Morgunblaðið - 15.01.2019, Side 14
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vinnuvikan hjá körlum á Íslandi
hefur styst um tæp 15% frá aldamót-
um. Á sama tímabili hefur vinnu-
vikan hjá konum lengst um 0,6%.
Þetta er meðal þess sem má lesa
úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu
Íslands. Gögnin fyrir tímabilið 1991
til 2002 byggjast á könnunum sem
gerðar voru tvisvar á ári. Frá 2003
hafa þessar kannanir verið gerðar
allt árið um kring. Spurt er hversu
lengi svarendur vinna á viku að
meðaltali í venjulegri vinnuviku.
Ólafur Már Sigurðsson, sérfræð-
ingur á Hagstofu Íslands, segir Hag-
stofuna ekki hafa rannsakað hvers
vegna vinnuvikan hafi styst hjá körl-
um á tímabilinu en lengst hjá konum.
Hitt sé ljóst að vinnutími karla hér
hafi færst nær því sem þekkist á
öðrum Norðurlöndum. Bilið milli at-
vinnuþátttöku karla og kvenna sé að
minnka. Atvinnuþátttaka kvenna sé
hvergi jafn hlutfallslega mikil og á
Íslandi. Að jafnaði séu Ísland og
Sviss í efstu sætum hvað varðar at-
vinnuþátttöku karla og kvenna.
Minnkar um 8 stundir á viku
Þrátt fyrir að bilið milli kynjanna
sé að minnka munar enn um 8
klukkustundum á viku á körlum og
konum sem er nokkurn veginn sá
fjöldi stunda sem vinnuvikan hefur
styst hjá körlum frá 1991.
Skal tekið fram að hér er miðað
við vinnuframlag á vinnustöðum.
Heimilisstörf eru undanskilin.
Samkvæmt tölum Evrópsku hag-
stofunnar, Eurostat, var meðal-
vinnuvikan á Íslandi rúmar 39 stund-
ir árið 2017. Til samanburðar var
hún að meðaltali 35,9 stundir á Norð-
urlöndunum sama ár, að Íslandi
meðtöldu. Hún var styst í Danmörku
eða 33,2 stundir. Munaði því tæplega
6 stundum á Íslandi og Danmörku.
Til samanburðar var vinnuvikan
að meðaltali 37 stundir í þessum
fimm löndum árið 1995 en 41 stund á
Íslandi. Með því var vinnuvikan 4
stundum lengri á Íslandi að meðal-
tali en á öðrum Norðurlöndum árið
1995 en 3,2 stundum lengri 2017.
Ólafur segir aðspurður ekki rétt
að margfalda vikur ársins með þess-
um tölum. Réttur til að taka frí sé til
dæmis misjafn milli landanna. Heild-
arfjölda vinnustunda á ári þurfi að
reikna með öðrum hætti. Heilt yfir
hafi Íslendingar þó unnið lengri
vinnuviku að meðaltali síðustu ára-
tugi en til dæmis Danir. Loks bendir
Ólafur á að íslensku gögnin byggist á
minni svarenda en ekki stimpil-
klukku. Eilítill munur sé á samlagn-
ingu Hagstofunnar og Eurostat.
43
42
41
40
39
38
37
36
35
34
33
32
Ísland
Evrópusambandið*
Finnland
Svíþjóð
Danmörk
Noregur
Heimild: Eurostat
1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
39,1
37,1
36,7
36,4
33,9
33,2
Klukkustundir á viku
41,0
38,4
38,1
36,2
35,8
34,0
*Löndum ESB fjölgaði á tímabilinu
Samanburður á vinnutíma á Norðurlöndunum og í Evrópusambandinu 1995-2017 Breyting 1995-2017
Ísland -5,5% Svíþjóð +0,6%
Evrópusambandið -7,3% Danmörk -4,6%
Finnland -3,7% Noregur -0,3%
Vinnuvikan hjá körlum að styttast
Könnun Hagstofunnar bendir til að karlar á Íslandi vinni að jafnaði 8 stundum skemur á viku en 1991
Vinnuvikan hjá konum hefur lengst Vinnuvikan er lengri á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum
Vinnutími karla og kvenna 1991-2017
Klst. á viku samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar
55
50
45
40
35
30
1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005 2007 2009 2011 2013 2015 2017
Karlar
Karlar og
konur samtals
Konur
Breyting 1991-2017: -15,6%
Breyting 2000-2017: -14,9%
2010-’17: -0,9%
43,3
51,3
Breyting 1991-2017: -8,9%
Breyting 1991-2017: +3,5%
Breyting 2000-2017: +0,6%
2010-’17: +2,3%
35,7
34,5
39,9
43,8
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019
Guðmundur D. Haraldsson,
stjórnarmaður í Öldu – félagi um
sjálfbærni og lýðræði, hélt erindi á
málþingi félags-
ins um styttingu
vinnuvikunnar í
Hörpu sl. laug-
ardag. Efnt var
til málþingsins
með stuðningi
ASÍ, BSRB,
BHM og Eflingar
stéttarfélags.
Hafa fulltrúar
stéttarfélaganna
talað fyrir stytt-
ingu vinnuvikunnar í yfirstandandi
kjaraviðræðum. Rætt er um hækk-
un dagvinnulauna á kostnað yfir-
vinnu í þeim viðræðum.
Breyting í lykilgreinum
Guðmundur segir aðspurður að
ein skýringin á því að vinnuvikan
hafi styst hjá körlum á Íslandi kunni
að vera breytingar í sjávarútvegi og
landbúnaði. „Vinnustundirnar hafa
verið margar í þessum greinum en
þeim hefur sennilega verið að fækka.
Þá hefur starfsfólki í þessum grein-
um fækkað sem hlutfall af heildar-
fjölda vinnandi fólks,“ segir hann.
Fram kom í erindi hans að vinnu-
vikan á Íslandi hefur verið lengri en
á öðrum Norðurlöndum síðustu ára-
tugi. Jafnframt sé starfsævin hjá
körlum mun lengri á Íslandi en á
öðrum Norðurlöndum. Hún sé þann-
ig 48,8 ár á Íslandi en 38,7 ár í Finn-
landi, 40,4 ár í Noregi, 41,2 ár í Dan-
mörku og 42,6 ár í Svíþjóð. Þá sé hún
45,2 ár hjá konum á Íslandi en 37,4
ár í Finnlandi, 38 ár í Danmörku og
Noregi og 40,7 ár í Svíþjóð.
Almennt sé starfsævin hjá körlum
á Íslandi 10,5 árum lengri en í
ríkjum ESB og 11,8 árum lengri hjá
konum. Tölurnar miðast við 2017.
Hefur áhrif á andlega líðan
Guðmundur segir alþjóðlegar
rannsóknir benda til að því fylgi
margvíslegur ávinningur að stytta
vinnuvikuna. Til dæmis geti mikil
vinna bitnað á andlegri heilsu starfs-
manna og því fylgt mikill kostnaður
fyrir samfélagið vegna meðferða og
vinnutaps. Þá sé framleiðni jafnan
hærri í löndum þar sem vinnuvikan
er styttri en í löndum þar sem vinnu-
stundirnar eru fleiri. Það sé trúlega
vegna þess að líðan sé betri, fólk nái
að hvílast betur og fyrir vikið eigi
fólk auðveldara með að sinna vinnu.
Starfsævin mun
lengri á Íslandi
Fulltrúi Öldu vísar til hagtalna
Guðmundur D.
Haraldsson
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Útsalan er hafin
Loðfóðraður.
Reimaður að framan,
rennilás að innanverðu.
Gúmmísóli.
Herrakuldaskór
verð
98
r 8.995
41-46
30-70%
afsláttu
r
Útsölu
4.4
Verð áðu
Stærðir