Morgunblaðið - 26.01.2019, Page 30

Morgunblaðið - 26.01.2019, Page 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019 Nýtt ár er upp runnið með nýjum væntingum, nýjum áskorunum. Ekki vantar okkur viljann til að gera enn betur, sagði góður bindindismaður á dög- unum, en bætti svo við, en hvað skal gera, hvar skal verjast, hvar ef mögulegt er skal sækja fram, ná ár- angri í stöðugri baráttu við áfengis- árann sem er með fullar hendur fjár og alltaf tilbúinn til illra verka? Þessi vinur minn tekur alltaf sterkt til orða og sparar ekki orðfærið þegar um óvini mannanna er að ræða. Og sannarlega er þessi ári óvinur manna, hver sem gengur honum á vald á erfitt með að losa fantatökin. Og þetta innskot hans um fullar hendur fjár er bæði dag- satt og þarft um leið. Það er stund- um eins og þeir sem dá og dýrka þennan bölvald geri sér ekki grein fyrir hverjum eða hverju þeir eru að þjóna eða eigum við að segja látast ekki gera það, allt í skjóli þess að áfengi sé skaðlítið eða skaðlaust ef menn kunna með það að fara og svo er bætt við að það gjöri velflestir. Einhver sannleikur kann að leynast í því, en þá spyr ég: Hvað þá um hina? Þarf kannski ekkert að hugsa um þá af þessu rauðvínssullandi liði, svo ég noti nú ekki hans sterku orð um þetta fólk? Og þá er komið að meginmálinu. Þetta lið sem hefur sloppið þolanlega þrátt fyrir allt og má ekki til þess hugsa að skellt sé skuldinni á þennan einkavin þess sem áfengið er. Þetta fólk þarf ekki eða vill ekki hlusta á yfirlækninn á Vogi um aðsóknina þar, oftast af dauðveiku fólki, oft af fólki sem glatað hefur lífsgæfunni á altari þessa hjáguðs svo margra. Það þarf eða vill ekki hlusta á það hversu eldra fólk á alltof margt í glímu við þessa nautn, fólk sem af einhverjum ástæðum heldur það að huggun sé í því að fá sér í glas, nær væri að segja glös, en missir svo tökin og fleiri sjúkdómavaldar ná á þeim heljartökum og eyðileggja elliárin. Þetta er jafnvel fólk sem áður var oft algert reglufólk og einhverjir sérfræðingar segja ein- manaleik ellinnar eiga hér stærstan hlut og kann að vera að fólk sé hreinlega að fara úr öskunni í eldinn. Og svo þarf að huga að æskunni, umvefja hana sem bezt af kærleika, en einurð og vara hana við þeim hættum sem beðið geta. Ég heyrði um daginn þessa setn- ingu: Ekki hræða heldur fræða. Ekki veit ég hvernig fræðsla um skaðsemi áfengis fer fram án þess að benda á hætturnar sem vissulega hræða og aldrei nógsamlega gerð grein fyrir því sem til ófarnaðar eða jafnvel ógæfu leiðir af neyzlu þessa vímugjafa. Einmitt sumir þeirra sem mest tala um að neyta áfengis í hófi og geta það kannski, kannski ekki, lenda líka í ógöngum og ef allt gengur upp hjá þeim blessunarlega þá mega þeir heldur ekki tala af slíku alvöruleysi sem oft er um áfengið eins og hætturnar séu ekki til. Það er nefnilega skylda okkar allra að huga að þeim sem lúta þarna í lægra haldi eða eru við hættumörk þess. Þar liggur meira að segja stundum líf við og er það ekki fullgild ástæða til fullrar aðvör- unar. Látum nýbyrjað ár verða sóknarár í áfengismálum, þar sem allir vímugjafar verða undir í þeirri sókn til heilbrigðara lífs allra, alltaf. Sóknarár til heilbrigðara lífs Eftir Helga Seljan Helgi Seljan » Það er skylda okkar allra að huga að þeim sem lúta þarna í lægra haldi eða eru við hættumörk þess. Höfundur er formaður fjölmiðla- nefndar IOGT. Það er fagnaðarefni að í fyrirliggjandi til- lögu til þingsályktunar um samgönguáætlun til 2033 er m.a. að finna markmið um greiðar og öruggar samgöngur. Vonandi haldast þessi markmið óbreytt í með- förum alþingis. Umsögn Verkfræð- ingafélags Íslands Tilefni greinaskrifanna er umsögn Verkfræðingafélags Íslands, VFÍ, um umhverfismat samgönguáætlunar 2019-2033, send til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í bréfi, dags. 23. ágúst 2018 og undirritað af formanni VFÍ. Í umsögninni er lagt til að markmiðið um greiðar sam- göngur verði fellt út og í stað þess komi markmið um hreyfanleika og aðgengi (e. mobility). Ég er algjör- lega ósammála því að fella út mark- miðið um greiðar samgöngur. Greið- ar samgöngur spara tíma og fé ein- staklinga jafnt sem fyrirtækja, stuðla að bættum þjóðarhag og auka sam- keppnishæfni landsins. Ég geri mér grein fyrir því að í þéttbýli kunna önnur markmið að vega þyngra en al- mennt gildir fyrir landið. Í því sam- bandi má benda á, að í samgöngu- áætlun eru líka önnur markmið, t.d. um öryggi og jákvæða byggðaþróun, sem taka þarf tillit til. Af þessu leiðir að útfærsla í hönnun þjóðvega er öðruvísi í þéttbýli en dreifbýli og há- marksökuhraði er gjarnan lægri í þéttbýli. Það er því alger óþarfi að fella út almennt markmið um greiðar samgöngur á þjóðvegum landsins. Skýrsla verkefnahóps samgönguráðherra og SSH Á grundvelli viljayfirlýsingar milli samgönguráðherra og sveitarfélag- anna á höfuðborgarsvæðinu frá því í september sl. var settur á laggirnar verkefnahópur til að vinna að breyt- ingum á tillögu að samgönguáætlun 2019-2033. Verkefnahópurinn skilaði skýrslu, dags. 19. nóvember sl., með tillögum til ráðherra. Í skýrslunni er lögð áhersla á öruggt og gott flæði bílaumferðar á mikilvægustu þjóðveg- um á svæðinu. Jafn- framt verði tekið frá rými fyrir nýjar út- færslur á Sundabraut og Ofanbyggðavegi. Eftirfarandi er bein til- vitnun í skýrsluna: „Meginstofnvegur liggur norður suður í gegnum svæðið. Við þennan stofnveg er aðal inn- og út- flutningshöfn landsins og aðal inn- og útflutningsflugvöllur landsins. Sá meginstofnvegur samanstendur af Reykjanesbraut frá Sundahöfn og suður úr og Vesturlandsvegi frá Reykjanesbraut og norður úr. Þriðja megintenging höfuðborgarsvæðisins við aðliggjandi svæði, Suðurlands- vegur frá Vesturlandsvegi og austur úr, er einnig í fyrsta flokki meginstofnvega. Á þessum meg- instofnvegum verður umfram aðra meginstofnvegi og stofngötur hugað sérstaklega að greiðu og öruggu flæði einka- og þungaumferðar.“ Rétt er að vekja athygli á því að þarna er ekki rætt um Sundabraut sem meginstofnveg, enda liggur ekki enn þá fyrir samkomulag milli ríkis- valdsins og Reykjavíkurborgar um brautina. Þegar Sundabraut kemur, þá má telja fullvíst að hún verði flokk- uð sem meginstofnvegur. Brautin verður mikil samgöngubót sem leiðir til fækkunar slysa og styttir umtals- vert akstursvegalengdir. Síðast en ekki síst er Sundabraut mikilvæg fyr- ir almannavarnir á höfuðborgarsvæð- inu. Mislæg gatnamót á meginstofnvegum Ég tel nokkuð víst að bæði Vega- gerðin og flest sveitarfélög á höfuð- borgarsvæðinu (ef ekki öll nema Reykjavíkurborg) séu hlynnt mis- lægum gatnamótum á meginstofn- vegum. Líklegast hefur Reykjavíkur- borg haft þau áhrif að í ofangreindri tilvitnun er ekki sagt beint að öll gatnamót á fyrsta flokks meginstofn- vegum á höfuðborgarsvæðinu skuli vera mislæg. Andstaða meirihluta borgarstjórnar við mislæg gatnamót er öllum kunn, sbr. deiluna um mis- læg gatnamót á Reykjanesbraut við Bústaðaveg. Borgarstjórnarmeiri- hlutinn virðist loksins hafa gefið sig varðandi þessi gatnamót, enda vart stætt á öðru. Hins vegar fréttist ný- lega um ágreining varðandi væntan- leg gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Vegagerðin og Kópavogsbær vilja mislæg gatnamót en Reykjavíkurborg er á móti. Þarna munu mætast tveir stofnvegir, þ.e. Breiðholtsbraut og Arnarnesvegur, auk þess sem landslagið býður upp á mislæg gatnamót. Gatnamótin eru í lögsögu Reykjavíkur, og núverandi meirihluti borgarstjórnar getur því miður nýtt sér það að borgin fer með skipulagsvaldið. Reiknað hefur verið út að árlegur kostnaður við umferðarslys á Íslandi sé um 50 milljarðar. Meira en helm- ingur slysanna á sér stað á suðvestur- horni landsins, þar sem umferðin er mest. Til skamms tíma var fjöldi dauðaslysa á hverja 100.000 íbúa á Ís- landi með því lægsta í heiminum, en á síðustu árum höfum við dregist aftur úr. Það er ánægjulegt að bæði núver- andi og fyrrverandi samgönguráð- herra eru að beita sér fyrir átaki í fækkun umferðarslysa. Sveitar- félögin á höfuðborgarsvæðinu verða líka að leggja hönd á plóginn. Sam- staða um að öll gatnamót á megin- stofnvegum á svæðinu verði mislæg myndi verða stórt skref í rétta átt. Mikilvægi greiðra og öruggra samgangna á þjóðvegum Eftir Þórarin Hjaltason » Greiðar samgöngur spara tíma og fé einstaklinga jafnt sem fyrirtækja, stuðla að bættum þjóðarhag og auka samkeppnis- hæfni landsins. Þórarinn Hjaltason Höfundur er umferðarverkfræðingur og MBA. thjaltason@gmail.com Árskógar 6, íbúð 12-02 - 109 Reykjavík 874,7 m2 Hótel við Krók í Ölfusi. Eignin er skráð, herbergisálma 580,1 m2 með 21 gistiherbergi og þjónustuhús 294,6 m2 matsal, snyrtingar og vinnurými. Hjallakrókur 62,9 m2 sumarhús við Hjallakrók í Ölfusi. Óskað er eftir kauptilboði í eignina. Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali Þverholti 2 // Mosfellsbæ // Sími 586 8080 fastmos.is // fastmos@fastmos.is Sigurður Gunnarsson Löggiltur fasteignasali S. 899 1987 Ingimar Óskar Másson Löggiltur fasteignasali S. 612 2277 Krókur, Hótel Hlíð - 816 Ölfus Op ið hú s 108,7 m 2, íbúð á 12. hæð með frábæru útsýni, ásamt bílastæði í bílakjallara, í lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri. Íbúðin skiptist í þrjár stofur, forstofuhol, baðherbergi/þvottahús, svefnherbergi, eldhús og sér geymslu í kjallara. V. 56,9 m. Opið hús sunnudaginn 27. janúar frá kl. 14:00 til 14:30 Elías Haraldsson löggiltur fasteignasali Erlendur Davíðsson löggiltur fasteignasali Laufásvegur 50 OPIÐ HÚS í dag, laugardag, kl 14.00-14.30 Mjög fallegt og virðulegt 140,7 fermetra eldra stein- hús (kjallari, hæð og ris) ásamt 32,2 fermetra bílskúr, byggt 1926 sem stendur við eina af eftirsóttustu götu miðbæjarins. Vel byggt hús sem býður upp á mikla möguleika en þarfnast endurnýjunar. Sér íbúð í kjallara. Laust við undirritun kaupsamning. OPIÐ HÚS ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.