Morgunblaðið - 15.01.2019, Side 22

Morgunblaðið - 15.01.2019, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019 ✝ Jón Sigurðs-son fæddist 22. september 1947 í Reykjavík. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspítal- ans við Hringbraut 29. desember 2018. Foreldrar hans voru Sigurður Ólafsson, f. 7.3. 1916, lyfsali í Reykjavík, d. 14.8. 1993, og Þorbjörg Jónsdóttir, f. 1.5. 1918, d. 20.3. 2002. For- eldrar Sigurðar voru Ólafur Bjarnason, f. 10.4. 1889, og Kristólína Kristjánsdóttir, f. 4.8. 1885. Foreldrar Þorbjargar voru Jón Kristjánsson, f. 14.6. 1881, og Emilía Sighvatsdóttir, f. 12.10. 1887. Bróðir Jóns er Ólafur, f. 18.6. 1946, verkfræðingur á Seltjarnarnesi; maki Helga Kjaran kennari, f. 20.5. 1947. Jón kvæntist 6.9. 1969 Ásdísi Magnúsdóttur, f. 5.11. 1947 á Ísafirði, lyfjatækni í Garðabæ. Foreldrar hennar voru Magnús D. Hjartarson, f. 7.12. 1923, og Kristjana S. Markúsdóttir, f. 27.7. 1926. Fósturforeldrar Ás- dísar voru Hermann B. Hálf- dánarson, f. 30.5. 1918, og Guð- ríður Þ. Markúsdóttir, f. 11.5. 1920. Börn Jóns og Ásdísar: 1) Sigurður Örn, f. 13.6. 1970, frá Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg 1981. Hann fékk þá sérfræðiviðurkenningu og vann á svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítalans frá 1981 og var einn af stofnendum Læknahúss- ins. Jón tók þátt í kennslu læknanema frá 1981 og var ráðinn aðjúnkt við læknadeild HÍ 1998. Eftir alvarlegt um- ferðarslys 1998 starfaði hann í hlutastarfi sem trygginga- læknir hjá TR. Jón tók virkan þátt í félags- störfum og norrænu samstarfi, átti sæti í stjórn félags ís- lenskra svæfinga- og gjör- gæslulækna og var í stjórn nor- ræna svæfingalæknafélagsins. Hann var í stjórn SEM um ára- bil. Jón var forseti reglunnar Bergelmis og virkur þátttak- andi í starfi hennar í yfir 50 ár. Jón spilaði brids allt frá unglingsárum og var mikill áhugamaður um landafræði og náttúru Íslands og ferðaðist víða um byggðir og óbyggðir landsins alla tíð. Jón var kjörinn heiðursfélagi Svæfinga- og gjörgæslulækna- félags Íslands árið 2000 og val- inn heiðursfélagi í Læknafélagi Íslands 2018. Jón skrifaði greinar í íslensk og erlend fag- tímarit og gaf árið 2010 út bók sem hann skrifaði um sögu svæfinga, Svæfingar á Íslandi í 150 ár. Útför Jóns fer fram frá Hall- grímskirkju í dag, 15. janúar 2019, klukkan 15. verkfræðingur í Ósló; maki Sigríður O. Guðjónsdóttir, f. 2.2. 1971, iðjuþjálfi. Börn þeirra: a) Árni Friðrik, f. 7.5. 1989; maki Anna G. Baldursdóttir, f. 22.7. 1988; barn: Laufey Elísabet, f. 10.1. 2018, b) Jó- hanna Guðrún, f. 19.10. 1991; maki Kristján Harðarson, f. 7.12. 1993, c) Jökull Andri, f. 17.9. 1994; maki Lovísa Jóhanns- dóttir, f. 2.10. 1991, d) Signý Stella, f. 24.5. 1999, og e) Logi Arnar Jón, f. 4.10. 2002. 2) Þor- björg, f. 9.8. 1974, viðskipta- fræðingur og flugfreyja í Garðabæ; maki Sæþór Ólafs- son, f. 22.4. 1975, landfræð- ingur og kennari. Börn þeirra: a) Katla Brá, f. 30.4. 2002, b) Jón, f. 6.8. 2009, og c) Ásdís Dóra, f. 26.7. 2011. 3) Hermann Páll, f. 19.1. 1977, læknir í Garðabæ; maki Éva Margit Tóth, f. 21.1. 1979, læknanemi í Debrecen. Jón ólst upp í Reykjavík, gekk í Breiðagerðisskóla og Réttarholtsskóla og lauk stúd- entsprófi frá MR 1967. Jón lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands 1974 og framhaldsnámi í svæf- inga- og gjörgæslulækningum Elsku pabbi minn, ég sakna þín. Lífið hefur upp á svo margt að bjóða, þú kenndir mér að sjá tækifærin og sýndir mér að valið er okkar, það erum við sjálf sem veljum hamingjuríkt líf. Lífið er samsett af tímabilum sem hvert hefur sinn sjarma, sagðir þú svo oft. Ég fékk mörg dásamleg ár með þér, miklu fleiri en ég þorði eitt sinn að vona, fram undan eru mörg öðruvísi dásamleg ár þar sem ég minnist þín og hugsa til þín. Ég er þakklát fyrir að börn- in mín fengu að kynnast þér og búa til skemmtilegar minningar með þér. Njóttu þess að hlaupa á vit nýrra ævintýra. Takk fyrir að sýna mér og kenna mér hvað það er sem virkilega skiptir máli. Ég hlakka til að hitta þig aftur en það verður ekki strax, það er svo margt sem ég þarf að gera fyrst. Láttu þér líða vel, elsku pabbi minn. Þorbjörg Jónsdóttir. Jón bróðir minn er fallinn frá eftir hetjulega baráttu. Að sögn mömmu var Jonni frekar uppá- tækjasamur í bernsku, það þurfti stundum að setja á hann spotta til að halda aftur af honum en ég sem var sagður rólegri vor- kenndi honum og leysti eitt sinn hnútana, stakk hann þá af út úr garðinum og fannst fyrst eftir mikla leit. 1953 fluttum við inn í Teigagerði, þar sem sem við slit- um barnsskónum. Við deildum herbergi en sjaldan slóst upp á vinskapinn en auðvitað var stundum slegist eins og stráka er siður. Í risinu var mikið spilað bob og veltipétur og úti var hjólað, farið í hark og í hverfaslagi. Fram á unglingsár vorum við snoðaðir og sendir í sveit á vorin til afa, ömmu og Böggu á Brimilsvöllum ásamt frænd- systkinum okkar. Þetta var okk- ar annað heimili og alla tíð síðan var mikið rætt um Velli. Á milli okkar var rúmt ár og æxluðust mál þannig að ég tengdist nokkrum bekkjar- bræðrum Jonna betur en mínum. Á unglingsárum vorum við í mælingum á sumrin og litlu var eytt á fjöllum og því keyptum við saman Landrover sem í voru sæti fyrir sjö. Jonni stakk upp á að koma á samkeppni við Strætó og fylltum við bílinn daglega af bekkjarbræðrum hans sem voru á leið niður í MR. Það var aðeins lengra á milli okkar á náms- árunum enda vorum við til skipt- is erlendis. Jonni gifti sig, lauk læknanámi, eignaðist börn og lauk sérfræðinámi í Svíþjóð, vann á Landspítalanum og víðar, kom sér upp húsi, barnabörnin komin til sögunnar og lífið lék við hann og fjölskylduna. Fyrir 20 árum kom reiðar- slagið þegar ekið var aftan á bíl hans sem valt. Jonni hlaut við það alvarlegan mænuskaða sem markaði líf hans og fjölskyldunn- ar síðan. Fljótlega kom í ljós að hann ætlaði ekkert að gefast upp. Þau Ásdís keyptu sér fjallabíl og felli- hýsi, Jónshús, og nú héldu hon- um engin bönd frekar en fyrri daginn. Hann fór m.a. með mér inn í Þórsmörk og eitt sinn var hringt ofan af Sprengisandi og spurt hvað tappa mætti mikið úr dekkjum til að létta för. Það var haldið til útlanda, á ráðstefnur og félagslífinu sinnt. Að sjálf- sögðu var þetta og annað sem hann tók sér fyrir hendur ómögulegt án hjálpar Ásdísar sem leiddi hann í gegnum þessa þrautagöngu af þvílíkum krafti og þrautseigju að aðdáun vekur. Jonni átti ekki gott með að vinna á tölvu, til þess notaði hann pinna og pikkaði með honum staf fyrir staf en með ótrúlegri þol- inmæði samdi hann heila bók um sögu svæfingalækninga. Hann var grúskari og var iðinn við að leita að gömlum greinum og myndum tengdum forfeðrum okkar og leitaði oft eftir aðstoð minni og frændfólks við lausn ráðgátna eins og „af hverju dó hún langamma Gróa á Greni- vík?“ Fyrsta nóvember síðastliðinn voru 100 ár síðan móðir okkar fæddist og haldið var fjölskyldu- hóf af því tilefni. Jonni hélt ræðustúf og sagði frá atburðum frá 1918, m.a. að amma okkar hefði verið smituð af spænsku veikinni þegar hún átti mömmu og að hún hefði verið sú fyrsta sem fæddi barn og báðar lifðu veikina af. Skömmu síðar veiktist hann alvarlega en nú héldu böndin. Hans verður sárt saknað og megi Guð varðveita hann. Ólafur Sigurðsson. Við minnumst í dag föður- bróður okkar, Jóns Sigurðssonar læknis. Jonni frændi var eini bróðir pabba og aðeins ár á milli þeirra og tengslin náin í sam- ræmi við það. Það var ávallt líf og fjör í kringum fjölskyldu Jonna frænda og alltaf jafnspennandi að heimsækja þau Ásdísi og krakkana í Brekkubyggð. Fyrir okkur Vesturbæingana var það alltaf bíltúr og ævintýri þegar haldið var í Garðabæinn. Sama átti við þegar þau komu við hjá okkur á Ásvallagötunni eða þeg- ar fjölskyldan hittist öll hjá afa og ömmu í Teigagerði og síðar á Grandaveginum. Þá gekk oft talsvert meira á en ætla mætti miðað við fjöldann sem var á staðnum, enda voru flestir við- staddra meira en tilbúnir að láta í sér heyra, leggja eitthvað til málanna eða láta ljós sitt skína með öðrum hætti. Jonni lét auð- vitað ekki sitt eftir liggja í þeim efnum. Jonni frændi var alltaf léttur í lund, hlýr og góður. Hann var að upplagi glaðlyndur en um leið ábyrgur fjölskyldufaðir og vand- aður læknir. Við eigum öll minningar um heimsóknir frá Jonna með læknatösku, á ýmsum tímum sól- arhringsins, t.d þegar einhver var með eyrnabólgu á Ásvalla- götunni eða leita þurfti álits læknis af öðrum ástæðum. Það var okkur sem öðrum mikið áfall þegar Jonni slasaðist alvarlega fyrir tuttugu árum. Hann tókst á við hlutskipti sitt af æðruleysi og auðmýkt. Alltaf höfum við dáðst að því hvernig þau hjónin héldu áfram með lífið, bæði í leik og starfi, þrátt fyrir þessar gjörbreyttu aðstæður. Jonni sýndi því sem við systkinin tókum okkur fyrir hendur alltaf mikinn áhuga, hvort sem það sneri að námi okkar eða starfi, lögfræði, læknisfræði eða líf- fræði. Hann hafði auðvitað mikla þekkingu á sínum sérsviðum en um leið voru áhugasviðin mörg og þekking hans fjölbreytt. Hann hvatti okkur áfram og gaf góð ráð. Við erfið veikindi lítils frænda síns veitti Jonni ómet- anlegan stuðning og var mikið í mun að gera það sem hann gat til að styrkja fjölskylduna á erfiðum tímum og létta áhyggjurnar. Í nóvember fagnaði stórfjölskyld- an 100 ára fæðingarafmæli ömmu Obbu. Þeir bræður og af- komendur komu saman. Við er- um öll þakklát fyrir það að Jonni gat komið á þetta seinasta ætt- armót og að hann hélt fróðlega ræðu um spænsku veikina, frostaveturinn mikla og heims- styrjöldina fyrri. Við minnumst Jonna frænda með miklum hlýhug, þökkum honum samfylgdina og við systk- inin sendum Ásdísi, börnum Jonna og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Birgir Ármannsson, Björg Ólafsdóttir, Ólöf Ólafsdóttir. Ég kveð nú með söknuði minn gamla, góða vin Jonna. Við vor- um jafnaldrar, hann tveimur dögum eldri en ég og því alltaf sá eldri og reyndari eins og hann minnti mig stundum á. Foreldrar okkar voru góðvinir og við Jonni kynntumst því snemma og úr varð vinátta sem hélst síðan alla tíð. Við fylgdumst svo að gegnum allt skólakerfið og upp í háskóla. Á háskólaárunum stofnuðum við báðir fjölskyldur og bjuggum í sömu blokkinni í Breiðholtinu. Enn styrktust því vinabönd fjöl- skyldna okkar. Síðan var haldið til Svíþjóðar í framhaldsnám. Jonni og fjöl- skylda í Gautaborg en ég og fjöl- skylda norður í Falun. Þótt langt væri þá á milli okkar var oft farið í heimsóknir. Svo var flutt aftur heim til Ís- lands og við urðum nágrannar í Garðabæ. Eiginkonur okkar stofnuðu Flaggskipafélagið og buðu nokkrum öðrum fjölskyld- um nýheimfluttra að vera með. Með þessum hópi tókst mikil vin- átta. Fjölskyldur okkar hafa hist reglulega. Þegar börnin okkar voru ung, ferðuðumst við saman innanlands og oft upp í óbyggðir með allan skarann okkar. Á vet- urna var farið í bústaði LÍ í Brekkuskógi. Haldnar voru kvöldvökur og mikið sprellað og skemmt sér og allir muna þegar Jonni eitt sinn dansaði ballett í þar til passandi klæðnaði við mikinn fögnuð áhorfenda. En þegar minnst varði breytt- ist allt á augabragði fyrir u.þ.b. 20 árum. Jonni lenti í bílslysi og hlaut mænuskaða og var bund- inn við hjólastól eftir það. En Jonni lét ekki bugast. Staðráðinn í að lifa áfram sigr- aðist hann á hverri þrautinni af annarri og aðlagaði sig nýjum aðstæðum, með hjálp Ásdísar og fjölskyldunnar. Hann hélt líka áfram að ferðast, bæði innan lands og utan og lét fátt stoppa sig. Eitt sinn leigðum við bíl saman í Danmörku og ferðuð- umst um. Þetta var á svipuðum tíma og íslenskir fjallagarpar voru að klífa Everest. Jonni stakk upp á að við tækjum þá til fyrirmyndar og klifum hæsta fjall Danmerkur; Himmel- bjerget. Við gerðum það og tók- um myndir af okkur með ís- lenska fánann. Öll þessi ár hef ég aldrei heyrt Jonna kvarta. Hann sagði mér eitt sinn að hann teldi sig hafa verið heppinn. Hann lifði af slys- ið og fyrst höfuð og hugsun hefði ekki skaðast þá ætlaði hann sér að lifa áfram og reyna að verða til gagns. Hann stóð við þetta öll þessi 20 ár, með óbifandi stuðn- ingi Ásdísar sem hefur staðið með honum og stutt hann eins og klettur alla tíð af aðdáunarverðri umhyggju og þrautseigju. Jón vann eftir slysið í allmörg ár sem tryggingalæknir í hluta- starfi hjá TR, þar sem þekking hans og reynsla kom að góðum notum. Hann hélt einnig áfram að sinna kennslustörfum við læknadeild HÍ. Þegar hann slas- aðist var hann kominn áleiðis með að skrifa sögu svæfinga á Íslandi í 150 ár. Honum tókst að ljúka þessu verki og bókin kom út 2010 og er mikilvægt innlegg í sögu læknisfræði á Íslandi. Auk ýmissa annarra fé- lagsstarfa tók Jonni virkan þátt í starfsemi bekkjarfélags okkar úr MR, Bergelmis, sem stofnað var á gamlársdag 1967. Hann var forseti Bergelmis lengst af og gegndi embættinu síðustu árin til hinstu stundar. Eitt af síðustu verkefnum hans, þrátt fyrir veikindin, var að skipuleggja með myndarbrag Hámessu Ber- gelmis á gamlársdag. Við Sigga og fjölskylda okkar kveðjum nú góðan vin með sökn- uði og sendum innilegar samúð- arkveðjur til Ásdísar og fjöl- skyldu. Björn Már Ólafsson. Haustið 1967 innritaðist stór hópur stúdenta í læknadeild HÍ og mættu vonglaðir í fyrsta tíma í vefjafræði hjá Jóni Steffensen, stórt hundrað fornt, sæti fyrir um fjörutíu en meirihlutinn sat í tröppum til hliðar og þrefaldur mannhringur stóð aftast. Steffensen leit yfir salinn og sagði góðlátlega: Það eru margir mættir í dag en það verða nú nóg sæti fyrir alla að vori. Af þessum fjölda komust 36 áfram og mynda kjarnann í þeim hópi sem kennir sig við út- skriftarárið 1974. Sláttumaður- inn slyngi hefur nú kallað til sín níu, nokkrir töfðust í námi en aðrir bættust við hópinn síðar. Jonni var í þessum hópi, frá- bær námsmaður og félagi, bros- mildur og húmoristi með þann meðfædda eiginleika að setja punktinn ávallt á réttum tíma og geta gert létt grín að sjálfum sér jafnt og öðrum. Á þessum fyrstu árum greip ástin margan unglinginn og Jonni og Ásdís bundu þá hnúta sem mannlegur máttur náði aldr- ei að slíta. Ekki er ætlunin að rekja hér starfsferilinn, en við þekktum læknanemann, aðstoðarlækninn, svæfingalækninn og vísinda- manninn sem var alls staðar virt- ur og elskaður. Best þekktum við þó sjálfan manninn sem eftir hörmulegt slys fyrir tuttugu ár- um var sviptur svo miklu af líkamlegri getu en hélt sinni and- legu reisn, lífsvilja og náði með þrautseigju meiri færni en nokk- urn hefði grunað. Jonni var mikil félagsvera og átti það gjarnan til að lenda í stjórn sinna félaga bæði fyrir og eftir slysið og hafði gott minni á menn og málefni. Hann tók sam- an sögu svæfinga á Íslandi í 150 ár, sem kom út 2010 og er ótrú- legt þrekvirki af hans hálfu. Í okkar hópi var hann maður minninga, hafði alltaf tekið mikið af ljósmyndum og gat brugðið upp leiftursýn til liðinna ára, jafnvel allt aftur í barnaskóla sumra okkar. Hann mætti nær alltaf á ár- legt samsæti árgangsins fyrir árshátíðir lækna og á árshátíðina sjálfa og þeir sem ekki mættu máttu hafa sig alla við til að finna frambærilega afsökun. Ekki var alltaf gott aðgengi að heimilum sumra okkar og mátti stundum sjá vissan efa í svip barna hans sem fylgdu honum á vettvang, þegar lagt var af stað upp bratta og snúna stiga með hjólastólinn, en Ásdís lét á engu bera. Frá- bærar minningarnar eigum við frá ferð hópsins til Sikileyjar og dvölinni á töfraeyjunni Ustica þar sem allt gekk upp, þó ekki nákvæmlega eftir bókinni. Fyrst og fremst var Jonni var mikill fjölskyldumaður og höfum við kynnst samheldni hans nán- ustu og á Ásdís ómælda aðdáun okkar og virðingu, hún fær okkar riddarakross í ár. Jonna er sárt saknað í okkar hópi en við erum lánsöm að hafa fengið að vera með í för nokkurn spöl á lífsleiðinni og sendum Ás- dísi, Sigurði, Þorbjörgu og Her- manni, tengdabörnum og barna- börnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd útskriftarhópsins 74+, Magni Jónsson. Góður vinur, félagi og fyrrver- andi samstarfsmaður, Jón Sigurðsson, er látinn. Hann lærði svæfinga- og gjör- gæslulækningar í Gautaborg og kom heim til starfa á Landspít- alanum árið 1981. Þar var kom- inn öflugur fulltrúi nýrrar kyn- slóðar innan þessarar greinar læknisfræðinnar sem var að taka miklum breytingum og var ört vaxandi á þessum tíma. Það var einstaklega gaman að starfa með Jóni. Hann lét til sín taka, hafði ákveðnar skoðanir og vildi gera ýmsar breytingar þar sem hags- munir og öryggi sjúklinganna voru ávallt í fyrirrúmi. Hann var mikill og vinsæll kennari í sínu fagi, enda var kennslan honum mjög eðlislæg. Í minningunni var Jón alltaf á fleygiferð að sinna hinum ýmsu verkefnum, það átti illa við hann að sitja auðum höndum. Þá var hann einstak- lega léttur í lundu og skemmti- legur maður sem setti svip sinn á vinnustaðinn. Hann lét einnig til sín taka við félagsstörf og tók virkan þátt í stjórnum ýmissa fagfélaga bæði á Íslandi, í Svíþjóð og í norrænu samstarfi svæfingalækna. Alvarlegt umferðarslys fyrir 20 árum varð til þess að Jón lam- aðist að miklu leyti og hafði að- eins takmarkaða hreyfigetu í efri úlimum. Í kjölfarið varð hann að hætta störfum á Landspítalan- um. Við tók mikil endurhæfing þar sem Jón sýndi einstaka að- lögunarhæfileika í nýjum og erfiðum aðstæðum. Síðar tók hann til starfa á nýjum vettvangi hjá Tryggingastofnun ríkisins og lét mikla fötlun sína ekki aftra sér. Þar kom þekking hans og innsæi að góðum notum. Jón var aldrei aðgerðalaus. Hann lagði m.a. á sig mikla vinnu við gagnasöfnun og útgáfu bókarinnar „Svæfingar á Íslandi í 150 ár“, mikið þrekvirki sem kom út árið 2010. Glæsilegt og mikilvægt verk. Það má segja að Jón hafi kennt okkur margt á lífsleiðinni. Hann sýndi það í verki ásamt fjölskyldu sinni og vinum hvern- ig það er farsællega hægt að tak- ast á við jafn alvarlegt áfall og hann varð fyrir í slysinu fyrir 20 árum. Tengsl hans við svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítalans héldu áfram að vera mikil, m.a. hélt hann áfram kennslu í faginu við HÍ sem aðjunkt ásamt því að koma að kennslu norrænna lækna í gjörgæslunámi svo eitt- hvað sé nefnt. Hann var ávallt mættur á læknaráðstefnur þegar þess gafst kostur og hélt miklu sambandi við samstarfsfélaga sína. Vinskapurinn var mikill og traustur og félagslífið gott. Mörg árin var farið í „jeppaferð Nonna“, þar sem vinahópurinn naut samveru úti í náttúrunni. Jón var jafnan hrókur alls fagn- aðar og lifði innihaldsríku lífi ásamt Ásdísi konu sinni og fjöl- skyldu. Ásdís var kletturinn hans eftir slysið. Það var hún sem gerði Jóni mögulegt að lifa gæfu- ríku lífi, var alltaf til staðar, sá um alla hluti og umgekkst hann af þeirri nærgætni sem þurfti. Óhætt er að segja að styrkur hennar ásamt dugnaði barna og stórfjölskyldunnar hafi skapað Jóni hamingjuríkt líf þar til yfir lauk. Við sendum að lokum Ásdísi og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Oddur og Magnús. Ég kynntist Jonna fyrst í landsprófi í Vonarstræti haustið 1962. Þá vorum við reyndar ekki í sama bekk en í sama kunn- ingjahópi. Það fyrsta sem maður kynntist hjá Jonna var húmorinn Jón Sigurðsson HINSTA KVEÐJA Við elskum þig afi, þú varst alltaf svo góður við okkur, við söknum þín. Kveðja Ásdís Dóra og Jón.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.