Morgunblaðið - 26.01.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 26.01.2019, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019 Vantar þig ráðleggingar við sölu eignar þinnar? s 893 6001 Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is Guðbergur Guðbergsson Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari Baldur Arnarson baldura@mbl.is Áformað er að hefja framkvæmdir við breytingar á Hólmgarði í febrúar. Byggt verður við húsið með stálgrind. Hólmgarður er hluti af verslunarsögu Reykjavíkur. Skráð byggingarár er 1957 en hann var lengi verslunarkjarni fyrir Bústaðahverfið. Þar var m.a. kjörbúð og apótek, eins og rakið er hér til hliðar. Með tilkomu stórmarkaða og stærri verslunarkjarna harðnaði samkeppnin. Áttu kjarnar eins og Hólmgarður þá undir högg að sækja. Nokkuð er síðan versl- unarrekstri var hætt en Skátasamband Reykjavíkur á hluta hússins og hefur þar aðstöðu. Við húsið er fjöldi bílastæða. Fyrirtækið Jakobssynir ehf. fer með endurgerð Hólmgarðs. Það er í eigu Ásgeirs Arnar Hlöðverssonar. Verklok áformuð með haustinu Ásgeir Örn segir að reist verði stálgrind frá Danmörku ofan á húsið. Með því bæt- ist við tvær hæðir sem verði jafn háar og miðhluti byggingarinnar er nú. Á jarðhæð verði verslun og þjónusta en íbúðir á efri hæðum. Skátarnir verði áfram með að- stöðu í húsinu. Gangi allt að óskum verði verklok með haustinu. Íbúðirnar verði að jafnaði 80 til 100 fermetrar og seldar á al- mennum markaði. Á baklóðinni séu geymslur sem verði endurbyggðar og til afnota fyrir íbúana. „Stálvirkið kemur utan um og grípur allt húsið eins og það er fyrir. Stálbitar verða festir á núverandi steypta veggi og tvær hæðir byggðar ofan á húsið. Timbur- einingar verða smíðaðar milli stálvirkisins. Núverandi steypt þakplata yfir fyrstu hæð verður styrkt. Þykkir veggir og góð steypa eru í húsinu sem verður klætt með læstri álklæðningu,“ segir Ásgeir Örn. Félag í eigu Seðlabankans eignaðist Hólmgarð árið 2012. Húsið var selt 2013 og deiliskipulag vegna viðbyggingar sam- þykkt 2013. Jakobssynir keyptu það síðar. Ásgeir byrjaði fyrir ári að kaupa út aðra eigendur að húsnæðinu. Þeir hafi verið um sjö talsins og það því tekið nokk- urn tíma. Hólmgarður í endurnýjun lífdaga  Byggt verður við gamalt verslunarhús í Bústaðahverfinu  10 íbúðir koma í sölu með haustinu Hólmgarður 34 Þakið á miðhluta gamla verslunarkjarnans hefur verið fjarlægt. Teikning/JakobssynirMorgunblaðið/Eggert Byggt við húsið Stálgrind verður reist ofan á húsið. Með því verður rúm fyrir íbúðir. Hinn 25. nóvember 1990 fjallaði Guðrún Guð- laugsdóttir, þá blaðamaður á Morgunblaðinu, um sögu Hólmgarðs í opnugrein í blaðinu. Til- efni greinarinnar var að „óvenjumikið af versl- unarhúsnæði“ væri þá til sölu eða leigu í Reykjavík. Þar á meðal Hólmgarður. Segir þar að grunnur hússins hafi verið tek- inn 1950. Áður en verslunarrekstur hófst í hús- inu hafi íbúar hins nýja Bústaðahverfis þurft að sækja mjólk og ýmsar aðrar nauðsynjar í Soga- mýrina. Ný og glæsileg nýlenduvöruverslun hafi verið opnuð í Hólmgarði, Ólabúð, sem nefnd var eftir eigandanum, Óla Hallgrímssyni. „Mjólkursamsalan setti upp stóra og myndarlega mjólkurbúð og í horninu hjá henni hafði Alþýðubrauðgerðin aðstöðu. Mogensen lyfsali kom á fót apóteki og Gunnar M. Magnús- son rithöfundur setti upp bókabúð. Ólafur Jó- hannsson seldi konunum í Bústaðahverfinu efni í föt á barnahrúguna, auk ýmiskonar ann- ars varnings. Kjötbúðina rak Sigurður Jónsson og síðast en ekki síst seldi Steingrímur „Skátarnir voru með eitt herbergi á annarri hæðinni í miðskipinu og allt risið. Bókasafnið var með aðra hæðina fyrir utan þetta eina her- bergi skátanna, þar sem Jón Björnsson rithöf- undur réði ríkjum. Á jarðhæð voru vefnaðar- vöruverslun og bókabúð. Fiskbúðin var í vesturendanum,“ segir Ásgrímur. Steingrímur fisksali hafi haft frumkvæði að því að reisa geymslurnar á baklóðinni og síðar boðið versl- unareigendum að fá aðstöðu í Grímsbæ. Óli í Ólabúð hafi þá verið að hætta rekstri vegna aldurs. Steingrímur hafi leyft börnunum að taka sundur dagblöð til að auðvelda honum að pakka fiskinum. Hann hafi verið góður og natinn við börnin. Gegnt Hólmgarði hafi verið Hreyfilsstaur en þar biðu bílstjórar Hreyfils eftir símtölum. „Það var meiriháttar fyrir krakkana að hafa bókasafnið. Krakkarnir biðu eftir því að safnið yrði opnað til að ná í jólabækurnar. Það mynd- aðist skiptibókamarkaður. Ef maður náði í flotta bók gat maður fengið aðra góða.“ [Bjarnason] fisksali fisk,“ skrifaði Guðrún um fyrstu árin. Hún rakti hnignun Hólmgarðs 34 til þess að Steingrímur Bjarnason fisksali fékk leyfi til að reisa nýtt verslunarhús neðan við Bústaðaveg, sem fékk nafnið Grímsbær. „Tún og gamlir sumarbústaðir hurfu undir þessa byggð og strákarnir í Bústaðahverfinu urðu að leita á nýjar slóðir í leikjum sínum,“ skrifaði hún. Ásgrímur Guðmundsson jarðfræðingur ólst upp í Hólmgarði. Hann neitar því ekki að því fylgi fortíðarþrá að rifja upp sögu verslunar- kjarnans. Hólmgarður hafi verið stór versl- unarkjarni á sínum tíma og félagsmiðstöð fyrir hverfið. Það hafi sparað húsfreyjum sporin og hlaupabörnum þeirra að hafa búðirnar nærri. Mjólkurbúðin hafi selt mjólk á flöskum og í lausu á brúsa þar til hyrnurnar tóku við. Búðin Kjöt og ávextir hafi jafnan verið kölluð Kjötbúðin. Mogens A. Mogensen lyfsali hafi opnað Garðsapótek sem nú er á horni Soga- vegar og Réttarholtsvegar. Var lengi vel helsta verslunarhús Bústaðahverfis HÓLMGARÐUR STYTTI ÍBÚUNUM SPORIN Morgunblaðið/Úr safni Hólmgarður fyrstu árin Síðar var þar m.a. rakarastofa, innrömmunarstofa, hárgreiðslustofa, bókaútgáfan Skjaldborg, efnalaug og verkstæði fyrir píanóstillingar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.