Morgunblaðið - 26.01.2019, Page 12
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ég hef oft fundið á eiginskinni hve mikilvægt er aðeinfalda heimiliið, dag-skrána og allt sem fylgir
því að reka heimili og eiga fjölskyldu,“
segir Gunnhildur Stella Pálmars-
dóttir IIN-heilsumarkþjálfi. Ætla má
að nú á fyrstu mánuðum nýs ár hafi
margir reynt að finna leiðir til að ein-
falda heimilislífið, skipuleggja skápa,
skúffur, dagatalið og annað eftir at-
vikum.
Nóg af óþarfa hlutum
Sjálf minnist Gunna Stella, eins
og hún kýs að kalla sig, þess að þegar
hún var ófrísk að sínu fjórða barni ár-
ið 2015 hafi hún
fengið nóg af öllu
því lausadóti og
óþarfa hlutum sem
finna mátti á heim-
ili fjölskyldunnar.
Hún hafi því bók-
staflega hringsnú-
ist í kringum sjálfa
mig.
„Við eigum
heima í stóru húsi
á tveimur hæðum og einhverra hluta
vegna var þetta hús yfirfullt af dóti,
leikföngum, húsgögnum, þvotti,
þvotti og þvotti og öllu því sem fylgir
stórri fjölskyldu. Mér fannst ég ekki
gera neitt annað við tímann minn en
vinna og laga til. Á þessum tíma hóf
ég vegferð sem ég kalla einfaldara
líf,“ segir Gunna Stella.
Daglegur tími í sjálfsræktina
Í starfi sínu sem heilsumark-
þjálfi, kennari og fyrirlesari segist
Gunna Stella hafa kynnst því vel að
fólk þráir að einfalda lífið og gera við-
fangsefni dagsins auðleystari.
„Fólk þráir að eiga meiri tíma til
að sinna áhugamálum sínum. Aldrei
fyrr hafa eins margir glímt við kvíða
og margir stefna hratt í „burnout“.
Það að taka sér tíma daglega í sjálf-
rækt og andlega uppbyggingu hjálpar
en það að heimilið sé streitulaus
griðastaður hjálpar líka.“
Streitulaus griðastaður
Skipulag til bóta! Líf nú-
tímafólks er flókið enda
hrærumst við í ringul-
reiðinni. Mikilvægt er
að sjá til lands og þar
koma aðferðir mark-
þjálfans Gunnu Stellu í
góðar þarfir og satt að
segja svínvirka!
Getty Images/Thinkstock
Fataskápurinn Allt í röð og reglu og gengið að flíkum á vísum stað.
Getty Images/Thinkstock
Kaffibollinn Ætíð hressa droparnir tíu.
Gunnhildur Stella
Pálmarsdóttir
Morgunblaðið/Ómar
Íþróttir Hlaup hreinsa og núllstilla hugann, sem er mikil sálubót. Meira þarf að fylgja svo lífið verði gott.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019
NÁNAR Á
S A L U R I N N . I S
03/02 kl. 20:00
SPÆNSKUR
LJÓÐALEIKUR
OG ÁSTAR-
LJÓÐAVALSAR
TÓNLEIKARÖÐ
2 0 1 8–2 0 1 9T Í B r Á
Fj
öl
ni
rÓ
la
fs
so
n,
H
an
na
D
ór
a
St
ur
lu
dó
tt
ir,
H
ra
fn
hi
ld
ur
Á
rn
ad
ót
tir
,H
rö
nn
Þr
ái
ns
dó
tt
ir,
M
at
th
ild
ur
A
nn
aG
ísl
ad
ót
tir
og
Þo
rs
te
in
n
Fr
ey
rS
ig
ur
ðs
so
n
fly
tja
Á
st
ar
ljó
ða
va
lsa
Br
ah
m
s
og
íS
pa
ni
sc
he
sL
ie
de
rs
pi
el
ef
tir
Sc
hu
m
an
n
flu
tt
ir.
Áfram birtast í þáttunum Ófærð sem
nú eru sýndir á RÚV leikmyndir sem
vekja eftirtekt. Meðal annars hafa
sést reisuleg kirkja og íbúðarhús og
eru þetta guðshúsið og prestsetrið
að Reynivöllum í Kjós. Í þáttunum
hafa einnig sést leiftur frá bænum
Möðruvöllum í Kjósinni. Kunnastur
staða í Ófærð er væntanlega bærinn
að Ingunnarstöðum sem er í Brynju-
dal í Kjósinni. Þar stendur hið hrör-
lega íbúðarhús sem vakið hefur at-
hygli margra.
Bær þangað sem lögreglubílar og
sérsveitarmenn hafa sést flykkjast að
í Ófærð er Fellsendi í Þingvallasveit.
Sá bær er nærri mótum Þingvalla- og
Kjósaskarðsvega, stendur í aflíðandi
brekku og blasir við á vinstri hönd
þegar ekið er úr Mosfellsdal austur á
bóginn. – Að stórum hluta er Ófærð
þó tekin á Siglufirði, sem er vinsæll
staður í bíómyndagerð.
Ófærðarþættirnir teknir upp á stöðum víða um landið
Reynivellir í Kjós sviðsmynd á sjónvarpsskjánum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kjós Fallegar byggingar setja svip á staðinn. Kirkjan er í hefðbundnum stíl
íslenskra kirkna og prestsetrið er hátt og reisulegt; kjallari, hæð og ris.
Vænst er alls um 1.200 gesta á
þorrablót Grafarvogsbúa í Reykjavík
sem haldið verður í Egilshöll í kvöld.
Miðasala hófst 15. október og þá
strax seldust 800 miðar. Því var af-
ráðið að flytja samkomuhaldið úr
íþróttahúsinu við Dalhús í Egilshöll.
Það er mun stærra hús og gefst fleir-
um kostur á að sækja samkomuna,
sem verður æ fjölmennari.
Þorrablótið er haldið af ungmenna-
félaginu Fjölni og á ári hverju er
ákveðið þema í skemmtiatriðum og
tónlist og í ár eru það lög Abba.
Listamennirnir sem koma fram í ár
eru Margrét Eir, Ingó Veðurguð,
Selma Björnsdóttir, Regína Ósk, Jó-
hanna Guðrún og Helgi Björnsson. Á
borðum verður matur frá Múlakaffi.
Víða í sveitum landsins er þorra-
blótshefðin afar sterk, svo sem á
Norðurlandi. Víða í þéttbýlinu eru
einnig haldin stór þorrablót þar má
nefna það sem er á Selfoss í kvöld –
og hefur unnið sér fastan sess í
bæjarlífinu. Í Garðabæ var þorrablót
íþróttafélagsins Stjörnunnar haldið í
gærkvöldi.
Þorrablót í
Grafarvoginum
Grafarvogur Á blóti Fjölnis í fyrra.
Í dag, laugardag kl. 13 og fram eft-
ir degi, er opið hús í gömlu rafstöð-
inni í Elliðarárdal í Reykavík. Þar
bjóða Orka náttúrunnar og Veitur
bjóða upp á skemmtun og fræðslu
um rafmagnið fyrir alla fjölskyld-
una. Það er vel þess virði að kíkja
inn í þessa fallegu rafstöð sem tekin
var í notkun árið 1921 og er í sinni
upprunalegu mynd, segir í tilkynn-
ingu. Í húsnæði Hins hússins, sem
er skammt frá virkjuninni, verður
Vísindasmiðja Háskólalestarinnar
með rafmagnstengdar tilraunir,
tæki, þrautir og óvæntar uppgötv-
anir sem allir aldurshópar hafa
gaman af. Börnum er boðið að
spreyta sig á að búa til einfalt vasa-
ljós til að taka með sér heim.
Rafstöðin í Elliðarár-
dal er til sýnis í dag
Elliðaárdalur Rafstöðin þykir fallegt hús.
1. Yfirborðið. Farðu um heimilið með þvottabala og settu
allt sem þú sérð og er ekki á réttum stað ofan í þennan
bala. Gakktu síðan frá hlutunum á rétta staði. Ef hlut-
urinn á ekki heimili þá er um að gera að gefa hann á
næsta nytjamarkað.
2. Sjálfrækt. Gerðu eitthvað sem þér finnst skemmtilegt.
Eitthvað sem gerir það að verkum að þú slakar á.
3. Baðherbergið. Losaðu þig við allt sem þú ert ekki að
nota úr baðskápunum.
4. Vikan. Skipuleggðu næstu viku. Hvað ætlarðu að hafa
í matinn? Er eitthvað sérstakt sem þú þarft að gera?
5. Ísskápurinn. Losaðu þig við óþarfa úr ísskápnum. Út-
runninn mat og svo framvegis.
6. Þakklæti. Hvað ertu þakklát/ur fyrir? Náðu í blað og
blýant og skrifaðu niður öll þau atriði sem þér dettur í
hug á tíu mínútum.
7. Fataskápurinn. Hvaða föt vekja þér jákvæðar tilfinn-
ingar? Haltu þeim og gefðu restina á nytjamarkað, þar
sem tekið er á móti fegins hendi.
8. Læra eitthvað nýtt. Svo lengi lærir sem lifir. Hvernig
væri að prófa nýja uppskrift, læra nýja setningu í tungu-
málinu sem þig langar svo að læra.
9. Inngangurinn. Taktu til í anddyrinu og þvottahúsinu.
Losaðu þig við þau útiföt og þá skó sem þið notið ekki.
10. Framtíðin. Spyrjið ykkur eftirfarandi spurninga.
Hvaða árangri vil ég ná í að einfalda lífið? Hver eru
næstu skref til þess að ná fram þessum breytingum sem
geta skipt miklu fyrir alla tilveruna?
Þakklæti, árangur tiltekt og lærdómur
SKEMMTILEG VIÐFANGSEFNI OG 10 GÓÐAR LEIÐIR AÐ EINFALDARA LÍFI