Morgunblaðið - 15.01.2019, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Fjórða breiðskífa Jónasar Sig, Milda
hjartað, kom út í nóvember í fyrra á
vegum Öldu Music og þá í þrenns
konar formi, á geisladiski, vínilplötu
og á netinu. Jónas er fæddur árið
1974 og segist hafa tekið þá yfirveg-
uðu ákvörðun að gera hljómplötu
með gamla laginu, gefa hana út í
föstu formi og
skömmu fyrir jól
eins og gert var í
gamla daga. „Að
koma með plötu
og fara og spila,
gera þetta eins og
ég ólst upp við að
menn gerðu þetta. Þó að tímarnir
séu breyttir finnst mér eins og þetta
sé hefð og ég kann vel við hana,“ seg-
ir Jónas.
Vinsældir vínilsins hafa aukist á
síðustu árum og segir Jónas að sér
hafa þótt gaman að gefa plötu út í ví-
nil í fyrsta sinn. „Ég fann rosalega
fyrir því hvað það var miklu, miklu
skemmtilegra að fá vínileintakið, það
voru jólin hérna heima þegar vínill-
inn kom,“ segir Jónas og brosir.
Karlinn á kassanum
Milda hjartað var um tvö ár í
smíðum en síðasta breiðskífa Jón-
asar, Þar sem himin ber við haf, kom
út árið 2012 og var því orðið tíma-
bært að hann sendi nýja frá sér. „Í
millitíðinni hef ég verið mjög virkur
að spila með hljómsveitinni minni,
Ritvélum framtíðarinnar og svo hef
ég gert síngla, var að senda frá mér
síngla eins og „Af ávöxtunum skuluð
þið þekkja þá“ og „Vígin falla“ og var
í miklum ham, bara karlinn á kass-
anum með gjallarhornið alveg brjál-
aður,“ segir Jónas sposkur. Löng-
unin til að gera plötu hafi svo gripið
hann, plötu sem hefði á sér ákveðið
yfirbragð eða tilfinningu.
– Þegar maður sér umslagið fær
maður þá tilfinningu að þetta hljóti
að vera mjög persónuleg plata. Á því
er mjög blátt áfram portrett af þér,
lífsreyndum manni sem farinn er að
grána í vöngum …
„Akkúrat, já, mig langaði að ná því
fram, að tala beint maður til manns.
Þegar þú setur plötuna á er það bara
ég að tala, þú sérð mig á umslaginu
og ég vildi ná þessari tengingu við
hlustandann,“ svarar Jónas.
Vinna með sjálfið
Hann segir plötuna, lög og texta,
sýna vel hvar hann sé staddur í líf-
inu. En hvar er hann staddur? Jónas
hlær að spurningunni. „Ég er búinn
að vera að vinna með sjálfið í mínu
lífi sem er svona innileiki, að hvíla í
sínu lífi og sjálfum sér og vera ekki
með neitt „fake“ í gangi, tala frá
hjartanu af einlægni og hvíla í lífinu í
ákveðinni sátt.“
– Mér skilst að vinur þinn og sam-
starfsmaður, Ómar Guðjónsson gít-
arleikari hafi átt stóran þátt í gerð
þessarar plötu?
„Já, mjög stóran þátt í henni,“
svarar Jónas. „Ég sem og legg niður
lög og texta en svo tekur við heil-
mikið ferðalag við að finna hverju
lagi stað. Við erum búnir að vinna
mikið saman að hinu og þessu og eig-
um góða orku saman. Við vorum
saman í Dröngum og höfum spilað
mikið saman þannig að þetta var
okkar tækifæri til að fara í sum-
arbústað með kassagítarana,“ segir
Jónas. Þeir hafi tekið heilmikið upp
af plötunni í bústað og einnig í bíl-
skúrnum hjá Ómari. „Þetta er mjög
mikil vinaplata, að hóa í vini og búa
til rosa gott „vibe“. Þetta er fyrsta
platan sem ég nálgast mikið þannig
því þær sem ég hef gert áður hafa
verið meiri hljóðversframleiðsla, þar
sem maður situr dögum saman og
klippir í ProTools og svona. Á þess-
ari vorum við alltaf að vinna að því að
hittast, elda góðan mat og spila sam-
an.“
– Finnst þér það heyrast á plöt-
unni, ef þú berð hana saman við þín-
ar fyrri?
„Já, mér finnst það, mér finnst
hún flæða miklu betur,“ svarar Jón-
as. Margir hafi orðið hissa á því
hversu róleg platan sé, fyrir utan hið
eldhressa „Dansiði“ sem naut mikilla
vinsælda í fyrra og hlaut mikla spil-
un í útvarpi. Jónas segir meiri læti
hafa verið á fyrri plötum hans og
meira um sterkar smáskífur. Milda
hjartað sé frekar þess eðlis að sækja
í sig veðrið með tímanum, enda hlý
og notaleg.
Jónas segist vera lukkunnar pam-
fíll hvað varðar samstarfsmenn,
hann hafi verið umvafinn geggjuðum
spilurum. „Og það kemur svo mikill
galdur með hverjum og einum,“ seg-
ir hann en af samstarfsmönnum
hans á plötunni má nefna Arnar
Gíslason, Guðna Finnsson, Árna
Bergmann, Tómas Jónsson, Bjarna
Frímann Bjarnason, Helga Svavar
Helgason, Rósu Guðrúnu Sveins-
dóttur og Guðmund Kristin Jónsson.
Ákveðinn tónn sleginn
Jónas hefur átt marga smelli á
ferlinum, m.a. „Hamingjan er hér“,
„Vígin falla“ og „Af ávöxtunum skul-
uð þið þekkja þá“, grípandi og jafn-
vel dansvæn rokklög og fyrrnefnt
„Dansiði“ sem rataði í fréttaannál
RÚV.
Jónasi virðist lagið að semja smelli
sem höfða jafnt til leikskólabarna og
ellilífeyrisþega, fólks á öllum aldri.
„Dansiði“ tengir gamla tímann inn á
nýju plötunni, Milda hjartað, að sögn
Jónasar og fagnar hann velgengni
lagsins á nýliðnu ári.
Blaðamaður nefnir að „Ham-
ingjan er hér“ hafi átt álíka vinsæld-
um að fagna á sínum tíma og náð til
fólks á öllum aldri og að honum virð-
ist hafa tekist þetta oftar en einu
sinni, að búa til slíkan smell. „Það er
dálítið skemmtilegt þegar maður
hugsar út í það,“ segir Jónas kíminn
og bendir á að „Rangur maður“, lag-
ið sem hann gerði með Sólstrandar-
gæjunum, hafi líka slegið í gegn og
virðist ætla að lifa endalaust. „Þar er
einhver tónn sleginn sem virðist óma
gegnum áratugina,“ segir Jónas.
Sem fyrr segir samdi Jónas öll lög
plötunnar sjálfur en Ómar á þó í
þeim öllum sem upptökustjóri og út-
setjari þó Jónas leggi alltaf niður
grunninn, eins og hann orðar það.
Jónas samdi alla texta einnig nema
einn sem er eftir Hrafnkel Lárusson,
í laginu „Ég leitaði einskis og fann“.
Jónas segist í sínum textum hafa
fórnað dálítið fagurfræði til að geta
talað beinna til fólks. „Auðvitað er
það stórkostlegt þegar tekst að gera
hvort tveggja, eins og hjá Hrafn-
keli,“ segir hann.
Á þynnri ís
„Þegar maður er að semja tónlist
eða texta er það ótrúlegt „comfort
zone“, að mínu mati og á ákveðinn
hátt, að fara að gagnrýna samfélagið
eins og í „Á ávöxtunum skuluð þið
þekkja þá“ sem ég gerði árið 2015.
Ég hef gert svolítið af því að stíga
fram og vera á ákveðinn hátt gagn-
rýnandi í tónlist. Það er þó á ákveð-
inn hátt meira hættusvæði að fjalla
um hlýju, einlægni og sátt. Þá er
maður kominn á miklu þynnri ís og
það er svo auðvelt að sökkva í
væmni,“ segir Jónas og hlær, „og
mig langaði rosalega að gera plötu
með þann útgangspunkt, reyna að
feta þá slóð.“
– Þú ert hæstánægður með þessa
plötu?
„Já, ég er rosalega ánægður með
hana,“ svarar Jónas og bætir við að
Milda hjartað sé einmitt sú hljóm-
plata sem hann hafi langað til að
gera.
Hlýja, einlægni og sátt
Jónas Sig. er á einlægum nótum á nýjustu hljómplötu sinni, Milda hjartað Hlý og notaleg plata,
segir hann og mjög mikil vinaplata Samstarf þeirra Ómars Guðjónssonar gítarleikara náið
Morgunblaðið/Hari
Lukkulegur Jónas Sigurðsson segist vera lukkunnar pamfíll hvað varðar samstarfsmenn í tónlistinni.
Þegar útbreiddasta dagblað Maine-
ríkis í Bandaríkjunum, The Portland
Press Herald, tilkynnti eftir áramót
að það yrði að leggja af bókagagnrýni
í blaðinu vegna sparnaðar, þá deildu
margir á ákvörðunina, jafnt lesendur
sem rithöfundar, enda hefur verið
fjallað í blaðinu um bækur sem bæði
gerast í Maine og eru skrifaðar af
höfundum sem þar búa.
Mesta athygli vakti þegar þekkt-
asti rithöfundurinn frá Bangor í
Maine, hryllingssagnahöfundurinn
Stephen King, tjáði sig á Twitter.
Sagði hann að dagblaðið væri að
hætta kyningu sem höfundar þar
„treystu á til að geta keypt sér brauð
og mjólk“ og hvatti hann aðdáendur
sína til að bregðast við. Samkvæmt
The New York Times brugðust
stjórnendur blaðsins hins vegar strax
við og skoruðu á King að safna fyrir
þá áskrifendum; ef hann næði í 100 þá
myndu þeir halda áfram að birta
gagnrýni um bæk-
ur um og frá
Maine.
King svaraði
áskoruninni með
tísti og spurði
hvort um sölu-
herferð eða kúgun
væri að ræða, en
bætti við að hann
væri þegar kom-
inn með 71 áskrif-
anda og vantaði nokkra til. Og þeim
fjölgaði, urðu á tveimur sólarhringum
um 200 að vefútgáfu blaðsins .
„Þetta er Stephen King-saga með
góðum endi,“ er haft eftir talsmanni
útgáfufélags dagblaðsins. En sam-
kvæmt The New York Times birtir
sagan líka veruleika dagblaðaútgáfu
víða, blöð berjist í bökkum, áskrif-
endum fækkar og blaðamönnum í
Bandaríkjunum hafi fækkað um
helming á einum áratug.
Stephen King bjarg-
aði gagnrýninni
Stephen King
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
alnabaer.is
Úrval af gluggatjaldaefnum, þykk, þunn,
blúndur, kappar og allt þar á milli.
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
GLUGGATJÖLD