Morgunblaðið - 15.01.2019, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019
Hvílir bannhelgi á dauð-anum sem umræðuefni?Því er gjarnan haldiðfram, en ég held að svo
sé alls ekki. Ég hallast að því að
það sé frekar þannig að tal um
þöggun, veigrun og ótta við um-
ræðuna sé hentugur upphafs-
punktur fyrir umræðu um þennan
sjálfsagða hlut, náttúrulögmál sem
allir hafa persónulega reynslu af og
meðvitund um, og eru fúsir að
ræða. Og reynast, þegar umræðan
hefst, hafa keimlíkt viðhorf til. Ein-
hverja útgáfu af æðruleysi, sem
tekur síðan lit af þeim tilfinningum
sem við berum til umhverfis okkar í
víðasta skilningi. Til okkar nánustu,
til okkar sjálfra og hvernig við höf-
um varið þeim tíma sem við vitum
öll að er takmarkaður. Þegar upp
er staðið tölum við ekki um dauð-
ann, heldur í mesta lagi um afstöðu
okkar, sem lifandi verur, til þess-
arar staðreyndar um okkur. Aðal-
lega tölum við samt um lífið.
Það reynist líka eiga við um Ég
dey, rannsóknarskýrslu Charlotte
Bøving um margvíslegar stað-
reyndir, menningu okkar og ann-
arra, eigin afstöðu og annarra, þeg-
ar kemur að dauðanum. Hún byrjar
reyndar á bráðskemmtilegri yfir-
ferð um hvað gerist á fyrstu
klukkustundunum eftir andlát, en
annars höldum við okkur hérna
megin grafar. Ef mig misminnir
ekki þeim mun verr þá víkur Char-
lotte aðeins á einum stað að því
hvað sé handan blæjunnar. Það er
reyndar í einum af hápunktum sýn-
ingarinnar, ákaflega kaldhamraðri
vögguvísu þar sem barn fær hlut-
lægar upplýsingar um hvað fram-
tíðin beri í skauti sér fyrir mömmu,
pabba og það sjálft. „Við deyjum öll
en enginn kann að spá / Hvenær
eða hvað við tekur þá“. Svo mörg
voru þau orð. Við vitum ekki hvað
gerist eftir dauðann. Þannig af-
greiðir nútímakonan helsta sölu-
punkt langflestra trúarbragða
heimsins og heldur áfram að skoða
dauðann í lífi okkar allra.
Þar reynist fáránleikinn í hvers-
dagsleikanum bitastæðastur. Upp-
talningin á hverjir mega deyja
(kjúklingar, minkar), hverjir ekki
(höfrungar, kisur) og í hvaða röð
(maður sjálfur á undan börnunum
og svo koll af kolli). Útlistun og
smásmyglisleg upptalning á öllum
tjáknunum sem hún sendi dauðvona
vinkonu sinni á samfélagsmiðlum
þegar orðin dugðu ekki til. Bónus-
ferð þar sem líkamsleifar dýra og
plantna eru skoðaðar og metnar.
Þar kom til sögunnar hljóðlykkjuvél
sem bjó til skemmtilegan bakgrunn
og Charlotte beitti af talsverðu ör-
yggi og ætti jafnvel að þróa áfram í
list sinni. Loop-tæknin var eitt af
fimm uppátækjum sem leikkonan
var að prófa í fyrsta sinn. Þessar
nýjungar eru eitt af byggingar-
efnum sýningarinnar, en varð
kannski ekki eins mikið úr og æski-
legt hefði verið. Annað af atrið-
unum fimm var að prófa að hafa hlé
að þessu sinni, ólíkt fyrri einleiks-
sýningum Charlotte. Það er að
mínu mati misráðið. Þéttari skipan
efnisins án uppbrots hefði verið
betri kostur. Ég dey líður dálítið
fyrir ómarkvissa byggingu, þar sem
hver kafli þarf að standa fyrir sínu
burtséð frá því sem kemur á undan
eða eftir. Sumir þeirra gera það en
ekki allir.
Þarna hefði leikarinn Charlotte
þurft betri stuðning frá höfundinum
Charlotte, sem og frá með-leikstjór-
anum Benedikt Erlingssyni, við að
búa til skýrara flæði og missa ekki
orkuna niður milli efnisatriða. Hún
hefur umtalsverðan sviðssjarma og
ræður yfir tímasetningatækni uppi-
standarans og aðferðum trúðsins
við að ná sambandi við salinn og
vinna hann á sitt band með ein-
lægni og brosi, sérstaklega ef eitt-
hvað fer ekki nákvæmlega eins og
ætlað er. Á frumsýningu hnaut
Charlotte um beygingu orðs strax í
byrjun og með því að draga athygl-
ina að því vorum við öll orðin vinir
hennar. Tilbúin að trúa því sem hún
segir og leggja allt út á besta veg.
Vera með henni í liði.
Viðureign Charlotte við íslensk-
una setur vitaskuld sterkan svip á
Ég dey. Óhjákvæmilega dregur það
úr möguleikum hennar til að láta
blæbrigði máls og merkingar vinna
með sér að hún hefur ekki fullt vald
á málinu. Fyrir utan algerlega
hversdagslega hluti eins og skilning
áhorfenda á því sem sagt er og
hraðatakmarkanirnar sem felast í
getustiginu. En það er í eðli leik-
húss af þessu tagi að í veikleikum
felast styrkleikar. Framandgerv-
ingin í glímunni við málið fær okkur
til að sperra eyrun og íhuga. Kallar
fram óvæntar tengingar og hugs-
anir. Þegar best lætur beinir hún
athyglinni að innihaldinu og nýjum
flötum á því.
Umgjörðin er einföld og svip-
sterk hjá Þórunni Maríu Jóns-
dóttur. Búningarnir voru flottir,
sérstaklega anatómíski kjóllinn í
upphafi. Notkun á myndböndum og
grafík Steinars Júlíussonar var
hugvitsamleg og skemmtileg og
samleikur Charlotte við þá um-
hverfisþætti vel útfærður. Á hinn
bóginn örlaði á því að leikkonan
upplifði sig ekki fyllilega örugga í
glæsilegum stiganum sem gnæfir
yfir sviðsmyndinni. Leikskráin er
sérlega snjöll, þó að eftir á að
hyggja sé hugmyndin augljós, eins
og títt er um góðar hugmyndir.
Ég dey er skemmtileg kvöld-
stund í góðum félagsskap. Char-
lotte Bøving hefur góða nærveru og
hefur aðferðir einleiksins vel á valdi
sínu. Innihaldið varðar okkur öll og
þó að efnistökin varpi ekki endilega
nýju eða djörfu ljósi á það þá er
gaman að rifja upp furðurnar í
hversdeginum og minna sig á að
stærsti leyndardómurinn er öllum
kunnur og við eigum hann öll í sam-
einingu.
Þið munuð öll …
Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir
Nærvera „Charlotte Bøving hefur góða nærveru og hefur aðferðir einleiksins vel á valdi sínu,“ segir í rýni.
Borgarleikhús
Ég dey bbbnn
Höfundur og leikari: Charlotte Bøving.
Þýðandi: Erla Elíasdóttir Völudóttir.
Með-leikstjóri: Benedikt Erlingsson.
Dramatúrg: Gréta Kristín Ómarsdóttir.
Leikmynd og búningar: Þórunn María
Jónsdóttir. Tónlist: Gísi Galdur. Mynd-
band og grafísk hönnun: Steinar Júl-
íusson. Lýsing: Garðar Borgþórsson.
Sviðshreyfingar: Unnur Elísabet Sturlu-
dóttir. Charlotte Bøving / Fyrirtækið
slf. frumsýndi á Nýja sviði Borgarleik-
hússins fimmtudaginn 10. janúar 2019.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Fös 18/1 kl. 20:00 190. s Fös 25/1 kl. 20:00 194. s Sun 3/2 kl. 20:00 198. s
Lau 19/1 kl. 20:00 191. s Lau 26/1 kl. 20:00 195. s Fim 7/2 kl. 20:00 199. s
Sun 20/1 kl. 20:00 192. s Fös 1/2 kl. 20:00 196. s Lau 9/2 kl. 20:00 200. s
Fim 24/1 kl. 20:00 193. s Lau 2/2 kl. 20:00 197. s
Stjarna er fædd.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Mið 16/1 kl. 20:00 6. s Sun 27/1 kl. 20:00 9. s Sun 17/2 kl. 20:00 12. s
Fim 17/1 kl. 20:00 7. s Fim 31/1 kl. 20:00 10. s
Mið 23/1 kl. 20:00 8. s Sun 10/2 kl. 20:00 11. s
5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 18/1 kl. 20:00 27. s Fim 24/1 kl. 20:00 28. s Fös 1/2 kl. 20:00 29. s
Allra síðasta sýning 1. febrúar.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 18/1 kl. 20:00 aukas. Lau 26/1 kl. 20:00 25. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s
Lau 19/1 kl. 20:00 20. s Fös 1/2 kl. 20:00 26. s Sun 10/2 kl. 20:00 30. s
Sun 20/1 kl. 20:00 aukas. Lau 2/2 kl. 20:00 27. s Fim 14/2 kl. 20:00 31. s
Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Sun 17/2 kl. 20:00 32. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Núna 2019 (Litla sviðið)
Sun 20/1 kl. 17:00 5. s Mið 23/1 kl. 20:00 6. s
Núna er ekki á morgun, það er NÚNA
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Fim 17/1 kl. 20:00 3. s Fös 25/1 kl. 20:00 5. s Lau 2/2 kl. 20:00 7. s
Lau 19/1 kl. 20:00 4. s Lau 26/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s
Athugið. Aðeins verða átta sýningar.
Ég dey (Nýja sviðið)
Mið 16/1 kl. 20:00 3. s Fim 24/1 kl. 20:00 5. s Fim 31/1 kl. 20:00 7. s
Fim 17/1 kl. 20:00 4. s Sun 27/1 kl. 20:00 6. s
Trúir þú á líf fyrir dauðann?
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas.
Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn
Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka
Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka
Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka
Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn
Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn
Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn
Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn
Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn
Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn
Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn
Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 Aukas.
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Fös 22/2 kl. 19:30 Frums Fös 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 28/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 16/3 kl. 19:30 6.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn Lau 26/1 kl. 19:30 24.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn
Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn
Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Velkomin heim (Kassinn)
Lau 2/2 kl. 19:30 Frums Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn
Sun 3/2 kl. 19:30 2.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn
Insomnia (Kassinn)
Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 16/1 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 17/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 22:30 Lau 26/1 kl. 20:00
Fös 18/1 kl. 20:00 Fim 24/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 22:30
Fös 18/1 kl. 22:30 Fös 25/1 kl. 20:00
Lau 19/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 22:30
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 20/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200