Morgunblaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Sérfræðingar í auglýsinga- og mark-
aðsmálum virðast almennt ánægðir
með nýja auglýsingu rakvélafram-
leiðandans Gillette sem vakið hefur
mikla athygli í vikunni. Í auglýsing-
unni er tekin afstaða með #MeToo
byltingunni og karlmenn hvattir til
að breyta hegðun sinni. Skilaboðin
eru að gamalgrónar hugmyndir um
sterka karlmenn og hin svokallaða
„eitraða karlmennska“ sé á undan-
haldi. Velþekktu slagorði Gillette var
til að mynda breytt í spurningu, „Is
this the best a man can get?“
Margir karlar móðgaðir
Auglýsingin fór í loftið á sunnudag
og hefur vörumerkið fengið hrós
þeirra sem telja að hugrekki þurfi til
að senda þessi skilaboð frá sér. Ís-
lenska utanríkisráðuneytið sendi til
að mynda frá sér velþóknunartíst í
vikunni. En það eru ekki allir á einu
máli um ágæti auglýsingarinnar sem
hafði fengið tæp 17 milljón áhorf á
Youtube seinnipartinn í gær. Ríflega
400 þúsund létu sér líka við auglýs-
inguna, gáfu henni þumal upp, en yfir
800 þúsund lýstu sig ósátta. Af hátt í
250 þúsund ummælum virðist mikill
meirihluti ósáttur við auglýsinguna.
Margir karlmenn virðast móðgaðir
við skilaboð auglýsingarinnar og
sumir segjast aldrei munu nota vörur
Gillette aftur. Talsmaður fyrirtækis-
ins vestanhafs segir á móti að þar
sem fyrirtækið hvetji karlmenn til að
vera besta útgáfan af sjálfum sér sé
mikilvægt að taka þátt í þessu sam-
tali. „Við viljum hvetja til breytinga
með því að viðurkenna að gamla við-
kvæðið, „strákar munu alltaf vera
strákar,“ er engin afsökun.“
Skiptir máli að þora
María Hrund Marinósdóttir,
markaðsstjóri Borgarleikhússins og
formaður ÍMARK, lýsir ánægju með
auglýsingu Gillette. „Mér finnst mik-
ilvægt fyrir auglýsingabransann al-
mennt að það séu fyrirtæki sem þori
að segja það sem máli skiptir án þess
að hræðast þá sem eru mótfallnir
hugmyndinni. Staðreyndin er sú að
þeir sem þora, hvort sem það er Gil-
lette, Nike eða aðrir, eru þeir sem
raunverulega ná árangri. Þeir sem
fíla skilaboðin og eru með þeim í liði
fylgja þeim enn frekar og þeir sem
gera það ekki virða þá fyrir að þora,“
segir hún.
Veðmál sem borgar sig
Almannatengillinn Andrés Jóns-
son kveðst telja að Gillette sé að slá
hárréttan tón með þessari auglýs-
ingu og rifjar upp fræga auglýsingu
Nike með ruðningskappanum Colin
Kaepernick. „Þrátt fyrir svipuð við-
brögð og núna jók Nike sölu sína
töluvert. Það eru flestir markaðs-
menn sammála um að þú færð aukna
athygli með þessum hætti og svo eru
kannski 40 prósent fólks á móti. Af
þeim er bara lítill hluti sem er aktí-
vistar sem beita sér gegn þér og
hætta að kaupa vöruna. Þetta er veð-
mál sem borgar sig. Ég hugsa að
fleiri fyrirtæki muni gera þetta í
framtíðinni en þú verður að hafa af-
stöðu, þetta má ekki bara vera brella.
Pepsi ætlaði að gera eitthvað svipað
en það var bara ekki trúverðugt.“
„Það er mjög djarft að fara þessa
leið því þetta fer misjafnlega ofan í
menn. En til lengri tíma er þetta gott
og mun alveg virka. Fólk vill að stór
vörumerki taki afstöðu,“ segir Hrafn
Gunnarsson, hugmynda- og hönnun-
arstjóri hjá auglýsingastofunni
Brandenburg.
Hann bendir á að Gillette sé ekki
fyrsta fyrirtækið sem breytir um
stefnu í markaðsmálum með þessum
hætti. „Stór vörumerki vilja vera með
í umræðunni og skipta máli. Það er
jákvætt að komast inn í stór mál, það
heppnaðist til dæmis vel hjá Always
og hjá Nike sem tók mikla áhættu.
Þú færð alltaf ýktustu viðbrögðin
fyrst og það hafa eflaust verið ófáar
umræðurnar um auglýsinguna við
vatnskælana í vikunni. Svo kemur
meginstraumurinn og svo allt í einu
eykst kannski salan.“
Ekki bara barátta kvenna
Gyða Margrét Pétursdóttir, dós-
ent í kynjafræði við Háskóla Íslands,
segir að auglýsing Gillette sé áhuga-
verð því þar birtist það sem kallað
hafi verið eftir, ekki síst í kjölfar
#MeToo byltingarinnar, að karlar
skoði sjálfan sig og verði breyting-
arafl. Það sé ekki bara kvenna að
berjast fyrir jafnrétti, karlar verði
að vera meðvitaðir um sinn þátt í
því.
„Mér finnst auglýsingin áhuga-
vert innlegg í þessa umræðu. Hún er
í anda þess sem alþjóðastofnanir
hafa verið að gera, til að mynda á
Barbershop-ráðstefnum, um að það
sé á ábyrgð karla að beita sér í
karlahópnum.“
Hún segir að viðbrögðin komi sér
ekki á óvart. „Það væri óeðlilegt ef
viðbrögðin væru ekki sterk. Skila-
boðin sem karlar hafa verið að fá;
vera sterkur, láta ekki bilbug á sér
finna, það er hluti af því að vera karl-
maður að reyna við konur, þarna eru
skilaboð sem ganga þvert á það sem
búið er að segja þér allt þitt líf. Eðli-
lega upplifa einhverjir það sem árás
á sig og ég held að það megi skýra
eitthvað af þessum kommentum á
Youtube á þeim nótum. Þessi nei-
kvæðu viðbrögð tengjast líka
ákveðnu bakslagi gagnvart #MeToo
þar sem því er haldið á loftið að það
megi ekki lengur segja neitt og póli-
tískur rétttrúnaður sé allt að drepa.“
Gillette á hvers manns vörum
Umdeild auglýsing rakvélaframleiðandans Gillette „Eitruð karlmennska“ á undanhaldi Mark-
aðsfólk telur auglýsinguna vel heppnaða Dósent í kynjafræði segir viðbrögð karla ekki koma á óvart
Umdeild Ný auglýsing Gillette þar sem hjólað er í gamalgrónar hugmyndir um karlmennsku hefur vakið umtal.
Hrafn
Gunnarsson
María Hrund
Marinósdóttir
Andrés
Jónsson
Gyða Margrét
Pétursdóttir
Tækifæri til umbreytinga.
Hvernig bregst líkaminn við?
Getur andleg líðan breyst?
Hormónalyf eða ekki?
Skiptir mataræði og hreyfingmáli?
Á námskeiðinu gefst þátttakendum tækifæri
til að kynnast leiðum til að takast á við
möguleg einkenni breytingaskeiðs.
Á námskeiðinu tvinnast saman áhugaverð
fræðsla og reynslusögur og þátttakendur
kynnast ýmsum tækifærum sem felast í því
að fara í gegnum þetta spennandi tímabil og
verða sterkari í seinni hálfleik.
Hressandi og fróðleg dagskrá, áhersla lögð á
gleðina í lífinu, hugað að mataræði, hreyfingu
og slökun.
HAMSKIPTI
BREYTINGASKEIÐIÐ
sterkari í seinni hálfleik
17.-23. febrúar 2019
Umsjón:
Árelía Eydís Guðmundsdóttir – dósent í
leiðtogafræðum
Benedikt Ó. Sveinsson – kvensjúkdómalæknir
Margrét Grímsdóttir – hjúkrunarfræðingur
Geir Gunnar Markússon – næringarfræðingur
Þóra Sif Sigurðardóttir – íþróttafræðingur
Verð 165.000 kr.
20 % afsláttur fyrir félagsmenn
NLFR og NLFA
Innifalið:
Gisting, ljúffengur og hollur matur, fræðsla
og hóptímar, núvitund, jóga og göngur, leikfimi
eða vatnsþrek, aðgangur að baðhúsi, sundlaugum
og líkamsræktarsal. Bókin Sterkari í seinni hálfleik.
Sex daga námskeið frá sunnudegi til laugardags á Heilsustofnun í Hveragerði.
Þetta námskeið er fyrir konur sem vilja auka þekkingu sína á þessu æviskeiði.
Berum ábyrgð á eigin heilsu www.heilsustofnun.is nesdekk.is / 561 4200
REYKJAVÍK | GARÐABÆR | REYKJANESBÆR | AKUREYRI
Fyrir
öryggið og
umhverfið!
Brotist var inn á 67 heimili í desember og eru það talsvert fleiri innbrot en
ef miðað er við fjölda síðustu sex og tólf mánaða á undan. Þá hefur inn-
brotatilkynningum fjölgað en alls bárust 123 tilkynningar vegna innbrota.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í afbrotatölfræði lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu fyrir desembermánuð 2018.
Alls bárust 684 tilkynningar um hegningarlagabrot í desember og fækk-
aði tilkynningum því milli mánaða. Tilkynningum um þjófnað fækkaði
verulega ef miðað er við síðustu 6 mánuði á undan og einnig fækkaði til-
kynningum um eignaspjöll. Þá fjölgaði tilkynningum um kynferðisbrot
einnig, en alls bárust lögreglu þá 26 tilkynningar.
Innbrotum fjölgar í höfuðborginni