Morgunblaðið - 21.01.2019, Side 14

Morgunblaðið - 21.01.2019, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019 Útivist & ferðalög NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA fyrir mánudaginn 28. janúar. SÉRBLAÐ Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Útivist og ferðalög föstudaginn 1. febrúar Meira fyrir lesendur Bruno Le Maire, efnahags- og fjármálaráðherra Frakklands seg- ir stjórnvöld þar í landi vinna að því að innleiða nýjan skatt á net- fyrirtæki. Verður skatturinn lagð- ur á félög sem velta meira en 750 milljónum evra alþjóðlega og 25 milljónum evra innan Frakklands, að því er AFP greinir frá. Í viðtali sem birt var á sunnu- dag í dagblaðinu Journal du Dim- anche sagði Le Maire að í frum- varpi sem kynnt verður ríkis- stjórninni í lok febrúarmánaðar verði ákvæði um að nýi skatturinn verði afturvirkur og gildi frá 1. janúar á þessu ári. Gæti skattur- inn orðið allt að 5% og væri lagð- ur á sölu ýmiss konar vöru og þjónustu. Hugmyndir um skatt af þessum toga eru ekki nýjar af nálinni í Frakklandi og hefur hann gengið undir heitinu GAFA-skattur í dag- legu tali, sem vísar til þess að skatturinn á einkum að leggjast á fyrirtæki á borð við Google, Apple, Facebook og Amazon. Hafa ráðamenn víða í Evrópu áhyggjur af að netrisarnir greiði ekki nægilega háa skatta af við- skiptum sínum innan álfunnar. ESB-skattur í pípunum Ráðherrann sagði jafnframt að Evrópusambandið allt gæti verið búið að innleiða sams konar skatt fyrir lok marsmánaðar. „Við kom- umst að samkomulagi við Þýska- land í desember og ég er þess full- viss að [skatta] samningur er innan seilingar,“ sagði Le Maire. „Það eru aðeins nokkrir mánuðir þar til gengið verður til Evrópu- þingskosninga og kjósendum á eftir að þykja það óskiljanlegt ef við gefumst upp á þessu máli.“ Að sögn Reuters mistókst fjár- málaráðherrum ESB í desember að komast að samkomulagi um að leggja nýjan skatt á tekjur af starfrænni starfsemi. Lögðu ráð- herrar Frakklands og Þýskalands í sameiningu til að skatturinn yrði aðeins lagður á allra stærstu al- þjóðlegu netrisana. ai@mbl.is Styttist í franskan skatt á netrisa AFP Skotmark Bruno Le Maire væntir þess að ESB-ríkin samþykki að leggja á netverslunarskatt áður en gengið verður til Evrópuþingkosninga í vor. stærri endurbótaverkefnum innan- húss. Meðal verkefna sem fóru mik- ið fram úr áætlun á því tímabili sem rannsóknin náði til má nefna nýja öryggisrannsóknastofu á Keldum, Ný skýrsla Framkvæmdasýslu rík- isins (FSR) bendir til að kostnaðar- stjórnun hins opinbera hafi farið batnandi undanfarin ár, og það heyri til undantekninga að mikil frávik verði frá kostnaðaráætlun- um. Höfundar skýrslunnar, sem send var fjölmiðlum í gær, sunnudag, skoðuðu framkvæmdir á vegum FSR á tímabilinu 1998 til 2016 og fór veginn raunkostnaður þeirra um 4,5% fram úr áætlunum. Segir FSR það vel viðunandi árangur í al- þjóðlegum samanburði. Þá hefur kostnaðarstjórnun farið batnandi á tímabilinu sem skoðað var; mældist framúrkeyrslan 7,7% á fyrri hluta tímabilsins en 1,9% á seinni hlutanum. 60% fara fram úr áætlun Hafði Framkvæmdasýsla ríkisins umsjón með 139 framkvæmdum sem lauk á tímabilinu og voru 40% þeirra, eða 56 verkefni, innan áætl- unar á meðan 60% eða 83 verkefni voru yfir áætlun. Þar af var 61 verkefni sem fór meira en 5% fram úr áætlun. Segir FSR að Verkefna- stjórnunarfélag Bandaríkjanna (e. Project Management Institute) telji eðlilegt frávik frá kostnaðaráætlun- um vegna nýbygginga á bilinu -5% til +10%. Af nýbyggingarverkefn- um FSR fór kostnaður meira en 10% fram úr áætlun í 27% tilvika. Mestu framúrkeyrsluárin voru 2000, 2004, og 2014 þegar vegið frá- vik frá áætlunum innan árs mældist 15,6%, 18,5% og 29,4%. Hættan meiri við endurbætur innanhúss Leiðir skýrslan í ljós að vegið meðaltal frávika frá áætlun er 6,1% þegar um er að ræða nýbyggingar, 7,1% í tilviki viðbygginga en fer upp í um það bil 14% í bæði minni og nýja lögreglustöð á Hólmavík, heilsugæslustöð í Kópavogi, ofan- flóðavarnir á Fáskrúðsfirði og end- urbætur á Þjóðminjasafninu. ai@mbl.is Framúrkeyrsla opinberra framkvæmda á niðurleið Morgunblaðið/Golli Útgjöld Af framkvæmdunum sem skýrslan skoðar má nefna endurbætur á Þjóðminjasafni sem kostuðu rösklega 980 milljónum meira en til stóð. Myndin sýnir þegar bátnum Ingjaldi var komið fyrir í endurbættu húsi.  Um 27% nýbygginga fóru meira en 10% fram úr áætlun Bjartsýni á að takist að finna far- sæla lausn á viðskiptadeilum Bandaríkjanna og Kína er talin ein helsta skýringin á að bandarísku hlutabréfavísitölurnar hækkuðu töluvert í síðustu viku. Var það fjórða vikan í röð sem markaðurinn vestanhafs fikraðist upp á við eftir að hafa náð botni seint í desember. Að sögn Reuters er nam viku- hækkun Dow Jones-vísitölunnar 2,96%, en S&P 500 hækkaði um 2,87% og Nasdaq um 2,66%. Fjög- urra vikna hækkun vísitalnanna þriggja er sú mesta sem mælst hef- ur síðan í október 2011. Þrátt fyrir að árið virðist hafa byrjað á já- kvæðu nótunum þá benda markaðs- greinendur á að velta hafi verið til- tölulega lítil í vikunni sem leið og bendir það til þess að fjárfestar bíði enn átekta. Föstudagurinn var dagur hækk- ana vegna fréttar Bloomberg um að Kína hygðist semja um að auka inn- flutning á bandarískum vörum upp í samtals rösklega 1.000 milljarða dala, með það fyrir augum að ná fullkomnu jafnvægi á viðskiptum landanna árið 2024. ai@mbl.is AFP Uppsveifla Vikuhækkun stóru vísitalnanna þriggja var frá 2,66 til 2,96%. Wall Street réttir enn úr kútnum  Fjárfestar virðast þó enn bíða átekta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.