Morgunblaðið - 21.01.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.01.2019, Blaðsíða 26
 Þegar á hólminn var komið reyndist ekkert svo auðvelt að fá að sýna perlur kvikmyndasögunnar  Hjá Bíó Paradís er fjárhagshliðin loksins komin í ágætis horf og úthugsað markaðsstarf skilar því að gestum fjölgar ár frá ári. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Það tók nokkur ár fyrir fólkið á bak við Bíó Paradís að ná tökum á rekstrinum og segir Hrönn Sveins- dóttir að lykillinn að góðri aðsókn hafi verið fólginn í að byggja upp stemningu í kringum sýningarnar: „Þær sýningar sem fólk var að biðja um á Facebook voru ekki alltaf vel sóttar. Ef t.d. fimmtíu manns höfðu verið að grenja yfir því á netinu að við þyrftum að sýna Predator, þá mættu kannski ekki nema sjö – þegar búið var að eyða bæði miklum tíma og pen- ingum í að bóka myndina og aug- lýsa,“ segir hún. „Svo hjálpaði ekki að fyrstu árin vorum við ekki með sýningarbúnað sem mætti kröfum neytenda – vorum jafnvel að sýna myndir af Blue-ray-diskum með myndvörpum sem gerðir voru fyrir skrifstofur frekar en fyrir hvíta tjaldið, og með hljóðkerfi sem var komið til ára sinna. Borgin var líka tvístíga með það hvort hún ætti að leggja okkur til rekstrarstyrk eftir að hafa hjálpað félaginu að komast af stað.“ Kannski kemur það sumum les- endum á óvart að það skuli vera flókið að reka listrænt kvikmynda- hús – því hvaða Hollywood-smellir geta keppt við endalaust framboð af bestu kvikmyndum sem gerðar hafa verið? „Þegar við byrjuðum héldu margir að við gætum ein- faldlega sýnt frönsku nýbylgjuna eins og hún leggur sig og allir myndu mæta – eða að það væri hægur vandi að ætla að sýna eina vikuna allar myndir Bill Murray og þá næstu taka Bond eins og hann leggur sig og svo Hitch- cock.“ Raunin er að perlur kvik- myndasögunnar liggja ekki á lausu, og jafnvel þegar meistara- verk eru borin á borð er það eng- in trygging fyrir fullum sal af fólki, eins og getið var hér að of- an. „Það tók okkur sumsé nokkur ár að átta okkur á að það sem fær fólk til að kom á klassískar mynd- ir er fyrst og fremst félagsskap- urinn. Það geta allir streymt Die Hard og horft á flatskjá heima í stofu fyrir jólin, en það er enn betra að horfa á myndina í stórum bíósal með vinum og öðru fólki sem elskar þessa mynd, og helst með jólalegan drykk í hendi.“ Hugmynd sem náði flugi á Facebook Það var í ágúst 2010 að félagið Heimili kvikmyndanna var stofn- að af kvikmyndaunnendum og hugsjónafólki, og 15. september sama ár var fyrsta myndin sýnd í Bíó Paradís, Backyard eftir Árna Sveinsson. „Sena hafði um nokk- urt skeið rekið á þessum sama stað kvikmyndahúsið Regnbogann með tapi. Húsið var byggt árið 1976 og var þá fyrsta fjölsala-bíó Norðurlandanna, en varð smám saman barn síns tíma og gestir leituðu frekar í kvikmyndahúsin á stöðum eins og Kringlunni og Smáralind þar sem var meira pláss og fleiri bílastæði. Ákvað Sena að loka Regnboganum og kviknaði þá sú hugmynd hjá hópi fólks á Facebook að í húsinu gæti fyrsta listræna bíó landsins átt heima,“ útskýrir Hrönn en það voru þrjú fagfélög kvikmynda- gerðarmanna, Alþjóðleg kvik- myndahátíð í Reykjavík og Félag kvikmyndaunnenda sem tóku höndum saman um að opna Bíó Paradís. „Ásgrímur Sverrisson var aðalsprautan á bak við verk- efnið og fékk fjölda góðs fólks til lið við sig. Hafði hugdettan svo mikinn meðbyr að þau hugsuðu sem svo að ef aðeins helmingur þeirra sem sýndu áhuga á Face- book myndu kaupa árskort þá gæti bíóið alveg rekið sig.“ Hrönn, sem var fengin til starfa í desember 2011, segir að fljót- lega hafi komið í ljós að meira þurfti til en það. „Á þessum tíma er t.d. 35 mm filman að fara út og í staðinn að rándýr ný sýningar- tækni, DCP, ryður sér til rúms. Þurfti því að kaupa slíkan búnað sem kostar ekki undir 10 millj- ónum á sal.“ Þá þurfti að rækta gott sam- band við íslensku dreifingarfyrir- tækin þrjú, sem hafa gert samn- inga við öll helstu kvikmynda- stúdíó heims. „Þú veður ekki bara í svona rekstur og sýnir hvað sem er, og er bæði flókið og dýrt að sýna gamlar myndir,“ útskýrir Hrönn. Lykillinn að því að láta rekstur- inn ganga vel reyndist vera að búa til úthugsaða dagskrá og skapa réttu umgjörðina. Voru Sigurjón Kjartansson, Hugleikur Dagsson, Sjón og Páll Óskar Hjálmtýsson (sem síðar heltist úr lestinni) fengnir til að skipa dag- skrárnefnd Svartra sunnudaga – vikulegs viðburðar sem helgaður er sígildum myndum. „Þeirra verkefni var að velja á dagskrá myndir sem fólk myndi vilja horfa á í bíó frekar en heima hjá sér. Síðan fengum við listamenn og grafíska hönnuði til að bú til nýtt plaggat fyrir hverja mynd, og lögðum töluverða vinnu í að búa til stemningu fyrir þessum sýn- ingum á samfélagsmiðlum. Í að- draganda hverrar sýningar gæti því þurft margra vikna pepp, og að byggja upp stemningu þar sem „Þú veður ekki bara í svona rekstur 26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019 LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR * Til að DHA skili jákvæðum áhrifum þarf að neyta 250 mg á dag. OMEGA-3 FYRIR SJÓN OG AUGU Omega-3 augu er ný vara frá Lýsi sem er einkumætlað að viðhalda eðlilegri sjón. Omega-3 augu inniheldur lútein, zeaxanþín og bláberjaþykkni. Ásamt omega-3 fitusýrunni DHA*, sinki og ríblóflavíni (B2 vítamín) sem stuðla að viðhaldi eðlilegrar sjónar. Fæst í öllum helstu apótekum landsins. Þetta vilja börnin sjá! í Gerðubergi Gilitrutt Heiða Rafnsdóttir teiknaði, hér ásamt dóttur, Þórdísi Rafnsdóttur. Bókin Næturdýrin Bergrún Íris Sævarsdóttir og Hrannar Þór Andrason. Mikilvægi „Fyrir ekki svo löngu hefðu Íslendingar ekki getað gengið að því sem vísu að sigurmyndir kvikmyndahátíðarinnar í Cannes eða Berlín yrðu sýndar í kvikmyndahúsum hér á landi,“ segir Hrönn Sveinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.