Morgunblaðið - 26.01.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019
sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Björk Håkansson
Í þessari áhugaverðu ferð til Jórdaníu kynnumst við
menningu og listum Miðausturlanda og upplifum
stórbrotna og margbreytilega náttúru. Við heimsækjum
Wadi Rum í undurfagri rauðsteins eyðimörkinni, fljótum
um í Dauðahafinu og skoðum hina fornu borg Petru sem
er ein af sjö nýju undrum veraldar. Þetta verður sannkölluð
menningar-, ævintýra- og landkönnunarferð!
8. - 17. október
Kynntu þér úrval ferða á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Allir velkomnir á kynningarfund 28. janúar kl. 20:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
Konungsríkið Jórdanía
Veður víða um heim 25.1., kl. 18.00
Reykjavík 1 skýjað
Hólar í Dýrafirði 1 skýjað
Akureyri -3 skýjað
Egilsstaðir -3 snjóél
Vatnsskarðshólar 2 léttskýjað
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 4 skúrir
Ósló -3 snjókoma
Kaupmannahöfn -3 snjókoma
Stokkhólmur -3 snjóél
Helsinki -5 skýjað
Lúxemborg -1 þoka
Brussel 1 súld
Dublin 10 skýjað
Glasgow 9 alskýjað
London 10 skúrir
París 3 þoka
Amsterdam 3 súld
Hamborg -3 alskýjað
Berlín -3 snjókoma
Vín -1 léttskýjað
Moskva -12 heiðskírt
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 13 heiðskírt
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 6 heiðskírt
Aþena 11 skýjað
Winnipeg -31 heiðskírt
Montreal -8 snjókoma
New York 2 heiðskírt
Chicago -18 léttskýjað
Orlando 10 heiðskírt
26. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:27 16:55
ÍSAFJÖRÐUR 10:51 16:40
SIGLUFJÖRÐUR 10:35 16:22
DJÚPIVOGUR 10:01 16:19
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á sunnudag Hæg breytileg átt, þurrt og bjart og
frost 5-15 stig. SA 5-10 síðdegis SV-til, þykknar upp
og minnkar frost með snjókomu um kvöldið.
Á mánudag 3-10 m/s, snjókoma eða él.
Norðan 3-8 en 8-13 með austurströndinni. Dálítil él á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað sunn-
an heiða. Frost 2 til 12 stig.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Tillögur átakshóps í húsnæðismálum
eru ágætar svo langt sem þær ná en í
þær vantar aðgerðir í hinum dreifðu
byggðum landsins. Þetta er álit
Aðalsteins Á. Baldurssonar, for-
manns Framsýnar, sem hefur sent
forsætisráðherra og félagsmálaráð-
herra bréf vegna málsins.
,,Þessar tillögur eru ágætar fyrir
höfuðborgarsvæðið og stærstu þétt-
býliskjarnana en það er ekkert talað
um aðgerðir í hinum dreifðu byggð-
um landsins sem þurfa á aðstoð og
sértækum aðgerðum að halda. Þessi
hópur virðist ekki hafa verið með
fingur á púlsi vanda landsbyggðar-
innar,“ segir Aðalsteinn.
Mikil fundahöld standa yfir á milli
Starfsgreinasambandsins og Sam-
taka atvinnulífsins um endurnýjun
kjarasamninga en enn sér ekki til
lands í þeim. Að sögn Aðalsteins
ganga sérkjaraviðræður SGS og SA
þó ágætlega og kveðst hann vonast
til að hægt verði að ljúka þeim mál-
um í kringum næstu mánaðamót.
Tillögur SA árás á verkafólk
Hann kveðst hins vegar hafa
áhyggjur af stóra málinu, launalið
væntanlegra samninga í viðræðun-
um. Þá hafi borið á því í viðræðunum
að atvinnurekendur settu fram óað-
gengilegar hugmyndir um breyting-
ar á vinnutíma. Verkalýðshreyfingin
fari fram á styttingu á virkum vinnu-
tíma launafólks án launaskerðinga
en atvinnurekendur svari með því að
leggja til að launafólk afsali sér
neysluhléum. ,,Það er að mínu mati
stórhættulegt og mér finnst afar
slæmt að forystumenn innan verka-
lýðshreyfingarinnar skuli taka þátt í
að vilja skoða þetta,“ segir hann og
gagnrýnir harðlega tillögur SA, sem
feli í sér að verkafólk eigi að afsala
sér kaffitímum og öðrum neyslu-
hléum án nokkurrar launahækkunar
á móti. ,,Þá standa menn uppi með
sama kaup fyrir færri vinnustundir
en hafa misst neysluhléin,“ segir
Aðalsteinn og minnir á að VIRK
starfsendurhæfing hvetur þvert á
móti til að menn hugi betur að því að
draga úr álagi á vinnustöðum. Til-
lögur SA að taka neysluhléin og
kaffitímana af starfsfólki séu hins
vegar til þess fallnar að auka á kuln-
un í starfi og stoðkerfisvandamál.
,,Verkalýðshreyfingin barðist fyrir
þessum réttindum í áratugi en nú
dettur einhverjum í hug að taka
þetta af fólki. Ég sagði SA og mínum
mönnum innan hreyfingarinnar að
ég muni gera allt til að berjast gegn
þessu enda er þetta árás á verka-
fólk,“ segir Aðalsteinn.
Kasta á milli sín textum
Samninganefndir iðnaðarmanna-
félaganna og Samtaka atvinnulífsins
funduðu í gær. Kristján Þórður Snæ-
bjarnarson, formaður Rafiðnaðar-
sambandsins, segir að enn þá sé
vinna í gangi við að fara yfir málin og
menn kasti á milli sín textum um
breytingar á ákvæðum kjarasamn-
inga. „Þetta er í ágætisfarvegi,“
segir Kristján. Næsti fundur er boð-
aður á mánudaginn og segir hann að
nýta eigi tímann vel á næstunni.
Ekkert fyrir dreifðar byggðir
Formaður Framsýnar segir átakshóp í húsnæðismálum ekki með púlsinn á vanda landsbyggðarinnar
Sérkjaraviðræðum gæti lokið um mánaðamót Viðræður iðnaðarmanna og SA í ágætisfarvegi
Samninganefndir verkalýðs-
félaganna Framsýnar og Þing-
iðnar og PCC og SA áttu
samningafund í gær vegna
kjarasamnings fyrir starfs-
menn verksmiðju PCC á
Bakka. Unnið hefur verið að
því að setja upp sérkjarasamn-
ing og þróa nýtt kaup-
aukakerfi. Um 130 starfa í
verksmiðjunni. Er ágætur andi
sagður vera í viðræðunum.
Ágætur andi
í viðræðum
VERKSMIÐJA PCC
Niðurstöður úr íslensku ánægju-
voginni fyrir árið 2018 voru kynnt-
ar í gær, en þetta var í tuttugasta
sinn sem ánægja viðskiptavina með
íslensk fyrirtæki var mæld með
þessum hætti. Ánægjuvogin er í
eigu Stjórnvísi og sá Zenter rann-
sóknir um framkvæmd á könn-
uninni.
Þar kom í ljós að Costco mældist
efst á eldsneytismarkaði með 82,3
stig af 100 mögulegum, og voru við-
skiptavinir bensínstöðvar félagsins
ánægðustu viðskiptavinir á Íslandi.
Athygli vekur hins vegar að smá-
söluverslun Costco mældist með
þriðju lægstu einkunnina á þeim
markaði eða 65,9 stig af 100.
Niðurstöður könnunarinnar á
öðrum mörkuðum voru þær að við-
skiptavinir Nova reyndust þeir
ánægðustu á farsímamarkaðnum
með 75,8 stig og vínbúðir ÁTVR
fengu 73,6 stig á smásölumarkaði.
Viðskiptavinir BYKO voru þeir
ánægðustu á byggingavörumark-
aðnum og viðskiptavinir Icelandair
reyndust ánægðari en viðskipta-
vinir WOW á flugmarkaði.
Ekki reyndist marktækur munur
á milli hæstu og næsthæstu ein-
kunnar hjá tryggingafélögum, raf-
orkusölum, matvöruverslunum og
hjá bönkunum. sgs@mbl.is
Bensínstöð Costco
efst í ánægjuvoginni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Costco Viðskiptavinir Costco eru
ánægðir með bensínstöðina.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þessar vikurnar fara fram samtöl
milli forstöðumanna og fulltrúa við-
komandi ráðuneyta. Fólk er að taka
stöðuna, við erum ekki komin lengra
en það,“ segir Margrét Hauksdóttir,
starfandi formaður Félags forstöðu-
manna ríkisstofnana.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í gær tók nýtt matskerfi for-
stöðumanna ríkisstofnana gildi um
áramótin. Forstöðumenn heyrðu áð-
ur undir kjararáð en fjármálaráðu-
neytið metur núna laun hvers og eins
og um leið forsendur grunnmats
starfa þeirra.
„Niðurstaða fjármálaráðuneytis-
ins er að einn þriðju forstöðumanna
lækkar í launum, einn þriðji stendur
í stað og einn þriðji fær einhverja
hækkun. Þetta er allt metið út frá
eðli starfa og umfangs þeirra,“ segir
Margrét í samtali við Morgunblaðið.
Hún segir að félagið hafi haft að-
komu að undirbúningi þessa mats-
kerfis en ákvörðun launa sé alfarið á
hendi ráðuneytisins.
„Vissulega er það erfitt fyrir þessa
1/3 forstöðumanna sem sæta lækk-
unum í þessu matskerfi. Þó þeir sæti
ekki krónulækkun þá eru laun þeirra
fryst í tiltekinn tíma þar til þeir ná
upp í sinn stað í matskerfinu. Félagið
hefur lagt áherslu á og náð því fram
að hver og einn forstöðumaður hefur
möguleika á að óska eftir endurskoð-
un í þessu matskerfi launa. Við telj-
um þetta mjög mikilvægt því for-
stöðumenn tilheyra ekki neinu
stéttarfélagi og hafa þar af leiðandi
ekki samningsrétt eða verkfalls-
rétt.“
Hún segir að félagið hafi ekki farið
í greiningu á því hvað ráði því hverjir
hækki og hverjir lækki eða af hverju.
Ekki sé til að mynda sjálfgefið að þó
hlutverki ríkisstofnunar sé breytt þá
þýði það að lækka eigi laun forstöðu-
mannsins. „Ef stofnunin minnkar
verður oft einmitt meira álag á for-
stöðumanninn. Starf hans getur vax-
ið að umfangi þrátt fyrir að stofn-
unin minnki því þá eru oft færri
sérfræðingar við störf þar.“
Þriðjungur forstöðu-
manna lækkar í launum
Unnið að útfærslu matskerfis forstöðumanna ríkisstofnana
Morgunblaðið/Eggert
Atvinna Forstöðumenn ríkisstofnana fengu bréf frá fjármálaráðuneytinu í
desember með niðurstöðu úr nýju matskerfi. Þeir funda nú um sín mál.