Morgunblaðið - 26.01.2019, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019
Storkaskæri
3.960 kr.
NÝ SENDING AF SPÆNSKU
EÐALSTÁLI
Þynningarskæri
6.480 kr.
Hárskæri
4.890 kr.
Sax 16 cm
4.880 kr.
Brauðhnífur 20 cm
3.390 kr.
Kokkahnífur 10 - 25cm
1.995 - 4.310 kr.
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Keramik hnífur
3.980 kr.
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-
16
Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár
Rifjárn
1.980 kr.
Ahliðahnífur 25 cm
4.510 kr.
Steikarhnífur
1.495 kr.
Rioja hnífur
8.760 kr.
Hnífasegull
30 - 60cm
2.090 - 2.980 kr.
Gaffall
2.760 kr.
Rafmagnsbrýni
13.980 kr.
Santoku Hnífur
4.940 kr.
Takkaskæri
5.980 kr.
Bróderskæri
2.410 kr.
Klæðskeraskæri
Stærðir 8“-12“
5.890 - 9.590 kr.
Leður póleringar
brýnni
8.980 kr.
Rakbursti
980 kr.
Stál
4.980 kr.
Tappatogari
þjóna
1.120 kr.Tappatogari
975 kr.
Steinbrýni
7.980 kr.
Hnífabrýni
2.875 kr.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mb.is
Tyrkneska skipasmíðastöðin Sanmar
Shipyard Istanbul hefur sent kæru-
nefnd útboðsmála erindi og krafist
ógildingar á útboði Faxaflóahafna sf.
á nýjum dráttarbáti eða álits á bótum.
Faxaflóahafnir hafa frest til 8. febr-
úar til að svara.
Sem kunnugt er samþykkti stjórn
Faxaflóahafna að ganga til samninga
við hollensku skipasmíðastöðina
Damen Shipyards um að smíða bát-
inn. Smíðinni mun því seinka um þann
tíma sem tekur að fá niðurstöðu í
þetta kærumál.
Að sögn Gísla Gíslasonar, hafnar-
stjóra Faxaflóahafna, er forsenda
kærunnar sú að Sanmar Shipyard er
ósátt við ákvæði útboðsgagna um mat
á gæðum, en tilgreint var að verð gilti
50% og gæði 50%. Á útboðstímanum
og við opnun komu engar athuga-
semdir við gögnin, að sögn Gísla. Til-
kynning um niðurstöðu útboðsins
hafði verið send öllum bjóðendum 2.
janúar. Þá tók við ákveðinn frestur
samkvæmt lögum sem snýr að því að
bjóðandi getur gert kröfu um að
stöðva samningsgerð en sá frestur
rann út án kæru. Hins vegar er al-
mennur kærufrestur samkvæmt 106.
grein laga um opinber útboð 20 dagar
og sl. mánudag, 21. janúar, barst síð-
an kæran.
Niðurstaða ráðgjafa Faxaflóahafna
á gæðamati var borin undir alþjóð-
lega flokkunarfyrirtækið Lloyd’s sem
staðfesti mat ráðgjafanna. Allir bátar
Faxaflóahafna eru skráðir hjá
Lloyds, sem tryggir ákveðin gæði og
eftirlit, að sögn Gísla.
Útboðið var auglýst í september
sl. Beðið var um tilboð í dráttarbát
sem væri 32-35 metra langur og með
80 tonna togkraft áfram og aftur á
bak. Báturinn skyldi afhentur Faxa-
flóahöfnum á þriðja ársfjórðungi
2020. Áætlað var að bátur með 80
tonna dráttargetu myndi kosta á
bilinu 7,5-8,0 milljónir evra, eða ná-
lægt 1.000 milljónum.
Átta skipasmíðastöðvar gerðu til-
boð í smíðina, en þau voru opnuð 21.
nóvember. Tilboðin voru frá Kína (3
tilboð frá 3 aðilum), Tyrklandi (9 til-
boð frá 4 aðilum), Hollandi (1 tilboð)
og Spáni (2 tilboð frá 1 aðila).
Lægsta tilboðið var frá Med Marine
Holding í Tyrklandi, 5.970.000 evrur,
jafnvirði 818 milljóna íslenskra
króna á núverandi gengi.
Stjórn Faxaflóahafna samþykkti á
fundi 11. janúar sl. að heimila Gísla
Gíslasyni hafnarstjóra að ganga frá
smíðasamningi á nýjum dráttar-
báti samkvæmt tilboði Damen
Shipyards í Hollandi. Tilboðið
hljóðaði upp á 7.594.00 evrur,
eða jafnvirði tæplega 1.040
milljóna íslenskra króna. Tilboð
Sanmar Shipyard Istanbul
hljóðaði upp á
7.095.000 evrur
eða jafnvirði 972
milljóna. Það var
hið þriðja
lægsta.
Tyrkir kæra útboð á dráttarbáti
Skipasmíðastöðin Sanmar hefur kært útboð Faxaflóahafna sf Ósátt við ákvæði útboðsgagna um
mat á gæðum Búið var að samþykkja tilboð frá hollenskri stöð í smíðina Smíði bátsins mun seinka
Tölvumynd/Damen
Nýr dráttarbátur Svona getur nýr dráttarbátur mögulega litið út. Þetta er tilgátumynd og útlitið getur breyst.
Mikil þörf er talin á stærri
dráttarbáti en nú er í þjónustu
hafnanna við Faxaflóa, m.a.
vegna þess að skemmti-
ferðaskip sem hingað koma
verða sífellt stærri.
Í fyrra kom til Reykjavíkur
risaskip, MSC Meraviglia,
167.600 brúttótonn. Það kemur
aftur hingað í sumar og auk
þess mörg skip sem eru stærri
en 100 þúsund tonn.
Þá eru ný skip Eimskips, sem
verið er að smíða í Kína, u.þ.b.
76% stærri í brúttótonnum en
stærstu gámaskip sem nú sigla
til Íslands.
Faxaflóahafnir sf. eru með í
þjónustu sinni fjóra dráttar-
og hafnsögubáta með
samtals 87 tonna tog-
kraft. Magni er stærstur,
tæplega 23 metra langur
og með 40 tonna togkraft.
Hann kom í þjónustu hafn-
anna árið 2006. Síðan
þá hafa orðið
miklar framfarir
í smíði dráttar-
báta.
Mikil þörf á
stærri báti
FAXAFLÓAHAFNIR
Gísli
Gíslason