Morgunblaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019
MANDUCA
BURÐARPOKINN
Manduca burðarpokinn er hannaður með
það markmið að leiðarljósi að barn geti
viðhaldið M-stellingu fóta og mjaðma.
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is
Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Veður víða um heim 17.1., kl. 18.00
Reykjavík 0 alskýjað
Hólar í Dýrafirði -7 léttskýjað
Akureyri -6 snjókoma
Egilsstaðir -5 snjókoma
Vatnsskarðshólar 2 alskýjað
Nuuk -8 skýjað
Þórshöfn -2 skýjað
Ósló -4 heiðskírt
Kaupmannahöfn 0 snjókoma
Stokkhólmur -5 léttskýjað
Helsinki -7 skýjað
Lúxemborg 3 slydduél
Brussel 2 rigning
Dublin 2 skýjað
Glasgow 1 heiðskírt
London 3 heiðskírt
París 4 skúrir
Amsterdam 2 skúrir
Hamborg 4 skýjað
Berlín 5 léttskýjað
Vín 5 heiðskírt
Moskva -3 snjóél
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 5 þoka
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 11 rigning
Aþena 12 heiðskírt
Winnipeg -18 snjókoma
Montreal -18 léttskýjað
New York -2 heiðskírt
Chicago 0 þoka
Orlando 17 léttskýjað
18. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:48 16:29
ÍSAFJÖRÐUR 11:18 16:09
SIGLUFJÖRÐUR 11:02 15:51
DJÚPIVOGUR 10:24 15:52
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á laugardag Suðaustan 13-20 m/s, rigning eða
slydda og hiti 0 til 5 stig, en þurrt NA-til.
Á sunnudag Suðvestan 10-18 m/s og él, en létt-
skýjað á N- og A-landi, hvassast við SV-ströndina.
Víða skúrir eða él, en hægviðri og birtir til NA-lands. Hiti 0 til 5 stig syðst, en frost annars 1 til 10
stig, kaldast í innsveitum nyrðra.
Í nýrri könnun verðlagseftirlits Al-
þýðusambands Íslands (ASÍ), á
breytingum á gjaldskrá fyrir vistun
og fæði í leikskólum 16 stærstu sveit-
arfélaganna 2018 til 2019 kom fram að
níundi tíminn í vistun væri dýrastur í
Kópavogi. Þar hækka leikskólagjöld
um 44% á mánuði ef barn er í leik-
skóla níu tíma á dag í stað átta.
Sigríður Björg Tómasdóttir, al-
mannatengill Kópavogsbæjar, segir
að eftir hrun hafi ýmsar hugmyndir
verið ræddar í hagræðingarskyni í
rekstri sveitarfélaga. Þar með talið í
rekstri leikskóla. Allar leiðir hafi ver-
ið skoðaðar, t.d. að draga úr þjónustu,
hækka gjaldskrár og fleira.
Kópavogsbær tók þá ákvörðun
2009 að hækka kostnað vegna vistun-
ar umfram átta klukkkustundir á dag
í byrjun árs 2010 í stað þess að draga
úr þjónustu með styttri opnunartíma
eða heimila ekki lengri vistun en átta
tíma. Sigríður segir að síðan þá hafi
engar róttækar gjaldskrárbreytingar
orðið aðrar en prósentuhækkanir á
gjaldskrá. Hún segir að sú hækkun
hafi verið lægri en hækkun á verðlagi
almennt eða launakostnaði. Sem þýði
að þegar allt sé skoðað hafi hlutur for-
eldra í rekstrarkostnaði leikskóla
lækkað. Sigríður segir að að meðaltali
greiði foreldrar í Kópavogi um 13,4%
af raunkostnaði rekstrar leikskóla í
dag.
100 af 2000 nýta níu tíma vistun
Eftir að gjald fyrir níunda tímann í
leikskólum Kópavogs hækkaði um
44%, fækkaði börnum sem nýttu sér
vistun úr rúmum 200 í 100 að sögn
Sigríðar. Hún segir að í leikskólum
Kópavogs séu 2000 börn, af þeim séu
100 í vistun í níu tíma og einhver hluti
í átta og hálfa tíma.
Sigríður segir enga umræðu hafa
farið fram um lækkun á verði níunda
tímans. Það stafi m.a. af því að lítlar
eða engar fyrirspurnir hafa borist um
breytingar á gjaldskrá vegna hans.
Tíðarandinn sé á þann veg í dag að al-
mennt sé talið að átta tíma vistun sé
nóg fyrir börn í leikskóla. Undir þau
sjónarmið taki leikskólakennarar
með faglegum rökum.
Sigríður segir að Kópavogsbær
hafi boðið upp á níu og hálfs tíma vist-
un en það hafi verið lítið notað og sé
ekki í boði lengur.
„Í leikskólum sem bjóða upp á níu
tíma vistun mæta börn sem nýta sér
hana fyrr á morgnana og eru sótt kl.
16.30,“ segir Sigríður sem bendir á að
frá 1. febrúar loki allir leikskólar í
Kópavogi kl. 16.30 enda sé lítil eft-
irspurn eftir lengri tíma.
Níu tíma vistun
barna 44% dýrari
Var hækkað eftir efnahagshrunið
Þistilfinka, sjaldgæfur flækingsfugl, hefur haldið til á
Faskrúðsfirði að undanförnu. Hún er þar í slagtogi
með auðnutittlingum, sem eru henni náskyldir. Snjór
hefur verið yfir öllu en þessir litlu fuglar hafa ekki látið
það á sig fá.
Þistilfinka er smávaxin og hennar helstu heimkynni
eru í Evrópu, Norður-Afríku og Vestur- og Mið-Asíu.
Hún heldur sig einkum í skóglendi en hefur ekki sést
hér á landi nema í innan við 20 skipti frá upphafi skrán-
inga.
Ljósmynd/Mikael Sigurðsson
Sjaldgæfur flækingsfugl á ferðinni
Þistilfinka sást í slagtogi með auðnutittlingum á Fáskrúðsfirði
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Erindi Elínar Bjargar Ragnarsdótt-
ur lögmanns til siðanefndar RÚV
gæti orðið fyrsta málið sem siða-
nefndin tekur fyrir. Til hennar var
stofnað haustið 2016 en nefndin hef-
ur enn ekki tekið eitt einasta mál til
umfjöllunar, að sögn formannsins,
Gunnars Inga Jóhannssonar hæsta-
réttarlögmanns. Einu máli hefur
verið vísað til nefndarinnar en það
féll ekki undir starfssvið hennar.
Gunnar hafði ekki fengið erindi El-
ínar í gærdag en það var sent til
RÚV á þriðjudag.
Elín Björg ritaði grein í Morgun-
blaðið í gær þar sem hún fordæmdi
vinnubrögð Kastljóssins varðandi
viðtal sem tekið var við hana árið
2012. Segist hún hafa verið boðuð í
viðtal þar sem hún ræddi almennt
um samkeppnislega mismunun í inn-
lendri fiskvinnslu og nauðsyn að-
skilnaðar veiða og vinnslu. Elín var á
þessum tíma framkvæmdastjóri
Samtaka fiskframleiðenda og út-
flytjenda. Viðtalið birtist aldrei en
hluti þess birtist síðar í umfjöllun
Kastljóssins um húsleit hjá Sam-
herja. Vill Elín meina að látið hafi
verið að því liggja að hún hafi verið
að tjá sig um málefni Samherja þeg-
ar ummælin voru í raun almenns
eðlis og viðtalið tekið löngu fyrr.
Reyndu að ná í Elínu
Sigmari Guðmundssyni, sem var
ritstjóri Kastljóssins á þessum tíma,
hafði ekki gefist tími til að rifja mál-
ið upp að fullu þegar Morgunblaðið
náði tali af honum í gær. Hann vill
þó koma því á framfæri að skýrt hafi
verið tekið fram í umfjöllun þáttar-
ins að viðtalið við Elínu Björgu hafi
verið tekið áður en mál Samherja
kom upp. Í grein sinni sagði Elín
Björg að ómögulegt væri annað en
„að draga þá ályktun að ég hafi verið
að lýsa meintu ólöglegu athæfi Sam-
herja“.
„Hún talar eins og við höfum látið
líta svo út að hún sé að tala með
beinum hætti um rannsóknina
sjálfa. Það kemur hins vegar skýrt
fram í inngangi umfjöllunarinnar að
viðtölin sem birtast í innslaginu voru
tekin áður en rannsóknin hófst. Þar
fer ekkert á milli mála að hún er að
tala almennt,“ segir Sigmar og
bendir á að umfjöllun þessa megi
finna á Youtube.
Hvað athugasemdir Elínar Bjarg-
ar til útvarpsstjóra, fréttastofu
RÚV og Kastljóss varðar segir Sig-
mar að reynt hafi verið að bregðast
við þeim.
„Það var ekki ljóst hvort þetta var
athugasemd eða hvort hún vildi fá
leiðréttingu. Ef við fáum nótu frá
einhverjum er ekki sjálfgefið að við
birtum hana. Við reyndum ítrekað
að hringja í hana til að fá skýringar
en hún svaraði okkur aldrei. Þetta
er það sem við getum sagt um málið
í bili,“ sagði Sigmar.
Páll Magnússon alþingismaður,
sem var útvarpsstjóri þegar málið
kom upp, hafði ekki haft tök á að
kynna sér málið þegar Morgunblað-
ið ræddi við hann í gær.
Gæti orðið fyrsta mál siðanefndar RÚV
Fyrrverandi ritstjóri Kastljóss neitar því að óeðlilegum vinnubrögðum hafi verið beitt við viðtal við Elínu
Björgu Ragnarsdóttur árið 2012 Siðanefnd RÚV hefur starfað síðan 2016 en ekki enn fjallað um mál
Morgunblaðið/Eggert
RÚV Vinnubrögð Kastljóss voru ekki boðleg, að mati Elínar Bjargar.