Morgunblaðið - 26.01.2019, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 26.01.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Sprengingin var hávær og brak með brestum heyrðist um alla íbúð- ina. Við hrukkum upp af værum blundi og gerðum okkur enga grein fyrir því hvað væri að gerast. Fórum svo stig- ann niður á jarð- hæð og þar blasti sprunginn far- síminn við okkur,“ segir Díana Dögg Víg- lundsdóttir í Hafnarfirði. Með þessum orðum lýsir hún hvað gerðist á heimili fjölskyldu sinnar í fyrrinótt þegar hávær hvell- ur skók allt í íbúðinni. Þetta var klukkan 3.30 að nóttu og þegar í stofuna kom tók þar þykkur reykur á móti fólki og sót á gólfi. Lán í óláni Áður en Díana og hennar fólk gekk til náða á fimmtudagskvöldið var sími einnar af dætrunum á heimilinu settur í hleðslu og lagður á parketgólfið. Segir Díana það hafa verið lán í óláni og algjöra hunda- heppni: venjulega leggi þau símann á teppi og hefði eldur úr tækinu bor- ist í voðina hefði getað illa farið. „Í stofunni barst að vitum okkar sviðalykt og daunn, væntanlega frá sýru í rafhlöðu símans. Mér finnst annars merkilegt hvað mikil og sterk lykt getur komið úr svona agnarsmáu tæki. Íbúðin var alveg mettuð svo við opnuðum allar dyr og glugga til að hleypa þessum ósköp- um út. Höfum sjálfsagt verið hálfan annan tíma og það berfætt og á náttfötunum í þessu brasi. Náðum svo að festa blund aftur um klukkan fimm svo óneitanlega voru bæði full- orðnir og börn vansvefta þegar í vinnu og skóla kom,“ segir Díana sem segist fegin að síminn hafi ekki verið nærri sofandi fólk þegar þessi ósköp dundu á. Þá hefði getað illa farið; sviðablettir á parketi sem tryggingafélagið væntanlega bæti séu léttvægt atriði í þessu sam- hengi. Daman var döpur „Daman var döpur að tapa síman- um sínum en við kaupum nýjan um helgina,“ segir Díana og bætir við að valið verði vandað – en í gær var á netmiðlum af þessu tilefni rifjað upp að nokkrum sinnum á undanförnum árum hefði kviknað í Samsung-síma, rétt eins og umrætt tæki var. Eru ástæður þess raktar til ofhitnunar. Ljósm/Úr einkasafni Framhlið Brunablettur á skjá símans sem ekki verður notaður aftur. Bakhlið Plastið verptist og bráðnaði vegna mikils hita í tækinu. Farsíminn sprakk  Tæki í hleðslu ofhitnaði Brak og brestir  Íbúðin var reykmettuð Díana Dögg Víglundsdóttir ÚTSALA Klapparstíg 44 50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM DÖMUSKÓM Á ÚTSÖLU facebook// Fransí instagram// fransi_skoverslun gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Meiri verðlækkun! Nú50-70% afsláttur Opið 11-15 í dag Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook ÚTSALA aukaafsláttur af allri útsöluvöru Vorum að fylla á 2.000 og 3.000 kr. hengin Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 ÚTSALAN Í FULLUM GANGI GERRY WEBER - BETTY BARCLAY TAIFUN OG FL. GÆÐAFATNAÐUR 50-70% afsláttur • Kristján Davíðsson • Georg Guðna • Louisu Mattíasdóttir • Nína Tryggvadóttir • Karólínu Lárusdóttir • Þorvald Skúlason • Gerður Helgadóttir • Sæmund Valdimarsson • Og fl. Skoða allt – Upplýsingar í síma 8973357 og atlason.halli@gmail.com. Málverk listaverk/ Óska eftir að kaupa málverk/listaverk eftir þekkta Íslenska myndlistarmenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.