Morgunblaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019 „Mannamót er mikill suðupottur og hér verða mikil verðmæti til á ein- um degi. Það er margt að gerast hjá fyrirtækjum á landsbyggðinni sem tengjast ferðaþjónustu,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, fram- kvæmdastjóri Markaðsskrifstofu Norðurlands. Mannamót Markaðs- stofu landshlutanna, MAS, sem í gær var haldið í Kórnum í sjöunda sinn, er kynningarvettvangur fyrir- tækja sem tengjast ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Á Mannamóti fá landsbyggðarfyrirtæki tækifæri til þess að kynna fjölbreyttar vörur og þjónustu fyrir ferðaþjónustuaðilum á höfuðborgarsvæðinu í því skyni að þeir selji ferðir á landsbyggðina til erlendra ferðamanna. „Hingað til höfum við verið í samstarfi við Flugfélagið Erni og haldið Mannamót í flugskýli félags- ins. Í ár bættist Isavia við og sýn- ingin flutt í Kórinn. Með því fengust 50 fleiri sýningarbásar, en allir 270 sem í boði voru seldust upp,“ segir Arnheiður sem bendir á að einungis aðilar innan MAS fái aðstöðu á sýn- ingunni. Hún segir að 800 gestir hafi skráð sig á sýninguna en fleiri hafi mætt. „Það er gríðarleg gróska í ferðaþjónustu á lands- byggðinni. Bæði á nýjum svæðum og gamalgrónum,“ segir Arnheiður og bætir við að á Mannamóti gefist tækifæri til samvinnu innan svæða. Markaðsstofur landshlutanna eru sex og eru á Vesturlandi, Vest- fjörðum, Norðurlandi, Austurlandi, Reykjanesi og Suðurlandi og starfa með 800 fyrirtækjum í 66 sveitar- félögum. Morgunblaðið/Kristinn Fjölmenni Margir komu við á Mannamóti, ferðaráðstefnu í Kórnum, í gær. Suðupottur á Mannamóti MAS  Mikil verðmætasköpun á einum degi Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Allt á 2.000- 5.000 kr. VERÐ- HRUN Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Misty Super control dress Aðhaldskjóll sem kemur undir brjóst. Styður vel við maga, bak og mjaðmir og með sílikoni neðst svo kjóllinn fari ekki upp. Stærðir S-XXL Verð 12.850kr Aðhaldssamfellur og -kjólar Super control body Aðhaldssamfella sem kemur undir brjóst, styður vel við maga og bak með mjúkri teyjanlegri blúndu yfir rass og mjaðmir. Stærðir S-XXL Verð 9.850 kr. Starf forstjóra Barnaverndarstofu hefur verið auglýst laust til um- sóknar og er umsóknarfrestur til 28. janúar. Forstjóri Barnaverndar- stofu stýrir starfi stofnunarinnar og heyrir undir félags- og barna- málaráðherra. Á vefsíðu félagsmálaráðuneytis- ins segir að í störfum Barnavernd- arstofu felist m.a. að hafa eftirlit með störfum barnaverndarnefnda, annast leyfisveitingar til fósturfor- eldra og fara með yfirstjórn heim- ila og stofnana sem ríkinu ber að sjá til að séu tiltæk og hlutast til um að slík heimili og stofnanir verði sett á fót. Stofan hefur yfirumsjón með vistun barna á þessum heim- ilum og stofnunum. Félags- og barnamálaráðherra skipar forstjóra Barnaverndarstofu til fimm ára í senn. Bragi Guð- brandsson lét af starfi forstjóra í febrúar í fyrra eftir að hafa tekið sæti í Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd og tek- ið að sér sérverkefni á vegum vel- ferðarráðuneytisins. Staðgengill hans, Heiða Björg Pálmadóttir, hefur frá þeim tíma gegnt starfi forstjóra Barnavernd- arstofu tímabundið. Starf forstjóra Barnaverndarstofu auglýst Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Barnaverndarstofa Félagsmála- ráðuneytið auglýsir stöðu forstjóra. Lína á röngum stað Í grafi sem birtist í Morgun- blaðinu í gær með grein um minnkandi frjósemi var lína sem sýndi frjósemi íslenskra kvenna á röngum stað. Rétt er að frjósemi íslenskra kvenna hefur undan- farna áratugi verið um og yfir tvö börn en ekki eitt eins og lesa mátti úr grafinu. Rétt línurit sést hér til hliðar. Beðist er velvirð- ingar á þessu. LEIÐRÉTT Heimurinn allur Frjósemi á Íslandi Frjósemi til að viðhalda mann- fjölda = 2,1 Frjósemi kvenna 1949 til 2017 Heimild: Hagstofa Íslands og healthdata.org 4,5 4,0 3,5 3,0 2,5 2,0 1,5 1,0 0,5 ’49 ’66 ’83 ’00 ’17 1,71 var frjósemi kvenna á Íslandi árið 2017 Flestir myndu kjósa Sjálfstæðis- flokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag og næstflestir Samfylkinguna. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem birt var í gær. Fylgi Mið- flokksins og Flokks fólksins hefur aukist og eru þeir einu flokkarnir sem auka fylgi sitt á milli kannana. Könnunin var framkvæmd dagana 4.-14. janúar. Fylgi Sjálfstæðis- flokksins mældist 22,2% og er nær óbreytt frá síðustu mælingu sem var gerð fyrri hluta desembermánaðar og Samfylkingin er með 15% sem er tæpum tveimur prósentustigum minna en í síðustu mælingu. Fylgi Vinstri-grænna mælist nú 11,3%, en var 12,9% síðast, og Framsókn er með 11,7%, var með 12,5% í síðustu könnun. Fylgi Viðreisnar mælist nú 7,8% en var 8,5% í síðustu könnun, fylgi Miðflokksins eykst úr 5,9% í 6,9% og fylgi Flokks fólksins eykst úr 4,2% í 6,7%. Aðrir flokkar mældust samtals með 4,6% fylgi. Einnig var stuðningur við ríkis- stjórnina kannaður. Hann hefur auk- ist lítillega, nú sögðust 41,1% styðja hana samanborið við 40,3% áður. Flestir kysu Sjálfstæðisflokk  41,1% segist styðja ríkisstjórnina Alþingi Fylgi flokkanna breytist á milli kannana, tveir þeirra bæta við sig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.