Morgunblaðið - 21.01.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019
Bíldshöfði 9
Smáratorg 1
He 1 1lluhraun 6- 8
Fiskislóð 1
Við eru
í þínu
hverfi
m
Kunnugir telja að þá sterkuhefð sem er í Frakklandifyrir margvíslegum að-gerðum í mótmælaskyni
megi rekja allt aftur til frönsku bylt-
ingarinnar árið 1789. Þar í landi hafa
svonefndir gulvestungar látið að sér
kveða á síðustu mánuðum og fjöl-
mennar vakningarsamkomur hafa
verið haldnar víða í landinu, svo sem
í höfuðborginni París hvar Lýðveld-
istorgið, Champs-Elysees og ná-
grenni Eiffelturnsins hafa verið
vettvangur margvíslegra funda-
halda fólks í alþýðustétt, sem krefst
betri lífskjara og bættrar opinberrar
þjónustu. Margvíslegar truflanir
hafa orðið í París að undanförnu
vegna þessara aðgerða.
Gerum betur
„Við getum og verðum að gera
betur,“ sagði Emmanuel Macron
Frakklandsforseti sem ávarpaði
þjóðina á dögunum úr Élysée-höll og
hét úrbótum.
En ólíkt hafast höfðingjarnir að.
Lars Løkke Rasmussen og Sólrun
Jákupsdóttir kona hans brugðu und-
ir sig betri fætinum og eru þessa
dagana í heimsókn á Indlandi.
Sendiráð Dana í höfuðborginni
Nýju-Delí var opnað í nýju húsnæði
sl. laugardag og var það tilefni ferð-
arinnar. Þau hjónakornin skruppu
svo í framhaldinu til borgarinnar
Agra, hvar ástarhofið Taj Mahal er
áberandi kennimark og vinsæll
ferðamannastaður.
Af forseta Íslands, Guðna Th. Jó-
hannessyni, er það hins vegar að
frétta að hann brá sér til Þýskalands
til að fylgjast með landsliði okkar í
handbolta keppa á HM. Liðið vekur
eftirtekt, en ekki síður fagurlega
farðaðir áhorfendur, sem fönguðu
auga ljósmyndara AFP-fréttastof-
unnar. sbs@mbl.is
Veröld í deiglu
Á líðandi stundu. Litríkur gangur tilverunnar birtist
í myndum fréttaveitunnar AFP. Veröldin öll er undir
og margt brasar mannfólkið! Fögnum fjölbreytileika.
Barcelona Spænskir leigubílstjórar eru ósáttir við reglufargan ESB og til að
leggja áherslu á afstöðu sína stöðvuðu þeir umferðina með táknrænum hætti.
Gulvestungur Hefð fyrir hverskonar mótmælum er sterk í Frakkland. Þar í landi gerir fólk í gulum vestum sig nú
gildandi og stóð fyrir margvíslegum aðgerðum í gær, meðal annars í París þar sem Eiffel-turninn gnæfir yfir allt.
AFP
Ást Danski forsætisráðherrann Lars Løkke Rasmussen
og Sólrún kona hans í gær í ástahofinu Taj Mahal, en
þau eru nú í opinberri heimsókn austur á Indlandi.
Þjóðlegur Stuðningsmenn íslenska handboltalandsliðsins
vekja alltaf eftirtekt á alþjóðlegum stórmótum, eins og nú
á HM, þótt árangurinn á keppnisvellinum sé upp og ofan.
Fyrir helgina var Sólveig Pálsdóttir
rithöfundur útnefnd bæjarlistamaður
Seltjarnarness 2019. Þetta var í 23.
sinn sem bæjarlistamaður Seltjarnar-
ness var valinn, sem nú er í fyrsta
sinn rithöfundur. Nafnbót þessari
fylgir einnar millj. kr. starfsstyrkur.
Sólveig hefur búið á Seltjarnarnesi
til fjölda ára og lagt mikið af mörkum
til menningarmála í bænum. Var
meðal annars formaður menningar-
nefndar í 8 ár, á árunum 2002-2010,
og vann þá mörgum góðum málum
framgang, segir í frétt frá Seltjarnar-
nesbæ.
Í grunninn menntuð leikkona frá
Leiklistarskóla Íslands og starfaði
sem slík auk þess að sinna dagskrár-
gerð hjá RÚV. Einnig hefur hún leikið í
sjónvarpsmyndum og sinnt kennslu.
Frá 2013 hefur Sólveig starfað sem
rithöfundur. Þegar hafa komið út eft-
ir hana fjórar glæpasögur sem allar
hafa hlotið góða dóma og vinnur Sól-
veig nú að sinni fimmtu bók sem
kemur út í haust, segir í frétt frá Sel-
tjarnarnesbæ. Fyrsta skáldsagan
hennar, Leikarinn, kom út árið 2012,
Hinir réttlátu 2013, Flekklaus 2015
og Refurinn 2017. Bækur hennar hafa
verið gefnar út erlendis og bíómynd
eftir Leikaranum hefur verið í undir-
búningi. Að auki vinnur breskt kvik-
myndafyrirtæki að fjármögnun sjón-
varpsþáttaraðar sem byggist á
Refnum.
Sólveig Pálsdóttir bæjarlistamaður Seltjarnarness 2019
Rithöfundur í fyrsta sinn valinn
Seltirningur Sólveig Pálsdóttir lætur nú að sér kveða sem rithöfundur.