Morgunblaðið - 18.01.2019, Síða 22
22 UMRÆÐAN Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019
✝ Konráð StefánKonráðsson
var fæddur í
Reykjavík 19.
desember 1956.
Hann lést á gjör-
gæsludeild LSH 11.
janúar 2019.
Foreldrar hans
voru Konráð Óskar
Sævaldsson, f. 21.6.
1924, d. 5.4. 2012,
og Alice Dalmar
Sævaldsson, f. 12.7. 1919, d.
12.10. 1992.
Systkini Konráðs Stefáns eru
Linda Louise Konráðsdóttir, f.
Páll á Sævar Briesemeister úr
fyrra hjónabandi.
Konráð Stefán var kvæntur
Aldísi Ágústsdóttur, f. 4.8. 1948,
d. 5.3. 2009, þau gengu í hjóna-
band 1987.
Konráð Stefán bjó í Reykjavík
og á Seltjarnarnesi. Hann ólst
upp í Vogunum og í Fellsmúl-
anum í Reykjavík, en áður en
Stefán hleypti heimdraganum
bjó hann á Unnarbraut á Sel-
tjarnarnesi. Konráð Stefán vann
sjálfstætt sem sendill og hjá
styrktarfélaginu Ási, starfs-
maður Landsamtaka Þroska-
hjálpar var hann fram á síðasta
dag. Heiðursfélagi Áss styrktar-
félags síðastliðin tíu ár. Hann
var sæmdur gullmerki félagsins
á 50 ára afmæli þess.
Útförin fer fram frá
Digraneskirkju í Kópavogi í dag,
18. janúar 2019, klukkan 15.
17. 8. 1950, og Páll
Dalmar Konráðs-
son, f. 30.6. 1952.
Hálfsystir Kon-
ráðs Stefáns var
Anna Karólína
Konráðsdóttir, f.
18.4. 1946, d. 27.2.
2017. Móðir henn-
ar var Magnea Vil-
borg Þórðardóttir.
Eiginkona Páls
Dalmars er Alice
Bjerrgård Konráðsson. Þau
eru búsett í Danmörku. Þeirra
sonur er Hans Christian Dalm-
ar.
Stefán frændi okkar systra
er fallinn frá. Við Stefán vorum
bræðrabörn, en feður okkur
voru hálfbræður.
Stefán var ættrækinn og
duglegur að hafa samband við
okkur systur og hringdi oft.
Stundum kom hann í heimsókn
og stoppaði þá dágóða stund,
drakk ófáa kaffibolla og sagði
sögur, af sjálfum sér og öðrum.
Það var húmor í Stebba og
hafði hann gaman af frásögum
af samferðamönnum og sagði
vel frá.
Hann fylgdist vel með stór-
fjölskyldunni og var ávallt með
nýjar fréttir af fólki sem tengd-
ist okkur á einhvern hátt. Þá
hafði hann áhuga á þjóðmálum
og stjórnmálaumræðu.
Stefán var alltaf fínn í
tauinu, í jakkafötum, með bindi,
í frakka og með hatt og lagði
mikið upp úr því að koma vel
fyrir.
Stefán var skapgóður, vin-
margur, þekkti marga og vildi
umgangast fólk. Hann ferðaðist
víða um bæinn, þó dregið hafi
úr því fyrir ári síðan, þegar
hann hætti að aka um á vesp-
unni. Hann lifði alla tíð sjálf-
stæðu lífi og sá um sig sjálfur,
með aðstoð góðs fólks. Það
voru margir sem stóðu að Stef-
áni og aðstoðuðu hann á ýmsa
lund, stuðningsfulltrúar hans,
félagsráðgjafar, starfsfólk hjá
Styrktarfélaginu Ási, Þroska-
hjálp, félagar í AA-samtökun-
um og fleiri, þeim er öllum
færðar þakkir fyrir óeigin-
gjarnt starf í þágu Stefáns.
Hvíl í friði, frændi
Hjördís, Friðrika, Hildur
og Helga Harðardætur.
Háaleitisbraut 13 er ekki
söm eftir fráfall okkar góða
samstarfsmanns og vinar, hans
Stebba.
Elsku kallinn okkar sem var
einstaklega bóngóður og ljúfur.
Það var aðdáunarvert að sjá
hversu frábærlega Stebbi gat
leyst úr sínum málum ef eitt-
hvað var ekki eins og það átti
að vera. Ekki má gleyma öllum
gullkornunum sem hann lét
falla, þau munu lifa í minning-
unni. Honum Stebba þótti mjög
gaman að láta konurnar í hús-
inu vita ef honum fannst þær
líta vel út og hrósaði þeim
óspart.
Við sjáum hann fyrir okkur
núna glaðan í lund, að hitta allt
fólkið sitt og ekki síst alla þá
sem hann skrifaði minningar-
greinar um.
Kæri vinur, hafðu þökk fyrir
allt og allt.
Hvíl í friði.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið,
og þín er liðin æviönn,
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
(Höf. ókunnur.)
Umhyggja,
Ragna K. Marinósdóttir.
Stefán Konráðsson eða
Stebbi sendill eins og við
þekktum hann öll ár er fallinn
frá.
Stebbi hefur starfað fyrir
Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðra síðustu fimmtán ár sem
póstsendill, en hann kom í hús-
ið þegar Þroskahjálp flutti á
Háaleitisbraut árið 2004. Stebbi
lést úr hjartaáfalli síðastliðinn
föstudag og hryggir það okkur
öll að missa góðan vin og sam-
starfsmann.
Stebbi var skemmtilegur og
litríkur einstaklingur, hann
hafði lag á því að láta fólki líða
vel í kringum sig, var jákvæður
og óspar á hrósið á hverjum
degi. Mættu margir tileinka sér
sömu bjartsýni og velhug.
Hann sat oft löngum stund-
um á biðstofunni á spjalli við þá
sem þar sátu, en Stebbi var fé-
lagslyndur og herramaður mik-
ill í fasi og í klæðaburði. Við til-
tektir vildi hann sjá um að
panta bíl og oftar en ekki fór
hann með bílstjóranum á Sorpu
til að sjá til þess að verkið yrði
vel unnið. Hann var hjálp-
samur, trygglyndur og með
gott skopskyn. Eitt sinn titlaði
hann sjálfan sig sem sérlegan
aðstoðarmann framkvæmda-
stjóra og sinnti hann því starfi
ávallt af miklum sóma.
Eftir stendur minning um
einstaklega hjartahlýjan og
skemmtilegan mann.
Innilegar þakkir fyrir allt,
kæri Stebbi. Hvíl í friði.
Fyrir hönd starfsfólks
Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra,
Vilmundur Gíslason.
Að skrifa grein til minningar
um Stefán Konráðsson er
vandasamt verk. Stefáni fannst
sjálfum minningargreinar mjög
mikilvægar og skrifaði þær
margar um sína daga. Það sem
einkenndi minningargreinar
Stebba Konn, eins og hann var
alltaf kallaður, var mikil ein-
lægni og væntumþykja.
Fundum okkar Stebba bar
fyrst saman þegar ég hóf störf
á sambýlinu í Auðarstræti árið
1984. Þar bjó Stebbi ásamt
sinni heittelskuðu Aldísi í lítilli
íbúð í kjallara. Stebbi var þá 27
ára gamall og þurfti eflaust að-
berjast fyrir eðlislægu sjálf-
stæði sínu, m.a. gegn for-
ræðishyggju okkar starfs-
manna. Stebbi átti það til að
skipta skapi ef honum fannst að
skoðanir sínar og vilji væru
ekki virtar. Það brást hins veg-
ar ekki að hann kom síðar og
bað forláts á því sem hann
hafði sagt ef honum sjálfum
þótti það ekki hafa verið viðeig-
andi. Þetta einkenndi Stebba,
gegnheill sómamaður sem gerði
ríkar kröfur til sjálfs sín hvað
varðar alla framkomu.
Í Auðarstræti var líka oft
glatt á hjalla og ég minnist sér-
staklega skemmtilegrar helgar-
ferðar okkar Stebba og Aldísar
til Akureyrar.
Síðar giftu þau Aldís og
Stebbi sig og fluttu í sína eigin
íbúð í Hlíðunum þar sem þau
lifðu góðu lífi um tíma. Þegar
fór að halla undir fæti hjá Al-
dísi reyndi mikið á Stebba.
Hann axlaði þá ábyrgð sem á
hann var lögð af mikilli reisn
allt þar til yfir lauk. Eins var
með samskipti hans við Lindu
systur sína, sem hann bar
ávallt mikla umhyggju fyrir og
taldi ekki eftir sér að gera
henni lífið ánægjulegt með
heimsóknum og ekki síður
heimboðum m.a. um jól og á
öðrum stórhátíðum.
Þegar sá er þetta skrifar tók
við starfi framkvæmdastjóra
Landssamtakanna Þroskahjálp-
ar árið 1994 var Stebbi starfs-
maður samtakanna. Þar sinnti
hann sendlastörfum og fleiri
viðvikum. Þarna kynntist ég
ýmsum sérgáfum Stebba, m.a.
ótrúlegri ratvísi og þekkingu á
umhverfinu svo og hæfileikan-
um að nálgast upplýsingar.
Það var hægt að senda
Stebba með hvað sem er hvert
sem er og þrátt fyrir takamark-
aðan lesskilning kom hann allt-
af öllu til skila. Eins var það ef
hann vantaði upplýsingar um
hin ýmsu mál, þá gat hann allt-
af aflað sér þeirra m.a. með
símtölum sem oft á tíðum virt-
ust tilviljanakennd en leiddu
oftar en ekki til þess að Stebbi
fékk þær upplýsingar sem hann
var að leita eftir.
Stefán Konráðsson var lif-
andi dæmi um það að gagnsemi
greindar fer ekki eftir magni
heldur eftir nýtingu þess sem
maður hefur. Þannig var það
einnig með peningamálin.
Stebbi stóð stundum í viðskipt-
um sem manni þótti áhættusöm
miðað við hans efnahag en allt-
af kom hann út úr þeim án þess
að valda sjálfum sér eða öðrum
vandræðum.
Óneitanlega verður tómlegra
hér á skrifstofu Þroskahjálpar
við brotthvarf Stebba. Hann
heilsaði á hverjum morgni
kumpánlega og spurði um frétt-
ir og líðan. Síðan velti hann fyr-
ir sér veðri og horfum enda
vanur því að það skipti máli
þegar hann vann við að sendast
um bæinn gangandi, hjólandi
eða á vespunni sinni. Eftir að
hafa komið þessum málum á
hreint var gjarnan spurst fyrir
um skoðun manns á einhverju
dægurmáli eða viðraðar eigin
skoðanir. Oft urðu í framhaldi
líflegar umræður enda Stebbi
skoðanaríkur maður. Alltaf var
samt passað upp á að ekkert
væri skilið eftir sem gæti valdið
sárindum. Þannig skilur Stefán
Konráðsson við gagnvart guði
og mönnum.
Far þú í friði, þín verður sárt
saknað.
Friðrik Sigurðsson.
Konráð Stefán Konráðsson
(Stebbi sendill) lést 11. janúar
eftir skammvinn veikindi. Vinir
og samstarfsfólk hjá Ási styrkt-
arfélagi minnast hans með kær-
leika og þökk. Lífssaga Stefáns
hefur verið samofin sögu fé-
lagsins um áratugaskeið. Hann
Konráð Stefán
Konráðsson
Undur og stór-
merki! Vegna
aukins kvíða,
þunglyndis og
vanlíðanar meðal
ungs fólks,
(sannanlegar,
rannsakaðar
upplýsingar)
hafa sálfræð-
ingar þessa
lands ákveðið að gefa ungu
fólki helmingsafslátt af
verðskrá sinni, gefið kost á
einstaklings- og hópviðtals-
tímum, allt það sem hentar
hverjum og einum! Hugsið
ykkur, nú mun tíminn ekki
kosta um 15 þúsund heldur
bara 7.500. Hver getur sleppt
svona kostaboði? Enda hafa
sálfræðingar sýnt fram á að
meðferð á þeirra vegum er
áhrifarík og skilar sér svo
margfalt til baka til sam-
félagsins, sjálfsvígum fækkar
og mun fækka enn meira með
tilkomu þessa kostaboðs. Eða
nei, kannski ekki. Það er ekki
um neitt kostaboð að ræða.
Hinn almenni einstaklingur
hefur ekki efni á að mæta til
sálfræðings. Sálfræðings sem
kannski, og bara kannski,
gæti hjálpað honum við að
kljást við kvíða, þunglyndi,
sjálfsvígshugsanir. Því sál-
fræðingurinn gefur sér sjald-
an tíma til að hlusta á það sem
sjúklingurinn hefur að segja,
talar yfir hann, kemur með
ráð en sjaldan eftirfylgni.
Allt þetta og meira til kom
upp í huga minn þegar ég
hlustaði á RÚV í kvöld þar
sem Alda Karen Hjaltalín
svarar sálfræðingnum Haf-
rúnu Kristjánsdóttur, sem
telur það siðferðilega rangt
að selja fólki ákveðna hug-
mynd og taka fyrir það pen-
ing. Ekki veit ég, nema það sé
akkúrat það sem Hafrún ger-
ir í sínu starfi, selur skjól-
stæðingum ákveðna hugmynd
og fær greitt fyrir það um að
bil, eða minnsta kosti 15 þús-
und krónur. Á tímann.
Hafrún kom í þáttinn full af
eldmóði og (réttlátri?) reiði í
garð þessarar stelpuskjátu
sem ætlaði sko að segja ein-
hverjum, já, allt í lagi, fullum
sal af fólki, hver hennar upp-
lifun væri! Hvernig vogaði
hún, Alda Karen, sér að gera
það! Hún gæti mögulega
komið af stað
einhverjum
hugrenningum
hjá hlust-
endum, svei
mér þá, jafnvel
að „þeim fynd-
ist þeir vera
nóg“. Þvílíkt og
annað eins! Og
algerlega án
ábyrgðar.
Hafrún hefur
líklega gleymt
því að þegar
upp er staðið ber hún, sem og
aðrir sálfræðingar og geð-
læknar, enga ábyrgð ef og
þegar illa fer. Þegar sjúkling-
ur á þeirra vegum sviptir sig
lífi. Það þekki ég af eigin
raun. Teymi geðlækna og sál-
fræðinga föður míns vissu í
hvað stefndi. Og hvað gerðu
þau til að koma í veg fyrir
harmleikinn. Ekkert. Akk-
úrat ekki neitt. Nú nema
segja okkur, aðstandendum
og syrgjendum eftir á, að
þetta hefðu þau vitað að væri
að fara að gerast. Af því að
þau eru svo klár, með svo
mikla reynslu, svo mikla
menntun. Vita svo miklu bet-
ur en við, almúginn. Enda
kom þetta okkur ekkert við.
Við þurfum bara að lifa með
sorginni og söknuðinum. Við
vitum svo sannarlega að
sjálfsvíg er alvarlegt og ber
að taka alvarlega. Alltaf.
Af einhverjum ástæðum
nær Alda Karen til ungs
fólks, hún er heiðarleg, opin,
ófullkomin, viðurkennir mis-
tök, talar við fólk, ekki yfir
það. Viðurkennir vanmátt
sinn en bendir á leiðir sem
hafa hjálpað henni. Hún kem-
ur fram eins og hún er klædd.
Ekki meira og ekki minna.
Hún leggur sig fram við að
taka við ráðleggingum og
leiðbeina, vísa og benda á úr-
ræði sem eru í boði. Það eru
engir fingur sem benda, þetta
snýst um samtal. Og almenna
skynsemi, ég geri mér grein
fyrir að með gríni má nálgast
sannleikann, ég hef vit og gáf-
ur til að greina á milli. Al-
mennt er almúginn bara
nokkuð skynsamar hugsana-
verur. Svona í heild.
Rannsóknir hafa sannan-
lega sýnt að áhrif sterkrar og
góðrar sjálfsmyndar auka lík-
ur á bata. Hver sem sjúkdóm-
urinn er. Hvort sem von er
um bata eða ekki. Ég hef sótt
tíma hjá ýmsum sálfræð-
ingum og sérfræðingum. Þeir
sem hafa hjálpað mér eru
hjúkrunarfræðingur, fjöl-
skylduráðgjafi, geðlæknir
(gamall í hettunni, sem gaf
sér tíma fyrir mig, var mann-
eskjulegur) og prestur. Sál-
fræðingar hafa akkúrat ekk-
ert gert til að aðstoða mig í
glímu minni við þunglyndi og
kvíða. Ef ég ætti að velja á
milli þess að hitta Öldu Karen
eða sálfræðing, þá væri það
val ekki erfitt. Alda Karen
yrði alltaf fyrir valinu. En
hvað veit ég, ég er bara not-
andi þjónustu (þegar ég hef
efni og aðstæður til) og ekki
er ég með heilbrigðismenntun
að baki. Samt með meistara-
próf og stefnir nú í nokkrar
diplómur innan kennslufræð-
innar og geðheilbrigðisfræða.
Þessar umræður sem sál-
fræðingar hafa komið af stað
vegna námskeiðs Öldu Kar-
enar hafa lítið gert fyrir mig,
nema að styrkja mig í þeirri
trú, að þeir viti lítið um mann-
lega hegðun og þarfir. Tími sé
kominn fyrir þá að líta örlítið
upp úr fræðunum, koma sér
niður af sjálfskipuðum stalli
og horfast í augu við almenn-
ing. Því þegar upp er staðið
erum við öll einstaklingar
með margvíslegar þarfir, það
sem hentar einum, hentar ef
til vill ekki öðrum. Setningin
„ég er nóg“ á rétt á sér.
Ávallt.
Ég er móðir, eiginkona,
amma, hunda- og kattaeig-
andi, syrgjandi, þunglyndis-
og kvíðasjúklingur, með
meistaragráðu í menntunar-
fræðum, nemi í háskóla sem
lýkur á vordögum með (lík-
lega) tveimur diplóma-
gráðum, jafnvel þeirri þriðju í
haust … Sem sagt bara al-
múgi sem hefur ýmislegt til
málanna að leggja og tekur
fulla ábyrgð á því sem ritað
hefur verið hér að framan.
Snákaolía eða kannski
bara almenn skynsemi?
Eftir Sonju
Dröfn
Helgadóttur
Sonja Dröfn Helgadóttir
»Hugleiðingar
vegna (óvæg-
innar) gagnrýni á
námskeið Öldu
Karenar Hjaltalín
af hendi „sérfræð-
inga“.
Höfundur er grunnskóla-
kennari og nemi.
Morgunblaðinu barst bréf frá 14 ára
bandarískri stúlku, Louella Horning,
sem langar að eignast íslenska penna-
vini á svipuðum aldri. Bréfasamskiptin
myndu fara fram á ensku þar sem hún
talar ekki íslensku.
Póstfang Louella er:
Louella Horning
3620 Rosetow Rd.
Pembroke, KY 42266
USA.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
14 ára stúlka óskar eftir pennavinum
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í
landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar
eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir
öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgun-
blaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðsló-
góinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar
smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem lið-
urinn „Senda inn grein“ er valinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgun-
blaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl.
8-18.