Morgunblaðið - 26.01.2019, Page 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2019
Reykjavíkurborg auglýsir hér með eftir óprentuðu handriti að ljóðabók, frumsömdu á íslensku, til að keppa um
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar sem verða til úthlutunar á síðari hluta árs 2019.
Verðlaun að upphæð 800.000 krónur verða veitt fyrir eitt handrit. Þriggja manna dómnefnd metur verkin.
Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður að starfa með.
Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að
gera verði til verðlaunaverka má fella verðlaunin niður þetta árið. Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf
að skila merktum dulnefni, en nafn, heimilisfang og símanúmer höfundar fylgi með í lokuðu umslagi.
Handrit berist í síðasta lagi mánudaginn 3. júní 2019.
Utanáskrift:
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
b.t. Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO
Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík
Haukur Ingvarsson hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2018. Aðrir sem áttu handrit í keppninni
eru beðnir að vitja þeirra á skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar sem fyrst eða fyrir
15. febrúar 2019. Gefa þarf upp dulnefni. Aðeins var opnað umslag með nafni verðlaunahafa.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Í dag eru 87 dagar síðan Anne-Elisa-
beth Hagen var rænt af heimili sínu í
Lørenskog, úthverfi Óslóar í Noregi.
Mannræningjarnir krefjast þess að
Tom Hagen, eiginmaður hennar,
greiði 85,9 milljónir norskra króna,
sem svarar til 1,2 milljarða íslenskra
króna, í lausnargjald.
Norska lögreglan segir staðfest að
Hagen hafi verið á lífi kl. 9.14 31. októ-
ber, daginn sem henni var rænt, en
ekkert hefur spurst til hennar síðan.
Yfirmaður rannsóknardeildar austur-
umdæmis norsku lögreglunnar,
Tommy Brøske, segir í samtali við
blaðið Aftenposten að samskiptaforrit-
ið sem mannræningjarnir hafi notað
bjóði ekki upp á möguleika á því að
senda sannanir um að Hagen sé á lífi
og erfitt sé að greina þau samskipti
sem hafi verið við ræningjana.
Í samskiptum við ræningjana
Fjölskyldunni barst í síðustu viku
boð frá þeim sem segjast vera með
Hagen í haldi. Svein Holden, lögmaður
Hagen-fjölskyldunnar, greindi frá
þessu á fundi með fjölmiðlum í vikunni.
Hann segir fyrirspurn hafa borist frá
hinum meintu ræningjum 16. janúar.
„Við höfum skoðað þessi boð vand-
lega með lögreglu og urðum sammála
um að það væri rétt að greina fjölmiðl-
um frá þessu,“ sagði Holden. Skila-
boðin bárust á sama stafræna hátt og
fyrri skilaboð sem fjölskyldan hefur
fengið.
„Skilaboðin sem við fengum voru
ekki sönnun þess að hún væri á lífi, eða
að sendandinn væri með Anne Elisa-
beth Hagen í haldi í dag. Við lítum þó
svo á að þetta sé jákvætt merki þess að
hún sé enn á lífi,“ sagði Holden, sem
ekki vildi tjá sig nánar um innihald
sendingarinnar.
Sagði Holden fjölskylduna leyfa sér
að vera bjartsýna að fá Hagen aftur,
en fyrst yrði að koma á samskiptum
við ræningjana. „Tilgangur fjölmiðla-
fundarins í dag [fyrradag] er að kom-
ast í samband við ræningjana.“
Anne-Elisabeth Falkevik Hagen er
68 ára gömul og giftist fjárfestinum
Tom Hagen þegar hún var 19 ára. Þau
eiga þrjú börn og nokkur barnabörn.
Tom Hagen er á lista Kapital-tímarits-
ins yfir 200 auðugustu menn Noregs.
Engar sannanir um að Hagen sé lífs
Anne-Elisabeth Hagen hefur verið saknað í 87 daga Mannræningjarnir sendu skilaboð í sl. viku
AFP
Leitað Kafarar hafa leitað að Hagen í vatni nálægt heimili þeirra hjóna.
Staðgengill utanríkisráðherra, George Katrougalos,
flytur ræðu á þéttsetnu þingi Grikkja í Aþenu í gær þar
sem rætt var um samkomulag sem Grikkland gerði við
Makedóníu um að nafn síðarnefnda ríkisins yrði Lýð-
veldið Norður-Makedónía. Þingið samþykkti sam-
komulagið með 153 atkvæðum gegn 146. Deilt hefur
verið um nafn Makedóníu í nærri þrjá áratugi, en hérað
í norðurhluta Grikklands ber sama nafn.
AFP
Umdeild nafnbreyting samþykkt
Donald Trump Bandaríkjaforseti til-
kynnti í gær að náðst hefði sam-
komulag milli flokkanna á Banda-
ríkjaþingi sem myndi gera banda-
rískum ríkisstofnunum kleift að
starfa á nýjan leik, en þær höfðu þá
verið lokaðar í 35 daga.
Samkomulag flokkanna tryggir
þeim ríkisstofnunum sem lokuðust
fjármagn fram til 15. febrúar, auk
þess sem þeir 800.000 ríkisstarfs-
menn sem höfðu ekki fengið greidd
laun muni fá þau fyrir þann tíma sem
lokunin stóð.
Ekkert er hins vegar minnst á
fjármögnun „landamæramúrsins“ í
samkomulaginu, en forsetinn hefur
viljað fá 5,7 milljarða Bandaríkjadala
fjárveitingu til þess að reisa stálgirð-
ingar eða múr meðfram landamær-
um Bandaríkjanna og Mexíkó.
Demókratar, sem nú fara með völd í
fulltrúadeild þingsins, hafa ekki vilj-
að ljá máls á að svo hárri upphæð
verði varið til aukinnar landamæra-
vörslu.
Varaði Trump við því í ræðu sinni,
sem haldin var í rósagarði Hvíta
hússins, að ef ekki næðist samkomu-
lag um fjármögnun múrsins fyrir 15.
febrúar myndi hann annaðhvort láta
loka ríkisstofnununum aftur eða lýsa
yfir neyðarástandi á landamærun-
um. Slík yfirlýsing myndi mögulega
gera forsetanum kleift að nýta fjár-
magn sem heitið hefur verið til
varnarmála í byggingu múrsins, en
demókratar hafa hótað að þeir
myndu reyna að fá slíkri yfirlýsingu
hnekkt fyrir dómi. sgs@mbl.is
Ríkisstofnanir
opnaðar að nýju
Enn ekkert samkomulag um múrinn
AFP
Trump Forsetinn kynnti sam-
komulag flokkanna í gær.
Roger Stone, fyrrverandi kosninga-
stjóri og ráðgjafi Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta, var handtekinn í
Flórída í gær að beiðni Roberts
Muellers, sérstaks saksóknara.
Stone, sem var einn af nánustu
ráðgjöfum Trumps um tíma, var
birt ákæra í sjö liðum, meðal ann-
ars fyrir að gefa út fjölda ósannra
yfirlýsinga um samskipti sín við
Wikileaks. Í ákærunni segir að
hann hafi verið í bæði tölvupóst- og
smáskilaboðasamskiptum við Wiki-
leaks um tölvupósta Demókrata-
flokksins. Stone er einnig ákærður
fyrir að hindra framgang réttvís-
innar og fyrir að reyna að hafa
áhrif á framburð vitna. Hann lýsti
því yfir í gær, að hann væri saklaus
og að ákæran væri gefin út af póli-
tískum hvötum. Hann lýsti einnig
stuðningi við Trump.
Ákærurnar tengjast allar rann-
sókn Muellers á meintum afskipt-
um Rússa af forsetakosningunum í
Bandaríkjunum 2016. Stone mun
koma fyrir rétt í Fort Lauderdale í
Flórída.
AFP
Handtekinn Fyrrverandi ráðgjafi Trumps mætir fyrir dóm á næstunni.
Ráðgjafi Trumps
handtekinn í Flórída