Morgunblaðið - 15.01.2019, Page 31

Morgunblaðið - 15.01.2019, Page 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019 Hvílir bannhelgi á dauð-anum sem umræðuefni?Því er gjarnan haldiðfram, en ég held að svo sé alls ekki. Ég hallast að því að það sé frekar þannig að tal um þöggun, veigrun og ótta við um- ræðuna sé hentugur upphafs- punktur fyrir umræðu um þennan sjálfsagða hlut, náttúrulögmál sem allir hafa persónulega reynslu af og meðvitund um, og eru fúsir að ræða. Og reynast, þegar umræðan hefst, hafa keimlíkt viðhorf til. Ein- hverja útgáfu af æðruleysi, sem tekur síðan lit af þeim tilfinningum sem við berum til umhverfis okkar í víðasta skilningi. Til okkar nánustu, til okkar sjálfra og hvernig við höf- um varið þeim tíma sem við vitum öll að er takmarkaður. Þegar upp er staðið tölum við ekki um dauð- ann, heldur í mesta lagi um afstöðu okkar, sem lifandi verur, til þess- arar staðreyndar um okkur. Aðal- lega tölum við samt um lífið. Það reynist líka eiga við um Ég dey, rannsóknarskýrslu Charlotte Bøving um margvíslegar stað- reyndir, menningu okkar og ann- arra, eigin afstöðu og annarra, þeg- ar kemur að dauðanum. Hún byrjar reyndar á bráðskemmtilegri yfir- ferð um hvað gerist á fyrstu klukkustundunum eftir andlát, en annars höldum við okkur hérna megin grafar. Ef mig misminnir ekki þeim mun verr þá víkur Char- lotte aðeins á einum stað að því hvað sé handan blæjunnar. Það er reyndar í einum af hápunktum sýn- ingarinnar, ákaflega kaldhamraðri vögguvísu þar sem barn fær hlut- lægar upplýsingar um hvað fram- tíðin beri í skauti sér fyrir mömmu, pabba og það sjálft. „Við deyjum öll en enginn kann að spá / Hvenær eða hvað við tekur þá“. Svo mörg voru þau orð. Við vitum ekki hvað gerist eftir dauðann. Þannig af- greiðir nútímakonan helsta sölu- punkt langflestra trúarbragða heimsins og heldur áfram að skoða dauðann í lífi okkar allra. Þar reynist fáránleikinn í hvers- dagsleikanum bitastæðastur. Upp- talningin á hverjir mega deyja (kjúklingar, minkar), hverjir ekki (höfrungar, kisur) og í hvaða röð (maður sjálfur á undan börnunum og svo koll af kolli). Útlistun og smásmyglisleg upptalning á öllum tjáknunum sem hún sendi dauðvona vinkonu sinni á samfélagsmiðlum þegar orðin dugðu ekki til. Bónus- ferð þar sem líkamsleifar dýra og plantna eru skoðaðar og metnar. Þar kom til sögunnar hljóðlykkjuvél sem bjó til skemmtilegan bakgrunn og Charlotte beitti af talsverðu ör- yggi og ætti jafnvel að þróa áfram í list sinni. Loop-tæknin var eitt af fimm uppátækjum sem leikkonan var að prófa í fyrsta sinn. Þessar nýjungar eru eitt af byggingar- efnum sýningarinnar, en varð kannski ekki eins mikið úr og æski- legt hefði verið. Annað af atrið- unum fimm var að prófa að hafa hlé að þessu sinni, ólíkt fyrri einleiks- sýningum Charlotte. Það er að mínu mati misráðið. Þéttari skipan efnisins án uppbrots hefði verið betri kostur. Ég dey líður dálítið fyrir ómarkvissa byggingu, þar sem hver kafli þarf að standa fyrir sínu burtséð frá því sem kemur á undan eða eftir. Sumir þeirra gera það en ekki allir. Þarna hefði leikarinn Charlotte þurft betri stuðning frá höfundinum Charlotte, sem og frá með-leikstjór- anum Benedikt Erlingssyni, við að búa til skýrara flæði og missa ekki orkuna niður milli efnisatriða. Hún hefur umtalsverðan sviðssjarma og ræður yfir tímasetningatækni uppi- standarans og aðferðum trúðsins við að ná sambandi við salinn og vinna hann á sitt band með ein- lægni og brosi, sérstaklega ef eitt- hvað fer ekki nákvæmlega eins og ætlað er. Á frumsýningu hnaut Charlotte um beygingu orðs strax í byrjun og með því að draga athygl- ina að því vorum við öll orðin vinir hennar. Tilbúin að trúa því sem hún segir og leggja allt út á besta veg. Vera með henni í liði. Viðureign Charlotte við íslensk- una setur vitaskuld sterkan svip á Ég dey. Óhjákvæmilega dregur það úr möguleikum hennar til að láta blæbrigði máls og merkingar vinna með sér að hún hefur ekki fullt vald á málinu. Fyrir utan algerlega hversdagslega hluti eins og skilning áhorfenda á því sem sagt er og hraðatakmarkanirnar sem felast í getustiginu. En það er í eðli leik- húss af þessu tagi að í veikleikum felast styrkleikar. Framandgerv- ingin í glímunni við málið fær okkur til að sperra eyrun og íhuga. Kallar fram óvæntar tengingar og hugs- anir. Þegar best lætur beinir hún athyglinni að innihaldinu og nýjum flötum á því. Umgjörðin er einföld og svip- sterk hjá Þórunni Maríu Jóns- dóttur. Búningarnir voru flottir, sérstaklega anatómíski kjóllinn í upphafi. Notkun á myndböndum og grafík Steinars Júlíussonar var hugvitsamleg og skemmtileg og samleikur Charlotte við þá um- hverfisþætti vel útfærður. Á hinn bóginn örlaði á því að leikkonan upplifði sig ekki fyllilega örugga í glæsilegum stiganum sem gnæfir yfir sviðsmyndinni. Leikskráin er sérlega snjöll, þó að eftir á að hyggja sé hugmyndin augljós, eins og títt er um góðar hugmyndir. Ég dey er skemmtileg kvöld- stund í góðum félagsskap. Char- lotte Bøving hefur góða nærveru og hefur aðferðir einleiksins vel á valdi sínu. Innihaldið varðar okkur öll og þó að efnistökin varpi ekki endilega nýju eða djörfu ljósi á það þá er gaman að rifja upp furðurnar í hversdeginum og minna sig á að stærsti leyndardómurinn er öllum kunnur og við eigum hann öll í sam- einingu. Þið munuð öll … Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir Nærvera „Charlotte Bøving hefur góða nærveru og hefur aðferðir einleiksins vel á valdi sínu,“ segir í rýni. Borgarleikhús Ég dey bbbnn Höfundur og leikari: Charlotte Bøving. Þýðandi: Erla Elíasdóttir Völudóttir. Með-leikstjóri: Benedikt Erlingsson. Dramatúrg: Gréta Kristín Ómarsdóttir. Leikmynd og búningar: Þórunn María Jónsdóttir. Tónlist: Gísi Galdur. Mynd- band og grafísk hönnun: Steinar Júl- íusson. Lýsing: Garðar Borgþórsson. Sviðshreyfingar: Unnur Elísabet Sturlu- dóttir. Charlotte Bøving / Fyrirtækið slf. frumsýndi á Nýja sviði Borgarleik- hússins fimmtudaginn 10. janúar 2019. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Elly (Stóra sviðið) Fös 18/1 kl. 20:00 190. s Fös 25/1 kl. 20:00 194. s Sun 3/2 kl. 20:00 198. s Lau 19/1 kl. 20:00 191. s Lau 26/1 kl. 20:00 195. s Fim 7/2 kl. 20:00 199. s Sun 20/1 kl. 20:00 192. s Fös 1/2 kl. 20:00 196. s Lau 9/2 kl. 20:00 200. s Fim 24/1 kl. 20:00 193. s Lau 2/2 kl. 20:00 197. s Stjarna er fædd. Ríkharður III (Stóra sviðið) Mið 16/1 kl. 20:00 6. s Sun 27/1 kl. 20:00 9. s Sun 17/2 kl. 20:00 12. s Fim 17/1 kl. 20:00 7. s Fim 31/1 kl. 20:00 10. s Mið 23/1 kl. 20:00 8. s Sun 10/2 kl. 20:00 11. s 5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fös 18/1 kl. 20:00 27. s Fim 24/1 kl. 20:00 28. s Fös 1/2 kl. 20:00 29. s Allra síðasta sýning 1. febrúar. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fös 18/1 kl. 20:00 aukas. Lau 26/1 kl. 20:00 25. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s Lau 19/1 kl. 20:00 20. s Fös 1/2 kl. 20:00 26. s Sun 10/2 kl. 20:00 30. s Sun 20/1 kl. 20:00 aukas. Lau 2/2 kl. 20:00 27. s Fim 14/2 kl. 20:00 31. s Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Sun 17/2 kl. 20:00 32. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Núna 2019 (Litla sviðið) Sun 20/1 kl. 17:00 5. s Mið 23/1 kl. 20:00 6. s Núna er ekki á morgun, það er NÚNA Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Fim 17/1 kl. 20:00 3. s Fös 25/1 kl. 20:00 5. s Lau 2/2 kl. 20:00 7. s Lau 19/1 kl. 20:00 4. s Lau 26/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s Athugið. Aðeins verða átta sýningar. Ég dey (Nýja sviðið) Mið 16/1 kl. 20:00 3. s Fim 24/1 kl. 20:00 5. s Fim 31/1 kl. 20:00 7. s Fim 17/1 kl. 20:00 4. s Sun 27/1 kl. 20:00 6. s Trúir þú á líf fyrir dauðann? Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Lífið er ekki nógu ávanabindandi Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 Aukas. Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Fös 22/2 kl. 19:30 Frums Fös 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 28/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 16/3 kl. 19:30 6.sýn Fyndinn og erótískur gamanleikur Fly Me To The Moon (Kassinn) Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn Lau 26/1 kl. 19:30 24.sýn Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Velkomin heim (Kassinn) Lau 2/2 kl. 19:30 Frums Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn Sun 3/2 kl. 19:30 2.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn Insomnia (Kassinn) Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 16/1 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 17/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 22:30 Lau 26/1 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Fim 24/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 22:30 Fös 18/1 kl. 22:30 Fös 25/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 22:30 Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 20/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.