Morgunblaðið - 15.01.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 15.01.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019 Veður víða um heim 14.1., kl. 18.00 Reykjavík -3 skýjað Hólar í Dýrafirði -5 alskýjað Akureyri -7 léttskýjað Egilsstaðir -10 heiðskírt Vatnsskarðshólar 0 alskýjað Nuuk -9 léttskýjað Þórshöfn -1 snjóél Ósló 1 heiðskírt Kaupmannahöfn 0 heiðskírt Stokkhólmur -3 heiðskírt Helsinki -4 heiðskírt Lúxemborg 3 skúrir Brussel 5 léttskýjað Dublin 8 skýjað Glasgow 6 skúrir London 8 alskýjað París 8 skýjað Amsterdam 4 skúrir Hamborg 1 léttskýjað Berlín 1 heiðskírt Vín 3 snjóél Moskva -2 alskýjað Algarve 16 heiðskírt Madríd 12 heiðskírt Barcelona 15 heiðskírt Mallorca 16 léttskýjað Róm 14 heiðskírt Aþena 9 skýjað Winnipeg -11 snjókoma Montreal -14 þoka New York -3 heiðskírt Chicago -3 snjókoma Orlando 15 alskýjað  15. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:56 16:20 ÍSAFJÖRÐUR 11:27 15:58 SIGLUFJÖRÐUR 11:11 15:39 DJÚPIVOGUR 10:32 15:43 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á miðvikudag Norðlæg átt 3-13 og stöku él, hvassast austast fyrripartinn, en bjartviðri um landið sunnanvert. Frost 3 til 18 stig, kaldast inn til landsins. Norðaustan 15-23 m/s nyrðra, en 5-13 syðra og eystra. Víða él og frost 1 til 7 stig, en sums stað- ar frostlaust við suðurströndina. Norðan 10-18 í kvöld og kólnar, él nyrðra, en léttir til syðra. Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Guðni Einarsson Baldur Arnarson Anna Sigríður Einarsdóttir „Við munum eiga næsta fund með SA hjá ríkissáttasemjara á miðvikudag,“ sagði Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness (VLFA) og 1. varaforseti ASÍ. Þar verða einn- ig Efling, VR og Verkalýðsfélag Grindavíkur. „Áður en við vísuðum mátum við viðræðurnar þannig að það yrði ekki lengra komist nema að vísa. Við feng- um ekki upplýsingar um hvernig SA ætluðu að mæta okkar kröfum,“ sagði Vilhjálmur. „Okkar markmið er að auka ráð- stöfunartekjur, sérstaklega þeirra sem standa höllustum fæti. Við erum tilbúin að gera það með öllum tiltæk- um ráðum,“ sagði Vilhjálmur. Hann sagði að ábyrgðin á að samningar næðust hvíldu ekki bara á verkalýðs- hreyfingunni heldur líka SA og stjórnvöldum. Miklu skipti hvað stjórnvöld ætluðu að gera. Húsnæðis- mál, skattamál og vextir og verð- trygging vægju mjög þungt í rekstri íslenskra heimila. „Niðurstaða um þessi mál getur spilað stórt hlutverk í að ná sátt á íslenskum vinnumarkaði. Við höfum horft upp á leigumarkað- inn stökkbreytast á síðustu tíu árum og vísitölu leiguverðs hækka um 95%,“ sagði Vilhjálmur. Margir fundir haldnir Samtök atvinnulífsins funduðu í gær með iðnaðarmannafélögunum innan ASÍ. Þau eru Samiðn, Rafiðn- aðarsambandið, MATVÍS, Grafía – stéttarfélag í prent- og miðlunar- greinum, VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna og Félag hársnyrt- isveina. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins (SA), segir þetta vera „alvöru- viðræður“. Dagurinn í dag muni fara í heimavinnu hjá viðsemjendum varð- andi vinnutilhögun. Hann geti að öðru leyti ekki tjáð sig um efnisatriði við- ræðna. Það sé samkomulag um slíkt meðal viðsemjenda. SA muni aftur funda með iðnaðarmönnum í síðari hluta vikunnar. SA munu funda með Landssambandi íslenskra verslunar- manna (LÍV) á morgun. SA funduðu með iðnaðarmannafélögunum og Starfsgreinasambandinu sl. laugar- dag. SA funduðu svo með LÍV og aft- ur með iðnaðarmönnum í gær. Engir fundir voru hjá aðildar- félögum Starfsgreinasambandsins (SGS) við viðsemjendur sína í gær að sögn Flosa Eiríkssonar, fram- kvæmdastjóra SGS. Hann sagði menn þó nota daginn vel til vinnu í undirhópum. Kjaraviðræður á öllum vígstöðvum  Ábyrgðin á lausn er ekki bara hjá verkalýðshreyfingunni, segir formaður VLFA  Heimavinna hjá SA og viðsemjendum um vinnutilhögun í dag  Kjaraviðræður hjá ríkissáttasemjara á morgun nýtti þau sem drenlag undir sorp- haugnum. Ekki var ljóst í gær hvað mikið hafði brunnið af dekkjakurli enda hafði slökkvistarfið forgang. Eldsupptök voru ekki heldur ljós en Björn sagði að þeim dytti helst í hug að þau mætti rekja til flugelda- leifa eða liþíumrafhlaða. Það væru helstu ástæður sjálfsíkveikja á urð- unarstöðum. Þótt farga ætti rafhlöð- um sérstaklega þá gleymdist það stundum. Eldurinn kviknaði líklega nálægt akleið sem lögð var yfir dekkjakurlið til að fara með sorp í baggastæðuna. Ekki kviknaði í aðalstæðunni heldur einungis í undirlaginu. „Við munum fara í gegnum verk- lag okkar og sjá hvort við getum breytt einhverju til að lágmarka Guðni Einarsson Hjörtur J. Guðmundsson Guðrún Hálfdánardóttir Eldurinn sem logaði í gúmmíkurli á urðunarstað Sorpu bs. í Álfsnesi var slökktur síðdegis í gær. Slökkviliðs- menn vöktuðu brunastaðinn til klukkan 21.00 í gærkvöld. Björn H. Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Sorpu, sagði að urðun- arstaðurinn hefði verið lokaður í gær vegna eldsvoðans. Hann kvaðst ekki eiga von á að þetta myndi hafa áhrif á urðun í Álfsnesi til lengri tíma litið. „Tjónið felst í þeirri vinnu sem lögð hefur verið í dekkjakurlið en það skemmdist enginn búnaður eða ann- að,“ sagði Björn. Hann sagði að Sorpa tæki við kurluðum dekkjum og möguleikann á að svona komi upp aftur,“ sagði Björn. Eldurinn kviknaði á laugardaginn var og taldi slökkviliðið að tekist hefði að ráða niðurlögum hans þá. Rokið í gærmorgun blés í glæður sem þarna leyndust og magnaðist upp mikið bál sem náði yfir nokkur hundruð fermetra svæði þegar mest var. Slökkviliðið var aftur kallað í Álfsnes á sjötta tímanum í gærmorg- un. Jarðvegi var mokað yfir brenn- andi dekkjakurlið til að kæfa eldinn og eins var sprautað á hrúguna. Mikinn svartan mökk lagði frá eld- inum en vindáttin var hagstæð svo mökkinn bar af landi og út yfir Kolla- fjörð. Lagt var kapp á að kæfa eldinn áður en vindáttin breyttist síðdegis í gær og reykurinn bærist yfir land. Eldurinn var slökktur  Rokið í gær blés í gamlar glæður í dekkjakurli á urðunar- stað Sorpu í Álfsnesi  Slökkvistarf stóð allan daginn Álfsnes Mikinn og dökkan reykjarmökk lagði frá eldinum. Vindátt var hagstæð og barst reykurinn út á haf. Morgunblaðið/Hari Eldsmatur Á tímabili logaði í nokkur hundruð fermetrum af dekkjakurlinu. Vatni var dælt á eldinn og einnig var jarðvegi mokað yfir til að kæfa hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.