Morgunblaðið - 21.01.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vinnu við að endurnýja búnað „súlu-
varpsins“ úr Eldey er lokið. Útsend-
ingar lágu niðri frá því um miðjan
desember vegna skemmda á sólar-
rafhlöðum en þær komast í samt lag
einhvern næstu daga. Stefnt er að
því að lengja beinar útsendingar úr
Eldey.
Sigurður Harðarson rafeindavirki
og aðstoðarmenn hans fóru út í Eld-
ey í byrjun desember til að bæta
tækjabúnaðinn. Settu þeir upp 4G-
beini til viðbótar við örbylgju-
sambandið sem flutt hefur mynd-
efnið í land. Þá kom í ljós að „virkj-
unin“ í eyjunni, það er að segja
sólarsellurnar, voru úr lagi gengnar.
Ein þeirra hafði fokið fyrir björg
ásamt festingum og hinar tvær
höfðu skemmst. Það þýddi að fara
þurfti aðra ferð.
Nýjar sólarsellur og festingar
Þorsteinn Erlingsson, útgerðar-
maður í Keflavík, beitti sér fyrir því
að súluvarpið yrði gert aðgengilegt
með því að koma þar upp tækjabún-
aði. Það var gert á árinu 2008. Hefur
Þorsteinn sjálfur kostað tækjakaup
síðustu árin og Sigurður unnið verk-
ið í sjálfboðavinnu.
Landhelgisgæslan styður við
þetta verkefni með því að flytja Sig-
urð og aðstoðarmenn hans út í Eld-
ey, þegar þörf er á lagfæringum á
búnaði. Það er gert í tengslum við
eftirlits- eða æfingaflug. Nú fyrir
helgi gafst tækifæri til að setja upp
nýjar sólarrafhlöður og tryggar fest-
ingar og endurnýja rafleiðslur. Tel-
ur Sigurður að þessi búnaður ætti að
þola það mikla veðurálag sem er
uppi á Eldey.
Eitt stærsta súluvarp í heimi er í
Eldey. Eyjan er friðuð og þarf sér-
stakt leyfi Umhverfisstofnunar til að
fara þangað og það þarf að gerast
utan varptíma. Sigurður segir að
ferðin hafi gengið eins og í lygasögu.
Veðrið hafi ekki getað verið betra.
Eyjan hallast það mikið að þyrlan
getur ekki lent. Hún tyllir nefhjólinu
á jörðina og hangir að öðru leyti í
loftinu á meðan mennirnir fara út.
Sigurður segir að það sé svolítið
bras enda vindur undir spöðunum og
stutt út á brún. Allt hafi þetta þó
gengið vel undir öruggri stjórn
áhafnar þyrlunnar.
Auk þess að skipta út tækjabúnaði
„súluvarpsins“ mældi Sigurður
sprunguna stóru í Eldey fyrir Um-
hverfisstofnun. Telur hann að ekki
hafi orðið breytingar á henni frá því
fyrir tveimur árum að hann mældi
hana síðast.
Fuglinn að nálgast
Sigurður segir að enginn fugl hafi
sést á eða við eyjuna í fyrri ferðinni
en núna sé hann að nálgast varp-
stöðvarnar. Súlur hafi sést á flugi í
nágrenni eyjarinnar.
Súluvarpið er þannig að tekið er
upp eitt myndskeið á dag og það síð-
an endurbirt allan sólarhringinn.
Slóðin er eldey.is. Sigurður segir að
nýja netsambandið skapi möguleika
til að lengja hina daglegu beinu út-
sendingu og stefnir hann að því að
gera það þegar súlan sest upp nú um
mánaðamótin.
Lengja beinar útsendingar úr Eldey
Búið er að endurnýja allan tækjabúnað í Eldey Ein sólarrafhlaðan hafði fokið fyrir björg
Eldey Magnús Jaro Magnússon, Sigurður Harðarson, Einar Gíslason og
Guðmundur Örn Magnússon voru ánægðir með dagsverkið.
Ljósmyndir/Sigurður Harðarson
Klofningur Sprungan í Eldey virðist ekki hafa breyst í tvö ár.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Skútustaðahreppur hefur ákveðið,
með stuðningi Vegagerðarinnar, að
leggja göngu- og hjólastíg meðfram
þjóðveginum frá Reykjahlíð að af-
leggjaranum að Dimmuborgun. Er
þetta fyrsti áfangi af langþráðum
göngu- og hjólastíg í kringum Mý-
vatn.
Mikil umferð bíla og gangandi og
hjólandi fólks er í Mývatnssveit, sér-
staklega á kaflanum frá Reykjahlíð-
arþorpi, sem er þjónustumiðstöð
ferðamanna, um Voga og í Dimmu-
borgir sem eru vinsælasti áfangastað-
ur ferðafólks í Mývatnssveit. Vegur-
inn er mjór og skapar það hættu
þegar umferð hjólandi/gangandi er
ekki aðskilin frá umferð bíla.
Þorsteinn Gunnarsson, sveitar-
stjóri Skútustaðahrepps, segir að
lengi hafi verið barist fyrir því að fá
lagðan göngu- og hjólastíg í kringum
vatnið. Það sé mikið öryggisatriði.
Sveitarfélagið hefur sótt um styrki úr
framkvæmdasjóði ferðamannastaða
en ekki fengið undirtekir. Nú var sótt
í öryggissjóð Vegagerðarinnar um
stuðning við fyrsta áfangann. Vega-
gerðin samþykkti að leggja 30 millj-
ónir á ári í þrjú ár í verkefnið.
Kostar 170 milljónir
Áætlað er að þessi fyrsti áfangi
kosti 170 milljónir kr. og mun Vega-
gerðin greiða 70%, eða um 120 millj-
ónir króna alls, og sveitarfélagið 50
milljónir. Þótt loforð Vegagerðarinn-
ar nái til þriggja ára er reiknað með
að þær 30 milljónir sem út af standa
verði greiddar á fjórða ári fram-
kvæmda.
Verið er að hanna stíginn og vonast
Þorsteinn til að hægt verði að hefjast
handa í sumar. Reiknað er með að
verkið verði tvískipt; fyrri áfangi
verði frá Reykjahlíð í Voga og seinni
áfangi frá Vogum að afleggjaranum í
Dimmuborgir og verkið verði unnið á
fjórum árum.
„Við erum mjög ánægð með þenn-
an áfanga. Þetta verður mikið fram-
faraskref fyrir samfélagið,“ segir
hann.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Við Mývatn Mikil framför verður af lagningu göngu- og hjólastígs sem
lagður verður á umferðarmesta kaflanum innansveitar við Mývatn.
Fyrsti áfangi
göngu- og hjólastígs
Öryggissjóður Vegagerðarinnar styð-
ur lagningu nýs stígar í Mývatnssveit