Morgunblaðið - 15.01.2019, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Ég var sjómaður um borð íDanska Pétri VE, þegarég lenti í slysi við Eldeyfyrir rúmum 20 árum.
Mín fyrsta hugsun var að finna
hjálminn sem ég missti af mér. Ég
fann ekki fyrir neinu en sá að
handleggurinn var komin í gegnum
blökk. Adrenalínið fór á fullt, ég
vildi losna sem fyrst úr klemmunni
en á sama tíma sá ég lífshlaup mitt
á örskots stundu,“ segir Örn Hilm-
isson sem nú er starfsmaður Sæ-
heima í Vestmannaeyjum.
„Ég gerði mér grein fyrir því að
ástandið væri alvarlegt og var með
fulla meðvitund alveg þangað til ég
fór í aðgerð á Landspítalanum. Ég
bað lækninn sem tók á móti mér að
gera allt til þess að ég héldi hand-
leggnum en ég vissi samt einhvern
veginn að það yrði ekki. Þegar ég
vaknaði eftir aðgerðina og sá að
handleggurinn var farinn tók ég þá
ákvörðun að láta það ekki brjóta
mig niður og við það hef ég staðið.
Ég hélt axlarliðnum sem gerir mér
kleift með aðstoð stoðtækja að gera
ýmislegt þrátt fyrir einn hand-
legg.“ Örn telur að vegna góðra
gena, uppeldis og húmors hafi hann
náð að lifa góðu lífi þrátt fyrir missi
handleggsins. Öllu máli hafi skipt
stuðningur fjölskyldunnar og nefn-
ir hann sérstaklega eiginkonuna
Anniku og börn þeirra tvö.
Þrátt fyrir að handleggur Arnar
sé farinn finnur hann fyrir því sem
kallað er draugaverkir.
„Ég finn mest fyrir draugaverkj-
um í handleggnum ef ég fæ hita
eða ef lægðir eru á leiðinni. Oftast
fæ ég eins og raflost eða finnst úln-
liðurinn vera að brotna, handlegg-
urinn að brenna eða neglurnar að
brettast upp,“ segir Örn og bætir
við hlæjandi að hann hafi fyrst
reynt að nýta sér draugahandlegg-
inn á mikilvægum leik KR og ÍBV
ellefu dögum eftir slysið.
„Þegar Gummi Ben var að taka
víti lét ég draugahandlegginn grípa
í rassinn á honum þannig að hann
skaut upp á svalir í næstu blokk í
stað þess að hitta markið og ÍBV
vann tvöfaldan titil,“ segir Örn sem
á gott með að sjá spaugilegar hlið-
ar tilverunnar. Hann segir ýmis
fyndin atvik hafa komið upp eftir
slysið.
„Á þessum leik KR og ÍBV kom
frændi minn til mín og eldri bróður
míns og byrjaði að ræða við okkur
um hversu miður sín hann væri
vegna slyssins hjá Erni,“ segir Örn
og hlær. Hann segir að frændinn
hafi ekki reiknað með því að hann
yrði mættur á leik svo fljótt, en
frændinn hélt sig vera að tala við
Óðin sem er eineggja tvíburabróðir
Arnar.
Örn segir þeim oft ruglað saman.
Þeir eigi margar góðar sögur af
fólki sem skilur ekkert í því þegar
það sér Örn ýmist með eina eða
tvær hendur. Hann segir Óðin ekki
leiðrétta misskilninginn og hafa
gaman af.
Örn segist hafa þurft að endur-
skipuleggja allt frá grunni með
einn handlegg. Breytingin á jafn-
vægi líkamans hafi verði erfiðust.
„Fólk gerir sér almennt ekki grein
fyrir röskuninni sem verður á jafn-
vægi við útlimamissi,“ segir Örn og
segist nú þurfa að gæta sín betur í
fjallaklifri og í allri hæð. Miklu
máli skipti að vera í góðu líkamlegu
formi.
Þolinmæði og útsjónarsemi
„Með einn handlegg hef ég þurft
að tileinka mér þolinmæði. Ef ég
finn að ég er farinn að pirrast í ein-
hverju verkefni af því að það geng-
ur ekki nógu hratt fyrir sig þá
hætti ég verkinu. Hugsa hvort ég
geti gert hlutina á annan hátt eða
þurfi að biðja um hjálp,“ segir Örn
sem komst fljótlega að því hann
gæti ekki klappað á tónleikum.
Hann segir Árna Johnsen vin sinn
hafi átt ráð við því.
„Á tónleikum ættu sköllóttir að
sitja á fyrsta bekk og einhentir á
öðrum bekk. Þannig gætu einhentir
notað kollinn á sköllóttum til þess
að sýna ánægju sína með klappi,“
segir Örn sem tekið hefur útlima-
missinum með æðruleysi, húmor og
þolinmæði.
Harðjaxl sem lætur ekkert stoppa sig
Þrautseigur Örn Hilmisson lætur missi handleggjar ekki stoppa sig. Með aðstoð stoðtækja veiðir hann í háf og á stöng, skýtur gæs, stundar fjallaklifur, fót-
og körfubolta, blak, golf og snóker svo eitthvað sé nefnt. Örn segir að þar sem jafnvægi raskist við útlimamissi sé nauðsynlegt að halda sér í góðu fomi.
Örn Hilmisson sem
missti handlegg við öxl í
slysi á sjó 33 ára ákvað
að láta útlimamissi ekki
brjóta sig niður. Hann
segir góð gen, uppeldi og
húmor hafa hjálpað sér.
Samhent Fv. Annika Morit Guðnadóttir eiginkona, dóttirin Sólveig Alda,
Snæfríður Jóhönnudóttir tengdadóttir, sonurinn Þorsteinn Ingi og Örn.
Að sögn Arnar hefur húmor
hjálpað honum að takast á við
breytingarnar sem fylgdu því að
missa vinstri handlegg. Hann
segir fólk iðulega ruglast á hon-
um og Óðni eineggja tvíbura-
bróður hans.
„Nokkrum árum eftir að ég
missti handlegginn fékk ég mér
nýja eldhúsinnréttingu. Ég kíkti
aðeins heim til sjá hvernig gengi
hjá smiðnum að setja upp inn-
réttinguna, ég var sáttur við
gang mála og fór aftur út og í
vinnu. Stuttu síðar kom Óðinn
bróðir að kíkja á framkvæmd-
irnar. Hann labbaði um eldhúsið
og spjallaði við smiðinn. Þegar smiðurinn sá, að því að hann taldi, mig
labba inn með tvo handleggi en hafði séð mig stuttu áður með einn, lagði
hann niður störf og fór heim. Hann sagði mér frá því mörgum árum
seinna að hann hefði ekki þorað annað en að fara heim því hann hefði
haldið að hann væri orðinn vitlaus og sæi ofsjónir,“ segir Örn.
Bræðrunum oft ruglað saman
SMIÐURINN HÉLT AÐ HANN SÆI OFSJÓNIR OG FÓR HEIM
Veiðar Örn með sérstakt belti sem Stoð
hannaði fyrir hann til að nota í stangveiði.
Berum ábyrgð á eigin heilsu www.heilsustofnun.is
KROSSGÖTUR
AUKUM LÍFSGLEÐINA
10.-16. febrúar 2019
Þetta námskeið er fyrir fólk á öllum aldri.
Langar þig að fá meira út úr lífinu?
Finnst þér þig vanta breytingu eða stefnu?
Vantar þig kjark til að stíga skrefið?
Á námskeiðinu fá þátttakendur leiðsögn og
hvatningu til að skilgreina það sem skiptir þá
máli, setja sér markmið og koma þeim í
framkvæmd.
Lögð verður áhersla á að draga fram eigin
styrkleika og nýta þá til þess að láta drauma
rætast.
Einnig verður hugað að mataræði, hreyfingu,
slökun og hugleiðslu og leiðum til að auka
gleðina í lífinu.
Umsjón:
Matti Ósvald – markþjálfi og heilsuráðgjafi
Margrét Grímsdóttir – hjúkrunarfræðingur
Geir Gunnar Markússon – næringarfræðingur
Þóra Sif Sigurðardóttir – íþróttafræðingur
Verð 165.000 kr.
20 % afsláttur fyrir félagsmenn
NLFR og NLFA
Innifalið:
Gisting, ljúffengur og hollur matur, fræðsla og
hóptímar, núvitund, jóga og göngur, leikfimi eða
vatnsþrek, aðgangur að baðhúsi, sundlaugum og
líkamsræktarsal.
Sex daga námskeið frá sunnudegi til laugardags á Heilsustofnun í Hveragerði