólk ruglast á
þeim bræðrum. »12
Einhentur þúsund-
þjalasmiður í Eyjum
Elja Örn gerir það sem hann ætlar sér.
„Staðan er þannig bara að það er
ekki hægt að hafa stígana opna að
vetri til þegar það er frost og þíða
til skiptis. Þeir eru bara ekki til
þess gerðir að vera með vetrar-
umferð,“ segir Hákon Ásgeirsson,
teymisstjóri Umhverfisstofnunar á
Suðurlandi, og vísar í máli sínu til
Fjaðrárgljúfurs, en óvíst er hvenær
opnað verður fyrir umferð fólks
þar að nýju eftir að svæðinu var
lokað í síðustu viku. »6
Stígarnir ekki gerðir
fyrir vetrarumferð
Vinnuvikan á Íslandi árið 2017 var um tveimur
stundum lengri en að meðaltali í ríkjum ESB.
Þá er hún 2,4 stundum lengri en í Finnlandi og
2,7 stundum lengri en í Svíþjóð, skv. tölum
Eurostat, hagstofu ESB. Hefur vinnuvika ís-
lenskra karla styst mikið á öldinni. Það skýrir
hvers vegna Ísland nálgast hin löndin.
Ólafur Már Sigurðsson, sérfræðingur á
Hagstofunni, segir ýtarlegri rannsókn á vinnu-
tíma í undirbúningi. Rétt sé að fara varlega í
fullyrðingar og samanburð milli landa.
Vinnuvikan er styst í Danmörku og Noregi.
Hún er farin að lengjast hjá Dönum og í Nor-
egi hefur Erna Solberg forsætisráðherra rætt
um að lengja vinnuvikuna. Meðal annars til að
standa undir velferð eldri borgara. »14
Vinnuvikan er að
styttast á Íslandi
Var tveimur tímum lengri 2017 en í ríkjum ESB
Vinnutími á Norðurlöndunum
og í Evrópusambandinu árið 2017
Klukkustundir á viku
Danmörk Noreg ur Svíþjóð Finnland ESB Ísland
33,2
33,9
36,4 36,7
37,1
39,1
Heimild: Eurostat