Morgunblaðið - 18.01.2019, Qupperneq 37
Glass
Þriðja myndin í þríleika leikstjór-
ans M. Night Shyamalan sem hófst
með Unbreakable. Kevin Crumb,
David Dunn og Elijah Prince, öðru
nafni Hr. Glass eða Hr. Gler, eru á
geðsjúkrahúsi ásamt öðru fólki
sem trúir því að það sé ofurhetjur.
Með aðalhlutverk fara Bruce Will-
is, Samuel L. Jackson og James
McAvoy. Metacritic: 41/100
Ótrúleg saga um risastóra peru
Teiknimynd byggð á samnefndri
barnabók Jakob Martin Strid. Vin-
irnir Mítsó og Bastían finna
flöskuskeyti sem í er örlítið fræ
og bréf frá borgarstjóranum sem
hefur verið týndur í meira en ár.
Af fræinu vex risastór pera sem
þeir sigla til dularfullrar eyju.
Leikstjórar eru Jørgen Lerdam,
Amalie Næsby Fick og Philip Ein-
stein.
The Upside
Bandarísk endurgerð frönsku
kvikmyndarinnar Untouchables. Í
henni segir af Philippe, frönskum
auðmanni sem er lamaður eftir
slys. Ungur maður með vafasaman
feril að baki, Driss, er ráðinn sem
aðstoðarmaður hans en hefur
enga reynslu af umönnun fatlaðra.
Á milli mannanna myndast einstök
vinátta. Leikstjóri er Neil Burger
og með aðalhlutverk fara Bryan
Cranston og Kevin Hart.
Metacritic: 45/100
Underdog
Pólsk kvikmynd sem er sýnd með
enskum texta. Boris Kos Kosinski
er keppandi í MMA, blönduðum
bardagalistum, og einn sá allra
besti í þeirri íþrótt. Hann gerir af-
drifarík mistök í keppni gegn sín-
um helsta andstæðingi sem eyði-
leggja fyrir honum ferilinn. Þarf
hann að yfirstíga miklar hindranir
til að endurheimta virðingu sína á
ný. Myndin er byggð á sönnum at-
burðum og er leikstýrt af Maciej
Kawulski. Í aðalhlutverkum eru
Eryk Lubos og Mamed Chalidow.
Bíófrumsýningar
Hetjuórar, pera,
vinátta og barátta
Vinasaga Úr The Upside.
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019
ICQC 2018-20
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Japanskt
meistaraverk
Landsins mesta
úrval af píanóum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
Morgunblaðið/Eggert
Styrkveiting Frá úthlutun styrkja menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs og útnefningu Listhóps Reykjavíkur 2019 í Iðnó í gær.
Styrkjum menningar-, íþrótta- og
tómstundaráðs og útnefning List-
hóps Reykjavíkur 2019 fór fram í
Iðnó í gær og var það formaður
ráðsins, Pawel Bartoszek, sem
gerði grein fyrir úthlutuninni og
öðrum framlögum Reykjavíkur-
borgar til menningarmála.
Faghópi skipuðum fulltrúum
Bandalags íslenskra listamanna og
Hönnunarmiðstöðvar Íslands var
falið að fara yfir styrkumsóknir og
leggja til styrki til menningar og
lista, að því er fram kemur í til-
kynningu.
Umsóknir voru 161 talsins og
heildarupphæðin sem sótt var um
rúmar 209 milljónir. Ráðið gat út-
hlutað styrkjum að heildaruppæð
60.888.000 kr. til menningarmála
fyrir árið 2019 og veitti það vilyrði
fyrir 75 styrkjum og samstarfs-
samningum fyrir þá upphæð. Fyrir
eru 23 hópar með eldri samninga í
gildi, skv. tilkynningu.
Reykjavíkurborg hefur nú í
fyrsta sinn gert samstarfssamning
við Myndhöggvarafélag Reykjavík-
ur og segir í tilkynningu að mikil
gróska sé í félaginu og að undan-
farin ár hafi hlutur ungs fólks auk-
ist sem og hlutur kvenna og að fé-
lagsmenn séu á þriðja hundrað.
Félagið hafi staðið fyrir virku sýn-
ingarhaldi bæði innan dyra sem ut-
an og bæði í Reykjavík og úti á
landi. Myndhöggvarafélagið og
Reykjavíkurborg gera með sér
samstarfssamning til tveggja ára
um tvær milljónir króna á ári og fé-
lagið var einnig í gær útnefnt List-
hópur Reykjavíkur árið 2019.
Samningar endurnýjaðir
Einnig var gerður nýr tveggja
ára samningur við danshátíðina
Reykjavik Dance Festival og fram-
lag til hennar hækkað úr þremur
milljónum í fjórar á ári hverju. Þá
var samstarfssamningur borgar-
innar við djassklúbbinn Múlann líka
framlengdur til tveggja ára og
framlagið hækkað úr einni milljón
króna í eina og hálfa árlega og
samningar við Harbinger-
sýningarrýmið og ASSITEJ, Ís-
landsdeild alþjóðasamtaka um
barnaleikhús, voru einnig endurnýj-
aðir. Leiklistarhátíðin Lókal hlýtur
þriggja milljóna króna styrk, Pera
óperukollektív og sýningin Hjólið
II, sem Myndhöggvarafélag
Reykjavíkur stendur fyrir, hljóta
tveggja milljóna króna styrk og fé-
lagið Íslensk grafík hlýtur eina og
hálfa milljón króna. Aðrir styrkir
eru hæstir ein milljón króna en
lægsta styrkupphæðin 158 þúsund
krónum.
Hæstu framlög til menningarlífs-
ins í borginni, fyrir utan rekstur
menningarstofnana hennar, fara til
Leikfélags Reykjavíkur í Borgar-
leikhúsi, Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands og Tónlistar- og ráðstefnu-
hússins Hörpu, segir í tilkynningu
og að jafnframt hljóti Listahátíð í
Reykjavík, Sviðslistamiðstöð í
Tjarnarbíói, Sjónlistamiðstöð á
Korpúlfsstöðum, Bíó Paradís,
Hönnunarmiðstöð og fleiri sjálf-
stæðir aðilar húsnæðis- og/eða
rekstrarstyrki.
Af styrkþegum sem ekki hafa
verið nefndir má nefna Lúðrasveit
Reykjavíkur og Lúðrasveit verka-
lýðsins sem hljóta eina milljón hvor,
ljósmyndagalleríið Ramskram og
kvennakórinn Vox Feminae sem
hljóta sömu upphæð. Heildarlista
styrkþega má finna á vef Reykja-
víkurborgar og á mbl.is.
Myndhöggvarafélagið útnefnt
Listhópur Reykjavíkur 2019
Úthlutun styrkja menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs fór fram í gær
Kvikmyndavefurinn Variety grein-
ir frá því að 16 verk í vinnslu verði
kynnt á Norræna kvikmyndamark-
aðnum sem haldinn veðrur í Gauta-
borg í 20. sinn 31. janúar til 3. febr-
úar og að á meðal þeirra séu kvik-
myndir Hlyns Pálmasonar og
Gríms Hákonarsonar. Kvikmynd
Hlyns heitir upp á ensku A White,
White Day og kvikmynd Gríms,
Héraðið, heitir The County á ensku.
Í fréttinni segir að Ísland eigi góða
fulltrúa að þessu sinni, þá Hlyn,
Grím og Rúnar Rúnarsson sem
muni allir kynna verk sín líkt og
Benedikt Erlingsson gerði í fyrra
þegar hann kynnti Kona fer í stríð.
Kvikmyndavefurinn Screen
International birti svo í vikunni
lista yfir 25 evrópskar kvikmyndir
sem líklegar væru til að freista
stjórnenda kvikmyndahátíða á
árinu og er Héraðið þeirra á meðal
og ein af fimm norrænum kvik-
myndum sem rata á listann.
Kynna kvikmyndir
sínar í Gautaborg
Í Héraði Grímur Hákonarson vinnur nú að
kvikmyndinni Héraðið og kynnir hana.
Kvikmyndir sem innihalda atriði
sem sýna nauðgun eða kynferðisof-
beldi verða héðan í frá bannaðar
börnum undir 15 ára aldri í Bret-
landi. Breska kvikmyndaeftirlitið,
BBFC, hefur breytt reglum sínum
og hert hvað þetta varðar og einnig
þegar kemur að klámfengnu mynd-
efni, samkvæmt frétt dagblaðsins
Guardian.
Aldursmörkin
hækkuð í 15 ár