Morgunblaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019 HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is Verð 8.990.000 kr. Verð með aukabúnaði áður 10.040.000 kr. Afsláttur 1.050.000 kr. · Innfellanlegt dráttarbeisli · Leðurklætt aðgerðastýri með hita · Rafmagn í framsætum · Milano leðuráklæði · Rafdrifin opnun á afturhlera · Nálgunarvarar að framan & aftan · Bakkmyndavél · Audi Sound System 180W · 10 hátalarar · Dökkar rúður · LED aðalljós · 18” álfelgur · Mjóbaksstuðningur · Þriggja svæða tölvustýrð loftkæling Audi Q5 Design quattro BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þórður Birgir Bogason, fram- kvæmdastjóri RR Hótela, segir bók- unartölur benda til metfjölda er- lendra ferðamanna í ár. RR Hótel áformaði að taka nýtt hótel á Hverfisgötu 78 í notkun í desem- ber. Er nú miðað við febrúar. Með því fjölgar hótel- íbúðum félagsins úr 47 í 63. Þá er félagið rekstrar- aðili vínbarsins Port 9 á Veghúsa- stíg og rekur lúxussvítur á efstu hæð Höfðatorgsturnsins undir vörumerk- inu Tower Suites Reykjavík. Áhyggjurnar reyndust óþarfar Þórður segir hrakspár um sam- drátt í ferðaþjónustu ekki hafa ræst. „Bókunarstaðan er að minnsta kosti jafn góð og í fyrra. Ef ég horfi ár aftur í tímann þá fór uggur um mann. Maður óttaðist hvernig staðan yrði á árinu 2018. Þær áhyggjur reyndust óþarfar. Nú eru hlutirnir orðnir eðlilegri, þ.m.t. verð fyrir gist- ingu. Verð í helstu kaupmyntum okkar hefur lækkað og er nú nær því að vera í takt við það sem gengur og gerist í samkeppnislöndum okkar. Að sjálfsögðu hefur veiking krónu komið sér vel fyrir útflutningsfyrirtækin og fyrirtæki í gistiþjónustu,“ segir Þórð- ur Birgir sem telur neikvæða um- ræðu um greinina og hrakspár um jafnvel samdrátt ekki í takt við þró- unina í gistirekstri í fyrra. „Ég er sannfærður um að árið 2019 verður stærra en 2018 í komum ferðamanna til landsins. Ég held að hótelmarkaðurinn og þeir sem eru í fínum rekstri í dag eigi eftir að hafa það ágætt. Reksturinn á eftir að ganga vel í ár. Vissulega eru sumir rekstraraðilar í erfiðleikum. Samkeppnin er mikil sem er til góða fyrir neytandann. Svo nær þetta einhverju jafnvægi. Með jafnvægi meina ég að verð mun lækka eitthvað frekar í kaupmynt og nýting mun líklega einnig lækka og ná jafnvægi, t.d. í kringum 75% í Reykjavík þegar fram í sækir. Þann- ig er það í flestum borgum sem við berum okkur saman við. Þeir sem eru hagkvæmastir í rekstri munu ná samkeppnisforskoti. Allir hagsmunaaðilar munu þurfa að taka þátt í þessu og ekki aðeins rekstraraðilar heldur einnig fast- eignafélög, lóðareigendur, birgjar og ekki síst stjórnvöld sem ættu að koma fram við greinina sem útflutn- ingsgrein. Raunin er sú að eftir- spurnin er mikil og við þurfum að mæta því sem þjóð á einhvern hátt. Það er mikið í burðarliðnum í hótelgeiranum og stórir aðilar eru að koma inn á markaðinn árin 2020 og 2021 með fín vörumerki og hágæða- gistingu. Maður finnur fyrir eftir- spurninni. Það er ekkert lát á henni. Sé eftirspurnin til staðar, og ef haldið verður ágætlega á spöðunum í upp- byggingu innviða, mun flugframboð taka mið af því. Ég hef engar áhyggj- ur af því að flugframboð verði vanda- mál,“ segir Þórður og vísar m.a. til áhrifa breytinga hjá WOW air. Byggt á landamærarannsókn Samkvæmt tölum Hagstofu Ís- lands voru seldar 4,16 milljónir gisti- nátta fyrstu 11 mánuðina í fyrra. Fram hefur komið að desember var góður mánuður í ferðaþjónustunni. Miðað við að jafn margar gistinætur hafi selst í desember 2018 og seldust í desember 2017 má ætla að um 4,5 milljónir gistinátta hafi selst í fyrra. Það væri nýtt met. Hins vegar benda tölur um óskráða gistingu fyrstu 11 mánuði 2018 til samdráttar (sjá minna grafið hér fyrir ofan). Birtar misjafnlega reglulega Hjörvar Pétursson, sérfræðingur hjá Hagstofunni, segir Hagstofuna hafa um langt skeið skráð fjölda gisti- nátta á hefðbundnum gististöðum – hótelum, gistiheimilum, tjaldsvæðum og öðrum gististöðum – og birt þær ýmist mánaðarlega fyrir hótel eða árlega fyrir aðra gististaði. „Þessar tölur byggjast á innsend- um gögnum frá þeim gististöðum sem skráðir eru í gistináttagrunn Hagstofunnar. Síðan í apríl 2018 hef- ur Hagstofan einnig birt áætlaðar tölur um fjölda erlendra gistinátta sem eru utan hefðbundinnar gistináttatalningar og ná þær tölur aftur til upphafs ársins 2017. Fyrsti flokkurinn eru nætur í íbúðagistingu sem greitt er fyrir í gegnum vefsíður, á borð við Airbnb eða HomeAway. Næsti flokkur eru nætur í bílum og vögnum með svefnaðstöðu þar sem ekki er gist á greiðsluskyldum tjald- svæðum. Þriðji flokkurinn er ógreidd innigisting, til dæmis við húsaskipti eða hjá vinum eða ættingjum. Þessar áætluðu tölur fyrir óskráða gistingu byggjast á landamærarannsókn Ferðamálastofu sem hófst í júní 2017. Í henni eru í hverjum mánuði að jafn- aði um 2.000 ferðamenn á heimleið um Keflavíkurflugvöll m.a. spurðir um dvalarlengd og tegund gistingar meðan á Íslandsdvöl stóð. Áætlaðar óskráðar gistinætur fyrir janúar til maí 2017 voru metnar út frá þróun- inni frá fyrra ári miðað við skráðar gistinætur í sömu mánuðum. Tölur fyrir desember 2018 hafa ekki verið birtar,“ segir Hjörvar Pétursson. Spáir metári í ferðaþjónustu  Framkvæmdastjóri RR hótela segir bókunarstöðuna góða  Hrakspár um samdrátt hafi ekki ræst  RR hótel hafa tekið yfir rekstur Turnsvítanna í Höfðatorgsturninum  Munu opna nýtt hótel í vor Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hverfisgata 78 Unnið er að endurgerð framhússins. Nýtt bakhús er risið. Aðrir fjárfestar hafa áform um að byggja í portinu við hlið nýja hótelsins. Kristófer Olivers- son, formaður FHG – fyrirtækja í hótel- og gisti- þjónustu, segir eigendur gisti- staða bíða eftir því að óvissu í ferðaþjónustu létti. „Menn bíða og horfa til verk- falla og eftir því hver niðurstaðan verður hjá WOW air. Óvissan er svo mikil. Því er hvorki hægt að leyfa sér að vera bjartsýnn né svart- sýnn. Ef samið verður í þessum mánuði, og WOW air lýkur sínum málum, erum við bjartsýnir. Ef hvorugt gerist þyngist hins vegar brúnin á mönnum. Maður hugsar það ekki til enda ef skæruverkföllum verður beitt og reynt að loka fullbókuðum hót- elum. Það er mikill ábyrgðarhluti. Því ef gestirnir ná að koma til landsins geta þeir aldrei komið að lokuðum hótelum. Sjálfsagt eru menn að vinna í því að gera þær ráðstafanir sem unnt er hver um sig. Það verður mikill skaði fyrir orðspor okkar og framtíðarafkomu í greininni ef allt fer á versta veg og endar í hörðum átökum,“ segir Kristófer. Hann segir aðspurður að bók- unarstaðan fyrir þetta ár sé „eftir væntingum“. Á það beri að líta að bókunarstaða hótela sé oft tengd tekjustýringu, eins og verð á flug- sætum. Hægt sé að fylla hótel á ódýrum bókunum og halda því fram að bókunarstaðan sé góð. Slíkt beri að skoða í samhengi. Hann segir aðspurður að áhrifin af uppstokkun WOW air séu ekki komin fram af fullum þunga hjá fé- laginu og þar með mögulega ekki heldur hjá hótelum. Hvað snerti CenterHotel-keðjuna sé „bókunar- staðan eðlileg miðað við árstíma“. Keðjan er með sex hótel í miðborg Reykjavíkur og með tvö í byggingu. „Eftirspurnin er fyrir hendi, þannig að við höfum engar áhyggj- ur af sumrinu ef engin óvænt áföll verða,“ segir Kristófer. Verkföll gætu skaðað orðspor FORMAÐUR FHG SEGIR HÓTELREKENDUR UGGANDI Kristófer Oliversson Gistinætur á hótelum 2010-2018* Samtals milljónir gistinátta á hótelum á landinu öllu** 5 4 3 2 1 0 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Heimild: Hagstofa Íslands *Bráðabirgðatölur fyrir fyrstu 11 mánuði 2018 **Eingöngu hótel sem opin eru allt árið 4,16* 4,27 3,87 1,31 Þórður Birgir Bogason Áætlaðar óskráðar erlendar gistinætur 316 306 1.816 2.438 281 264 1.742 2.287 2017 2018* Þúsundir gistinátta fyrstu 11 mánuði ársins 2017 og 2018* Innigisting, ógreidd Bílar, ógreitt Greitt gegnum vefsíður *Bráðabirgðatölur. Heimild: Hagstofa Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.