Morgunblaðið - 21.01.2019, Side 10

Morgunblaðið - 21.01.2019, Side 10
Morgunblaðið/Ómar Iðnaður Kjaraviðræður Samiðnar og SA halda áfram í vikunni. Samtök atvinnu- lífsins (SA) og iðn- aðarmannafélögin ræddu um stytt- ingu vinnuvik- unnar í síðustu viku og sam- kvæmt frétt á vef Samiðnar er ekki ósennilegt að hægt verði að landa því máli í kjaraviðræðunum. Hilmar Harðarson, formaður Sam- iðnar, segir í samtali við Morgun- blaðið að stytting vinnuvikunnar verði áfram rædd á fundi í dag. „Við höldum áfram að ræða þessi mál, við erum allavega ekki búin að slíta viðræðum út af þessu. Við erum allavega að skoða þetta. Við höfnum því ekki fyrirfram, það er nokkuð ljóst. Við sjáum allavega að það séu einhverjir möguleikar í þessu,“ segir Hilmar. Efling og VR hafa hafnað breyttu vinnufyrirkomulagi í sínum kjara- viðræðum. „Þetta er rúmlega stytt- ingin á klukkutímanum sem er verið að ræða. Í okkar kjarasamningum hafa verið ákveðnir möguleikar að gera tilfærslur og það hefur verið gert á nokkrum stöðum og þar sem þetta hefur verið gert hefur það bara fest í sessi. Þarna er þá mögulega verið að teikna upp dæmi fyrir fleiri.“ mhj@mbl.is Samiðn skoðar vinnutíma Hilmar Harðarson  Stytting vinnuvik- unnar enn á borðinu 10 FRÉTTIRinnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019 AÐ EIGNAST CITROËN BERLINGO Á FRÁBÆRU TILBOÐSVERÐI 2.048.000 KR. ÁN VSK NÚ ER SÍÐASTI SÉNS! Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 8 Sími 515 7040 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 NÚ ER TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ EIGNAST FJÖLNOTA SENDIBÍL Á FRÁBÆRU VERÐI. KOMDU Í KAFFI! citroen.is Citroën Berlingo er sparneytinn og fjölnota sendibíll með þremur framsætum, ríflegu hleðslurými og 850 kg burðargetu. Citroën Berlingo 1,6 BlueHDi dísil 5 gíra. Verðlistaverð 2.790.000 kr. m.VSK. Nú aðeins 2.490.000 kr. m.VSK/2.048.000 kr. án VSK. -300.000KR. AFSLÁTTUR + vetrardekk Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Niðurstöður átakshóps um hús- næðismál verða kynntar í kjölfar fundar samráðshóps stjórnvalda og heildarsamtaka á vinnumarkaði á morgun, en hópurinn lauk störfum um helgina. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Kallað hefur verið eftir aðgerð- um af hálfu ríkisins í tengslum við kjaraviðræður sem nú standa yfir, en Ragnar Þór Ingólfsson, formað- ur VR, sagði í síðustu viku að ljóst væri að stjórnvöld þyrftu að koma að deilunni með einhverjum hætti. Öðruvísi myndi hún ekki leysast. „Nú eru viðræð- urnar komnar af stað fyrir alvöru milli atvinnurek- enda og launa- fólks. Þetta þok- ast áfram og þokast hægt, en það er ljóst að fólk situr við borðið af fullri alvöru, sem er mikilvægt,“ segir Katrín. „Ég hef fundað með formönnum átakshóps- ins á meðan vinnan hefur staðið yf- ir og ég er ekki í nokkrum vafa um að þetta verða góðar tillögur, bæði til skemmri og lengri tíma,“ segir hún og nefnir að einnig sé unnið að breytingum á skattkerfinu sem muni koma sérstaklega til móts við lágtekjuhópa. Komist lengra í viðræðunum Katrín segir að þegar hafi margt verið gert til að greiða fyrir við- ræðunum, t.d. hvað varðar breytt launafyrirkomulag æðstu embætt- ismanna. „Fyrir utan það, þá er að störfum hópur hjá félags- og barnamálaráðherra um félagsleg undirboð sem ég á líka von á að skili niðurstöðum á næstunni. Við höfum unnið mikla undirbúnings- vinnu til að geta greitt fyrir þegar aðilarnir eru komnir lengra og sjá fyrir sér einhverjar lausnir,“ segir hún. Spurð hvort framlag stjórnvalda sé nægilegt segir Katrín að það liggi skýrt fyrir að þeir sem sitji við samningaborðið komist áfram í samningum áður en stjórnvöld komi að málum. „Hins vegar erum við reiðubúin til að gera allt sem við getum til að greiða fyrir því að hægt sé að lenda málunum. Þessir þrír þættir, húsnæðis-, skattamál og félagsleg undirboð, eru það þrennt sem verkalýðshreyfingin hefur lagt hvað mesta áherslu á. Við höfum unnið að þessu í kjölfar samtala okkar við forsvarsmenn hennar,“ segir hún. Kynna niðurstöður á morgun  Átakshópur um húsnæðismál skilar tillögum sínum  „Góðar tillögur til skemmri og lengri tíma“  Leggja sitt af mörkum í viðræðunum á síðari stigum Katrín Jakobsdóttir Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að hlutverk stjórnvalda muni ráða úrslitum um framhaldið í yfirstandandi kjaraviðræðum. Fundi félagsins með ríkissáttasemjara sem átti að fara fram í dag hefur verið freistað til morguns vegna veikinda. Stjórn VR og samninganefnd félags- ins kom saman á föstudaginn þar sem farið var yfir stöðu mála eftir fundi síðustu daga. „Meginstefið liggur fyrir frá bæði stjórnvöldum og nú erum við búin að fá ákveðna mynd frá SA. Við munum bara leggja það fyrir okkar samninganefnd og okkar bakland, trúnaðaráð. Við munum taka ákvarðanir um næstu skref út frá því hvort viðræðum verði haldið áfram,“ segir Ragnar. Enginn ákvörðun á morgun Hann segir enga ákvörðun um framhaldið verða tekna á morgun en hins vegar ætlar félagið ekki að gefa langan tíma til að ljúka kjara- viðræðum. „Við ætlum að reyna að gefa okkur ein- hvern tíma- ramma í að reyna að ná lendingu með stjórnvöld- um og SA. Það er ekki búið að ákveða hvað sá tímarammi verð- ur þröngur en það verður ekki langur tími sem við mun- um gefa þessum aðilum að loka þessu með okkur.“ Spurður um hvernig aðkomu stjórnvalda hann vilji sjá í kjara- samningsviðræðum nefnir hann hús- næðismálin helst. „Við höfum bent á það ítrekað að það þurfi að koma til einhverjar kerfisbreytingar sem geta þá bætt lífskjör okkar félags- manna, okkar hópa, verulega. Við vorum að klára, starfshópur um hús- næðismál, núna um helgina. Ég bind miklar vonir við þær tillögur. Starfs- hópur og skil eru eitt og svo er spurning bara hvað stjórnvöld muni gera við þær tillögur. Húsnæðis- málin eru auðvitað eitt af stóru mál- unum og svo erum við að tala um kerfið í skattamálum og þeim málum sem sannarlega geta breytt miklu fyrir lífskjör og framtíð okkar félags- manna, bæði varðandi vexti og verð- tryggingu og húsnæðismálin al- mennt.“ Spurður hvort aðkoma stjórnvalda myndi valda því að félagið myndi slaka á launakröfum sínum segir hann það líklegt. „Ef stjórnvöld koma með myndarlegum hætti að kjarasamningum með raunveruleg- um kerfisbreytingum sem skipta raunverulegu máli þá hefur það áhrif á kaupkröfuhlutann hjá okkur. Það liggur í hlutarins eðli. Við erum að reyna að búa hér til samfélag og samning sem á endanum mun leiða til þess að fólk getur lifað og náð end- um saman á dagvinnulaunum og það er grunnmarkmiðið.“ Hann segir VR nálgast málin af mikilli ábyrgð og gera sér grein fyrir ábyrgð sinni sem stéttarfélag. „Að sama skapi er ábyrgð stjórnvalda og Samtaka atvinnulífsins líka mikil. Ef fólk almennt stendur undir þeirri ábyrgð held ég að við náum saman á endanum. Ég held að við munum nú alveg ná saman á endanum. Ég held að það liggi nú alveg fyrir en að sjálf- sögðu erum við að nálgast viðfangs- efnið þannig að það gerist án átaka,“ segir Ragnar. Hafna breyttum vinnutíma Efling hafnaði fyrir helgi tillögum SA um breytt vinnufyrirkomulag og möguleikann á að stytta vinnuvik- una. Ragnar segir VR hafna þeim til- lögum einnig. „Við höfum mjög slæma reynslu af breytingu á vinnu- fyrirkomulaginu, það var samið um það á sínum tíma hjá VR að hífa upp dagvinnugrunninn á kostnað þess að það var búinn til eftirvinnutími sem var lægra hlutfall heldur en yfirvinna þannig að á þeim tíma var dagvinnu- grunnurinn hífður upp,“ segir Ragn- ar og bætir við að þessar tillögur komi ekki til greina. „Það er búið að hafna þessu og þetta er ekki til um- ræðu lengur.“ Stuttur tímarammi til að ljúka málum  Fundi með ríkissáttasemjara frestað  VR búin að fá ákveðna mynd frá SA, segir formaður  Kerfisbreytingar í húsnæðis- og skattamálum efst á baugi Ragnar Þór Ingólfsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.