Morgunblaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 8. J A N Ú A R 2 0 1 9 Stofnað 1913  15. tölublað  107. árgangur  NÆLA GUÐRÍÐAR LJÓSMÓÐUR ER FUNDIN ALLT UM ÞORRA, MAT OG BLÓT HEFUR ÁHUGA Á FORMFRÆÐI OG GÖMLUM MUNUM SÉRBLAÐ 12 SÍÐUR RÓSA GÍSLADÓTTIR 34BJÖRGUNARAFREK 15 Íslenska karlalandsliðið í handknattleik tryggði sér í gær- kvöld sæti meðal tólf bestu liða heims með því að sigra Make- dóníu, 24:22, í hreinum úrslitaleik í lokaumferð B-riðils heimsmeistaramótsins í München. Ísland endaði því í þriðja sæti riðilsins, á eftir Króötum og Spánverjum, Arnór Þór Gunnarsson skoraði tíu mörk í sínum 100. landsleik og Björg- vin Páll Gústavsson átti stórleik í markinu og þeir fögnuðu vel í leikslok. Íslenska liðið flýgur í dag til Kölnar þar sem það mætir Þjóðverjum annað kvöld klukkan 19.30 og Frökkum á sunnu- dagskvöldið, einnig klukkan 19.30, en þriðji og síðasti leikur- inn er gegn Brasilíu á miðvikudaginn kemur. » Íþróttir Stórþjóðirnar bíða strákanna okkar um helgina AFP  Almyrkvi á tungli verður aðfara- nótt mánudagsins kemur og ef vel viðrar sést hann allur hér á landi. Almyrkvinn hefst klukkan 4.41 að íslenskum tíma og stendur í rúma klukkustund. Þegar tunglið er inni í alskugga jarðar fær það á sig blóð- rauðan blæ og almyrkvinn er því oft kallaður blóðmáni. „Rauða ljósið er nógu mikið til að lýsa tunglið upp, þannig að við sjáum það,“ segir Walter Freeman, aðstoðarprófess- or við Syracuse-háskóla. „Í stað þess að vera bjart og hvítt verður tunglið mjög dökkt og rautt, um 10.000 dimmara en venjulega.“ »19 Tunglið mun taka á sig blóðrauðan blæ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Blóðtungl Almyrkvi sást frá Íslandi 2001.  Eiríkur G. Guðmundsson þjóðskjalavörður segir að Þjóð- skjalasafn Ís- lands þyrfti að hafa fleiri starfs- menn en það hef- ur, að mati ráð- gjafa. Safnið vantar einnig meira geymslu- rými og í heilt ár hafa ekki verið samþykktar nýjar afhendingar pappírsskjala. Í lögum um opinber skjalasöfn (77/2014) segir að mikilvægustu skjöl safnanna skuli vera til á film- um, í rafrænu afriti eða á öðrum vörslumiðli og eintak afritanna varðveitt á öruggum stað utan höf- uðstöðva þeirra. Niðurstöður eftir- litskönnunar Þjóðskjalasafns á meðal héraðsskjalasafna sýna að söfnin hafa ekki brugðist við þess- um kröfum laganna nema að hluta. Þjóðskjalavörður segir helstu skýr- inguna vera þá að staða héraðs- skjalasafnanna sé veik. »6 Héraðsskjalasöfn veik Eiríkur G. Guðmundsson Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég er sannfærður um að árið 2019 verður stærra en 2018 í komum ferðamanna til landsins. Reksturinn á eftir að ganga vel í ár,“ segir Þórður Birgir Bogason, fram- kvæmdastjóri RR Hótela. Hann segir hrakspár um niðursveiflu í ferðaþjónustu ekki hafa ræst. Þvert á móti líti árið vel út. „Bókunarstaðan er að minnsta kosti jafn góð og í fyrra … Maður óttaðist hvernig staðan yrði á árinu 2018. Þær áhyggjur reyndust óþarfar,“ segir Þórður Birgir. Verð á gistingu sé orðið „eðlilegra“. RR Hótel hafa vaxið hratt á síðustu árum. Félagið tók m.a. yfir rekstur Turnsvítanna í Höfðatorgsturninum í fyrra en þær eru lúxushótel. Þá áformar félagið að opna nýtt hótel á Hverfisgötu í lok næsta mánaðar. Þórður Birgir segir mikla samkeppni á markaðnum. Það komi sér vel fyrir ferðamenn. Þá hafi stóraukið fram- boð á þjónustu í miðborginni á síðustu árum styrkt borgina sem áfangastað. Það sé aftur líklegt til að örva eftir- spurnina. Hátt þjónustustig yfir hátíðarnar hafi skilað sér. Ráðstafanir vegna verkfalla Kristófer Oliversson, formaður FHG – fyrirtækja í hót- el- og gistiþjónustu, segir hótelrekendur uggandi vegna mögulegra verkfalla. „Maður hugsar það ekki til enda ef skæruverkföllum verður beitt og reynt að loka fullbókuðum hótelum. Það er mikill ábyrgðarhluti. Því ef gestirnir ná að koma til lands- ins geta þeir aldrei komið að lokuðum hótelum … Það verður mikill skaði fyrir orðspor okkar og framtíðaraf- komu í greininni ef allt fer á versta veg og endar í hörðum átökum,“ segir Kristófer. Sjálfsagt séu hótelrekendur að undirbúa ráðstafanir ef til verkfalla skyldi koma. Árið 2019 verði enn eitt metárið í ferðaþjónustu  Framkvæmdastjóri RR Hótela segir bókanir líta vel út MSpáir metári í ferðaþjónustu »14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.