Morgunblaðið - 21.01.2019, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Eitt af þvímarkverð-ara sem
gerðist á árinu
2018 var óvænt
þíða í samskiptum
Norður-Kóreu við
nágranna sína í
suðri, sem og við Bandaríkja-
menn. Þó að það væri full-
djarft til orða tekið að tala um
sögulegar sættir af því tilefni
er þó ljóst að útlitið á Kór-
euskaganum við árslok 2018
var ögn bjartara en ári fyrr.
Munar þar mest um sögu-
lega fundi Kims Jong-un, ein-
ræðisherra Norður-Kóreu,
með Moon Jae-in, forseta
Suður-Kóreu og síðar Donald
Trump Bandaríkjaforseta, en
á þeim skuldbundu leiðtog-
arnir sig til þess að stíga
skref í átt að varanlegum friði
á skaganum. Minna var um
aðgerðir sem gætu tryggt þá
niðurstöðu, en orð eru til alls
fyrst.
Nú er í bígerð að Trump og
Kim hittist aftur og ræði mál-
in. Enn er óvíst um vænt-
anlegan fundarstað og -tíma,
en talað er um að fundurinn
gæti farið fram eftir um það
bil mánuð.
En hverju mun annar leið-
togafundur skila? Þrátt fyrir
þá jákvæðu strauma sem
fylgdu fundunum í fyrra virð-
ist sem að Bandaríkjamenn
og Norður-Kóreumenn hafi
enn mjög ólíkar hugmyndir
um það hvaða leiðir eigi að
fara að því markmiði að Kór-
euskaginn verði á ný laus við
kjarnorkuvopn.
Þannig hafa Bandaríkja-
menn lagt áherslu
á að Kim stígi
fyrsta skrefið og
eyði kjarn-
orkuvopnum sín-
um áður en refsi-
aðgerðum verði
aflétt, en Norður-
Kóreumenn vilja fara öfuga
leið, þannig að byrjað verði að
aflétta þvingunum áður en
þeir stígi markverð skref í átt
til afvopnunar. Þetta bendir
ekki beinlínis til að árangur
sé innan seilingar.
Þá hefur hegðun Norður-
Kóreu á alþjóðavettvangi
ekki orðið til þess að auka
traust á stjórnvöldum þar í
landi, auk þess sem mann-
réttindabrot ríkisins gegn
þegnum sínum munu líklega
halda áfram, hvað sem sam-
komulagi líður. Spurningin
hvort hegðun Norður-
Kóreumanna verði óbreytt
innanlands sem utan fari
kjarnorkuvopnin verður þeim
mun áleitnari í ljósi þess að í
nýlegri skýrslu sem fjallaði
um hernaðarmátt Norður-
Kóreu var niðurstaðan sú að
það stafaði jafnvel enn meiri
hætta af sýklavopnum stjórn-
valda í Pyongjang en kjarn-
orkuvopnum þeirra.
Litlar líkur eru hins vegar
taldar á að sýklavopnin eða
mannréttindabrotin verði
gerð að ásteytingarsteini í
viðræðum Trumps og Kims,
enda gæti það teflt þeim ár-
angri sem þó hefur náðst í
samskiptum ríkjanna í tví-
sýnu. Þetta gæti aftur á móti
þýtt að kjarnorkuvopnin yrðu
dýru verði keypt.
Enn hefur lítið gerst
eftir fundinn í fyrra.
Vonandi verður
meiri árangur af
næsta fundi}
Trump og Kim: Taka 2
Rúmlega ár erliðið frá því
að Robert Mu-
gabe, þáverandi
forseti Zimbabwe,
lét af embætti eftir að hafa
verið steypt af stóli af sam-
flokksmönnum sínum. Hann
hafði þá haft tögl og hagldir í
ríkinu í um 38 ár. Arftaki
Mugabes, Emmerson Mnan-
gagwa, hét því þá að sumum
af verstu stefnumálum Muga-
bes yrði snúið við, en áralöng
óstjórn hafði breytt Zim-
babwe í hálfgert útlagaríki á
alþjóðavettvangi.
Minna hefur orðið um efnd-
ir en vonir stóðu til, og brut-
ust út fjöldamótmæli í síðustu
viku þegar ríkisstjórnin
kynnti áform sín um að nærri
því tvöfalda eldsneytisverð,
en olíuskortur hefur háð Zim-
babwe síðustu vikurnar. Við-
brögð lögreglu og örygg-
issveita við
mótmælunum
hafa ekki verið til
fyrirmyndar.
Mörg hundruð
hafa verið handteknir í kjöl-
far mótmælanna og tugir hafa
leitað á sjúkrahús með skot-
sár. Þá er áætlað að á annan
tug hafi látið lífið í átökum
lögreglu og mótmælenda.
Eitt af yfirlýstum mark-
miðum Mnangagwa á sínum
tíma var að laða aftur erlenda
fjárfestingu að Zimbabwe, en
Mugabe hafði svo gott sem
einangrað landið algjörlega
frá umheiminum að þessu
leyti. Þóttu það jákvæð teikn
um að Zimbabwe gæti með tíð
og tíma rétt aftur úr kútnum.
Mótmælin nú og hin hörðu
viðbrögð stjórnvalda benda
hins vegar frekar til að Mnan-
gagwa hafi lítið lært af mis-
tökum fyrirrennara síns.
Arftakar Mugabes
taka gagnrýni illa}Brugðið á gömul ráð
R
annsóknastofa í tómstunda-
fræðum birti á dögunum nið-
urstöður rannsóknarinnar
Heilsa og lífskjör skólanema
sem unnin er að tilstuðlan Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (e. WHO).
Niðurstöðurnar byggjast á svörum rúmlega
7.000 nemenda á landinu öllu sem þátt tóku
í rannsókninni í fyrra. Rannsóknin er á fjög-
urra ára fresti lögð fyrir nemendur í 6., 8.
og 10. bekk. Þar koma fram margar áhuga-
verðar niðurstöður en mig langar að nefna
hér þrennt sem vekur sérstaka athygli
mína.
Í fyrsta lagi svara um 90% nemenda að
þeim líði þokkalega eða mjög vel í skól-
anum. Um 10% nemenda segja að sér líði
ekki vel en 2,7-4,2% nemenda líður mjög illa
samkvæmt rannsókninni. Þessi niðurstaða er í sam-
ræmi við aðrar rannsóknir og það er mjög ánægjulegt
hversu háu hlutfalli nemenda líður vel í skólanum sín-
um. Hins vegar þarf að huga sérstaklega að þeim nem-
endum sem ekki líður vel og gera bragarbót þar á.
Í öðru lagi telja flestir nemendur að kennurum sé
annt um þá eða um 81% nemenda í 6. bekk og 65% í 10.
bekk, sem er jákvæð niðurstaða og rímar vel við al-
menna vellíðan nemenda í skólum landsins. Langflestir
treysta kennara sínum vel og virðist það eiga við nem-
endur í öllum landshlutum. Þetta eru afar já-
kvæð tíðindi fyrir kennara landsins.
Í þriðja lagi telja um 70% nemenda í öllum
árgöngum sig sjaldan eða aldrei finna fyrir
depurð. Hins vegar ber að skoða þessar
niðurstöður gaumgæfilega því marktæk
aukning er milli fyrirlagna í 6. og 10. bekk
þar sem 10-15% nemenda í 6. bekk segjast
upplifa depurð einu sinni eða oftar í viku en
um 20% nemenda í 10. bekk grunnskóla. Séu
niðurstöður skoðaðar eftir kyni nemenda
kemur í ljós að stelpur eru mun líklegri til að
finna fyrir depurð á hverjum degi og ástand-
ið versnar eftir því sem unglingar eldast.
Þessar niðurstöður þarf að taka alvarlega,
skoða hvað veldur þessari þróun og hvernig
við sem samfélag getum unnið gegn henni.
Meginstyrkleiki íslenska menntakerfisins
er að nemendum líður vel og mikið traust ríkir á milli
kennara og nemenda. Í þessu felast mikil sóknarfæri
sem hægt er að byggja á og nýta til að efla menntun í
landinu enn frekar. Það er samvinnuverkefni skóla-
samfélagsins, foreldra, sveitarfélaga og atvinnulífs. Séu
styrkleikarnir nýttir sem skyldi og tekist á við áskor-
anir á réttan hátt eru okkur allir vegir færir til þess að
byggja upp framúrskarandi menntakerfi til framtíðar.
Mikið traust til kennara
og vellíðan nemenda
Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Pistill
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Lægri þjónustugjöld verðavegna kreditkortanotk-unar og lægra vöruverð tilneytenda verði frumvarp
fjármálaráðherra um svonefnd milli-
gjöld fyrir kortatengdar greiðslur
lögfest á Alþingi.
Er breytingin talin til þess fallin
að lækka kostnað söluaðila og neyt-
enda og auka samkeppni í greiðslu-
miðlun, einkum þvert á landamæri
innan Evrópska efnahagssvæðisins,
að mati fjármála- og efnahagsráðu-
neytisins.
Ráðherrann hefur birt drög að
frumvarpinu á samráðsgátt stjórn-
valda en með því yrði innleidd reglu-
gerð Evrópuþingsins og -ráðsins um
milligjöld vegna kortanotkunar sem
taka á upp í samninginn um EES.
Sett verða hámörk á milligjöld vegna
neytendagreiðslukorta, 0,2% af fjár-
hæð greiðslu vegna debetkorta og
0,3% vegna kreditkorta. Er reglun-
um ætlað að lækka kostnað söluaðila
og neytenda og bæta samkeppni.
Talið er að mikilvægustu áhrifin
af innleiðingu milligjaldareglnanna
verði lækkun þessara gjalda vegna
kreditkortaviðskipta. Hins vegar
verður hámark milligjalda vegna
debetkortaviðskipta óbreytt í kjölfar
sáttar Samkeppniseftirlitsins við
kortaútgefendur og færsluhirða sem
náðist fyrir nokkrum árum.
Gæti numið 2,1 milljarði kr.
Í mati ráðuneytisins á áhrifum
þessara breytinga kemur fram að
kreditkortavelta heimila innanlands
í fyrra nam um 351 milljarði króna.
„Ef gert er ráð fyrir því að um 0,6%
þeirrar fjárhæðar hafi verið vegna
milligjalda sem færsluhirðar
greiddu til útgefenda kreditkorta þá
nam sá kostnaður um 2,1 milljarði
króna á tímabilinu. Miðað við þá for-
sendu og það að milligjöld vegna
kreditkortafærslna lækki um 0,3
prósentustig við lögfestingu milli-
gjaldareglugerðarinnar lækkar
kostnaður færsluhirða um ríflega
einn milljarð króna á ári og tekjur
kortaútgefenda um sömu fjárhæð
vegna lögfestingar frumvarpsins. Sú
lækkun ætti að skila sér í lægri þjón-
ustugjöldum sem færsluhirðar
krefja söluaðila um og þar með í
lægra vöruverði til neytenda,“ segir í
mati á áhrifunum.
Breki Karlsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir í svari
til Morgunblaðsins að endanleg mat
eða afstaða samtakanna liggi ekki
fyrir, þar sem málið er enn í skoðun,
en hann bendir á að samkvæmt
áðurnefndu mati fjármálaráðuneyt-
isins muni lækkun milligjalda skila
sér í lægri þjónustugjöldum og þar
með í lægra vöruverði til neytenda.
,,Það er svo alltaf spurning um
hvernig þetta skilar sér í veski neyt-
enda á endanum, en fjármálaráðu-
neytið metur þessa upphæð vera um
2,1 [milljarð kr.] á ári,“ segir Breki.
„Neytendasamtökin gera þá
sjálfsögðu kröfu að lækkunin skili
sér að fullu til neytenda, þó sagan
sýni að það kunni að vera erfitt að
fylgjast nákvæmlega með því, meðal
annars vegna flökts krónunnar og
landlægrar dýrtíðar,“ bætir hann
við.
Gæti dregið úr hvata
til útgáfu korta
Fram kemur í sérstöku mati
ráðumeytsins á kostnaði og öðrum
áhrifum breytinganna að lækkun
milligjalda kunni að draga úr hvata
til útgáfu korta. Líklega sjái við-
skiptabankar og sparisjóðir sér þó
áfram hag í að bjóða upp á greiðslu-
kort til að halda í viðskiptavini sem
vilja notast við greiðslukort.
Vöruverð lækki með
lækkun milligjalda
Morgunblaðið/Hari
Kortagreiðsla Lækkun gjaldanna ætti að skila sér í lægri þjónustugjöldum
sem færsluhirðar krefja söluaðila um og þar með í lægra vöruverði.
Í greinargerð frumvarpsins er
opnað á þann möguleika að há-
mark á milligjöld vegna debet-
kortafærslna verði einnig lækk-
að. Í ljósi örrar þróunar
smágreiðslumiðlunar, m.a.
vegna breytinga á tækni og
regluverki, gætu skapast for-
sendur í framtíðinni til að nýta
heimild til að ákveða lægra há-
mark á milligjöld vegna inn-
lendra debetkortafærslna.
,,Smáforritum (öppum) fjölgar
ört sem nota má til miðlunar
greiðslna í rauntíma, innlendum
sem og erlendum. Hér á landi
hafa debetkort verið talin meðal
mikilvægustu greiðslumiðla í
viðskiptum og litið á greiðslur
með þeim sem ígildi stað-
greiðslna. Af þessum sökum er
gert ráð fyrir því að fjármála- og
efnahagsráðsherra verði falið
að meta innan tveggja ára frá
gildistöku laganna hvort tilefni
sé til að leggja til lægra hámark
á milligjöld vegna innlendra
debetkortafærslna en 0,2%.“
Lækkun á
debetkort?
ÞAK Á MILLIGJÖLD