Morgunblaðið - 15.01.2019, Side 36
Bandaríska fjölmiðlafyrirtækið
AMC hefur tryggt sér sýningarrétt-
inn á sjónvarpsþáttaröðinni Stellu
Blómkvist í Norður-Ameríku og
verður þáttaröðin tekin til sýningar
31. janúar næstkomandi á streym-
isveitu fyrirtækisins, Sundance
Now, og verður einnig aðgengileg á
Amazon Prime, streymisveitu net-
verslunarinnar Amazon.
AMC tryggir sér sýn-
ingarréttinn á Stellu
ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 15. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Íslenska karlalandsliðið í íshokkíi
skipað leikmönnum 20 ára og yngri
fór vel af stað í 3. deild heims-
meistaramótsins í Laugardalnum í
gær. Íslenska liðið bar þá sigurorð
af Ástralíu, 5:4, í framlengdum leik.
Axel Snær Orongan skoraði sigur-
mark Íslands snemma í framleng-
ingunni. Ísland mætir Taívan í öðr-
um leik sínum kl. 17 í dag. »4
Axel hetjan í fyrsta
leik Íslands á HM
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
„Ég bannaði mönnum að skiptast á
skoðunum við leikmenn Bareins.
Það þýðir ekkert að ræða við and-
stæðinginn um eitthvað sem gerist
inni á leikvellinum meðan leikið er.
Slíkt leiðir yfirleitt ekki gott af sér.
Menn hlustuðu á mig og einbeittu
sér að handboltanum í síðari hálf-
leik og gerðu það frábærlega að
mínu mati,“ sagði Guð-
mundur Þ. Guðmunds-
son landsliðsþjálfari
meðal annars við
Morgunblaðið eftir
sigurinn á Barein á
HM í gær. Mönn-
um var heitt í
hamsi þótt Ís-
land ynni stór-
sigur. »1
Bannaði mönnum að
skiptast á skoðunum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íbúar í Fornhagablokkinni í Vest-
urbæ Reykjavíkur láta umhverfis-
mál sig varða og stofnuðu umhverf-
isnefnd í fyrra. Hún stefnir að því að
leggja umhverfisstefnu fyrir blokk-
ina á aðalfundi íbúanna í vor.
Sólrún Harðardóttir kynnti hug-
myndina um að stofna umhverfis-
nefnd á aðalfundi íbúanna sl. vor.
Hún segir viðbrögðin hafa verið góð
og nefnd hafi verið skipuð en auk
Sólrúnar eru í henni Birna Dís
Björnsdóttir, Guðrún Gísladóttir,
Katrín Ólafsdóttir og Theodór Ingi
Ólafsson. Í kjölfarið hafi verið sett
niður markmið og opnuð vefsíða
(fornhagablokkin.wordpress.com). Á
sérstakri síðu íbúanna á fésbókinni
er vakin athygli á hvernig bregðast
megi við vandanum og varpað ljósi á
það góða sem aðrir geri og læra
megi af. „Með þessu átaki viljum við
hjálpa fólki til þess að stíga skref í
átt að umhverfisvænni lífsstíl,“ segir
Sólrún.
Fyrsta verkefnið var að taka á
flokkun sorps og birtar voru leið-
beiningar þar að lútandi auk þess
sem bent var á hvað mætti fara í
safnhaug í garðinum og hvað ekki.
Sólrún segir að sumir hafi ekki
flokkað ruslið, en flokkunin hafi auk-
ist til muna og nú séu bláar, gráar og
grænar tunnur í öllum stigagöngum.
„Við hvetjum fólk líka til þess að
setja lífræna úrganginn í safnhaug-
inn og æ fleiri eru byrjaðir á því.“
Eitt skref í einu
Sólrún segir að að mörgu sé að
hyggja í umhverfismálum og þau
taki eitt skref í einu. Þau bendi fólki
á að vera á varðbergi í innkaupum,
kaupa mátulega mikið, hugsa um
umbúðir og að það sem keypt er sé
sem vistvænst. Nefndin vinni með
stjórn húsfélagsins og eitt af mark-
miðunum sé að viðhald og fram-
kvæmdir séu unnin á sem
umhverfisvænstan hátt og tekið sé
tillit til umhverfissjónarmiða við val
á efni. „Við látum hugann reika og
leggjum saman í safnið með það að
leiðarljósi að koma þessari hugsun á
dagskrá svo fólk verði meðvitaðra
um umhverfismál. Við gætum þess
samt að vera ekki uppáþrengjandi
heldur reynum að þræða milliveg-
inn.“
Sólrún segir ljóst að fólk standi
frammi fyrir miklum ógnum verði
ekkert að gert. Einstaklingurinn
megi sín lítils, en allir íbúar blokk-
arinnar komi meiru í verk saman og
hafi meiri áhrif.
„Verkefnið hefur gengið vel,“ seg-
ir hún og segir íbúana almennt
áhugasama um það. „Smátt og smátt
skapast stemning fyrir almennri
umhverfisvernd og um leið verður
erfiðara að vera ekki með.“ Hún
leggur áherslu á að umhverfismál
séu hagsmunamál allra. „Við viljum
vera fyrirmynd og hvatning annarra
húsfélaga.“
Ljósmyndir/Skúli Skúlason
Umhverfissinnar Frá vinstri: Guðrún, Katrín, Sólrún og Birna Dís í garðinum við Fornhagablokkina.
Íbúar til fyrirmyndar
Stuðla að umhverfisvænum lífsstíl í Fornhagablokkinni
Fornhagablokkin Katrín losar
lífrænan úrgang í safntunnu.
Góð þjónusta
í tæpa öld
Flugvallarþjónusta
BSR sér um að skutla þér út á
flugvöll og aftur heim þegar
þú ferð til útlanda.
1-4 manneskjur
15.500 kr.
5-8manneskjur
19.500 kr.
Verð aðra leið