Morgunblaðið - 18.01.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 18.01.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019 Álfabakka 12, 109 Rvk • s. 557 2400 • bjorg@bjorg.is • Opið virka daga kl. 8-18 Fjölskyldufyrirtæki frá 1953 Þú kemur með fjórar flíkur en greiðir fyrir þrjár (ódýrasta flíkin frítt) 4 3fyrir Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Morgunblaðið/Rax Brottkast Eftirlit með brottkasti er sagt veikburða og ómarkvisst. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Eftirlit Fiskistofu með brottkasti er veikburða og ómarkvisst. Þá er eft- irlit stofnunarinnar með vigtun sjáv- arafla takmarkað og efast má um að það skili tilætluðum árangri. Þetta kemur meðal annars fram í stjórnsýsluúttekt á eftirliti Fiski- stofu sem unnin var af Ríkisend- urskoðun að beiðni Alþingis. Segir einnig í skýrslunni að sam- þjöppun aflaheimilda styðji ekki með viðunandi hætti við markmið laga um stjórn fiskveiða og um- gengni um nytjastofna sjávar. Ríkisendurskoðun vísar á bug mati atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytisins um að brottkast sé „óverulegt“ á Íslandi. Vísað er til þess að innan fiskveiðikerfisins sé mikill hagrænn hvati til þess að stunda brottkast. Vegna veikleika eftirlitsins sé í raun engin forsenda til þess að fullyrða um umfang brottkasts hér við land. Þá er sagt að Fiskistofu sé í raun ómögulegt að sinna öllu því eftirliti sem henni ber að sinna, meðal ann- ars vegna skorts á úrræðum og við- urlögum. Þá tekur Ríkisendurskoð- andi fram að hvorki liggi fyrir skýr árangursmarkmið né árangursmæl- ingar í eftirliti með brottkasti og að auka þurfi viðveru eftirlitsmanna um borð í fiskiskipum og horfa til tækninýjunga við eftirlit. Þá er lagt til að gerðar verði skýrar kröfur um aðstöðu til vigtunar og eftirlit hafn- aryfirvalda. Styrkja samstarf við Gæsluna Ríkisendurskoðandi mælist til að kannað verði hvort auka megi sam- starf Fiskistofu og Landhelgisgæslu Íslands við eftirlit með brottkasti. „Líkt og fram kemur [í skýrsl- unni] þá vantar meiri mannskap og það þarf að skoða regluverkið. Það er svona uppistaðan,“ segir Eyþór Björnsson fiskistofustjóri við Morg- unblaðið. Hann segir öll atriði skýrslunnar verða skoðuð þar inn- andyra. „Það kemur náttúrulega fram í skýrslunni að Fiskistofa tekur undir þessar tillögur,“ segir Eyþór. Þá segir Eyþór nú þegar unnið að því að efla starfsemi hafnanna og fylgir Landhelgisgæslan því eftir. „En eins og stendur í skýrslunni þá þarf að auka viðveru eftirlits- manna um borð en það gerist ekki nema með meiri mannskap,“ segir Eyþór, en lagt er til í skýrslunni að fjöldi starfsmanna sem sinna eftirliti verði endurskoðaður. Fiskistofa getur ekki sinnt eftirliti  Skortur er á mannskap, úrræðum og viðurlögum, að sögn Ríkisendurskoðunar  Veikleiki eftirlits gerir það ómögulegt að meta umfang brottkasts  Samþjöppun aflaheimilda styður ekki markmið laga Reykjavíkurborg og hæstaréttarlög- maðurinn Ástráður Haraldsson hafa komist að samkomulagi um að Reykjavíkurborg greiði Ástráði þrjár milljónir króna eftir að borgin braut jafnréttislög við skipun borg- arlögmanns. Ástráður var meðal þeirra sem sóttu um starfið og taldi kærunefnd jafnréttismála hann hafa verið hæf- ari en Ebba Schram, sem skipuð var í embættið í ágúst á síðasta ári. Jafn- réttislög voru brotin við ráðningu Ebbu. Ástráður og Ebba, sem einnig er hæstaréttarlögmaður, sóttu bæði um starfið og taldi Ástráður brotið á sér vegna kynferðis síns þegar Ebba var ráðin og staðfesti kærunefndin það í fyrra. Í samkomulagi Reykja- víkurborgar og Ástráðs kemur fram að borgin skuli greiða honum þrjár milljónir eigi síðar en 21. janúar nk. Viðurkenna ekki bætur Tekið er sérstaklega fram í sam- komulaginu að ekki sé um að ræða viðurkenningu borgarinnar á skaða- eða miskabótaskyldu en þar segir: „Samkomulag þetta felur ekki í sér viðurkenningu af hálfu Reykja- víkurborgar á sérstakri skaða- eða miskabótaskyldu vegna þeirra at- vika sem um ræðir. Í samkomulagi þessu felst þó að niðurstaða kæru- nefndar jafnréttismála verður ekki undir dómstóla borin.“ mhj@mbl.is Borgin greiðir Ástráði 3 milljónir  Brutu lög við skipun borgarlögmanns Leggst yfir hvala- skýrslu HÍ „Menn telja að finna megi fleiri stofna sem þola sjálfbærar veið- ar, en ég hef svarað þessu á þann veg að við höfum ekki neina úttekt Hafrann- sóknastofnunar á því máli og þar til slíkt mat liggur fyrir er þetta ekki mál sem er að koma til ákvörðunar,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra, í samtali við Morgunblaðið, en reglu- gerðarákvæði um leyfi til veiða á stórhvölum rann út í árslok 2018. „Ef hefja á hvalveiðar aftur þá þarf að gefa út nýja reglugerð. Ég þarf hins vegar að renna yfir skýrsl- una áður og kynna mér efni hennar vel,“ segir Kristján Þór og vísar til nýrrar skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða, sem unnin var fyrir atvinnuvegaráðuneytið, og kynnt var í fyrradag. Þar kemur meðal annars fram að fullyrðingar um nei- kvæð áhrif hvalveiða á íslenskt efnahagslíf eiga ekki við rök að styðjast. Þá segist ráðherrann ekki finna fyrir þrýstingi frá útgerðum um að hefja veiðar á ný. Kristján Þór Júlíusson  Finnur ekki fyrir þrýstingi um veiðar Landhelgisgæslan fékk í vikunni afhentan nýj- an léttabát fyrir varðskipið Tý. Báturinn, sem er 8,5 metrar á lengd, nefnist Flengur 850 og var smíðaður af Rafnari ehf., en hönnun hans var unnin í samvinnu við Landhelgisgæsluna, að undangengnu útboði árið 2017. Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs, segir að löng hefð sé fyrir létta- bátum um borð í íslensku varðskipunum, en Flengur er hugsaður sem endurnýjun á svoköll- uðum Springerbátum, sem voru keyptir um aldamótin, en þeir eru nú úr sér gengnir. Bátar eins og Flengur eru nýttir við ýmis störf sem þarf að vinna út frá varðskipunum. „Það er til dæmis að fara á milli skipa, fiski- skipa og annarra, þegar farið er í eftirlit,“ seg- ir Ásgrímur. Þá séu léttabátar oft notaðir við leitar- og björgunarstörf. „Það getur til dæmis komið til að fiskiskip sé að reka upp á land, og þar sem varðskip kemst ekki þetta grunnt fara þessir bátar og koma dráttartaug á milli þann- ig að hægt sé að draga skipið frá landi,“ segir Ásgrímur og bendir á að oft sé erfitt að at- hafna sig á hafinu kringum landið og því þurfi öfluga báta í þessi verkefni. Hann segir að- spurður að ekki séu áform eins og er um að fá fleiri báta á borð við Fleng en bendir á að bún- aður af þessu tagi sé það dýr að það sé alltaf háð útboði þegar þarf að endurnýja léttabát- ana. Hins vegar byggist hönnun Flengs á sömu hönnun og notuð var fyrir varðbátinn Óðin, en Óðinn er notaður við ýmis verkefni Landhelgis- gæslunnar. „Þetta er skrokklag og bátsgerð sem reynist mjög vel við íslenskar aðstæður og við erum ánægðir með þessa báta,“ segir Ás- grímur að lokum. sgs@mbl.is Ljósmynd/Landhelgisgæslan Flengur nýttur í alls kyns verkefni Morgunblaðið hafði samband við al- þingismennina Karl Gauta Hjalta- son og Ólaf Ísleifsson og spurði hvort þeir vildu tjá sig um ummæli Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, í aðsendri grein „Karlar sem hatast við konur“ sem birtist í Morgunblaðinu gær. Ólafur kvaðst ekki sjá neina ástæðu til að bregðast við greininni. „Ég ætla ekki að fara í leðjuslag við formann Flokks fólksins,“ sagði Karl Gauti. Í aðsendri grein, sem birt er í Morgunblaðinu í dag, segir Halldór Gunnarsson, fyrrverandi stjórnar- maður í Flokki fólksins, Ingu Sæ- land hafa kastað „illmælgi að þrem- ur mönnum sem vildu hjálpa henni“ og að uppistaða greinar Ingu sé rétt- læting hennar fyrir að hafa rekið „þá þingmenn sem báru uppi málefna- starf þingflokksins“. »21 Tjá sig ekki um ummæli Ingu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.