Morgunblaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019 Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551 3033 30-50% afsláttur ÚTSALA karlmenn Flottir í fötum Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Ferðaþjónustufyrirtæki hafa orðið að fella niður fjölda norðurljósaferða í vetur eða þá að ferðir hafa reynst ár- angurslitlar þegar horft er til himins að kvöldlagi. Virknin á norðurhveli hefur ekki verið mikil í vetur og tíðar- farið verið óhagstætt. Þó sást til norð- urljósa víða um land í fyrrakvöld en spár næstu daga gera ráð fyrir mjög lítilli virkni. Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins, segir desember og janúar almennt ekki virkasta tíma- bilið. Virkni norðurljósa sé háð sveifl- um frá hausti og til vors, þegar dag tekur að lengja á ný. Síðasta haust hafi verið ágætt. „Annars erum við að sigla inn í ró- legan tíma í virkni sólarinnar. Þetta ár, 2020 og 2021 ættu að vera frekar róleg, það verður minna um öfluga, litríka norðurljósastorma sem allir hafa glaðst yfir undanfarin ár. Það er náttúruleg og eðlileg sveifla. Norður- ljósin hverfa ekkert en þau verða bara aðeins veikari,“ segir Sævar Helgi. Hann segir upplifun fólks undan- farnar vikur, eða frá byrjun desem- ber, vera hefðbundna fyrir lágmarks- virkni norðurljósa. „Síðan hefur viðrað illa og sett strik í reikninginn. Skýin að undanförnu hafa verið ansi þykk.“ Sævar Helgi segir spána fram- undan ekki gefa góð tækifæri til að sjá norðurljós. Núna sé ekkert svæði á sólinni að dæla til okkar hraðfleygum sólvindi en það ætti að breytast í lok janúar. „Þá kemur svokölluð kórónugeil, sem er op í kórónu sólarinnar. Út úr þessari geil streymir hraðfleygur sól- vindur. Þegar slíkir vindar leika um jörðina fáum við góð norðurljós,“ seg- ir Sævar Helgi og reiknar með að þessir kórónugeil geti varað í tvær til þrjár nætur. Hann vonast til að mars og apríl verði góðir norðurljósamán- uðir, líkt og oft áður. „Við þurfum ekkert að örvænta en undirbúa okkur fyrir aðeins minni virkni næstu tvö árin á þeim ljósum sem kallast seljanleg,“ segir Sævar Helgi og minnir á að þá sé gott að þekkja margt annað en norðurljósin á stjörnuhimninum. Vita um happdrættið Norðurljósaferðir hafa verið eitt helsta verkefni rútufyrirtækja yfir veturinn. Þórir Garðarsson hjá Gray Line segir vertíðina hingað til hafa verið heldur lélega. Búið sé að afbóka margar ferðir í vetur en það hafi verið kærkomið að sjá loksins einhverja ljósasýningu á himni í fyrrakvöld. Á góðu kvöldi eru dæmi um að rút- urnar hafi flutt allt að 2.000 ferða- menn í norðurljósaferðir. Algengustu „sýningarstaðir“ eru Þingvellir og Hellisheiði en annars er farið þangað sem helst er eitthvert útsýni til him- ins. Ef norðurljós sjást ekki geta ferðamenn fengið að koma í aðra ferð án þess að borga. „Ferðamenn vita að þetta er happ- drætti, það er búið að upplýsa þá um að norðurljósin eru ekki sjálfgefin.“ Morgunblaðið/Eggert Norðurljós Spáð er minni virkni norðurljósa næstu tvö árin. Hér dansa ljósin á himni yfir Skorradalsvatni. Lítið um norðurljós í vetur og mörgum ferðum aflýst  Spáð er mun minni virkni sólarinnar næstu tvö árin Guðni Einarsson gudni@mbl.is Aðeins 30% héraðsskjalasafna (sex söfn) hafa afritað mikilvæg skjöl í safnkosti sínum með tilliti til hamfara en 70% (14 söfn) hafa ekki gert það. Fimm hér- aðsskjalasöfn sem afritað höfðu mik- ilvæg skjöl voru með afritin á raf- rænu formi en eitt var einnig með þau á pappír. Ör- yggisafritin voru vistuð utan allra safnanna, eins og kveðið er á um í lögum, en þrjú höfðu einnig afrit innan safnanna. Þetta kemur fram í skýrslunni Starfsemi héraðsskjalasafna, en í henni eru birtar niðurstöður eftirlitskönnunar Þjóðskjalasafns Íslands 2017. Kröfur voru hertar 2014 Í lögum um opinber skjalasöfn (77/ 2014) segir að mikilvægustu skjöl safnanna skuli vera til á filmum, í raf- rænu afriti eða á öðrum vörslumiðli og eintak afritanna varðveitt á örugg- um stað utan höfuðstöðva þeirra. Í eftirlitskönnuninni er einnig spurt hvort mat á skjölum með tilliti til hamfara hafi farið fram, það er hvaða skjöl þurfi að flytja og þá hvert komi til hamfara. Þrjú héraðsskjalasöfn (15%) höfðu gert slíkt mat en 17 (85%) höfðu ekki gert það. Fram kemur í skýrslunni að brýnt sé að héraðsskjalasöfn láti gera slíkt mat í ljósi þess hve líklegt er að náttúru- hamfarir geti valdi miklu tjóni. Sex héraðsskjalasöfn (30%) voru með neyðaráætlun um hvernig skuli bregðast við ef hamfarir verða en 14 (70%) voru það ekki. Eiríkur G. Guðmundsson þjóð- skjalavörður segir að helsta skýring- in sé sú að staða héraðsskjalasafn- anna sé veik. „Þau hafa lítið bolmagn og þurfa að forgangsraða því að halda opnu og sinna nauðsynlegustu verk- efnum. Þetta hefur ekki fengið þann forgang sem gott væri.“ Hann bendir á að þessar kröfur hafi verið gerðar í lögum sem sett voru árið 2014. Með lögunum hafi al- mennt komið ný sýn á skjalamál hjá hinu opinbera. „Við erum ekki búin að uppfylla kröfur þessara nýju laga. Ég tel ekki að þar sé um meðvitaða vangá að ræða heldur er þetta til marks um að þessi málaflokkur stendur ekki mjög sterkt,“ segir Ei- ríkur. Í skýrslunni kemur einnig fram að héraðsskjalasöfnin hafi samtals talið að þörf væri á 26 stöðugildum í viðbót við þau 36,3 sem þegar eru á söfnum. Það væri fjölgun stöðugilda um 72%. Ljóst þykir í ljósi niður- staðna að héraðsskjalasöfnin geti varla sinnt öllum lögbundnum verk- um sínum eins og þau eru mönnuð í dag. Skanni fyrst elstu gögnin Sveitarfélögin reka héraðsskjala- söfnin en Þjóðskjalasafn Íslands er ríkisstofnun. Þjóðskjalasafnið hefur eftirlit með héraðsskjalasöfnunum og setur reglur fyrir allt sviðið, bæði sveitarfélög og ríki. Á fjárlögum er rekstrarstyrkur til héraðsskjalasafna upp á 15 milljónir á ári sem Þjóð- skjalasafnið deilir út eftir umfangi og starfsemi héraðsskjalasafnanna. Einnig er styrkur til skönnunar og birtingar skjala í héraðsskjalasöfnum upp á 16 milljónir króna á ári sem Þjóðskjalasafn úthlutar einnig. Eirík- ur segir að við útdeilinguna sé lögð áhersla á að menn skanni fyrst elstu gögnin og einnig geti það þjónað því markmiði að taka afrit af því mikil- vægasta. Litið er á þau afrit sem ör- yggisafrit. Öryggisafritunin situr á hakanum Morgunblaðið/Ómar Þjóðskjalasafnið Geymslurnar eru yfirfullar og þarf meira húsnæði svo hægt sé að taka við skjölum. Skjölin eru nú hjá ýmsum stofnunum.  Staða héraðsskjalasafnanna er veik  Ekki er búið að uppfylla kröfur sem gerð- ar voru með nýjum lögum 2014  Héraðsskjalasöfnin þurfa að fjölga starfsfólki Helga Vala Helgadóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, hefur óskað eftir því við embætti ríkislögreglu- stjóra að fá um sig allar upplýs- ingar úr LÖKE, upplýsingakerfi lögreglunnar. Þetta staðfesti hún í samtali við mbl.is í gær, en tilefni þessa er að undanfarna daga hafa gengið um hana sögu- sagnir þess efnis að hún sé haldin stelsýki og að hún hafi stolið varningi úr verslunum. „Sem lögmaður veit ég að það er gott að geta slengt fram gögnum máli sínu til stuðnings,“ sagði Helga Vala, sem sagðist hafa hleg- ið að sögusögnunum til að byrja með. „Það er mér í blóð borið að fara þessa leið. Brandarinn var orðinn aðeins of súr,“ sagði hún. Sögð hafa stolið sódavatni Hún hefur þegar fengið staðfest- ingu frá Högum hf. þess efnis að hún hafi ekki verið tekin fyrir refsiverða háttsemi í verslunum Haga, sem reka meðal annars verslanir Hagkaupa og Bónuss. Umræddar sögusagnir snerust aðallega um það að Helga Vala hefði ýmist verið gripin við að stela úr Hagkaupum, Bónus eða 10-11. Sögunni fylgdi að hún hefði átt að hafa tekið sódavatnsflösku ófrjálsri hendi. Helga Vala óskar eftir LÖKE-gögnum  Hló að sögusögnunum í byrjun Helga Vala Helgadóttir Eiríkur G. Guðmundsson þjóð- skjalavörður segir að Þjóð- skjalasafnið þyrfti að hafa fleiri starfsmenn en það hefur, að mati ráðgjafa. Safnið vantar meira geymslurými og í heilt ár hafa ekki verið samþykktar nýj- ar afhendingar pappírsskjala. Skjöl sem ættu að vera í safninu eru í geymslu hjá stofnunum. Allt frá 2013 hefur verið í undirbúningi að laga hús 5 við Laugaveg 164 svo það henti sem skjalageymsla. Þar mun bætast við pláss upp á 15.000 hillumetra. Upphaflega var stefnt að því að þetta húsnæði yrði tilbúið 2017. Áætlanir hafa ekki gengið eftir og útboð á verkinu ekki enn farið fram. „Þetta er verulega slæmt og ekki komin lausn á málinu,“ segir Eiríkur. „Við eigum von á að hitta ráðherra vegna þessa máls á næstunni.“ Einnig er áformað að byggja í framtíðinni nýtt húsnæði á lóð- inni en talið er að Þjóðskjala- safnið geti verið til frambúðar við Laugaveg 162-164 verði þar nægur húsakostur. Vantar pláss og starfsfólk ÞJÓÐSKJALASAFNIÐ Eiríkur G. Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.