Morgunblaðið - 21.01.2019, Side 4
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Afburðagóð hey sem bændurnir á
Hóli í Svarfaðardal öfluðu sumrin
2017 og 2018 skjóta þeim á topp
listans yfir afurðamestu kúabúin á
nýliðnu ári. „Ég held að við höfum
aldrei verið með jafngóð hey og þessi
tvö sumur. Nytin er ekki að aukast
vegna kjarnfóðurgjafar því við höfum
heldur minnkað hana,“ segir Karl
Ingi Atlason, bóndi á Hóli.
Meðalafurðir kúnna á búi Karls
Inga og konu hans, Erlu Hrannar
Sigurðardóttur, jukust um 546 kíló á
milli ára og varð það efst á kúabúa-
lista Ráðgjafarmiðstöðvar landbún-
aðarins. Þetta eru þó bráðabirgðatöl-
ur enn sem komið er og leiðréttingar
kunni að vera gerðar á einstaka töl-
um. Árið áður jókst meðalnytin um
600 kíló þannig að stökkið er hátt.
Hólsbúið hefur verið ofarlega und-
anfarin ár en þó í skugga Brúsastaða
í Vatnsdal þar sem Gróa Margrét
Lárusdóttir og Sigurður Eggertz
Ólafsson reka afburðabú. Brúsastaðir
hafa verið afurðamesta búið undan-
farin ár og oftast í fyrsta sæti. Karl
Ingi gerði sér ekki vonir um að ná
efsta sætinu og líkti stöðunni við
ensku knattspyrnuna í samtali við
Morgunblaðið fyrir ári: „Ég held líka
að þetta sé eins og með Manchester
City í enska boltanum að ekki er
hægt að ná efsta sætinu af þeim.“
Karl er harður Liverpool-maður og
vonar að árangur hans í mjólkur-
framleiðslunni á nýliðinu ári viti á
gott í ensku knattspyrnunni og liðið
hans haldi efsta sætinu.
Ekki unnið við eldhúsborðið
Þótt gæði heysins skipti mestu
máli um árangur í kúabúskapnum
viðurkennir Karl að aðrir þættir komi
einnig til. Notkun á mjaltaþjóni gefi
tækifæri til að ná meira út úr grip-
unum en það kosti eftirfylgni. „Þótt
tæknin sé til staðar ræður mannlegi
þátturinn úrslitum um árangurinn.
Þú vinnur þetta ekki við eldhús-
borðið, án þess að fara út í fjós,“ segir
hann. Þau hjónin njóta þess að for-
eldrar Karls, fyrrverandi bændur á
Hóli, aðstoða þau við verkin. „Þetta
gengur aldrei nema með samheldni.“
Hann segir að gestir sem komi til
að skoða fjósið spyrji ekki hvað kýrn-
ar mjólki mikið heldur hvort þær fari
út. „Kýrnar hjá okkur hafa fengið að
fara út 10-11 vikur á sumrin. Ég er
ánægður með að þær nái þessum ár-
angri, þótt svo sé. Við eigum að verða
við óskum viðskiptavinanna, eftir því
sem hægt er,“ segir Karl Ingi.
Auknar meðalafurðir kúnna auka
mjög mjólkurframleiðslu búsins, ef
ekkert er að gert. Karl segist hafa
tekið til í gripahópnum, slátrað kúm
fyrr en annars hefði verið þörf á. Það
hafi hitt svo vel á að hann hafi aðeins
farið 269 lítra yfir kvótann.
„Það er ekki eftirsóknarvert að
framleiða of mikið af mjólk. Bændur,
sérstaklega ungir bændur, skulda
peninga í bönkunum og við þurfum að
greiða þá til baka. Það er ábyrgðar-
laust tal að við getum tekið á okkur
lækkun á afurðastöðvaverði, það eru
engar forsendur til þess,“ segir hann.
Greiða atkvæði í næsta mánuði
Í næsta mánuði greiða mjólkur-
framleiðendur atkvæði um það hvort
viðhalda eigi kvótakerfi eða afnema
það. Karl segist hafa haldið sig að
mestu frá umræðunni en hefur
ákveðnar skoðanir á málinu sem
koma í ljós þegar hann er spurður:
„Við verðum að stýra framleiðslunni.
Við getum ekki búið við kerfi þar sem
hver sem er getur byggt fjós og fram-
leitt að vild. Þótt gaman sé að vera
kúabóndi er ekki hægt að hafa grein-
ina alveg opna. Við höfum ákveðinn
markað sem tekur við þessari vöru og
verður að sníða framleiðsluna að hon-
um.“
Heyin skutu þeim á toppinn
Kýrnar á Hóli í Svarfaðardal mjólkuðu mest á nýliðnu ári Verðum að stýra framleiðslunni
segir Karl Ingi Atlason bóndi Meðalafurðir kúnna á búinu jukust um 546 kíló á milli ára
Ljósmynd/Hörður Kristjánsson
Kúabóndi Karl Ingi Atlason þakkar góðum heyjum sem aflað var síðustu tvö sumur góða nyt á kúabúinu á Hóli.
Kýr Kg mjólkur Bú
1. Randafl uga 13.947 Birtingaholt 4
2. Nr. 1038 13.736 Hólmur
3. Nr. 1639001-0848 13.678 Flatey
4. Nr. 482 13.521 Syðri-Grund
5. Drottning 13.481 Birtingaholt 1
6. Krissa 13.142 Brúsastaðir
7. Nr. 1526461-2113 13.018 Hranastaðir
8. Rúna 12.897 Hóll
9. Lóa 12.895 Bakki
10. Nr. 765 12.707 Espihóll
Heimild: RML, með
fyrirvara um leiðréttingarAfurðamestu kúabúin 2018
Meðaltal eftir hverja árskú
Bú Skýrsluhaldarar Árskýr Kg mjólkur
1. Hóll Karl Ingi og Erla Hrönn 49,0 8.902
2. Brúsastaðir Brúsi ehf. 52,1 8.461
3. Hraunháls Guðlaug og Eyberg 26,6 8.452
4. Hvanneyri Hvanneyrarbúið ehf. 72,2 8.289
5. Syðri-Grund Félagsbúið Syðri-Grund 50,4 8.237
6. Skáldabúðir Gunnbjörn ehf. 60,4 8.223
7. Hólmur Garðar Guðmundsson 62,0 8.192
8. Hvammur Ólöf og Valgeir 46,1 8.187
9. Reykjahlíð Búkostir ehf. 73,2 8.166
10. Moldhaugar Þröstur Þorsteinsson 64,1 8.144
Afurðamestu kýrnar 2018
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019
Veður víða um heim 20.1., kl. 18.00
Reykjavík 1 snjókoma
Hólar í Dýrafirði -1 skýjað
Akureyri 0 léttskýjað
Egilsstaðir -5 heiðskírt
Vatnsskarðshólar 1 snjókoma
Nuuk -9 alskýjað
Þórshöfn 3 léttskýjað
Ósló -9 þoka
Kaupmannahöfn 0 þoka
Stokkhólmur -7 heiðskírt
Helsinki -11 léttskýjað
Lúxemborg -2 heiðskírt
Brussel 0 heiðskírt
Dublin 6 skýjað
Glasgow 4 heiðskírt
London 3 heiðskírt
París 2 þoka
Amsterdam 0 heiðskírt
Hamborg -3 þoka
Berlín -2 skýjað
Vín 0 skýjað
Moskva -4 snjókoma
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 8 skýjað
Barcelona 10 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 8 rigning
Aþena 12 rigning
Winnipeg -29 léttskýjað
Montreal -18 snjókoma
New York 4 rigning
Chicago -12 snjókoma
Orlando 17 skýjað
21. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:41 16:39
ÍSAFJÖRÐUR 11:08 16:21
SIGLUFJÖRÐUR 10:52 16:03
DJÚPIVOGUR 10:16 16:02
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á þriðjudag Vestlæg eða breytileg átt 5-13 m/s á
vestanverðu landinu með éljum. Frost 1 til 10 stig.
Á miðvikudag Norðaustan 5-10 og snjókoma á
Norðaustur- og Austurlandi. Frost 0 til 4 stig.
Suðlæg eða breytileg átt 5-13 m/s á og él í flestum landshlutum. Gengur líklega í vestan 15-20 syðst á landinu eftir hádegi með snjó-
komu. Kólnandi veður, frost víða 0 til 5 stig seinnipartinn.
595 1000
GRAN CANARIA
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
29. janúar í 7 nætur
Einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga
Verð frá kr.
69.995
Flugsæti frá kr.
39.950
* Verð á mann m.v. 2 fullorðna saman í herbergi á Roque Nublo Apartamentos
„Mér finnst
alltaf gott
að koma í
fjós og vera í
fjósi og inn-
an um kýrn-
ar. Þær eru
yndislegar
og gaman að
vera með
þeim. Þetta
er með því
skemmti-
legra sem ég geri,“ segir Fjóla
Kjartansdóttir, bóndi í Birtinga-
holti 4 í Hrunamannahreppi.
Besta kýrin á búi þeirra Sig-
urðar Ágústssonar, Randafluga,
var nythæsta kýr landsins á síð-
asta ári.
Randafluga mjólkaði 13.947
kg á árinu 2018, samkvæmt
bráðabirgðatölum úr skýrslu-
haldi Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins. Er þetta næst-
besta nyt sem sést hefur í sögu
skýrsluhalds í nautgriparækt.
Aðeins kýr nr. 851 í Innri-Kleif
hefur sýnt betri tölu en hún
mjólkaði 14.199 kg á árinu 2017.
Á árinu 2018 voru nokkrar af-
burðakýr og lítið lakari, eins og
sést á töflunni.
Fjóla hefur sögu að segja um
nafnið á Randaflugu. Mamma
hennar hét Fluga og ákvað Fjóla
að nefna alla hennar afkom-
endur með flugnanöfnum. Það
sé þægilegt til að greina sundur
ættirnar. Meðal afkomenda
Randaflugu eru Mýfluga, Bý-
fluga og Hunangsfluga og dóttir
hennar heitir Dægurfluga.
Randafluga er bröndótt og
huppótt þannig að Randaflugu-
nafnið var nánast sjálfgefið.
Fjóla segir að Randafluga sé
ekki aðeins afburðakýr heldur
þægileg og góð í umgengni. Hún
neitar því að meira sé dekrað
við hana en aðrar kýr í fjósinu.
Hún sé hins vegar dugleg að
bera sig eftir fóðrinu og komi
oft að mjólkurþjóninum til að
láta mjólka sig.
Dugleg að bera
sig eftir fóðrinu
RANDAFLUGA HJÓ NÆRRI
ÍSLANDSMETINU
Metkýr Hún
Randafluga ber
nafn með rentu.