Morgunblaðið - 18.01.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 18.01.2019, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019 laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Epicurean skurðarbretti Verð frá 2.690 kr. Ný sending STOFNAÐ 1956 Glæsileg íslensk hönnun og smíði á skrifstofuna Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur Sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni. Dímon Hönnuður: Erla Sólveig Óskarsdóttir Flex skrifstofuhúsgögn Hönnuðir: Guðrún Margrét Ólafsdóttir og Oddgeir Þórðarson 18. janúar 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 121.15 121.73 121.44 Sterlingspund 155.8 156.56 156.18 Kanadadalur 91.25 91.79 91.52 Dönsk króna 18.5 18.608 18.554 Norsk króna 14.191 14.275 14.233 Sænsk króna 13.513 13.593 13.553 Svissn. franki 122.53 123.21 122.87 Japanskt jen 1.1132 1.1198 1.1165 SDR 168.79 169.79 169.29 Evra 138.11 138.89 138.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.5226 Hrávöruverð Gull 1290.5 ($/únsa) Ál 1810.0 ($/tonn) LME Hráolía 60.42 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Jón Ásgeir Jóhannesson, stofnandi Bónuss, hefur á síðustu dögum átt fundi með stórum hluthöfum í Högum og kynnt hugmyndir sínar um framtíð smásölurisans. Hann hefur boðið sig fram til stjórnar félagsins en í dag verður kosin stjórn í kjölfar þess að Samherji, sem er kominn í hóp stærstu hluthafa félagsins, kallaði eftir hluthafafundi. Jón Ásgeir er ekki í hópi þeirra fimm einstaklinga sem tilnefningar- nefnd Haga leggur til að verði kosnir í stjórnina að þessu sinni. Þrátt fyrir niðurstöðu nefndarinnar stendur hann við framboð sitt en ásamt honum bjóða sjö manns sig fram til stjórnar- setunnar. Viðmælendur Morgunblaðsins, sem þekkja vel til félagsins, töldu yfirgnæf- andi líkur á að tillaga tilnefningar- nefndar yrði samþykkt óbreytt. Þá er talið ósennilegt að lífeyrissjóðir, sem eru í hópi stærstu hluthafa, muni ljá Jóni Ásgeiri stuðning sinn. Hefur kynnt hugmyndir sínar fyrir hluthöfum STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Á innan við einu ári hefur trygginga- miðlunin Tryggingar og ráðgjöf selt um 3.600 söfnunarlíftryggingar frá slóvakíska tryggingafélaginu NOVIS Insurance Comp- any Inc. Vegna þeirra eiginleika trygginganna að margir aðilar geta verið um hvern tryggingasamn- ing, þá njóta um 4.500 manns hér á landi trygginga- verndar frá Novis. Fjármálaeftir- litið, FME, hvatti neytendur á dögunum til að kynna sér vandlega afleiðingar þess að segja upp samningi um sparnað eða líf- tryggingar hjá einu vátrygginga- félagi til að flytja sig til annars. Þá ítrekaði FME fyrri ábendingar þar sem vísað var til söfnunarlíftrygginga Novis og vakin athygli á því að fjár- málaeftirlit Ungverjalands (Seðla- banki) hafi tímabundið stöðvað þann 4. júlí sl. nýsölu á tryggingunum. Komu hratt inn á markaðinn „Við komum hratt inn á markaðinn og höfum selt mikið á stuttum tíma. Þetta veldur auðvitað núningi við þau félög sem fyrir eru á markaðinum, en ég fagna því að FME sé vakandi fyrir hag neytenda. Novis er ungt félag, en það er í góðum rekstri og hefur þol til að standa við sínar skuldbindingar. Þá má bæta því við að þegar ung- verski seðlabankinn stöðvaði sölu á vöru Novis, þá brást Novis fljótt við og breytti vörunni að ósk bankans,“ segir Hákon Hákonarson, fram- kvæmdastjóri Tryggingar og ráðgjaf- ar, í samtali við Morgunblaðið. Hákon segir að ein helsta ástæðan fyrir velgengni Novis hér á landi sé að nær engin nýsköpun hafi átt sér stað hjá íslensku tryggingafélögunum á sviði líf- og sjúkdómatrygginga und- anfarin ár. Novis bjóði hinsvegar ýmsar nýjungar sem falli fólki vel í geð. „Þessi vara er einfaldlega sú besta af þessu tagi sem ég hef nokkru sinni séð,“ segir Hákon. Hann segir að varan sé t.d. frábrugðin flestum öðrum vörum á þann hátt að tryggt sé fyrir 30 mismunandi sjúkdómum, og ef viðskiptavinur fær einn af sjúk- dómunum 30, sé hann áfram tryggður fyrir hinum 29. Algengt sé hjá öðrum tryggingafélögum að tryggingasamn- ingur falli alfarið niður, séu greiddar út bætur vegna sjúkdóms. „Þá er það nýjung að ef til dæmis fimm manns sameinast um einn samning, og einn veikist alvarlega, þá halda hinir áfram að vera tryggðir.“ Alvarlegir sjúkdómar Til útskýringar segir Hákon að sjúkdómatryggingar tryggi fyrir al- varlegum sjúkdómum sem leitt geta til dauða. Almenna reglan sé sú að sjúklingur þurfi að lifa í 30 daga þegar keyptar eru stakar sjúkdómatrygg- ingar, og tryggingin á þá að hjálpa til í eftirleiknum. Ef menn látist innan 30 daga taki líftryggingin við. „Novis býður meira en þetta, því ef viðskipta- vinur veikist af sjúkdómi sem er ekki einn af þessum 30, og þarf að fara í að- gerð, þá greiðir NOVIS bætur.“ Ennfremur segir Hákon að ís- lensku tryggingafélögin búi gjarnan til flokka af tryggingum. „Það þýðir að ef þú veikist af krabbameini, þá dettur út öll vernd fyrir krabbameini hjá viðkomandi. Hjá Novis ertu áfram tryggður fyrir öðrum tegundum krabbameins.“ Hafa selt þúsundir söfnun- arlíftrygginga á einu ári Morgunblaðið/Þórður Stuðningur Novis er fimm ára gamalt tryggingafélag með starfsemi í 11 Evrópulöndum og stefnir næst til Noregs. Tryggingar » Novis söfnunarlíftryggingin er dýrari en aðrar tryggingar. » Tryggingafélagið er tilbúið að laga vöruna að aðstæðum í hverju landi. » Novis hefur höfuðstöðvar í Bratislava í Slóvakíu. » Sparnaður myndast í evrum. » Stækkun á markaði fylgir núningur við þau félög sem fyrir eru.  Ýmsar nýjungar  FME hefur varað við tryggingafélaginu  Ungt á markaði Hákon Hákonarson ● Skráðir bílaleigubílar hér á landi nú í janúar eru 21.544 talsins skv. nýbirtum tölum frá Hagstofu Íslands. Eru þeir 7% fleiri en bílarnir sem skráðir voru á göt- urnar í janúar 2018. Hefur stöðugt fjölgað þeim bílum sem bílaleigur hafa á götunum í janúarmánuði. Þannig má nefna að í janúar 2013 voru þeir aðeins 7.280 og hefur því fjölgað um 14.264 eða nærri 200% á sex árum. Í tölum Hagstofunnar er einnig að finna tölur yfir bílaleigubíla sem skilgreindir eru „úr umferð“ en þar er átt við bíla sem númerin hafa verið tekin af og lögð inn og þeir ekki í notkun á meðan. Fjöldi slíkra nemur 2.993 í ár og eru það tölu- vert færri ökutæki en á sama tíma í fyrra þegar þau voru 3.458 talsins. Raunar verður að leita aftur til ársins 2015 til að finna færri bílaleigubíla í jan- úarmánuði sem númerin hafa verið tek- in af en það ár voru þeir 2.879. Fleiri bílaleigubílar á götunum í janúar en fyrir ári

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.