Morgunblaðið - 15.01.2019, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 15.01.2019, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þegar þú skipuleggur framtíðina verð- ur þú að vera raunsæ/r og skilja í milli þess sem er mögulegt og hins sem aldrei getur orð- ið. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú átt fullt í fangi með að komast yfir allt sem þú þarft að leysa af hendi. Ef þú leyfir sjálfri/um þér að blómstra muntu undrast hvað þú getur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ættir að láta það eftir þér að kaupa eitthvað sem getur bætt heilsu þína til lengri tíma litið. Gefðu þér tíma til að vera með fjölskyldunni og rifja upp gamlar minningar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þetta er góður dagur til að tala við yf- irmanninn. Þér finnst þú hafa skilað góðu verki og því eigir þú umbun skilið. Gættu þess samt í gleðinni að ganga ekki á rétt annarra. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú finnur til þarfar til þess að hjálpa náunganum í dag. Þú gætir fengið óvænta peninga eða gjöf, annaðhvort beint eða í gegn- um einhvern nákominn. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú einbeitir þér að því að byggja upp ánægjuleg, samúðarfull og djúp sambönd. Skemmtilegt daður bíður þess að þú takir þátt í leiknum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Í starfi þínu þarftu nú frekar að sýna sam- starfsvilja en sjálfselsku. Viðræður við rétta aðila geta leyst flókin vandamál í eitt skipti fyr- ir öll. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að læra að notfæra þér betur þá góðu strauma sem leika um þig. Fátt er betra en góðir vinir svo leggðu þig fram um að eiga með þeim ánægjulega stund. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Láttu ekkert verða til þess að þú standir ekki við áætlun þína varðandi fjárhag- inn. Fáðu vin þinn í lið með þér því hann hefur góða dómgreind í fjármálum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er svo góður félagsskapur af þér að fólk er óvenju gjafmilt til að halda í þig. Traust er það sem þú þarfnast – og alveg nóg af því. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Varastu að dæma hlutina af fyrstu kynnum því oft ber yfirborðið ekki með sér hvað undir býr. Gakktu ótrauð/ur til verks við nýtt verkefni, þótt þér sýnist ýmis ljón á veg- inum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er hyggilegt að hafa augun opin fyrir nýjum tækifærum. Mundu að það þarf tvo til að deila og að hlýlegt bros getur breytt heildarmyndinni. Besta lesefnið í blöðum gærdags-ins voru minningargreinar um listamanninn Tryggva Ólafsson. Víkverji er í hópi aðdáenda, eins og flestir, og naut þess að renna yfir falleg skrif um þennan merka mann. Ekki síst lýsingar á manninum sjálf- um, djassunnanda og ástríðukokki, fróðum og skemmtilegum. Víkverji var ekki svo heppinn að kynnast Tryggva meðan hann lifði, né heldur að eignast mynd eftir hann. Verk hans munu þó lifa áfram og hver veit nema Víkverji klófesti eitt slíkt síðar. Því miður mun Víkverji þó aldrei fá að smakka kjötbollurnar hans Tryggva. x x x Tryggvi bjó um áratugaskeið íDanmörku. Þar í landi er margt gert öðruvísi en hér á landi, sumt betur og annað verr eins og gengur. Eitt af því sem Danir gera mun bet- ur en Íslendingar er hvernig þeir haga endurvinnslu á drykkjar- umbúðum. Þar gengur fólk að end- urvinnslumóttöku við flestar versl- anir þannig að auðvelt er að kippa með sér litlum poka þegar labbað er út í búð. Og afraksturinn færðu í formi inneignar í búðinni. Hér á landi þarf hins vegar að keyra á sér- stakar móttökustöðvar til að losa sig við dósir og flöskur með tilheyrandi fyrirhöfn. x x x Eftir að birgðir höfðu safnast uppum nokkurra mánaða skeið mannaði Víkverji sig loksins upp í að fara á Sorpu á dögunum. Skottið á fjölskyldubílnum var fyllt af dós- um og skundað af stað. Í fyrstu leit út fyrir að lítið væri að gera en þeg- ar að var komið reyndist skúrinn fullur af fólki og Víkverji þurfti að bíða í röð sem náði út á stétt. Auð- vitað var aðeins önnur dósavélin virk þennan daginn og nokkrir at- vinnumenn voru á undan í röðinni. Það eina sem gerði þessa rúmu hálf- tímalöngu bið þolanlega var að popparinn Herbert Guðmundsson mætti á svæðið með tilheyrandi lát- um. Er samt virkilega ekki hægt að bjóða upp á þægilegri lausnir en þetta? Er það eðlilegt að þurfa að bíða í hálftíma eftir að skila af sér dósum? vikverji@mbl.is Víkverji Því að hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni þar er ég mitt á meðal þeirra. (Matt: 18.20) Pantaðumat frá yfir 100 veitingastöðum, við sendum eða þú sækir á ekki að horfA á bolTanN? Helgi R. Einarsson sendi Vísna-horni tvær limrur með at- hugasemdinni „gæti verið skárri (tilefni til áramótaheita)“: Í Mosfellssveitinni býr Ýr bóndi hennar rýr fýr hund- er-latur hælismatur halur dapur, kýrskýr. Síðan er „Þolinmæði“: Margskonar finnast oft meinin og misjöfn í nefunum beinin, samt Diddi spáði í Dóru og náði, því dropinn holaði steininn. Á sunnudaginn hafði Ólafur Stef- ánsson orð á því á Leirnum að farið væri að snjóa: Í dag hefur maldað í mó, ég man ekki viðlíka snjó. En minnið er svikið ég man fyrir vikið, margt fremur illa,- og þó ! Sama dag sendi Sigmundur Benediktsson „kátar kveðjur“: Blessuð og sæl á björtum degi! Brosir nú hin bjarta vídd, blikar glóð á sundum. Fjöllin standa föli skrýdd, frosið hrafl á grundum. Fía á Sandi lýsti því sem fyrir augu bar: Forma hvíta fannamynd frost og bylur Iðan gerir abstraktmynd sem enginn skilur. Síðan kom Ingólfur Ómar: Birtan glæðir hugans hnoss hjartað fyllist blíðu. Sólargeislar gullinn koss gefa landi fríðu. Og að lokum Fía á Sandi: Í haust var landið fannafrítt. Nú fellur snjórinn niður, blítt. Allt er nú sem orðið nýtt ósporað og mjallahvítt. Þennan sama sunnudag sendi Ingólfur Ómar mér vísu, – „og ekki spillir að veðrið. Er með eindæmum gott, bjartviðri og sú gula skín glatt“: Býður Glóey björt og hlý brosin yndislegu. Gulli ofin skarlatsský skreyta himinvegu. Þorsteinn í Gilhaga orti: Margan hendir manninn hér meðan lífs er taflið þreytt að hampa því sem ekkert er og aldrei hefur verið neitt. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Úr Mosfellssveit og abstraktmynd að norðan Í klípu „ÞETTA GETUR VERIÐ RUGLINGSLEGT FYRIR MEÐALJÓNINN. ÉG SKAL SENDA ÞÉR KYNNINGARBÆKLING – OG DULMÁLSHRING.” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞAÐ BORGAR SIG EKKI AÐ KAUPA ALMENNILEGT SETT FYRR EN ÉG VEIT HVORT ÉG GET SPILAÐ. ” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hann syngur uppáhaldslagið þitt fyrir þig. BYRJUM VIKUNA MEÐ INNBLÁSINNI HUGSUN DEYÐU, MÁNUDAGUR, DEYÐU!!! ERU ÞETTA VALKOSTIRNIR? OKKUR VANTAR LIÐSINNI! ÞÚ ÁTT AÐ HJÁ LPA OKKUR AÐ FERJA BURT SKARTGRIPI KONUNNAR ÞINNAR, ANNARS PÍNUM VIÐ ÞIG! ÉG VEL! ÞÚ MÁTT PÍNA MIG! FJÁRMÁLA- RÁÐGJÖF

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.