Morgunblaðið - 15.01.2019, Side 32

Morgunblaðið - 15.01.2019, Side 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019 „Árið 2018 var mjög gott fyrir íslensk kvikmyndahús og var tekjuaukning um 6,4% frá árinu áður en samtals voru seldir miðar í kvikmyndahús fyrir kr. 1.688.453.577 á árinu 2018,“ segir í tilkynningu frá FRÍSK, Fé- lagi rétthafa í sjónvarpi og kvik- myndum. Tæplega 74.000 fleiri gest- ir sóttu kvikmyndahús á árinu 2018 en 2017 og er það um 5,4% fjölgun. Í heildina sóttu 1.445.445 gestir kvik- myndahús landsins í fyrra. Kvikmyndin Mamma Mia! Here we go again var tekjuhæsta kvik- mynd ársins með tæpar 96,3 millj- ónir í tekjur og sáu hana 79.861 manns. Þess má geta að fyrri kvik- myndin, Mamma Mia!, var fjölsótt- asta mynd ársins 2008 og sáu hana 119.000 manns. Næstvinsælasta mynd ársins var Lof mér að falla, hana sáu 53.000 gestir og hefur ís- lensk kvikmynd ekki notið jafn- góðrar aðsóknar frá því Svartur á leik var í bíó árið 2012. Þriðja vinsæl- asta mynd ársins 2018 var Avengers – Infinity War sem skilaði tæpum 74,6 milljónum króna í miðasölu og sáu hana 57.000 manns. Þrjár af sex með tónlistarþema Í tilkynningunni er bent á að af sex tekjuhæstu kvikmyndum ársins í fyrra eru þrjár með tónlistarþema eða tónlistartengdar, þ.e. framhald Mamma Mia, A Star is Born og Bo- hemian Rhapsody. „Íslenska bíóárið var mjög gott og höluðu íslenskar kvikmyndir inn 240 milljónum á árinu 2018 með rúmlega 164.000 gestum. Hlutfall íslenskra kvikmynda var 13,3% af tekjum kvik- myndahúsanna, sem er besti árangur íslenskra kvikmynda síðan árið 2014 (sem þá var einnig 13,3%),“ segir í til- kynningunni. Fjórar íslenskar kvik- myndir voru á meðal þeirra tuttugu fjölsóttustu á árinu, auk Lof mér að falla voru það Víti í Vestmanna- eyjum, Lói – þú flýgur aldrei einn og Kona fer í stríð. Alls voru 16 íslenskar kvikmyndir og heimildarmyndir sýndar í kvik- myndahúsum og er það einni mynd færra en árið 2017. Hlutur bandarískra kvikmynda á markaðnum var um 84,3% af tekjum og að undanskildum bandarískum og íslenskum kvikmyndum voru það pólskar myndir sem nutu mestrar aðsóknar því um 10.000 gestir sáu kvikmyndir frá Póllandi. Í tilkynningunni kemur einnig fram að meðalverð bíómiða í íslensk- um kvikmyndahúsum stóð nánast í stað á milli ára, var 1.242 kr. á síðasta ári en 1.231 árið á undan og að alls hafi 169 kvikmyndir verið teknar til almennra sýninga í kvikmynda- húsum, þremur færri en árið 2017. Gríðarvinsæl Úr Mamma Mia! Here We Go Again sem skilaði 96,3 millj- ónum króna í miðasölu og voru seldir aðgöngumiðar 79.861 talsins. Auknar tekjur og bíóaðsókn  80.000 sáu framhald Mamma Mia! Teiknimyndin um Köngulóarmann- inn og hinar ýmsu útgáfur hans í öðrum víddum, Spider-Man: Into the Spider-Verse, sótti í sig veðrið um helgina og felldi Aquaman úr toppsæti listans yfir tekjuhæstu kvikmyndir bíóhúsanna. 2.232 sáu Köngulóarmanninn en 1.863 hetj- una sem kennd er við vatn. Bohemi- an Rhapsody sótti líka í sig veðrið og stökk upp um fjögur sæti, úr 7. í 4. og má vera að Golden Globe- verðlaunin sem hún hlaut hafi leitt til aukinnar aðsóknar. Bíóaðsókn helgarinnar Köngulóin upp á topp Spider-man: Into the Spider-verse 2 5 Aquaman 1 4 Bohemian Rhapsody 7 11 Escape Room Ný Ný Mary Poppins Returns 3 3 Green Book Ný Ný Robin Hood (2018) 5 2 Ralph Breaks the Internet 9 7 Bumblebee 6 3 Holmes and Watson 4 2 Bíólistinn 11.–13. janúar 2019 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Afbragð Teiknimyndin Spider-Man: Into the Spider-Verse, hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda. First Reformed Metacritic 85/100 IMDb 7,1/10 Bíó Paradís 17.40 Shoplifters Metacritic 93/100 IMDb 8,1/10 Bíó Paradís 17.40, 20.00 Kalt stríð Metacritic 91/100 IMDb 7,8/10 Bíó Paradís 22.20 Roma Morgunblaðið bbbbb Metacritic 95/100 IMDb 8,6/10 Bíó Paradís 19.30 Suspiria Morgunblaðið bbbbm Metacritic 64/100 IMDb 7,3/10 Bíó Paradís 22.00 Nár í nærmynd Bíó Paradís 17.30, 22.10 Green Book 12 Metacritic 70/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Álfabakka 16.40, 17.00, 19.20, 19.30, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.40 Sambíóin Kringlunni 16.40, 21.40 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.00 Sambíóin Keflavík 22.00 Escape Room 16 Sex ókunnugir einstaklingar lenda í aðstæðum sem þau ráða ekki við, eftir að þeim er boðið að taka þátt í leik sem krefst þess að flýja úr lokuðum rýmum. Metacritic 50/100 IMDb 6,4/10 Smárabíó 17.20, 19.30, 20.00, 22.00, 22.20 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 19.30, 21.30 Holmes og Watson 12 Metacritic 24/100 IMDb 3,4/10 Sambíóin Keflavík 20.00 Smárabíó 19.40, 21.50 Háskólabíó 18.20, 21.10 Borgarbíó Akureyri 21.30 Ben Is Back Metacritic 68/100 IMDb 6,9/10 Laugarásbíó 19.50, 22.00 Háskólabíó 18.10, 20.50 Borgarbíó Akureyri 19.30 Second Act IMDb 5,8/10 Laugarásbíó 17.30, 19.50, 22.00 Sambíóin Keflavík 19.45 Borgarbíó Akureyri 17.30 Bumblebee 12 Metacritic 35/100 IMDb 7,0/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 19.20 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Sambíóin Akureyri 17.00 Smárabíó 17.00 Mortal Engines 12 Morgunblaðið bbmnn Metacritic 48/100 IMDb 6,6/10 Smárabíó 19.30, 22.20 Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald Bönnuð börnum yngri en 9 ára. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 57/100 IMDb 7,7/10 Sambíóin Álfabakka 19.30, 22.20 Bohemian Rhapsody 12 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 49/100 IMDb 8,4/10 Laugarásbíó 19.50, 22.30 Háskólabíó 20.30 A Star Is Born 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 88/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Kringlunni 16.20, 19.15, 22.00 Spider-Man: Into the Spider-Verse Miles Morales telur sig hinn eina og sanna köngulóar- mann. Hann rangt fyrir sér því hann er bara einn af nokkrum sem geta kallað sig því nafni. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 87/100 IMDb 8,8/10 Laugarásbíó 17.20 Sambíóin Keflavík 17.30 Smárabíó 15.00, 16.40, 17.10, 19.50, 22.30 Háskólabíó 18.00 Borgarbíó Akureyri 17.15 Halaprúðar hetjur IMDb 5,8/10 Sambíóin Álfabakka 17.30 Sambíóin Keflavík 17.30 Nonni norðursins 2 Smárabíó 15.00, 17.40 Ralf rústar internetinu Metacritic 71/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 17.00 The Grinch Smárabíó 15.10 Mary snýr aftur til Banks-fjölskyldunnar í London á tímum kreppunnar miklu. Metacritic 66/100 IMDb 7,6/10 Laugarásbíó 17.20 Sambíóin Álfabakka 17.50 Sambíóin Egilshöll 17.00 Sambíóin Kringlunni 16.20, 19.00 Sambíóin Akureyri 17.00 Mary Poppins Returns 12 Robin Hood 12 Robin af Loxley, sem hefur marga fjöruna sopið í kross- ferðum, og Márinn félagi hans, gera uppreisn gegn spilltum enskum yfirvöldum. Metacritic 32/100 IMDb 5,4/10 Sambíóin Álfabakka 19.50, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00 Sambíóin Akureyri 19.30 Sambíóin Keflavík 22.00 Aquaman 12 Arthur Curry kemst að því að hann er erfingi neðansjávarríkisins Atl- antis, og þarf að verða leiðtogi þjóðar sinnar. Metacritic 53/100 IMDb 7,9/10 Sambíóin Álfabakka 20.30, 21.50, 22.00 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 19.20, 22.20 Sambíóin Akureyri 22.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.