Morgunblaðið - 18.01.2019, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Verð 8.990.000 kr.
Verð með aukabúnaði áður 10.040.000 kr.
Afsláttur 1.050.000 kr.
· Innfellanlegt dráttarbeisli
· Leðurklætt aðgerðastýri með hita
· Rafmagn í framsætum
· Milano leðuráklæði
· Rafdrifin opnun á afturhlera
· Nálgunarvarar að framan & aftan
· Bakkmyndavél
· Audi Sound System 180W
· 10 hátalarar
· Dökkar rúður
· LED aðalljós
· 18” álfelgur
· Mjóbaksstuðningur
· Þriggja svæða tölvustýrð
loftkæling
Audi Q5
Design quattro
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þórður Birgir Bogason, fram-
kvæmdastjóri RR Hótela, segir bók-
unartölur benda til metfjölda er-
lendra ferðamanna í ár.
RR Hótel
áformaði að taka
nýtt hótel á
Hverfisgötu 78 í
notkun í desem-
ber. Er nú miðað
við febrúar. Með
því fjölgar hótel-
íbúðum félagsins
úr 47 í 63. Þá er
félagið rekstrar-
aðili vínbarsins
Port 9 á Veghúsa-
stíg og rekur lúxussvítur á efstu hæð
Höfðatorgsturnsins undir vörumerk-
inu Tower Suites Reykjavík.
Áhyggjurnar reyndust óþarfar
Þórður segir hrakspár um sam-
drátt í ferðaþjónustu ekki hafa ræst.
„Bókunarstaðan er að minnsta
kosti jafn góð og í fyrra. Ef ég horfi
ár aftur í tímann þá fór uggur um
mann. Maður óttaðist hvernig staðan
yrði á árinu 2018. Þær áhyggjur
reyndust óþarfar. Nú eru hlutirnir
orðnir eðlilegri, þ.m.t. verð fyrir gist-
ingu. Verð í helstu kaupmyntum
okkar hefur lækkað og er nú nær því
að vera í takt við það sem gengur og
gerist í samkeppnislöndum okkar. Að
sjálfsögðu hefur veiking krónu komið
sér vel fyrir útflutningsfyrirtækin og
fyrirtæki í gistiþjónustu,“ segir Þórð-
ur Birgir sem telur neikvæða um-
ræðu um greinina og hrakspár um
jafnvel samdrátt ekki í takt við þró-
unina í gistirekstri í fyrra.
„Ég er sannfærður um að árið 2019
verður stærra en 2018 í komum
ferðamanna til landsins. Ég held að
hótelmarkaðurinn og þeir sem eru í
fínum rekstri í dag eigi eftir að hafa
það ágætt. Reksturinn á eftir að
ganga vel í ár.
Vissulega eru sumir rekstraraðilar
í erfiðleikum. Samkeppnin er mikil
sem er til góða fyrir neytandann. Svo
nær þetta einhverju jafnvægi. Með
jafnvægi meina ég að verð mun
lækka eitthvað frekar í kaupmynt og
nýting mun líklega einnig lækka og
ná jafnvægi, t.d. í kringum 75% í
Reykjavík þegar fram í sækir. Þann-
ig er það í flestum borgum sem við
berum okkur saman við. Þeir sem eru
hagkvæmastir í rekstri munu ná
samkeppnisforskoti.
Allir hagsmunaaðilar munu þurfa
að taka þátt í þessu og ekki aðeins
rekstraraðilar heldur einnig fast-
eignafélög, lóðareigendur, birgjar og
ekki síst stjórnvöld sem ættu að
koma fram við greinina sem útflutn-
ingsgrein. Raunin er sú að eftir-
spurnin er mikil og við þurfum að
mæta því sem þjóð á einhvern hátt.
Það er mikið í burðarliðnum í
hótelgeiranum og stórir aðilar eru að
koma inn á markaðinn árin 2020 og
2021 með fín vörumerki og hágæða-
gistingu. Maður finnur fyrir eftir-
spurninni. Það er ekkert lát á henni.
Sé eftirspurnin til staðar, og ef haldið
verður ágætlega á spöðunum í upp-
byggingu innviða, mun flugframboð
taka mið af því. Ég hef engar áhyggj-
ur af því að flugframboð verði vanda-
mál,“ segir Þórður og vísar m.a. til
áhrifa breytinga hjá WOW air.
Byggt á landamærarannsókn
Samkvæmt tölum Hagstofu Ís-
lands voru seldar 4,16 milljónir gisti-
nátta fyrstu 11 mánuðina í fyrra.
Fram hefur komið að desember var
góður mánuður í ferðaþjónustunni.
Miðað við að jafn margar gistinætur
hafi selst í desember 2018 og seldust í
desember 2017 má ætla að um 4,5
milljónir gistinátta hafi selst í fyrra.
Það væri nýtt met. Hins vegar benda
tölur um óskráða gistingu fyrstu 11
mánuði 2018 til samdráttar (sjá
minna grafið hér fyrir ofan).
Birtar misjafnlega reglulega
Hjörvar Pétursson, sérfræðingur
hjá Hagstofunni, segir Hagstofuna
hafa um langt skeið skráð fjölda gisti-
nátta á hefðbundnum gististöðum –
hótelum, gistiheimilum, tjaldsvæðum
og öðrum gististöðum – og birt þær
ýmist mánaðarlega fyrir hótel eða
árlega fyrir aðra gististaði.
„Þessar tölur byggjast á innsend-
um gögnum frá þeim gististöðum
sem skráðir eru í gistináttagrunn
Hagstofunnar. Síðan í apríl 2018 hef-
ur Hagstofan einnig birt áætlaðar
tölur um fjölda erlendra gistinátta
sem eru utan hefðbundinnar
gistináttatalningar og ná þær tölur
aftur til upphafs ársins 2017. Fyrsti
flokkurinn eru nætur í íbúðagistingu
sem greitt er fyrir í gegnum vefsíður,
á borð við Airbnb eða HomeAway.
Næsti flokkur eru nætur í bílum og
vögnum með svefnaðstöðu þar sem
ekki er gist á greiðsluskyldum tjald-
svæðum. Þriðji flokkurinn er ógreidd
innigisting, til dæmis við húsaskipti
eða hjá vinum eða ættingjum. Þessar
áætluðu tölur fyrir óskráða gistingu
byggjast á landamærarannsókn
Ferðamálastofu sem hófst í júní 2017.
Í henni eru í hverjum mánuði að jafn-
aði um 2.000 ferðamenn á heimleið
um Keflavíkurflugvöll m.a. spurðir
um dvalarlengd og tegund gistingar
meðan á Íslandsdvöl stóð. Áætlaðar
óskráðar gistinætur fyrir janúar til
maí 2017 voru metnar út frá þróun-
inni frá fyrra ári miðað við skráðar
gistinætur í sömu mánuðum. Tölur
fyrir desember 2018 hafa ekki verið
birtar,“ segir Hjörvar Pétursson.
Spáir metári í ferðaþjónustu
Framkvæmdastjóri RR hótela segir bókunarstöðuna góða Hrakspár um samdrátt hafi ekki ræst
RR hótel hafa tekið yfir rekstur Turnsvítanna í Höfðatorgsturninum Munu opna nýtt hótel í vor
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hverfisgata 78 Unnið er að endurgerð framhússins. Nýtt bakhús er risið.
Aðrir fjárfestar hafa áform um að byggja í portinu við hlið nýja hótelsins.
Kristófer Olivers-
son, formaður
FHG – fyrirtækja
í hótel- og gisti-
þjónustu, segir
eigendur gisti-
staða bíða eftir
því að óvissu í
ferðaþjónustu
létti. „Menn bíða
og horfa til verk-
falla og eftir því hver niðurstaðan
verður hjá WOW air. Óvissan er svo
mikil. Því er hvorki hægt að leyfa
sér að vera bjartsýnn né svart-
sýnn. Ef samið verður í þessum
mánuði, og WOW air lýkur sínum
málum, erum við bjartsýnir. Ef
hvorugt gerist þyngist hins vegar
brúnin á mönnum.
Maður hugsar það ekki til enda
ef skæruverkföllum verður beitt
og reynt að loka fullbókuðum hót-
elum. Það er mikill ábyrgðarhluti.
Því ef gestirnir ná að koma til
landsins geta þeir aldrei komið að
lokuðum hótelum. Sjálfsagt eru
menn að vinna í því að gera þær
ráðstafanir sem unnt er hver um
sig. Það verður mikill skaði fyrir
orðspor okkar og framtíðarafkomu
í greininni ef allt fer á versta veg
og endar í hörðum átökum,“ segir
Kristófer.
Hann segir aðspurður að bók-
unarstaðan fyrir þetta ár sé „eftir
væntingum“. Á það beri að líta að
bókunarstaða hótela sé oft tengd
tekjustýringu, eins og verð á flug-
sætum. Hægt sé að fylla hótel á
ódýrum bókunum og halda því
fram að bókunarstaðan sé góð.
Slíkt beri að skoða í samhengi.
Hann segir aðspurður að áhrifin
af uppstokkun WOW air séu ekki
komin fram af fullum þunga hjá fé-
laginu og þar með mögulega ekki
heldur hjá hótelum. Hvað snerti
CenterHotel-keðjuna sé „bókunar-
staðan eðlileg miðað við árstíma“.
Keðjan er með sex hótel í miðborg
Reykjavíkur og með tvö í byggingu.
„Eftirspurnin er fyrir hendi,
þannig að við höfum engar áhyggj-
ur af sumrinu ef engin óvænt áföll
verða,“ segir Kristófer.
Verkföll gætu skaðað orðspor
FORMAÐUR FHG SEGIR HÓTELREKENDUR UGGANDI
Kristófer
Oliversson
Gistinætur á hótelum 2010-2018*
Samtals milljónir gistinátta á hótelum á landinu öllu**
5
4
3
2
1
0
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Heimild: Hagstofa Íslands
*Bráðabirgðatölur fyrir fyrstu 11 mánuði 2018
**Eingöngu hótel sem opin eru allt árið 4,16*
4,27
3,87
1,31
Þórður Birgir
Bogason
Áætlaðar óskráðar
erlendar gistinætur
316
306
1.816
2.438
281
264
1.742
2.287
2017 2018*
Þúsundir gistinátta fyrstu
11 mánuði ársins 2017 og 2018*
Innigisting, ógreidd Bílar, ógreitt
Greitt gegnum vefsíður
*Bráðabirgðatölur. Heimild: Hagstofa Íslands.